Morgunblaðið - 12.01.2001, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Ör-
yrkjabandalags Íslands fundaði í
gær með talsmönnum aldraðra og
fulltrúum nokkurra af helstu laun-
þegasamtökum í landinu um við-
brögð ríkisstjórnarinnar við dómi
Hæstaréttar og boðað frumvarp
hennar í málefnum öryrkja. Í sam-
tali við Garðar Sverrisson, formann
Öryrkjabandalagsins, að fundinum
loknum kom fram að bandalagið og
einstakir öryrkjar munu ekki aðhaf-
ast frekar fyrr en málið hefur verið
tekið til umræðu á Alþingi á mánu-
dag. Sömu sögu er að segja um af-
stöðu talsmanna launþega og aldr-
aðra.
Hópurinn ætlar að hittast að
nýju næstkomandi þriðjudag.
Á fundinum var stuðningi lýst við
baráttu öryrkja. Talsmenn samtak-
anna gagnrýndu ríkisstjórnina, er
Morgunblaðið ræddi við þá að fundi
loknum. Benedikt Davíðsson, for-
maður Landssambands eldri borg-
ara, segist ekki skilja íslenskt mál
ef dómur Hæstaréttar hafi ekki
verið að segja að hið sama eigi við
um alla, öryrkja sem aldraða, að
ekki megi tengja trygginga-
greiðslur til þeirra við tekjur ann-
ars einstaklings.
„Við munum láta á það reyna
hvort þetta eigi ekki jafnt við um
okkar fólk og öryrkjana, og þá í
fullum mæli eins og Hæstiréttur
mælti fyrir um en ekki eins og
þessi starfshópur ríkisstjórnarinnar
lagði til og ríkisstjórnin gerði að
sinni tillögu,“ segir Benedikt.
Aðspurður um aðgerðir segir
Halldór Björnsson, starfandi forseti
ASÍ, að á fundinum í gær hafi kom-
ið fram að nauðsynlegt sé að rifja
upp til hvers almannatryggingar
séu. „Eru þessar tryggingar ekki
fyrst og fremst fyrir þá sem standa
höllum fæti í lífinu og lenda í ein-
hverjum áföllum? Til þess voru þær
upphaflega stofnaðar og í raun ætti
enginn að hafa leyfi til að fikta við
þann grundvöll, jafnvel þótt breyt-
ingar verði gerðar í tímanna rás.
Fólk á nógu bágt fyrir þótt ekki sé
verið að gera því þetta,“ segir Hall-
dór.
Forsvarsmenn aldraðra og launþegasamtaka funduðu með ÖBÍ
Beðið eftir um-
ræðum á Alþingi
Stuðningi lýst/ 11
TVÆR íslenskar bíómyndir, 101
Reykjavík og Englar alheimsins,
verða sýndar á Sundance-hátíðinni í
Bandaríkjunum síðar í mánuðinum,
en á hátíðinni verða aðeins sýndar
þrjár norrænar myndir.
Sundance er helsta hátíð óháðrar
bandarískrar kvikmyndagerðar, þar
sem jafnframt er sýnt úrval erlendra
mynda. Að þessu sinni taka alls 26
erlendar myndir þátt í hátíðinni. Að
sögn Þorfinns Ómarssonar, fram-
kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs,
staðfestir þessi árangur enn að „okk-
ar myndir eru að ná í gegn“.
Íslenskar
myndir á
Sundance
Tvær íslenskar/C1
VIÐRÆÐUR hafa staðið yfir að
undanförnu milli sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu um hugsanlegt
samstarf eða jafnvel sameiningu al-
menningssamgangna. Það myndi
m.a. felast í sameiningu Strætis-
vagna Reykjavíkur (SVR) og Al-
menningsvagna BS (AV).
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri staðfesti þetta við Morgun-
blaðið í gær, en sagði málin aðeins á
viðræðustigi enn sem komið er. „Það
er alveg ljóst að almenningssam-
göngur á höfuðborgarsvæðinu hafa
átt mjög undir högg að sækja und-
anfarin ár. Samkeppnin við einkabíl-
inn hefur verið mjög hörð,“ sagði
hún. Að sögn Ingibjargar hefur ein-
ing og gott samstarf í kringum sam-
einingu Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins hvatt sveitarfélögin áfram
í þessum efnum, enda bendi margt
til þess að hagræðing geti falist í
samvinnu á þessum sviðum.
„Það verður þó að vera á hreinu að
fyrir Reykvíkinga má þetta ekki
þýða aukinn kostnað við þennan
málaflokk. Í borginni er þéttleiki
byggðarinnar mestur og mestur far-
þegafjöldi. Innan borgarmarkanna
er því hagstæðara að reka strætis-
vagnakerfi en annars staðar og líta
verður til þess,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er litið til þess að sameig-
inlegt fyrirtæki sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu um slíkar sam-
göngur yrði með samvinnufélags-
formi, en ekki byggðasamlag eins og
er nú í tilviki Almenningsvagna.
Hvað hagræði varðar er einkum
litið til möguleika á samræmingu
gjaldskrár og leiðakerfis auk fleiri
þátta. Gert er ráð fyrir að niðurstaða
úr viðræðum sveitarfélaganna í
þessum efnum liggi fyrir á næstu
dögum eða vikum.
Viðræður um sameiningu
SVR og Almenningsvagna
HAGRÆÐING vegna nýrrar stefnu
í tryggingamálum Reykjavíkurborg-
ar og útboð á vátryggingum borg-
arinnar í kjölfarið hefur leitt til þess
að gert er ráð fyrir að 411 milljónum
kr. minna verði greitt vegna iðgalda
trygginga á árunum 1999–2003 en
næstu fimm ár þar á undan. Gert er
ráð fyrir að heildarkostnaður vegna
vátrygginga borgarinnar, stofnana
hennar og undirfyrirtækja, verði alls
um 555 milljónir á sama tímabili, en
samsvarandi upphæð fyrir árin
1993–1997 eru 930 milljónir kr.
Á fimm ára tímabili urðu um 2.000
stór og smá tjón hjá Reykjavíkur-
borg, eða um 400 á ári hverju. Af
þeim voru um 35% vegna sk. frjálsr-
ar ábyrgðartryggingar, t.d. vegna
lausafjármuna. Í flestum tilfellum
gilti flöt sjálfsábyrgð og voru iðgjöld
af þessum tryggingum fremur há
þótt tjónsupphæðir hafi ekki verið
það, eða um 60 af hundraði undir 100
þúsund kr.
Iðgjöld
stórlækka
Greiðslur iðgjalda/36–37
Reykjavíkurborg
GENGI hlutabréfa í deCODE, móð-
urfélagi Íslenskrar erfðagreiningar,
hækkaði um 1,3125 dollara á hlut,
eða 16,9%, á Nasdaq-markaðinum í
New York í gær.
Gengi bréfanna er nú 9,0625 doll-
arar á hlut en í gær var lokagengi
bréfanna 7,75 dollarar.
deCODE hækk-
aði um 16,9%
HVERT sæti var skipað og margir
stóðu meðfram veggjum á borg-
arafundi sem haldinn var í félags-
heimilinu Stapa í gærkvöldi. Fund-
urinn samþykkti ályktun þar sem
skorað var á stjórnvöld að taka
tvöföldun Reykjanesbrautar fyrir
við endurskoðun vegaáætlunar.
Framkvæmdum verði flýtt og lok-
ið við tvöföldun brautarinnar árið
2004. Fundurinn lagði áherslu á að
leitað yrði leiða til að fjármagna
verkið utan vegaáætlunar. Á fund-
inum kom fram vilji þingmanna til
að flýta framkvæmdum við tvö-
földun Reykjanesbrautar, eftir því
sem kostur væri. Jafnframt því
var lögð áhersla á bætta umferð-
armenningu.
Fjöldafundur
vill flýta tvö-
földun Reykja-
nesbrautar
Skorað á/6
Morgunblaðið/Þorkell
Mikill fjöldi fólks sótti borgarafund um tvöföldun Reykjanesbrautar í Stapa í Reykjanesbæ í gærkvöldi.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦