Morgunblaðið - 27.03.2001, Page 2

Morgunblaðið - 27.03.2001, Page 2
Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isVið áttum annað skilið en tap / B 2–5 Haukar fóru illa með færin /B 8–9 16 SÍÐUR48 SÍÐUR Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ BJÖRGVIN Schram, fyrrverandi stórkaup- maður, lést í Reykjavík 24. mars síðastliðinn. Hann var fæddur 3. október 1912. Björgvin tók próf frá Verslunarskóla Íslands og stundaði jafnframt verslunarnám um eins árs skeið í Englandi. Hann hóf störf hjá Heildverslun Magnúsar Kjaran strax eftir að hann kom heim frá námi. Árið 1952 stofnaði hann eigin heildverslun, Heildverslun Björgvins Schram, sem hann rak fram á níunda áratug- inn eða í rúm 30 ár. Björgvin stundaði knattspyrnu á sínum yngri árum með KR og var þar margfaldur Íslandsmeistari og var á sínum tíma talinn einn fremsti knattspyrnumaður landsins. Hann tók sæti í fyrstu stjórn Knatt- spyrnusambands Íslands 1947 og gegndi formennsku frá 1954–1968, eða samtals í fjórtán ár. Hann var kjörinn heiðursfélagi sam- bandsins. Björgvin starfaði einnig að öðrum félagsmálum, einkum hvað viðkom verslun og viðskiptum. Hann var formaður í Félagi íslenskra stórkaup- manna á árunum 1967–1971 og var gerður að heiðurs- félaga þar. Hann var í stjórn Verslunarráðs Íslands frá 1966–1974, þar af formaður 1968– 1972. Hann kvæntist Aldísi Brynjólfs- dóttur 1937. Hún er látin. Þau áttu saman sjö börn, Bryndísi, Ellert, Margréti, Björgvin, Magdalenu, Ólaf og Önnu Helgu. Magdalena er látin. Björgvin lætur eftir sig 58 barnabörn og barnabarnabörn. Andlát BJÖRGVIN SCHRAM HÓPUR breskra ferðamanna fór í sleðaferð um Lyngdalsheiði í gær og voru sleðarnir dregnir af kröft- ugum grænlenskum sleðahundum. Þótt hundarnir séu sterkir og kröftugir virðast þeir fegnir því að fá smáhvíld. Berglind Erlendsdóttir hjá fyrirtækinu Dogsteam Tours, sem býður upp á sleðaferðir um há- lendið, sagði að fyrirtækið ætti um 40 grænlenska sleðahunda. Hún sagði að aðallega færu útlendingar í sleðaferðirnar, en á veturna væri farið í styttri ferðir upp á Lyngdals- heiði og lengri ferðir um hálendið, um Þórsmörk og Landmannalaug- ar, og þá væri á sumrin farið í ferð- ir upp á Mýrdalsjökul. Grænlenskir sleðahundar á Lyng- dalsheiði SAMKEPPNISRÁÐ úrskurðaði í gær að öll afurðasala Eignarhalds- félagsins Fengs hf., áður Bananasöl- unnar hf., og tengdra félaga með ís- lenskt grænmeti, þ.á m. Sölufélags garðyrkjumanna, skuli færast til sjálfstæðs fyrirtækis. Samkvæmt úrskurðinum er Feng og tengdum félögum óheimilt að hafa afskipti af daglegum rekstri nýja fyrirtækisins og í stjórn þess mega ekki sitja sömu menn og skipa stjórnir Fengs né dótturfélaga eða tengdra fyrirtækja. Samkvæmt ákvörðun samkeppn- isráðs skal nýja fyrirtækið vera sjálf- stæð eining í rekstrarlegu tilliti og hafa fullt frelsi til að ákvarða aðgerð- ir sínar á markaði. Úrskurður samkeppnisráðs teng- ist ákvörðun ráðsins frá því í byrjun febrúar á þessu ári þegar ráðið beindi því til Samkeppnisstofnunar að hefja rannsókn á grundvelli sam- keppnislaga á sölu Búnaðarbankans hf. á Ágæti hf. á árinu 1999. Í ljós hafði komið að bankinn, Bananasal- an (nú Fengur), Sölufélag garð- yrkjumanna, Þórhallur Bjarnason, fyrir hönd Grænmetis, og Grænmeti veittu Samkeppnisstofnun rangar upplýsingar í tengslum við rannsókn hennar á kaupum Grænmetis á Ágæti af Búnaðarbankanum. Fyrri úrskurður ráðsins, um að þessi kaup samrýmdust samkeppnislögum, var um leið felldur úr gildi sökum rangra upplýsinga. Var Samkeppnisstofnun t.d. ekki upplýst um að Sölufélag garðyrkjumanna hefði í raun fjár- magnað kaup Grænmetis á Ágæti. Samkvæmt úrskurði samkeppnis- ráðs nú er væntanlegri afurðasölu óheimilt að stunda innflutning og heildsölu á ávöxtum, kartöflum og grænmeti. Nýja fyrirtækinu er og óheimilt að gera einkasölusamninga við fram- leiðendur eða á annan hátt að vinna gegn því að framleiðendur eigi við- skipti við aðra aðila. Tryggir starfsemi Fengs Loks segir samkeppnisráð að Fengur skuli kynna ákvörðun þessa, og hvað í henni felst, fyrir viðskipta- mönnum sínum og framleiðendum innan eins mánaðar. Þá er fyrirtæk- inu skylt að upplýsa Samkeppnis- stofnun um framkvæmd á úrskurði samkeppnisráðs. Framkvæmd fram- angreindra skilyrða, þ.m.t. flutning- ur viðskipta Fengs, annarra dóttur- félaga og tengdra fyrirtækja með íslenskt grænmeti til nýja fyrirtæk- isins, á að vera að fullu lokið í síðasta lagi fyrir árslok. Eignarhaldsfélagið Fengur hf. er í eigu tæplega 50 hluthafa. Í tilkynn- ingu, sem félagið sendi frá sér síð- degis í gær, er úrskurði samkeppn- isráðs fagnað og hann sagður tryggja starfsemi Fengs. Sam- kvæmt úrskurðinum mun heildsölu- starfsemi Sölufélags garðyrkju- manna leggjast af um næstu áramót. Að sögn Pálma Haraldssonar, framkvæmdastjóra Fengs, er nauð- synlegt fyrir íslenska markaðinn að á ávaxta- og grænmetismarkaði sé öflugt fyrirtæki sem tryggt geti hag- kvæm innkaup og flutninga til lands- ins. Með stofnun Fengs skapist skil- yrði fyrir því að hægt verði að kaupa ávexti og grænmeti beint frá öllum ræktunarsvæðum í heiminum. Samkeppnisráð úrskurðar um fyrirtæki á grænmetismarkaði Afurðasala Fengs og tengdra félaga verði gerð sjálfstæð Snjóflóð við Siglufjörð SNJÓFLÓÐ féll á fólksbíl rétt utan við Siglufjarðarbæ um fjögurleytið í gær. Einn maður var í bílnum. Snjó- flóðið sem um ræðir var lítið en svo illa vildi til að önnur bifreið, sem kom á eftir nokkru síðar, lenti aftan á fyrri bílnum í tilraun ökumannsins til að sveigja framhjá flóðinu, enda var fyrri bíllinn hulinn snjó. Hvor- ugan ökumanninn sakaði. Vonskuveður var á þessum slóðum þegar atburðurinn átti sér stað og í gærkvöldi tók veður að versna á Norðausturlandi. Eftir ábendingar bóndans að bænum Þverá ákváðu Vegagerðin og lögreglan á Húsavík að loka veginum um Dalsmynni, er liggur frá Fnjóskadal og yfir til Grenivíkur, vegna snjóflóðahættu. Flóðið við Siglufjörð var eitt þriggja flóða sem féllu á veginn milli Siglufjarðar og Strákaganga og var eitt þeirra nokkuð stórt, um tveir metrar að hæð að sögn lögreglu. Þá hringdi ökumaður bifreiðar sem fest hafði í snjóskafli við Mána- skriður úr neyðarskýli vestan við göngin í neyðarlínuna og fékk aðstoð frá Vegagerðinni. Fimm voru í bíln- um en ekki væsti um þá. GEFIN hefur verið út ákæra á hend- ur Gunnari Sch. Thorsteinsson, fyrr- um stjórnarmanni í Skeljungi, frá embætti ríkislögreglustjóra um brot á lögum um verðbréfaviðskipti vegna kaupa á hlutabréfum í Skeljungi 7. júlí 1999. Á þeim tíma var Gunnar stjórnarmaður í Skeljungi. Er þetta í fyrsta skipti sem gefin er út ákæra vegna innherjaviðskipta á Íslandi. Að sögn Gunnars var honum birt ákæran í gærmorgun og nú bíði hann þess að verða kallaður fyrir dómara. Þar muni hann halda uppi vörnum í málinu enda telji hann og lögfræðing- ar hans ákæruna ekki á rökum reista. Í yfirlýsingu frá Gunnari sem birt- ist í Morgunblaðinu síðastliðið sumar kom fram að 7. júlí 1999 hafi hann keypt hlutabréf í Skeljungi fyrir 3.055.000 krónur að kaupverði. „Kaupin voru gerð með milligöngu löggilts verðbréfafyrirtækis og koma Skeljungi ekkert við,“ segir ennfrem- ur í yfirlýsingunni. Aðspurður sagði Gunnar í fréttinni að hann hafi keypt bréfin á þessum tíma vegna þess að hann hafi fengið greiddar slysabætur frá Sjóvá-Al- mennum rétt áður, en Fjármálaeft- irlitinu, sem vísaði málinu til efna- hagsdeildar ríkislögreglustjóra, hafi ekki þótt það viðhlítandi skýring. „Þá tekur Gunnar fram að engar sérstak- ar breytingar hafi orðið á rekstri Skeljungs á þessum tíma, engar sam- einingar hafi staðið fyrir dyrum né heldur framleiðsla eða sala á nýjum afurðum. Reksturinn hafi að öllu leyti verið í eðlilegu horfi og það hafi ekki hvarflað að honum að hann hafi verið að gera eitthvað rangt með kaupun- um í júlí árið 1999,“ segir í frétt Morg- unblaðsins frá síðastliðnu sumri. Ákærður fyrir innherja- viðskipti Morgunblaðið/Halldór Kolbeins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.