Morgunblaðið - 27.03.2001, Síða 7

Morgunblaðið - 27.03.2001, Síða 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 7 AÐGÖNGUMIÐAR á tónleika kúbversku hljómsveitarinnar Buena Vista Social Club, sem haldnir verða í Laugardalshöll- inni 30. apríl næstkomandi, seld- ust upp á rúmum tveimur klukku- stundum í gær. Að sögn Þorsteins Stephensen tónleikahaldara voru seldir 2.300 miðar en allir eru þeir í sæti. „Fólk var mætt hérna fyrir ut- an klukkan hálfníu í morgun með stól og kaffibrúsa,“ sagði Þor- steinn og er þá að vísa til hvernig var umhorfs fyrir utan verslun Japis í Kringlunni fyrir opnun í gærmorgun. Hann lætur þó uppi að verið sé að athuga með hvort sveitin geti haldið aðra tónleika á Íslandi. „Það er verið að vinna í því en þetta skýrist í vikunni,“ sagði Þorsteinn. Seldist upp á tveimur tímum Löng röð myndaðist fyrir utan verslun Japis á Laugavegi í gærmorgun. Morgunblaðið/Ásdís STARFSMANNAFÉLAG rík- isstofnana og ríkið undirrituðu nýjan kjarasamning sl. sunnu- dag. Gildistími samningsins er frá 1. mars 2001 til 30. nóvem- ber 2004. Launataflan hækkar í upphafi samningstímans um 6,9%, 3% 1. jan. 2002, 3% 1. jan. 2003 og 3% 1. jan. 2004. Mark- mið samningsins er að lægstu laun hækki á samningstímanum upp í 112 þúsund krónur. Í samningnum er sérstakt ákvæði þar sem segir að aðilar séu sammála um að grípa til sérstakra ráðstafana svo bæta megi kjör þeirra sem lakast eru settir og draga úr óhóflegri starfsmannaveltu. Í því skyni verði stofnuð sérstök nefnd skipuð þremur fulltrúum hvors aðila og hefur hún til ráðstöf- unar allt að 300 milljónir króna á ársgrundvelli. Sérstaklega verði skoðað hvort launakerfið skili eðlilegri framþróun launa. Skulu aðilar leggja sameigin- legt mat á þróunina og gera til- lögur um viðbrögð. Einnig er markmiðið með þessu að ná lægstu laununum upp í 112 þús- und krónur á samningstíman- um. 10 þúsund króna eingreiðsla Samningurinn kveður jafn- framt á um 10 þúsund króna eingreiðslur til allra 1. maí 2001 og aftur 1. júní 2001 miðað við fullt starf. Aukin áhersla er lögð á starfsmenntunarmál með því að hækka framlag í þróunar- og sí- menntunarsjóð úr 0,28 í 0,35% af heildarlaunum. Einnig er stefnt að stofnun fræðsluseturs. Breytingar eru gerðar á launa- töflu þannig að fleiri launaflokk- ar verða í hverjum ramma. Lægsta launatala samkvæmt samningnum er 82.061 kr. og sú hæsta er 304.196 kr. Breyting er gerð á vinnu- tímakaflanum, þar sem m.a. annars eru hækkanir á vakta- álagi um nætur og helgar. Þá er í samningnum nýr kafli sem tekur til með hvaða hætti og hvernig beri að endurnýja vinnustaðasamningana. Um 5.000 félagsmenn taka laun eftir nýja samningnum, um 4.000 sem starfa hjá ríkinu og um 1.000 sem starfa hjá sjálfs- eignarstofnunum en þær áttu einnig aðild að samningnum. Stefna að 112 þús- und kr. lágmarks- launum Starfsmannafélag ríkisstofnana semur við ríkið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.