Morgunblaðið - 27.03.2001, Side 22
ERLENT
22 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ELLEN Fein, annar höfunda „The
Rules“ (Reglurnar), metsölubókar
um ráð fyrir konur í karlmannsleit,
hyggur á skilnað.
Fein tilkynnti þetta skömmu fyrir
útgáfu nýjustu bókar sinnar, „Rules
III“ (Reglur, 3. bindi), sem hefur
undirtitilinn: Þrautreyndar leiðir til
að tryggja farsælt hjónaband. Mörg
hundruð eintökum hefur þegar ver-
ið dreift, og í þeim er fögrum orðum
farið um hamingjuríkt hjónaband
Feins og hjónaband meðhöfundar
hennar, Sherri Schneiders.
Útgefandinn, AOL Time Warner,
er nú í ofboði að dreifa nýrri kápu á
bókina. Á þeirri sem þegar hafði
verið dreift sagði: „Ellen og
Sherrie, sem sjálfar hafa verið gift-
ar lengi, vita að þótt þú hafir gifst
draumaprinsinum þínum er ekki
þar með sagt að vinnu þinni sé lok-
ið; góð hjónabönd gerast ekki af
slysni.“ Í bókinni er kafli um hjóna-
skilnaði og þar segir m.a.: „Það er
auðveldara að vera gift en að gift-
ast.“
Fyrsta „Reglubókin“ var gefin út
1996 og vakti gríðarlega athygli, en
mikla andúð femínista. Í bókinni
var því haldið fram, að konur yrðu
að læra á ný þá list að láta ganga á
eftir sér, og lagt til að konur notuðu
skeiðklukku til að koma í veg fyrir
að samtöl við biðla yrðu lengri en
tíu mínútur.
Leggja ætti fyrir mennina próf til
að skera úr um hvort þeim væri al-
vara með að vilja skuldbinda sig.
Konum var ráðlagt að vera hvorki
of sniðugar né snjallar, en vera svo-
lítið dularfullar. Mælt var með lýta-
aðgerðum fyrir þær sem hafa óásjá-
legt nef.
Í sjónvarpsþætti Oprah Winfrey
1996 sagði Fein við kvenrétt-
indakonu, sem hafði skilið við fyrsta
eiginmanninn sinn, að þar sem hún
ætti skilnað að baki hefði hún engan
rétt til að vera með stór orð.
Í nýjustu bókinni, „Rules III“,
segja Fein og Schneider að til að
hjónaband gangi upp þurfi konur
að vera undirgefnar mönnum sínum
og ekki ergja þá með daglegum
áhyggjum. Þær mæla ennfremur
með því að konur safni síðu hári því
það þyki körlum meira aðlaðandi.
Fein er 43 ára. Hún tjáði útgef-
anda sínum fyrr á þessu ári að hún
hefði sótt um skilnað frá eig-
inmanni sínum, Paul Feingertz, lyf-
sala sem hún hafði verið gift í 16 ár.
Ástæðan var sögð afskiptaleysi.
Hún hafði vonast til þess að geta
bjargað hjónabandinu.
„Regluhjónabandi“ lýkur
New York. The Daily Telegraph.
STÓRU flokkarnir unnu og litlu
flokkarnir töpuðu. Þannig drógu
þýzkir fjölmiðlar í gær saman nið-
urstöður kosninga til héraðsþinga
sambandslandanna Baden-Württ-
emberg og Rheinland-Pfalz, sem
fram fóru á sunnudag.
Í Baden-Württemberg styrkti
Kristilegi demókrataflokkurinn
(CDU) stöðu sína, flokksmönnum til
mikils léttis eftir að leynireikninga-
hneykslið svokallaða, þar sem Hel-
mut Kohl fyrrverandi kanzlari var í
aðalhlutverki, hafði haldið fylgi við
flokkinn niðri frá því það komst í há-
mæli fyrir rúmu ári. En jafnaðar-
menn styrktu líka stöðu sína, bæði í
Baden-Württemberg, þar sem þeir
eru í stjórnarandstöðu, og í grann-
héraðinu Rheinland-Pfalz, þar sem
þeir eru í stjórn.
Hægriöfgamenn detta
út af þingi
Meðal þeirra sem biðu ósigur í
þessum kosningum voru Repúblik-
anarnir (Die Republikaner) sem er
flokkur yzt á hægri vængnum og
hafði síðastliðin kjörtímabil átt um
tíunda hvern fulltrúa á landsþingi
Baden-Württemberg í Stuttgart.
Flokkurinn fékk að þessu sinni að-
eins 4,4% atkvæða og féll þar með út
af þingi vegna 5%-reglunnar.
Græningjar, sem sitja ásamt jafn-
aðarmönnum í þýzku samb-
andsstjórninni í Berlín, töpuðu einn-
ig fylgi í báðum sambandslöndum.
„Stóru flokkarnir eru sigurvegar-
ar, litlu flokkarnir biðu ósigur,“ lýsti
dagblaðið Süddeutsche Zeitung yfir
í fyrirsögn forystugreinar blaðsins í
gær. Í dagblaðinu Die Welt, sem
gefið er út í Berlín, segir: „Þessar
kosningar gefa skýr skilaboð. Erwin
Teufel [forsætisráðherra í Baden--
Württemberg og héraðsleiðtogi
CDU] ... vann sannfærandi sigur í
Baden-Württemberg og CDU tókst
að afstýra skipbroti í Rheinland-
Pfalz.“
Samkvæmt opinberum bráða-
birgðaúrslitum hélt CDU völdum í
Baden-Württemberg, þar sem
flokkurinn deilir völdum með
Frjálsum demókrötum (FDP), og
Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD)
vann sannfærandi sigur í Rhein-
land-Pfalz, heimahéraði Helmuts
Kohl, en þar eru SPD og FDP sam-
an í stjórn. FDP tapaði hins vegar
umtalsverðu fylgi í báðum héruðum.
Kjörsókn var lítil, einkum í Bad-
en-Württemberg, þar sem aðeins
63,3% mættu á kjörstað. Þetta hlut-
fall hefur ekki verið lægra í kosn-
ingum í héraðinu í 40 ár.
Hleypir hug í fylgismenn CDU
Úrslitin virðast sýna að CDU sé
búinn að hrista af sér hneykslismál-
in og endurheimta sinn hefðbundna
styrk í Suðvestur-Þýzkalandi. Vekja
úrslitin vonir CDU-manna um að
flokkurinn sé kominn á rétta braut
fyrir kosningabaráttuna fyrir næstu
Sambandsþingkosningar sem vænt-
anlega fara fram haustið 2002.
Kjörfylgið hélt áfram að hrynja af
græningjum en þeir hafa tapað fylgi
í fimmtán héraðsþingkosningum í
röð, þ.e. öllum slíkum kosningum
sem fram hafa farið frá því árið
1997.
AP
Erwin Teufel, t.h., fagnar sigri í landsþingskosningunum í Baden-
Württemberg. T.v. er Ute Vogt, héraðsleiðtogi jafnaðarmanna.
Úrslit kosninga til héraðsþinga í Suðvestur-Þýzkalandi á sunnudag
Sigur stóru
flokkanna
Berlín. AFP.
ÚTGERÐIN Smyril Line í Færeyj-
um hefur nú fengið loforð um aukið
hlutafé er nemur um 120 milljónum
danskra króna, um 1250 milljónum
ísl. króna. Er því talið mjög líklegt að
áætlanir um nýja Norrænu á sigl-
ingaleiðinni milli Færeyja, Íslands,
Danmerkur, Noregs og Hjaltlands
verði að veruleika.
Smyril Line hafði þegar gert
samning um smíði á ferju fyrir um
660 milljónir d. kr., tæplega sjö millj-
arða ísl. kr., hjá skipasmíðastöð í
Flensborg en gat ekki staðið við
skuldbindingar um greiðslur. Skipa-
smíðastöðin hafði tekið veð í gömlu
Norrænu og horfurnar því slæmar.
En á fimmtudaginn skýrði Smyril
Line frá því að aukið fjármagn hefði
fengist. Opinber sjóður á Hjaltlandi,
sem á mikið undir því að siglingar
Norrænu haldi áfram, muni leggja
fram 50 milljónir d. kr., einnig hafa
íslenskir fjárfestar keypt hlutafé
fyrir 10 milljónir d. kr.
Upphaflega var ætlunin að nýja
skipið yrði tilbúið vorið 2002 en nú er
gert ráð fyrir að það verði árið 2003.
Smíði Norrænu
Aukið
fjármagn
fengið
Þórshöfn. Morgunblaðið.