Morgunblaðið - 27.03.2001, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 27.03.2001, Qupperneq 53
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 53 Laugavegi 101 við Hlemm. Opið mán.-fös. frá kl. 11-18, lau. frá 11-16 ANTIK- ÚTSALA Skápar, skenkar, borð og stólar, málverk. Mikið af fáséðum smáhlutum, matar- og kaffistell 10—30% afsláttur Skemmtileg fyrirtæki 1. Einstök sérverslun með heimilishluti fyrir smart heimili og fram- úrstefnufólk. Þeir kaupa svona hluti sem Vala Matt. heimsækir og búa öðruvísi og fallega. 2. Sérstök gjafavörubúð með fallega heimilishluti sem koma víða að. Útskorið, handmálað, kerti, ilmur og fallegt skraut. Innflutn- ingur og heildsala. 3. Ein fallegasta og glæsilegasta snyrtistofa borgarinnar. Einkarétt- ur fyrir sérstaka og þekkta snyrtilínu. Gufubað og sturta. Nudd, andlitsböð, sérþjálfun. Vel staðsett. Mikið að gera. 4. Lítil verslun með föndurvörur fyrir skóla, eldri borgara og föndur- hópa. Er einnig með heildverslun. Fastir og góðir viðskiptavinir. 5. Ein skemmtilegasta hverfaverslun (kaupmaðurinn á horninu) sem eftir er í borginni og með þeim eldri. Fastur viðskiptavina- hópur sem heldur tryggð við búðina og verða að vinum ykkar. Góð og stöðug sala. Eigið húsnæði sem er til sölu eða leigu. 6. Lítið framleiðslufyrirtæki fyrir tvo einstaklinga, sem setur græn- meti og hollustu í matarbakka og selur í kjörbúðum, mötuneytum og einstaklingum. Kjörið til að sameina öðru fyrirtæki eða bæta einhverju við það. 7. Kjötiðnaðarfyrirtæki sem starfar mest 4 mánuði á ári, seinni part. Öruggt fyrirtæki sem er mjög sérhæft og slegist um fram- leiðsluvörur þess. Góð verslunarsambönd fylgja með. 8. Fullkomið bakarí, sem er með tvær sölubúðir og viðskipti við stór og örugg fyrirtæki, veitingastað, kaffistaði, mötuneyti o.þ.h. Góð tæki. Gott tækifæri fyrir stóra til að stækka enn meira. 9. Höfum verslunarfyrirtæki í Hveragerði og Selfossi, góðar þekktar verslanir. Landsins mesta úrval af fyrirtækjum! Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. UNDANFARIÐ hafa birst blaða- greinar um Arnarnesvoginn, fegurð hans og gildi fyrir íbúa Garðabæjar og aðra þá sem líta til sjávar og njóta þess sem náttúran hefur að bjóða. Ekki eru þó allir sammála um hvern- ig nýta beri voginn og umhverfi hans. Tilefni skrifa þessara er það að í fyrrnefndum blaðagreinum hafa m.a. komið fram mótmæli gegn báta- umferð um voginn. Fyrir um það bil 20 árum tóku nokkrir Garðbæingar höndum sam- an og stofnuðu siglingaklúbb sem fékk aðsetur við Ránargrund. Garðabær kom til móts við þennan hóp áhugamanna og leyfði afnot af landi og veitti heimild til fram- kvæmda og aðra fyrirgreiðslu. Sigl- ingaklúbburinn Vogur var stofnaður sem íþróttafélag innan Íþróttasam- bands Íslands, bátar voru keyptir, kennarar ráðnir og þróttmikið sigl- ingalíf hófst við voginn. Mikil ánægja var með starfið, bæði þeirra sem bjuggu við voginn og hjá foreldrum unglinga sem sóttu námskeið hjá klúbbnum. Þóttu siglingarnar vera góð viðbót við það æskulýðsstarf sem fyrir var í bænum. Siglinga- starfið blómstraði við voginn og jókst í réttu hlutfalli við stækkandi bæjarfélag, en því miður lagðist starfið af vegna vaxandi sjávar- mengunar á svæðinu. Nú er lag að endurvekja siglingar á Arnarnesvogi. Vogurinn er aftur orðinn hreinn vegna endurbóta á frá- rennsliskerfi bæjarins og endur- skipulagning svæðisins er framund- an. Við vonum að bæjaryfirvöld í Garðabæ hafi framsýni til að skipu- leggja Arnarnesvog þannig að sigl- ingar geti hafist þar á ný. Við höfum ekki fyrr heyrt dæmi þess að sigl- ingar séu álitnar mengunarvaldur. Þvert á móti er hlúð að siglingastarf- semi í nágrannabæjum okkar og henni gjarnan ætlaður ákjósanlegur staður. Nærtækt er að líta til borgar og bæja í nágrenni Garðabæjar svo og höfuðborga á Norðurlöndum í því sambandi. Við skorum á íbúa Garðabæjar og ráðamenn bæjarins að hefja mál- efnalega umræðu um nýtingu strandarinnar til byggðar og útivist- ar, þar á meðal smábátahöfn. Fáir staðir henta betur, eru jafnöruggir og geta boðið upp á betri aðstöðu til siglinga. Vonandi eiga margir eftir að njóta þess að sigla á Arnarnesvogi og inn á Lambhúsatjörn, fylgjast með fugla- lífi og njóta þessa einstaka útivist- arsvæðis. Höfundar eru stofnendur og félag- ar í siglingaklúbbnum Vogi í Garða- bæ. KRISTJÁN ÓLI HJALTASON, framkvæmdastjóri, Jökulhæð 2, BJARNI HANNESSON, læknir, Lindarflöt 49, MAGNÚS KARL PÉTURSSON, læknir, Einilundi 1, GUÐJÓN T. GUÐMUNDSSON, verkfræðingur, Markarflöt 22, GUÐLAUGUR INGASON, verkstjóri, Efstalundi 3, ÁGÚST ARNBJÖRNSSON, flugstjóri, Hrísmóum 6. Siglingar og æskulýðsstarf aftur á Arnarnesvog Frá Siglingaklúbbnum Vogi: Séð frá aðstöðu Vogs við Ránargrund. Siglingamót Vogs. Kjölbátar úr Garðabæ, Kópavogi og Reykjavík á legu. ATVINNA mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.