Morgunblaðið - 27.03.2001, Side 54
DAGBÓK
54 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Detti-
foss og Helgafell koma í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Lagarfoss kom í gær,
Kyndill fór í gær.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun kl.
17–18.
Mannamót
Félagsstarfið Norð-
urbrún 1 og Furugerði
1. Af óviðráðanlegum
orsökum frestast ferðin
í Fljótshlíðina til 3. apr-
íl.
Árskógar 4. Kl. 9–16.30
opin handavinnustofan,
áhersla á bútasaum, kl.
9–12 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.30 dans-
kennsla, kl. 13–16.30 op-
in smíðastofa, trésmíði/
útskurður. Miðvikudag-
inn 28. mars kl. 14 verð-
ur Ferðaskrifstofan Sól
með kynningu á ferðum
til Kýpur og Portúgal,
Árni Norðfjörð harm-
onikkuleikari, happ-
drætti með ferðavinn-
ingum og fleira til
skemmtunar. Farið
verður í Þjóðleikhúsið
miðvikudaginn
11. apríl að sjá söngleik-
inn „Singing in the ra-
in“. Látið vita um þátt-
töku fyrir 1. apríl.
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa kl. 9, leirkerasmíði,
enska kl. 10 og kl. 11,
Búnaðarbankinn kl.
10.15. Baðþjónusta kl.
13, vinnustofa kl.
13postulínsmálun.
Miðvikud. 28. mars
verður heimsókn í Lista-
safn Íslands, sýning frá
fagurlistasafni Par-
ísarborgar, Petit Palais,
lagt af stað kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
tréskurður, kl. 9–16
handavinna, kl. 10 sund,
kl. 13–16 leirlist.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Leikfimi í íþróttasal á
Hlaðhömrum, þriðjud.
kl. 16. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586 8014 kl. 13–
16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 10
samverustund, kl. 14
félagsvist.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 10 hár-
snyrting, kl. 13 föndur
og handavinna. Kl. 14.45
söngstund í borðsal með
Jónu Bjarnadóttur.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Vorfagn-
aður í Kirkjuhvoli í boði
Oddfellow 29. mars kl.
19.30.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Brids og saumur kl.
13.30. Á morgun verður
línudans kl. 11, mynd-
mennt kl. 13 og píla kl.
13.30. Kvöldvaka í boði
Lionsklúbbs Hafn-
arfjarðar verður
fimmtudaginn 29. mars
kl. 20, kaffihlaðborð og
dans. Sigurbjörn Krist-
insson verður með
myndlistarsýningu í
Hraunseli fram í maí.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Skák kl. 13.30
og alkort spilað kl.
13.30. Miðvikud: Göngu-
Hrólfar fara í göngu frá
Hlemmi kl. 9.45. Dags-
ferð verður farin í
Grindavík-Bláa lónið-
Reykjanes 2. apríl.
Brottför kl. 10 frá Ás-
garði. Skráning á skrif-
stofu FEB. 3ja daga
ferð á Snæfellsnes 27.–
29. apríl. Gististaður:
Snjófell á Arnarstapa.
Áætlað að fara á Snæ-
fellsjökul. Komið í Ólafs-
vík, á Hellissand og
Djúpalónssand. Brottför
frá Ásgarði 27. apríl kl.
9. Skráning hafin. Ath.
Opnunartími skrifstofu
FEB er kl. 10–16. Upp-
lýsingar í síma 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, tré-
skurður og fleira, kl. 10
leikfimi, kl. 12.45 Bón-
usferð.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 13 boccia. Á
föstudaginn kl. 14 verð-
ur ferðakynning Ferða-
skrifstofunnar Sólar.
Happdrætti, ferðavinn-
ingar. Árni Norðfjörð
leikur á harmonikku.
Umsjón: Edda Bald-
ursdóttir.
Gjábakki, Fannborg 8.
Leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50
og kl. 10.45, kl. 9.30
silkimálun, handa-
vinnustofa opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
10–17, kl. 14 boccia, kl.
14.30 enska, þriðjudags-
ganga fer frá Gjábakka
kl. 14.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 jóga og
ganga, kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
14 boccia. Smári Pálsson
og Haukur Pálmason
verða með erindi og
fræðslu um alzheimer-
sjúkdóminn og aðra
skylda minnissjúkdóma
í Gullsmára miðvikudag-
inn 28. mars kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
leikfimi, kl. 9.45 banka-
þjónusta, kl. 13 handa-
vinna.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 postulínsmálun, kl.
9–12 glerskurður, kl.
9.45 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð í Bónus, kl. 13–
16.30 myndlist.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 boccia, kl. 9–16.45 op-
in handavinnustofan,
tréskurður.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
12 bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi, kl. 13 búta-
saumur, tréútskurður
og frjáls spilamennska.
Fimmtudaginn 29. mars
verður heimsókn í Lista-
safn Íslands á sýn-
inguna Náttúrusýnir.
Upplýsingar og skrán-
ing í afgreiðslu í síma
562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 glerskurður,
myndlist og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13
handmennt og keramik,
kl. 14 félagsvist.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarar, opið hús á
morgun kl. 14–16.
Harmonikkuleikur Sig-
ríðar Norðkvist og
fleira. Bílferð fyrir þá
sem þess óska. Upplýs-
ingar veitir Dagbjört í s.
510-1034.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað í kvöld kl.
19. Allir eldri borgarar
velkomnir.
Félag ábyrgra feðra
heldur fundi í Shell-
húsinu, Skerjafirði, á
miðvikudögum kl. 20;
svarað í síma 552 6644 á
fundartíma.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Eineltissamtökin halda
fundi á Túngötu 7 á
þriðjudögum kl. 20.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum,
Laugardalshöll, kl. 12.
Reykjavíkurdeild SÍBS
verður með félagsvist í
húsnæði Múlalundar,
vinnustofu SÍBS, í Há-
túni 10c, í kvöld, þriðju-
daginn 27. mars. Félag-
ar fjölmennið og takið
með ykkur gesti. Byrjað
að spila kl. 20. Mæting
kl. 19.30.
Félag aðstandenda alz-
heimer-sjúkra, fræðslu-
fundur verður í kvöld kl.
20 að Hrafnistu, Laug-
arási. Helga María Hall-
grímsdóttir félags-
ráðgjafi flytur erindið
„Akstur og heilabilun“
Kaffiveitingar í boði
Hrafnistu.
Félag ræstingastjóra.
Aðalfundurinn verður
haldinn fimmtudaginn
29. mars kl. 19.30 í
Litlu- Brekku, Lækj-
arbrekku. Venjuleg að-
alfundarstörf. Fjöl-
mennum. Veitingar.
Kvenfélag Hreyfils.
Fundur verður þriðju-
daginn 27. mars kl. 20.
Snyrtifræðingur kemur
í heimsókn.
Kvenfélag Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði.
Basar félagsins verður
haldinn í safnaðarheim-
ilinu, Linnetsstíg 6,
laugardaginn 31. mars
kl. 14.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Opið hús í kvöld kl. 20.
Í dag er þriðjudagur 27. mars, 86.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu
sakir óvina minna, gjör sléttan veg
þinn fyrir mér.
(Sálm. 4, 9.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Í VIÐTALI, sem heim-
spekiprófessor við Háskól-
ann átti við konu eina fyrir
nokkru stagaðist hann á því
að „kenna námskeið“. Þetta
er auðvitað alrangt mál og
argasta ambaga.
Þá má nefna, að bók-
menntafræðingar hafa ver-
ið iðnir við að skrifa í Les-
bók Morgunblaðsins að
undanförnu undir yfir-
skriftinni „tíðarandi í aldar-
byrjun“. Sumar þessara
greina eru morandi í er-
lendum slettum og slang-
uryrðum.
Mér er spurn hvort ekki
sé lengur ætlast til þess að
prófessorar við Háskóla Ís-
lands kunni íslensku og
hvort það sama eigi við um
greinahöfunda Lesbókar-
innar? Með þökk fyrir birt-
inguna.
Reynir Eyjólfsson,
Eyrarholti 6, Hf.
Ranglátur
eignarskattur
ÉG vona að ráðamenn þjóð-
arinnar sjái sóma sinn í því
að afnema þennan rangláta
eignarskatt, sem lagður er
á ellilífeyrisþega. Það er al-
mennt álitið, að eldra fólki
sé hollara að vera sem
lengst á sínu heimili, ef það
hefur heilsu og kraft til, en
þá er því refsað með þess-
um rangláta eignarskatti.
Ég hélt að það væri lág-
marks munaður að eiga
miðlungshúsnæði, skuld-
laust þegar þessum aldri er
náð.
Ellen S. Stefánsdóttir.
Frábær þjónusta
MIG langar að láta vita af
góðri þjónustu og frábæru
starfsfólki í gleraugnaversl-
uninni Auganu í Kringl-
unni. Ég vil hvetja fólk til að
versla þar, því þar fær mað-
ur frábæra þjónustu.
Guðrún Helga.
Hækkanir gangi
jafnt yfir alla
SÆMUND Kristjánsson í
Kópavogi langar að koma á
framfæri athugasemd til
Tryggingastofnunar ríkis-
ins og heilbrigðisráðuneyt-
is. Vill hann spyrja þá að
því, hvort eigi að skilja ein-
stæða öryrkja eftir úti í
kuldanum með hækkanir á
bótum – hvort þeir fái ekki
hækkun fljótlega á sínum
bótum. Hann fékk svar við
fyrirspurn frá heilbrigðis-
ráðuneytinu, þar sem sagt
er að nefnd sé að skoða mál-
ið en málið er búið að vera í
nefnd í a.m.k. 4 ár og ekk-
ert gengur. Ellilífeyririnn
hækkar – en ekki bætur
hjá einstæðum öryrkjum.
Finnst honum að hækkan-
ir eigi að ganga jafnt yfir
alla.
Tapað/fundið
Barnagleraugu
í óskilum
BARNAGLERAUGU
fundust við hitaveitustokk-
inn á milli Tunguvegar og
Sogavegar í Skógargerði,
miðvikudaginn 21. mars sl.
Upplýsingar í síma 695-
3752 eða 565-3852 á kvöld-
in.
Dýrahald
Hundur í óskilum
STÓR, svartur og brúnn
yrjóttur hundur er í óskil-
um á hundahótelinu á Leir-
um. Eigandi er vinsamleg-
ast beðinn að vitja hans
strax. Upplýsingar í síma
566-8366 eða 698-4967.
Emil er týndur
EMIL er þriggja ára stór,
grábröndóttur norskur
skógarköttur með hvítan
maga og loppur. Hann
hvarf frá Hraunhólum í
Garðabæ föstudaginn 16.
mars sl. Hann er merktur
og hans er sárlega saknað.
Við biðjum þann sem hefur
séð til hans að láta okkur
vita í síma 564-3295 eða
895-8996.
Duna er týnd
DUNA er
ljósgrár,
mjög loð-
inn 4
mánaða
kettling-
ur. Duna
var með
rauða ól
seinast
þegar hún sást. Hún hvarf
frá Öldugötu 30a kj. að
morgni fimmtudagsins 15.
mars sl. Hennar er sárt
saknað. Fólk í nágrenninu
er vinsamlegast beðið að at-
huga í geymslur og kjallara
á svæði 101. Ef einhver hef-
ur orðið hennar var, vin-
samlegast hafið samband í
síma 551-3122 eða 699-1165.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Enn um
íslenskuna
Víkverji skrifar...
AÐ Víkverja dagsins vatt sér ívikunni vinur hans einn, sem í
starfi sínu umgengst unglinga tölu-
vert. Hann hafði lesið í Morgun-
blaðinu um niðurstöður alþjóðlegrar
samanburðarkönnunar á vímuefna-
neyzlu ungmenna og taldi ástæðu til
að setja spurningarmerki við þær.
Sér sýndist þessi könnun vera byggð
á svörum sem unglingarnir skrifuðu
við spurningum á spurningalistum
sem fyrir þá væru lagðir. Taldi hann
ástæðu til að taka því sem kæmi út
úr slíkum eyðublaðaútfyllingum með
hæfilegum fyrirvara; hann myndi nú
eftir því hvernig hann hagaði sér
þegar hann var sjálfur á þessum
aldri – hefði hann fengið slíkan
spurningalista lagðan fyrir sig þá
hefði hann örugglega lagt sig fram
um að snúa út úr og helzt svarað út í
hött. Slíkt hátterni væri hluti af upp-
reisn unglingsins gegn „kerfinu“,
einkum ef viðkomandi ætti í raun við
vímuefnavanda að stríða. Eins og
hann þekkti unglinga – og um þetta
væru fleiri sem vel til þekktu sam-
mála – þyrfti aðra aðferðafræði til að
ná raunhæfum niðurstöðum út úr
slíkri könnun, þ.e. niðurstöðum sem
endurspegluðu í raun hvernig ung-
lingar umgengjust áfengi og fíkni-
efni.
Undraðist vinur Víkverja það
nokkuð, að ekki skyldi hafa skapazt
meiri umræða um þetta atriði en
raun ber vitni.
Þetta virðist Víkverja vera nokkuð
sem ástæða er til að gaumgæfa.
Hann bjó í nokkur ár erlendis og
fylgdist þar vel með öllum kosning-
um og flestu sem tengdist þeim.
Vakti það oft furðu Víkverja, hversu
þeim sem atvinnu hafa af því að gera
skoðanakannanir tókst iðulega að
spá fyrir um úrslit kosninga, jafnvel
þótt úrtakið sem úrslitaspárnar voru
byggðar á væri oft lítið.
Íslenzkur samstúdent Víkverja
lenti einu sinni í slíku úrtaki, og var
hann fenginn til að svara öllum
spurningum, jafnvel þótt hann tæki
skýrt fram að hann hefði ekki kosn-
ingarétt í þeim kosningum sem spurt
var um. Það skipti þann sem spurði
engu máli, þeir hefðu sínar aðferðir
til að láta þau svör sem þeir fengju
endurspegla skoðanamynstur kjós-
enda í heild.
Víkverji rekur þetta hér vegna
þess, að hann telur sig ekki hafa orð-
ið varan við sömu fagmennsku í
vinnubrögðum a.m.k. sumra þeirra
sem gera slíkar kannanir á Íslandi.
Víkverja þykir einsýnt, að vilji menn
fá raunsanna mynd t.d. af vímuefna-
neyzlumynstri unglinga þurfi að
þaulhugsa aðferðafræðina sem beitt
er. Skyldi það hafa verið gert í fyrr-
nefndri könnun?
VÍKVERJI dagsins er mikilláhugamaður um akstursíþrótt-
ir. Þótti honum hið bezta mál að
Sjónvarpið skyldi hefja reglubundn-
ar sýningar frá heimsmeistara-
keppninni í formúlu eitt-kappakstri
og er ánægjulegt að sjá hve vel þess-
um útsendingum hefur verið tekið.
Víkverji hefur þó saknað mjög efnis
um heimsmeistarakeppnina í ral-
lakstri og furðaði hann sig lengi á því
að sjónvarpsstöðvarnar skyldu ekki
hafa borið sig eftir sýningarréttinum
á þáttum um hana, þar sem Víkverji
telur að áhugi á ralli – þar sem keppt
er á „venjulegum“ bílum (að minnsta
kosti í útliti) á venjulegum vegum, á
möl, snjó, malbiki og öllu þar á milli –
liggi Íslendingum nær en „malbiks-
hringekja“ formúlu eitt-keppnanna.
Rall er gríðarvinsæl áhorfendaíþrótt
í næstu nágrannalöndum okkar – á
Norðurlöndunum og í Bretlandi – og
reyndar um allan heim. Margir
beztu ökumannanna eru einmitt
Norðurlandabúar. Víkverja þykir
það því mikið fagnaðarefni að Sýn
skuli hafa tekið til sýninga vandaða
þætti um heimsmeistarakeppnina í
ralli og vonast hann til að þær sýn-
ingar verði til að glæða áhugann á
þessari bráðspennandi keppnisí-
þrótt. Enginn sannur áhugamaður
um akstursíþróttir ætti að láta þess-
ar útsendingar framhjá sér fara.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 mánuður, 8 fallegur, 9
skólagangan, 10 nöldur,
11 horaðar, 13 vesælar,
15 sterts, 18 karldýr, 21
stök, 22 dökk, 23 kjánum,
24 ómerkilegt.
LÓÐRÉTT:
2 bleytukrap, 3 hreinar, 4
spilla umhverfi, 5 gufu-
sjóðum, 6 mjög, 7 fugl,
12 kraftur, 14 dveljast, 15
ský, 16 mjó, 17 létu, 18
stólkoll, 19 geðsleg, 20
lofa.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 slaga, 4 fullt, 7 afrit, 8 niðra, 9 inn, 11 gekk, 13
Erna, 14 ertur, 15 spor, 17 roks, 20 arg, 22 kokks, 23
urðar, 24 senna, 25 lynda.
Lóðrétt: 1 slang, 2 afrak, 3 atti, 4 fönn, 5 lðður, 6 tjara,
10 notar, 12 ker, 13 err, 15 sekks, 16 orkan, 18 orðan, 19
syrpa, 20 asna, 21 gull.
K r o s s g á t a