Morgunblaðið - 06.04.2001, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 9
SVOKALLAÐUR Árósasamningur,
sem fjallar um aðgang að upplýsing-
um, þátttöku almennings í ákvarð-
anatöku og réttláta málsmeðferð í
umhverfismálum, er skv.greinar-
gerð umhverfisráðuneytisins, sem
óskað hefur eftir fullgildingu hans
fyrir Íslands hönd, ný tegund samn-
ings um umhverfismál sem sam-
þykktur var á fjórða ráðherrafund-
inum um „Umhverfi og Evrópu“ í
Árósum í Danmörku 25. júní 1998.
Síðan hafa 39 þjóðir og Evrópusam-
bandið undirritað samninginn og tíu
þjóðir fullgilt hann.
„Hann [Árósarsamningurinn]
beinir athyglinni að gagnverkandi
áhrifum almennings og stjórnvalda í
lýðræðislegu samhengi og kveður á
um ný ferli varðandi þátttöku al-
mennings í viðræðum um alþjóðlega
samninga og framkvæmd þeirra,“
segir í greinargerð ráðuneytisins.
Fram kemur að samningurinn veiti
almenningi réttindi og leggi samn-
ingsaðilum og stjórnvöldum skyldur
á herðar varðandi aðgang að upplýs-
ingum og þátttöku almennings.
Samningurinn styðji þessi réttindi
með ákvæðum um réttláta málsmeð-
ferð sem stuðli að auknu vægi samn-
ingsins.
„Í 4. gr. er fjallað um aðgang al-
mennings að upplýsingum og í hvaða
tilvikum megi hafna aðgangi að
þeim. Í 5. gr. er fjallað um söfnun og
dreifingu upplýsinga um umhverfis-
mál, m.a. í þeim tilgangi að þær séu
fyrir hendi og að þær séu sem að-
gengilegastar. Í 6.-8. gr. er fjallað
um þátttöku almennings. Hér er um
að ræða þátttöku í ákvörðunum um
tiltekna starfsemi, um áætlanir,
verkefni og stefnur er varða um-
hverfið og við undirbúning bindandi
reglna sem kunna að hafa umtals-
verð áhrif á umhverfið. Þá er í 9. gr.
fjallað um aðgang að réttlátri máls-
meðferð og rétt manna til aðgangs
að áfrýjunarleiðum fyrir dómstólum
eða öðrum óháðum aðilum.“
Samningurinn verði lagður fram
til samþykktar á Alþingi fyrir páska.
Umhverfisráðuneyti óskar fullgildingar Árósasamnings
Leggur skyldur á herðar
varðandi upplýsingaaðgengi
Ný sending
Kjólar með jökkum,
buxnadragtir
og
buxnadress
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
www.sokkar.is oroblu@sokkar.is
Lagersala á Bíldshöfða 14
Skór, töskur, belti, leðurhanskar, nærföt o.m.fl.
Alltaf eitthvað nýtt.
Opið alla föstudaga milli kl. 16 og 19,
laugardaga milli kl. 12 og 16
og sunnudaga milli kl. 13 og 17.
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Opið virka daga kl. 10–18
Opið laugardaga kl. 10–16
Viltu sýnast númeri grennri yfir mjaðmir?
Töfraundirpilsin komin
BETRA VERÐ
Pantið sumarvörurnar núna.
Ef varan fæst ekki í búðinni þá
færðu hana úr listunum.
Kays og Argos listarnir
á 1/2 virði núna
Austurhrauni 3, Gbæ., Hf. s. 555 2866
Vor/sumar 2001