Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 13
UNGMENNI, sem söfnuðust saman
í samgönguráðuneytinu síðdegis í
gær og héldu sig þar í tæplega fjóra
tíma, segja ráðuneyti sýna ábyrgð-
arleysi gagnvart aðstandendum
fórnarlamba flugslyssins sem átti
sér stað í Skerjafirði í ágúst á síð-
astliðnu ári.
Ein úr hópnum, Carmen Jó-
hannsdóttir, greindi frá því að sam-
gönguráðherra hefði kallað ung-
mennin á sinn fund og rætt stutt-
lega við hópinn. Honum var afhent
plagg þar sem 11,5 milljóna króna
greiðslu til Leiguflugs Ísleifs Otte-
sen er mótmælt og farið fram á að
farið sé betur ofan í saumana á
rannsókn flugslyssins.
Þegar hafa safnast um 100 undir-
skriftir vegna plaggsins og heldur
hópurinn áfram söfnun undir-
skrifta.
Morgunblaðið/RAX
Saka ráðuneytin
um ábyrgðarleysi
VIÐBRÖGÐ mín við svari ráðherra
eru vonbrigði því að með fullri virð-
ingu fyrir umboðsmanni Alþingis þá
hefði verið best að málið yrði rann-
sakað ofan í kjölinn af utanaðkom-
andi óháðum aðilum, helst erlendum
sérfræðingum, sem hafa þekkingu
sem umboðsmaður Alþingis hefur
ekki,“ sagði Friðrik Þór Guðmunds-
son þegar Morgunblaðið leitaði við-
bragða hans við neitun samgöngu-
ráðherra um að óvilhallur aðili verði
fenginn til að fara yfir skýrslu rann-
sóknarnefndar flugslysa.
„Hann segir að lagaheimild skorti
og það finnst mér lýsandi fyrir laga-
umhverfið,“ segir Friðrik Þór enn-
fremur. Hann kveðst ætla að íhuga
hvort endurupptaka sé möguleg en
telur það ekki hafa mikið upp á sig
að fá óbreytta rannsóknarnefnd
flugslysa til að endurskoða vinnu-
brögð sín og niðurstöður. „Ég get
ekki séð að það þjóni miklum til-
gangi.“
Friðrik Þór segir að ný gögn, rök
og upplýsingar verði lögð fram á
næstunni og sagði hann engan skort
vera á þeim. Hluti af þeim gögnum
hefði þegar farið til lögreglunnar
vegna rannsóknar hennar. Hann
ítrekaði kröfu sína um að önnur
nefnd rannsakaði málið og sagði
hann þá kröfu standa.
Þá kvaðst Friðrik Þór vilja taka
undir með því unga fólki sem heim-
sótti samgönguráðherra á skrifstofu
hans í gær. „Ég vil taka undir með
vinafólki sonar míns heitins og þess
sem lifir slysið af og lýst hefur furðu
sinni á peningagjöf til Leiguflugs Ís-
leifs Ottesen. Vandræði Flugmála-
stjórnar í bréfi til samgönguráðu-
neytisins vegna sviptingarmálsins
og peningagjafirnar núna þykja mér
sýna svo óyggjandi sé að það eru
einhverjir aðrir hagsmunir að baki
en þjóðarhagsmunir. Hverjir þeir
eru veit ég ekki en það verður reynt
til hins ýtrasta að komast að því.“
Friðrik Þór Guðmundsson
Viðbrögðin
eru vonbrigði
LÖGFRÆÐINGAR samgönguráðu-
neytis, heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytis, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
is, Tryggingastofnunar ríkisins og
Flugmálastjórnar telja eftir athugun
ekki efni til að rifta samningum sam-
göngu- og heilbrigðisráðuneyta við
Leiguflug Ísleifs Ottesen um sjúkra-
flug og áætlunarflug sem gerðir voru í
apríl í fyrra og janúar á þessu ári.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra kynnti þessa niðurstöðu á
blaðamannafundi í gær. Sagði hann
að í kjölfar skýrslu rannsóknarnefnd-
ar flugslysa um brotlendingu TF-GTI
7. ágúst í fyrra og lögreglurannsókn-
ar sem nú stæði hefði verið kannað
hvort efni væru til að rifta samning-
unum við Leiguflug Ísleifs Ottsen.
Ráðherra sagði að eftir mjög ítarlega
yfirferð lögfræðinganna hefði það
orðið niðurstaða þeirra að ekki væri
unnt að rifta samningnum þrátt fyrir
athugasemdir sem hefðu komið fram í
skýrslu RNF án þess að ríkið yrði
krafið umtalsverðra bóta. Samgöngu-
ráðherra sagði forsvarsmenn LÍO
hafa lýst yfir vilja til að semja um að
slíta samningnum. „Í ljósi þess að það
er mjög mikilvægt að traust ríki
gagnvart þeim sem sinna áætlunar-
flugi og sjúkraflugi var gengið til
þessara samninga og niðurstaðan sú
að þeim yrði slitið,“ sagði ráðherra.
Leiguflugi Ísleifs Ottesen voru
greiddar 9,7 milljónir króna í bætur
vegna slita á samningnum en ráð-
herra sagði að ekki yrði upplýst um
frekari efnisatriði samningsins um
slitin. Í framhaldi af því var gengið frá
bráðabirgðasamkomulagi við Íslands-
flug eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær en jafnframt verður
nýtt útboð undirbúið. Íslandsflug átti
þriðja lægsta tilboðið í sjúkraflug og
áætlunarflug milli Reykjavíkur og
Gjögurs og innan Vestfjarða. Flug-
félagið Jórvík sem átti næstlægsta til-
boðið hefur ekki flugrekstrarleyfi
sem stendur.
Sjúkra- og áætl-
unarflug boðið
út á næstunni
UPPGANGA á hátindana sjö, sem
er næsta viðfangsefni Haralds
Arnar Ólafssonar, telst án efa
eitt eftirsóknarverðasta takmark
fjallgöngumanna innan al-
þjóðafjallgöngusamfélagsins.
Keppnin um að komast á alla
tindana hófst fyrir alvöru
skömmu eftir 1980. Segja má að
keppninni hafi lokið með sigri
Bandaríkjamannsins Dick Bass
þegar hann komst á síðasta tind-
inn í röðinni, sjálfan hátind Ever-
est 30. apríl 1985.
Fram til ársins 1999 eru skráð-
ir 65 fjallgöngumenn sem komist
hafa á hátindana sjö, hæsta tind
hverrar heimsálfu. Þess ber þó að
geta að tveir tindar virðast
jafngjaldgengir sem einn Há-
tindanna sjö, eftir því hvernig
menn hafa skilgreint hugtakið
heimsálfa. Þannig er viðurkennt
ef valinn er Kosciuszko-tindur
(2.228 m) í Ástralíu í stað
Carstensz Pyramid (4.884 m) í
Nýju Gíneu í Eyjaálfu – eða
öfugt. Margir fjallgöngumenn
hafa hins vegar leyst málið með
því að ganga á báða þessa tinda.
Erfitt að komast að Vinson
Á árunum 1970 til 1980 var
farið að horfa til hátindanna sjö
sem sjálfstæðs fjallgönguverk-
efnis en aðalþröskuldur fjall-
göngumanna var einn tindanna,
Vinson á Suðurskautslandinu. Í
ljósi afar takmarkaðra sam-
gangna á því svæði var uppganga
á tindinn bæði fjárhagslega og
tæknilega erfið í samanburði við
uppgöngu á hina tindana sex.
Meðal þeirra sem hafa komist á
hátindana sjö er breski fjall-
göngumaðurinn Doug Scott sem
er íslenskum fjallgöngumönnum
að góðu kunnur. Hann var hér á
landi fyrir skömmu til tilefni
fjallgöngumyndasýninga í
Reykjavík og kom fram í viðtali
við Morgunblaðið 20. mars.
Um einn tugur kvenna hefur
náð því að ganga á hátindana sjö,
þar af tvær sem komust í heims-
fréttirnar í maí árið 1996 þegar
báðar voru að ljúka verkefninu
með uppgöngu á sjöunda og síð-
asta fjallið, Everest. Þetta voru
þær Yasuko Namba frá Japan og
Sandy Hill Pittmann frá Banda-
ríkjunum. Uppgangan kostaði
Namba lífið og gekk nærri af
Pittmann dauðri í fárviðri sem
kostaði á annan tug mannslífa á
fjallinu á einum sólarhring.
Í sömu ferð dó Ný-Sjálending-
urinn Rob Hall sem var níundi
maðurinn í heiminum til að kom-
ast á hátindana sjö árið 1990 með
uppgöngu á Aconcagua, hæsta
tind S-Ameríku.
Nokkrir íslenskir fjall-
göngumenn hafa klifið einn til
tvo hátindanna sjö. Fyrsti tind-
urinn, Kilimanjaro, féll að fótum
Agnars Kofoeds-Hansens 18. nóv-
ember 1966 og fram á þennan
dag hafa alls fimm tindanna verið
klifnir af Íslendingum, allir nema
Vinson-Massif og Carstenzs Pyra-
mid. Skemmst er að minnast vel
heppnaðs Everest-leiðangurs
þeirra Björns Ólafssonar, Einars
Stefánssonar og Hallgríms Magn-
ússonar sem komust á tind Ever-
est 21. maí 1997.
65 manns hafa komist á hátindana sjö frá 1985 til 1999
!
!
" #
Eftirsótt takmark
fjallgöngumanna
UNGUR piltur liggur nú á lýtalækn-
ingadeild Landpítalans við Hring-
braut með 2.-3. stigs brunasár á baki
sem hann hlaut við gerð stuttmynd-
ar í Kópavogi á þriðjudagskvöld. Að
sögn vakthafandi læknis er líðan
hans nokkuð góð eftir atvikum. Pilt-
urinn er brunninn víðast hvar á bak-
inu en meginhluti brunasáranna er 2.
stigs bruni. Að sögn læknis er óljóst
hvort þörf sé á aðgerð en þörf sé á
nokkurra vikna sjúkrahúslegu.
Rannsóknadeild lögreglunnar í
Kópavogi hefur tekið tildrög slyssins
til rannsóknar, sem bar að með þeim
hætti að grillolíu var hellt á piltinn
og kveikt í við gerð stuttmyndar.
Fjórir piltar á aldrinum 17 til 18 ára,
að hinum slasaða meðtöldum, voru
staddir á svæði vestan við gervigras-
völlinn í Kópavogsdal og voru að yf-
irgefa staðinn á bifreið þegar lög-
regluna bar að eftir tilkynningu kl.
20.30 um eld í manni, frá vegfarenda
að því er talið var. Einn piltanna í
bifreiðinni kvartaði undan sviða í
baki og kom í ljós að hann hafði
brennst. Hann var fluttur á slysa-
deild og síðar á lýtalækningadeild.
Eftir því sem lögreglan kemst
næst voru piltarnir að taka upp
stuttmynd með áhættuatriði. Grillol-
íu mun hafa verið hellt á piltinn og
eldur borinn að. Á meðan þessu fór
fram tók einn piltanna atburðinn upp
á myndbandsupptökuvél. Eftir að
kviknaði í piltinum mun hann hafa
hent sér á jörðina til að slökkva í sér
með aðstoð annars pilts. Eldurinn
kviknaði síðan aftur og náðist þá að
slökkva hann á sama hátt. Lögreglan
lagði hald á myndbandið úr tökuvél-
inni og mun skoða það.
Varðstjóri lögreglunnar sagði að-
spurður of snemmt að segja til um
hvort myndbandið yrði skoðað með
tilliti til þess hvort málið yrði sett í
ákærumeðferð. Hann sagði lögregl-
una engu að síður líta slík atvik mjög
alvarlegum augum og sagði það ein-
kennilegt að þeir sem í hlut áttu
skyldu ekki gera sér betur grein fyr-
ir afleiðingum gerða sinna, en eld-
varnarföt af því tagi sem þjálfaðir
áhættuleikarar nota hefðu ekki verið
notuð.
Hlaut 2.–3. stigs bruna í
slysi við stuttmyndagerð
SKÍÐALEIÐANGUR Guðmund-
ar Eyjólfssonar gekk erfiðlega í
gær, fimmtudag. Hann gekk 12
km í mótvindi og var þjáður í baki
eftir meiðsli eftir óhapp á leiðinni
að Laugafelli þar sem hann gekk
fram af slakka og fékk sleðann í
bakið.
Veðurspá fyrir daginn í dag,
föstudag, er ekki mjög hagstæð,
en spáð var snjókomu sem mun
gera honum erfiðara fyrir. Hag-
stæðari spá er fyrir helgina og
sagði hann mikilvægt að fá sæmi-
legt veður til að ljúka leiðangrin-
um á réttum tíma.
Aðfaranótt fimmtudags gisti
hann í tjaldi sínu við Skjálfanda-
fljót á Gæsavatnaleið og mun hann
eiga um 180 km eftir á leiðarenda.
Erfiður dagur
hjá Guðmundi