Morgunblaðið - 06.04.2001, Side 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 25
Gjöfin þín
Gjöfin
þín
Ótrúlegt en satt - gjöfin þín
sem fylgir ef keyptar eru
vörur fyrir 5.000 kr. eða meira*
*í boði meðan
birgðir endast.
www.lancome.com
á dögum
Snyrtifræðingar frá LANCÔME veita faglega
ráðgjöf varðandi förðun og val á snyrtivörum
föstudag og laugardag.
Hamraborg 20a,
sími 5642011
Reuters
LIONEL Jospin, forsætisráð-
herra Frakklands, réðst í gær að
nýrri stjórn Georges W. Bush í
Bandaríkjunum og sagði hana
eingöngu sinna eigin hagsmunum
án þess að hafa samráð við
bandamenn sína á alþjóðavett-
vangi.
„Mér virðist sem þessi stjórn
sé ekki einangrunarsinnuð held-
ur einhliðasinnuð,“ sagði Jospin í
viðtali við blaðamenn frá fimm-
tán frönskum dagblöðum. Gagn-
rýndi hann meðal annars and-
stöðu Bush við Kyoto-bókunina
um takmörkun á losun gróður-
húsalofttegunda og vék einnig að
hinu umdeilda
eldflauga-
varnakerfi,
sem Banda-
ríkjastjórn
áformar að
koma upp.
Jospin sagði
að svo virtist
sem Bush
„hefði ekki
enn áttað sig á
þeim leikreglum sem gilda í al-
þjóðasamfélaginu,“ en lauk hins
vegar lofsorði á forvera hans,
Bill Clinton, fyrir að hafa tekið
tillit til sjónarmiða annarra ríkja.
Lionel Jospin
ræðst á Bush
París. AFP, AP.
JospinDÓMSTÓLL í Bretlandi dæmdi í
gær hollenska flutningabílstjórann
Perry Wacker í 14 ára fangelsi fyrir
„kaldranalegt“ manndráp á 58 ólög-
legum, kínverskum innflytjendum
sem fundust látnir í bíl hans.
Fyrir dómnum var borið að
Wacker hefði smalað innflytjendun-
um inn í loftlausan gám og síðan,
þegar hann hafi farið að óttast að
innflytjendaeftirlitið myndi finna þá,
lokað eina loftopinu á gámnum.
Tveir innflytjendanna í gámnum
komust lífs af og báru vitni við rétt-
arhöldin.
Búist er við fleiri dómum í
tengslum við þetta mál, sem vakti
óhug víða um heim sl. sumar og af-
hjúpaði miskunnarlaus heimsvið-
skipti í smygli á fólki. Wacker var
handtekinn 18. júní sl. í Dover á
Englandi eftir að embættismenn,
sem leituðu í bíl hans, fundu lík inn-
flytjendanna.
Ying Guo, kínverskur túlkur frá
Essex, var einnig fundin sek og
dæmd í sex ára fangelsi. Hún var
tengill smyglhringsins sem fékk
greitt fyrir að smygla fólkinu til
Englands.Var hún fundin sek um
samsæri.
Við réttarhöldin hélt Wacker því
fram að hann hefði ekki haft hug-
mynd um að fólk væri í bílnum hans.
En DNA-sýni af sígarettustubb sem
fannst í vöruhúsinu í Rotterdam í
Hollandi, þar sem fólkið var sett í
bílinn og lokað inni ásamt kössum
með tómötum, var samstætt sýni úr
Wacker.
Átta menn eru í varðhaldi í Hol-
landi í tengslum við málið og hefjast
réttarhöld yfir þeim í næsta mánuði.
Hópur manna í Rotterdam, undir
stjórn tveggja Tyrkja, sá um evr-
ópska þáttinn í smyglstarfseminni,
en aðrir glæpaflokkar sáu um að
koma fólkinu frá Kína til Evrópu.
Flutningabíl-
stjóri dæmdur
Maidstone á Englandi. AFP.
JÓRDANSKAR listakonur mála
strútsegg í listasmiðju í þjóðgarði
við Azraq-borg í gær. Er ætlun
þeirra að halda sýningu í höfuð-
borginni Amman í næstu viku áður
en páskahátíð kristinna manna
gengur í garð. Strútar í þjóðgarð-
inum verpa um 350 eggjum árlega.
Hvert handmálað egg selst fyrir um
8.500 krónur.
Páskaegg í Jórdaníu
BANN Rússa við innflutningi á
norskum fiski sýnir betur en nokkuð
annað hve nauðsynlegt er, að þeir fái
aðild að Heimsviðskiptastofnuninni,
WTO. Kom þetta fram hjá Jens Stolt-
enberg, forsætisráðherra Noregs, í
gær.
Rússar réttlæta bannið við norsk-
um fiski með gin- og klaufaveiki í
Bretlandi og á meginlandinu en Stolt-
enberg sagði, að þeir hefðu enn ekki
sýnt fram á hvernig sóttin gæti borist
með fiski. Bannið væri hins vegar
veruleiki og það sýndi, að nauðsynlegt
væri, að Rússar hefðu eftir einhverj-
um alþjóðlegum reglum að fara í
þessu efni og það yrði best tryggt
með aðild þeirra að WTO.
Rússar
fái WTO-
aðild
Ósló. Morgunblaðið.
ÍGOR Dygalo, yfirmaður fjölmiðla-
þjónustu rússneska flotans, vísaði í
gær á bug fregnum um að kjarna-
vopn hefðu verið um borð í kjarn-
orkukafbátnum Kúrsk, að sögn Aft-
enposten. Kúrsk sökk á Barentshafi
í fyrra og fórust með honum yfir
hundrað manns.
Einn af félögum í rússneskri rann-
sóknarnefnd vegna Kúrsk-slyssins,
Gregorí Tomtsjín, fullyrti í sjón-
varpsviðtali á miðvikudag að kjarna-
vopn hefðu verið í Kúrsk en sagði að
ekki stafaði mikil hætta af þeim.
Norskur sérfræðingur hefur einnig
sagt að hann hafi séð skjöl sem
benda til að slík vopn hafi verið í
bátnum.
„Gregorí Tomtsjín hefur oft látið
frá sér fara slíkar persónulegar at-
hugasemdir án þess að velta fyrir sér
hvað þær geta valdið miklum
áhyggjum hjá almenningi,“ sagði
Dygalo.
Rússar um Kúrsk
Engin
kjarna-
vopn