Morgunblaðið - 06.04.2001, Side 34
LISTIR
34 FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LEIKARAR og aðrir aðstand-endur sýningarinnar eru enná þönum um leikhúsið þegar
blaðamann ber að garði. Þeir Kenn
Oldfield og Þórhallur Sigurðsson
gefa sér þó tíma til að setjast niður
um stund til að ræða æfingaferli lið-
inna vikna. „Það er svo gríðarlega
margt sem þarf að huga að í viðamik-
illi uppfærslu á borð við þessa,“ segir
Kenn, og í þeim töluðum orðum grúf-
ir Þórhallur sig niður í yfirlestur á
minnispunktum og lætur leikstjór-
ann um viðtalið. Kenn er búsettur í
Englandi en hefur unnið reglulega
með íslensku atvinnuleikhúsunum
frá árinu 1984, en þá kom hann hing-
að til lands til að semja dansa fyrir
söngleikinn Gæjar og píur. Auk þess
að leikstýra uppsetningunni, samdi
Kenn dansana fyrir sýninguna og
naut þar dyggrar aðstoðar Ástrósar
Gunnarsdóttur. Þórhallur Sigurðs-
son er til aðstoðar við leikstjórnina.
„Sköpunarferli á borð við þetta
byggist fyrst og fremst á samvinnu.
Mitt hlutverk og Þórhalls er að veita
hæfileikafólkinu ráð og aðhald,
draga fram það besta í hverjum og
einum.“ Hann bætir því við að sam-
starf þeirra Þórhalls hafi verið ein-
staklega gott. „Leikstjórinn þarf
einnig á leiðsögn að halda, og það er
mjög mikilvægt að hafa einhvern sér
við hlið sem maður treystir og getur
gefið manni góð ráð,“ ítrekar Kenn.
Söngleikur um Hollywood
Söngleikurinn Syngjandi í rign-
ingunni (Singin’ in the Rain) byggist
á samnefndri kvikmynd frá 1952,
sem óhætt er að telja eina alvinsæl-
ustu dans- og söngvamynd sem gerð
hefur verið. Í aðalhlutverkum voru
snilldardansararnir Gene Kelly og
Debbie Reynolds, en sá fyrrnefndi
leikstýrði einnig myndinni og samdi
dansana ásamt Stanley Donen.
Kvikmyndahandritið skrifuðu þau
Betty Comden og Adolph Green, en
þau eru jafnframt höfundar sviðs-
gerðarinnar.
Sagan á sér stað á undir lok þriðja
áratugarins, um það leyti sem þöglu
myndirnar eru að renna sitt skeið í
Hollywood og talmyndirnar að taka
við. Tónlistin í myndinni er sótt í
smiðju þeirra Arthurs Freeds og
Nocios Herbs Browns, en þeir
sömdu fjölmörg vinsæl lög fyrir
dans- og söngvamyndir í kringum
1930. Titillagið Singin’ in the Rain
var t.d. fyrst notað í kvikmyndinni
The Hollywood Review of 1929.
Syngjandi í rigningunni segir róm-
antíska og gamansama sögu af þess-
um umskiptatíma í Hollywood. Við
kynnumst í fyrstu kvikmyndastjörn-
unni Don Lockwood og tónlistarhöf-
undinum Cosmó Brown, sem náð
hafa langt í kvikmyndabransanum á
tímum þöglu myndanna. Helsta mót-
leikkona Dons er Lína Lamont –
sjálfhverft glæsikvendi sem baðar
sig í sviðsljósinu. Þegar kvikmynda-
verið sem þau starfa hjá reynir að
svara kröfum markaðarins og fram-
leiða talmynd, kemur upp stór vandi.
Lína Lamont er nefnilega með
hryllilega rödd og getur lítið sem
ekkert sungið. Þar kemur sviðsleik-
konan Kathy Selden til sögunnar, en
þau Don fella hugi saman. Kathy
tekur það að sér að tala og syngja inn
á hljóðrásina í staðinn fyrir Línu,
sem verður enn skærari stjarna fyrir
vikið.
Í fótspor Gene Kelly
Þetta er í fyrsta sinn sem söng-
leikurinn Syngjandi í rigningunni er
settur upp hér á landi. Leikgerðin er
lengri en kvikmyndin og hefur tekið
nokkrum breytingum í gegnum tíð-
ina. „Lína Lamont fær til dæmis ein-
söngslag í leikgerðinni, en það gefur
persónu hennar meiri dýpt en í kvik-
myndinni. Hún er hið dæmigerða
skass, en í einsöngnum sjáum við
viðkvæmari hliðar á henni. Í kvik-
myndinni er megináherslan á kvik-
myndastjörnuna Gene Kelly, en í
leikritinu fá aðrar persónur dálítið
meira svigrúm.“ Skýringuna á því
segir Kenn ekki síst vera þá að að-
dráttarafl söngleikja í dag sé ekki
byggt upp á því að flagga einni,
stórri stjörnu, heldur hópi hæfileika-
fólks. Hann viðurkennir þó að í upp-
setningum á sviðsverkinu hljóti leik-
ararnir alltaf að glíma að einhverju
leyti við samanburðinn við hin frægu
söng- og dansatriði kvikmyndarinn-
ar. „Fólk hneigist óhjákvæmilega til
að bera þetta saman,“ segir Kenn.
„Mér finnst mikilvægt að ekki sé
reynt að líkja eftir kvikmyndinni,
heldur að við sköpum okkar eigin út-
gáfu. Ég sagði til dæmis strax í upp-
hafi við leikarana: „Ekki reyna að
feta í fótspor Gene Kelly, það getur
ekki nokkur maður.“ Leikararnir
verða hreinlega að gefa hlutverkinu
þann stíl eða persónuleika sem þeir
hafa til að bera. Rúnar Freyr hefur
sjarmann og útlitið, og það eru í raun
95% af því sem til þarf.“ Auk Rúnars
Freys Gíslasonar, sem leikur Don
Lockwood, eru aðalhlutverkin í
höndum þeirra Selmu Björnsdóttur,
sem leikur Kathy, Þórunnar Lárus-
dóttur sem fer með hlutverk Línu og
Stefáns Karls Stefánssonar sem
leikur Cosmó.
Kvikmyndin og leikhúsið
Í kvikmyndinni Syngjandi í rign-
ingunni er leikið með hugmyndir um
kvikmyndaiðnaðinn og eru þar m.a.
búnar til nokkurs konar kvikmyndir
innan kvikmyndarinnar. Í leikgerð-
inni flækjast þessi tengsl óneitan-
lega, en þar sjáum við t.d. atriði þar
sem sviðsleikarar leika kvikmynda-
tökufólk, sem er að filma leikara á
tökustað. Leikhúsgestir fá einnig að
sjá kvikmyndasýningar á sviðinu, og
þannig rennur leikhúsformið og
kvikmyndaformið saman á óvæntan
hátt. Kenn segir þessa blöndun list-
forma í leikritinu skemmtilega.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég læt
leikhúsið og kvikmyndina vinna
svona saman í leikriti. Mér finnst
þetta ganga vel upp, þó svo að það sé
í raun allsendis ólík stemmning sem
fylgir kvikmyndinni og leikhúsinu
sem slíku. Þegar kvikmyndasýning-
arnar hefjast í leikritinu setur fólk
sig ósjálfrátt í ákveðnar stellingar,
en ég held að leikritið njóti góðs af
þessum innslögum, því leikhúsið
verður svo lifandi í samanburði við
kvikmyndina. Hin lifandi návist leik-
aranna er að mínu mati það sem gef-
ur leikhúsinu gildi. Það er stöðugt í
mótun, milli sýninga og sú upplifun
laðar fólk að leikhúsinu.“
Kenn bætir því við að dans- og
söngleikjaformið sé einnig sérstakt í
þessu tilliti, því þar sé að finna
nokkurs konar lifandi ævintýra-
heim, sem áhorfendur geta látið sig
hverfa inn í meðan á sýningunni
stendur. Kenn bendir á að aðstand-
endur sýningarinnar hafi lagt sig
fram við að gera umgjörð hennar
sem glæsilegasta, búningahönnun
Elínar Eddu Árnadóttur miði t.d. að
því að endurskapa draumkenndan
glæsileik Hollywood-stjarnanna,
hljómsveitin sem leikur undir á sýn-
ingunni sé skipuð úrvalsfólki og Sig-
urjón Jóhannsson leikmyndahönn-
uður hafi náð að galdra fram
úrhellisrigningu á Stóra sviði Þjóð-
leikhússins.
„Við vonum að fólk komi til með að
njóta sýningarinnar og haldi heim að
að henni lokinni uppfullt af vellíðan.
Meira förum við ekki fram á.“
Að lokum segir Kenn að nú þegar
komið sé að lokum æfingaferlisins
verði ef til vill erfiðast fyrir þá Þór-
hall að sleppa hendinni af sköpunar-
ferlinu. „Við höfum verið að færa
okkur smám saman aftar í salinn á
æfingum. Á lokaæfingunni verðum
við alveg aftast, en á frumsýningunni
er komið að okkur að draga okkur í
hlé og láta leikarana taka við,“ segir
Kenn Oldfield að lokum.
Úrhellisrigning
á Stóra sviði
Þjóðleikhússins
Í kvöld mun rigna á sviði Þjóðleikhússins
en tilefnið er frumsýning á söngleiknum
Syngjandi í rigningunni, sem hefst kl. 20.
Heiða Jóhannsdóttir spjallaði við leik-
stjórann Kenn Oldfield daginn fyrir
frumsýningu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Rúnar Freyr Gíslason og Stefán Karl Stefánsson skemmta áhorfendum í Syngjandi í rigningunni.
Þórunn Lárusdóttir leikur stórstjörnuna frökku Línu Lamont. Selma Björnsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason í hlutverkum Kathy og Don.
heida@mbl.is
SÖNGLEIKURINN Syngjandi í
rigningunni er byggður á sam-
nefndri kvikmynd frá árinu 1952.
Höfundar handrits og sviðsgerðar
eru Betty Comden og Adolph
Green, en tónlistin er sótt í smiðju
Arthurs Freeds og Nacios Herbs
Browns.
Frumsýning verður í Þjóðleik-
húsinu í kvöld kl. 20.
Leikendur:
Rúnar Freyr Gíslason,
Selma Björnsdóttir
Stefán Karl Stefánsson
Þórunn Lárusdóttir
Pálmi Gestsson
Kjartan Guðjónsson
Vigdís Gunnarsdóttir
Sigríður Þorvaldsdóttir
Valur Freyr Einarsson
Inga María Valdimarsdóttir
Guðmundur Ingi Þorvaldsson
Linda Ásgeirsdóttir
Marta Nordal
Sigrún Waage
Þórunn Erna Clausen
Jón Páll Eyjólfsson
Jóhann Freyr Björgvinsson
Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Jóhann Örn Ólafsson
Julia Gold
Bjartmar Þórðarson
Leikstjóri og danshöfundur:
Kenn Oldfield
Aðstoðarleikstjóri:
Þórhallur Sigurðsson
Tónlistar- og
hljómsveitarstjóri:
Jóhann G. Jóhannsson
Aðstoðarmaður
danshöfundar:
Ástrós Gunnarsdóttir
Höfundur leikmyndar:
Sigurjón Jóhannsson
Höfundur búninga
Elín Edda Árnadóttir
Hönnuður lýsingar:
Páll Ragnarsson
Hljóðstjóri:
Sveinn Kjartansson
Þýðandi:
Karl Ágúst Úlfsson
Leikendur og list-
rænir stjórnendur