Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 37
Klapparstíg 40
Sími 552 7977.
Handmálaðir
grískir íkonar
Falleg
fermingargjöf
íslenskum
þjóðararfi
OFNÆMI framsóknarmanna fyr-
ir faglegum og siðferðislegum
reglum sem kenndar eru við heil-
brigða skynsemi virðist engan bata
ætla að fá. Í nafni ráðherraembættis
er hæstvirtur umhverfisráðherra
orðinn akandi auglýsing fyrir eitt af
stærri bílaumboðum landsins. Í
nafni umhverfis hvetur hún til
áframhaldandi notkunar einkabif-
reiða á sama tíma og nágrannalönd
okkar leggja ríka áherslu á hið
gagnstæða, þ.e. aukna notkun al-
menningssamgangna. Athyglisverð
þróun í íslenskum stjórnmálum.
Bágt er að stíga dans í takt við
hugsun ráðherra. Skýringar fylgja.
Fjölmiðlafíkn
Fíkn stjórnmálamanna í sviðsljós
fjölmiðla á sér blómlega sögu.
Ganga sumir svo langt að taka að
sér aðalhutverk í auglýsingaáróðri
fyrirtækja. Gildir einu hvort um er
að ræða opnun fyrsta veitingastaðar
McDonalds á Íslandi eða nýjungar í
bíla- eða fjarskiptaiðnaði. Undir
hentifána embættis síns hefur hæst-
virtur umhverfisráðherra tekið að
sér lykilhlutverk almannatengsla,
fengið „umhverfisvænan“ bíl til um-
ráða næstu mánuðina. Það er álíka
gáfulegt og ef lyfjafyrirtæki færu að
kosta einstaka rekstrarþætti heil-
brigðisráðuneytisins. Hætta er á því
að kostun fari að gegnumsýra hið
opinbera embættiskerfi. Ráðherra
er ekki kosinn í embætti sitt heldur
skipaður, og erfitt að bera því við að
óskir kjósenda eða sjónarmið lýð-
ræðis ráði hér ferðinni. Spurning til
ráðherra: er slík vinna við almanna-
tengsl hluti af skyldum embættis-
ins?
Rökhæfni
Öllu skemmtilegra er að sjá
hvernig ráðherra er (mis)notaður til
þess að teygja duglega á gildi hug-
taksins „umhverfisvænt“, sem á síð-
ustu árum hefur óspart verið notað í
markaðslegu samhengi. Umhverfis-
vænir prentarar, tölvur, bílar og
ekki síst stjórnmálaflokkar rúlla
fram á grænu færibandi velferðar-
samfélagsins. Ætla mætti að slíkir
kostir leysi lúpínuna af hólmi við
uppgræðslu lands, svo vænir eru
þeir! Þessi falska uppbygging já-
kvæðrar ímyndar minnir einna helst
á samkomur kvikmyndastjarna frá
Hollywood í Nevada-eyðimörkinni
um miðbik síðustu aldar til þess að
fylgjast með tilraunakjarnorku-
sprengingum. „Þvílík upplifun!“
hrópaði fólk. Ráðherra gefur til
kynna að bílar séu í reynd „um-
hverfisvænir“. Spurning til ráð-
herra: hversu umverfisvænir eru
bílar og notkun þeirra?
Hugrekki fjölmiðla
Aðgerðaleysi fjölmiðla í þessu
máli er gagnrýniverð. Fréttaflutn-
ingur er í símskeytastíl. Stuttlega
var greint frá því að bifreiðaumboð
hefði látið umhverfisráðherra í té
umhverfisvæna bifreið og voru kost-
ir bifreiðarinnar taldir upp. Ætla
mætti að „styrkir“ af þessu tagi til
ráðherra eða annarra embættis-
manna væru daglegt brauð, ekkert
við það að athuga þótt hin ýmsu fyr-
irtæki auglýstu sína vöru á þennan
hátt. Tilkynning þessi á í raun ekk-
ert skylt við fréttir. Þetta er í besta
falli auglýsingamennska en í versta
falli gjaldþrot gagnrýnnar blaða-
mennsku og upphafið á undirlægni
gagnvart stjórnvöldum. Engum datt
í hug að spyrja ráðherra á hvaða
forsendum henni væri stætt á því að
taka við þessari bifreið.
Fjölmiðlar hafa ekki skorið upp
herör gagnvart ráðherra sem keppi-
naut um auglýsingatekjur. SVR og
önnur fyrirtæki tengd almennings-
samgöngum hafa heldur ekki komið
fram með gagnrýni á hendur ráð-
herra sem virðist með þessu hvetja
til notkunar einkabifreiða. Ætli
dráttarvélaumboðin sannfæri land-
búnaðarráðherra um að leggja reið-
stígvélin á hilluna á sömu forsend-
um?
Lýðræðislegt aðhald
Hvert er hlutverk fjölmiðla í máli
sem þessu? Þegar tilkynningar-
skyldu þeirra er lokið, þ.e. texti
stjórnmálamanna er birtur á ógagn-
rýnan hátt, ættu þeir að spyrja af
hverju þetta átti sér stað. Er ekki
eitthvað athugavert við það að nota
ráðherraembætti á þennan hátt í
auglýsingaskyni? Hvernig stendur á
því að fjölmiðlar tóku
ekki afstöðu til þessa
máls, með eða á móti?
Þrátt fyrir flokkspóli-
tísk tengsl hinna stóru
dagblaða í Danmörku
er þar lögð ofuráhersla
á að temja sér gagn-
rýninn og hlutlausan
fréttaflutning. Þannig
veita blöðin það sem
kalla mætti lýðræðis-
legt aðhald. Ráðherrar
hafa þurft að yfirgefa
stóla sína eftir slíka
umfjöllun, og er enn
eitt málið í uppsiglingu
þessa dagana! Um-
rædd fréttatilkynning
afhjúpar ekki einungis dómgreind-
arleysi ráðherra heldur líka óvand-
aða fréttamennsku. Spurning til
fjölmiðla: Halló! Er einhver heima?
Virðing við kjósendur
Ráðherra hefur dæmt sjálfan sig
vanhæfan til þess að taka hlutlausa
afstöðu til átaka í umhverfismálum í
framtíðinni, sér í lagi þeim er snúa
að þeim vörum og ekki síst fyrir-
tækjum sem kosta bifreiðina (þ. á
m. Olís). Rétt er að undirstrika, að
vörur þeirra fyrirtækja (bílar, elds-
neyti) sem kosta umrædda bifreið
valda mikilli mengun og óþægindum
í flestum stærri borgum heimsins.
Þess vegna er rétt að spyrja ráð-
herra hvort umrædd fyrirtæki séu
með þessu búin að kaupa sér góð-
vild í umhverfisráðuneytinu? Þetta
er kannski hluti af einkavæðingu
umhverfisráðuneytisins? Í dag eru
einhverjir tugir þúsunda Toyota-
bíla á skrá á landinu. Gaman væri
að vita hver muni bera kostnaðinn
af því að farga þessum bílum á
næstu tveimur áratugum. Og hvað
með rafgeymana úr „umhverfis-
vænu“ bílunum? Kannski urðun í
102 Reykjavík sé lausnin? Eða ætli
Toyota taki að sér að flytja hræin til
útlanda, þeir kostuðu jú flutning inn
í landið? Framsóknarmenn munu
aldrei senda skattgreiðendum
reikninginn, þeir boða jú nýja
strauma og stefnur á fundum sínum
þessa dagana! Skilaboð ráðherra
eru engu að síður brengluð. Atferlið
stangast á við meginstefnu ná-
grannalanda okkar í samspilinu á
milli samgöngu- og umhverfismála.
Spurning til ráðherra: hvað þarf
trúverðugt umhverfisráðuneyti að
hafa til brunns að bera? Til eru fræ.
En eru til svör?
Umhverfisráðuneyti –
fyrsta, annað, þriðja … selt?
Árni
Halldórsson
Umhverfisvernd
Þetta afhjúpar ekki ein-
ungis dómgreindarleysi
ráðherra, segja Árni
Halldórsson og Þor-
steinn Tryggvi Másson,
heldur líka óvandaða
fréttamennsku.
Árni stundar doktorsnám við Við-
skiptaháskólann í Kaupmannhöfn.
Þorsteinn Tryggvi stundar meistara-
nám í sagnfræði og heimspeki við
Hróarskelduháskóla.
Þorsteinn Tryggvi
Másson
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri