Morgunblaðið - 06.04.2001, Page 42

Morgunblaðið - 06.04.2001, Page 42
UMRÆÐAN 42 FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í haldssemi Íslendinga er verðugt rannsóknarefni, sem ekki hefur verið kannað sem skyldi. Vafa- laust er engin einhlít skýr- ing til á þessu upplagi þjóðarinnar og telja verður að ýmsir þættir hafi þar haft mótandi áhrif. Þannig er freistandi að ætla að ótti þjóð- arinnar við breytingar tengist á einn veg eða annan þeim rang- hugmyndum, sem henni hafa verið innrættar um yfirburði og algjöra sérstöðu eigin menningar. Alltjent er það ekki að ástæðu- lausu sem viðleitni til að koma á breytingum á Íslandi verður helst líkt við tilraun til að kveikja í drullupolli. Á undanliðnum dögum hefur nokkuð verið rætt um hátt verð á matvöru hér á landi, sem til er komið sökum hafta og vernd- artolla. Íhaldssemin er slík að þjóðin kýs fremur að sætta sig við verðlag, sem gengur brjál- semi næst, en að knýja fram breytingar á þessu sviði. Uppnám vegna mafíustarfsemi og græn- metisglæpa mun engu breyta í því viðfangi. Vinnubrögð íslensku stjórnmálastéttarinnar komu ber- lega í ljós á Alþingi á miðvikudag. Skyndilega höfðu síðustu áratugir liðið án þess að stjórnmálamenn hefðu nokkurn grun um það kerfi, sem þeir og forverar þeirra smíð- uðu. Á Alþingi flykktust kjörnir fulltrúar almennings í pontu og sögðu: „Það er óþolandi með öllu að okrað sé á neytendum í þessu landi.“ Ósvífnin, sem einkennir þennan málflutning, er slík, að hún fer nærri því að teljast aðdáunarverð. Varla getum við trúað því að staðist fái fullyrðingar um að ís- lenska stjórnmálastéttin sé ekki í viðunandi tengslum við umhverfi sitt og samtíma? Nei, það getur ekki verið. Slíku halda aðeins fram atvinnukjaftaskar og jú, forseti lýðveldisins. Saga nútímastjórnmála á Ís- landi er einnig upplýsandi um íhaldssemi þjóðarinnar. Rík- isstjórnir renna þar saman í einn graut og einungis ein verður tengd við djúpstæðar breytingar á sam- félaginu á seinni árum. Hér ræðir um Viðreisnarstjórnina svonefndu, sem innleiddi löngu tímabærar breytingar, einkum á vettvangi verslunar og viðskipta. Það segir sitt um íhaldssemi Ís- lendinga og kyrrstöðusamfélagið sem þróast hefur fram í lýðveldinu að þá viðreisnarleiðtogana má telja í hópi pólitískra byltingarmanna á Íslandi. Svo fullrar sanngirni sé gætt er skylt að geta þess að eilítið hefur miðað í umbótaátt í tíð síðustu þriggja ríkisstjórna. Fyrir þessum ríkisstjórnum hefur Sjálfstæð- isflokkurinn farið og vaknar því sú spurning hvort þjóðlegir íhalds- menn geti einir fengið Íslendinga til þess að sætta sig við breytingar. Líkt og ríkisstjórnir lýðveldisins renna flokkar og samtök saman í einn graut og illmögulegt er að gera á þeim greinarmun. Það er enda skilgreiningaratriði um drullupolla að í þeim sést ekki til botns. Með sama hætti og andstaða við breytingar gegnsýrir þjóðlífið ein- kennist umræða um samfélagsmál af þeim sömu sálarhræringum. Þjóðfélagsumræða er lítt skipuleg auk þess sem flokkshyggja, nánast trúarleg hollusta við tiltekin stjórnmálaöfl, mótar hana í meiri mæli en heppilegt getur talist. Fyrir vikið verður nefnd umræða staglkennd og hana taka að ein- kenna um of réttnefndir „frasar“. Íhaldssemi og frasakenndur málflutningur hefur þannig mótað viðbrögð stjórnarandstöðunnar við þeim áformum Davíðs Oddssonar forsætisráðherra að leggja niður Þjóðhagsstofnun. Stjórnarand- staðan hefur því miður dottið niður á það menningarstig „frasasmið- anna“ að tengja sérhver ummæli forsætisráðherra við meint fúl- lyndi hans og refsigleði. Það hryggilega við þennan málflutning er að með þessu móti nær nauð- synleg og löngu tímabær umræða um margvíslegar kerfisbreytingar á Íslandi aldrei flugi. Undrun vekur að öfl sem kenna sig við „umbætur“ á stjórn- málasviðinu skuli bregðast við til- raunum til nýrra efnistaka með þessum hætti. Menn verða að virða efnisatriði málsins sama hvaða skoðanir þeir kunna að hafa á persónu forsætisráðherrans eða störfum. Það er með öllu ólíðandi að aldr- ei megi vekja máls á breytingum í þessu landi án þess að upp rísi aft- urhald allra flokka. En þessi eru jafnan viðbrögðin enda ógerlegt að kveikja í drullupolli. Vitanlega hljóta nútímalega þenkjandi menn að fagna því að Davíð Oddsson skuli loks hafa nefnt opinberlega löngu tímabær- ar kerfisbreytingar. Ætla verður að þetta sé aðeins upphafið og rík- isstjórnin beiti sér fyrir samruna stofnana og skipulegri fækkun þeirra. Vilji ríkisstjórnarinnar til breyt- inga hefur fram til þessa ekki rist djúpt. Þannig hafa herrar þjóð- arinnar kosið að hreyfa í engu við þeim viðamikla og íþyngjandi eftirlitsiðnaði, sem myndast hefur hér á landi. Aukinheldur er brýnt að núverandi ráðamenn taki að hyggja að einstaklingsfrelsinu á Íslandi, sem ekki hefur þróast fram með sama hraða og frelsi á sviði verslunar og hvers kyns við- skipta. Enn eru furðuleg höft lögð á val- og athafnafrelsi manna á Ís- landi. Í þessu viðfangi er vert að hafa eftirfarandi sannindi í huga: And- staða hefur jafnan verið mikil hér á landi við hvers kyns breytingar. Tíminn hefur hins vegar jafnan leitt í ljós að í nánast öllum til- fellum var um löngu tímabærar umbætur að ræða, sem almennt er ekki lengur deilt um. Þegar yngra fólk horfir til baka fyllist það jafn- an undrun yfir að stærri sam- félagsbreytingar skyldu ekki hafa verið innleiddar löngu fyrr. Ís- lenskir stjórnmálamenn verða enda flestir mun frekar tengdir við skipulega andstöðu við breytingar en ný efnistök og viðleitni til um- bóta. Það undarlega er að þetta á við um alla flokka og skiptir þá engu hvaða upplýsingar berast um grænmetisglæpi og mafíustarf- semi. Enda verður ekki sagt að drullu- pollurinn sé eitt logandi eldhaf. Eldsmatur í drullupolli Grænmetisglæpir og mafíustarfsemi fá vart hróflað við íhaldssemi Íslendinga. VIÐHORF Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is ÞAÐ ER með út- gerðir og útgerðar- menn, eins og alla aðra, að ekki eru allir jafn hæfir. Sumum gengur vel þar sem öðrum gengur illa. Oft er erfitt að mæla ár- angur manna. Einn mælikvarði er til um frammistöðu útgerða – og það er fiskverðið. Sumar útgerðir selja allan fisk á markaði og virðast una hag sínum vel. Aðrar gera það aldrei. Verðmun- ur á lönduðum fiski til þeirra sem selja frjálsri sölu og þeirra sem selja í því sem kallað er bein sala – það er sjálfum sér – er oft um 100 pró- sent. Það eiga útgerðir og sjómenn sameiginlegt að sækja fisk í sjó og þess vegna ættu að vera sameig- inlegir hagsmunir beggja að fá sem hæst verð fyrir aflann. Rétt eins og með aðra framleiðendur eða selj- endur vöru. Því hærra verð – því betra. Þess vegna er það öfugsnúið að útgerðin skuli verjast háu fisk- verði eins og hún lifandi getur. En hvað er fiskverð og hvaða áhrif hefur það? Til að mynda mið- ast laun sjómanna við það verð sem fæst fyrir fiskinn og þeirra hags- munir eru því augljós- ir. Ég sá á fréttavefn- um mar.is viðtal við útgerðarmann. Hann sagði: „Ég tel að ástandið verði ekki gott fyrr en allur fiskur fer um markað. Það má vel vera að það sé ekki best fyrir alla en það er það besta sem sjó- menn geta fengið. Það er ekki hægt að hafa þetta eins og það er. Sumir útgerðarmenn tilkynna mannskapn- um um fast verð – al- veg niður í 50 krónur og aðrir miklu meira og svo eru út- gerðir eins og okkar sem selur allt á markaði. Það verður að breyta þessu. Það er ekki hægt að bjóða fiskverkendum upp á þessa mis- munun heldur. Það er ekki hægt að sumir geti fengið hráefnið á 50 krónur þegar aðrir verða að borga 200 krónur. Það má vera að fisk- verð lækki ef allur fiskur fer um markað og okkur hlutur yrði rýrri. En það verður þá svo að vera – það þurfa fleiri að lifa en við.“ Ég er honum algjörlega sammála. Í ljósi þess hversu misvel út- gerðum lætur að fá sem hæst verð fyrir aflann langar mig að velta upp spurningu um hvort ekki sé rétt að leggja meira traust á þá út- gerðarmenn sem sannarlega standa sig. Þar sem auðlindin er takmörkuð má spyrja hvort ekki sé þá best fyrir alla að þeir fái kvót- ann sem eru tilbúnir að borga rétt verð – þeir sem selja fiskinn á markaði – að þeir fái kvótann. Færeyingar voru í sömu sporum og við erum. Þeir höfðu vit á að söðla um og í bréfi sem Fiski- mannafélag Færeyja sendi Davíð Oddssyni er áskorun til hans um að Íslendingar fari að reynslu þeirra. Færeyingar fullyrða að með því hafi afkoma veiða og vinnslu stór- batnað. Reyndar segjast Færey- ingarnir vera vissir um að með því að selja allan fisk um markað muni hagur allra landsmanna batna – það gerðist í Færeyjum. Treystum á þá hæfustu Jónas Garðarsson Útgerð Er ekki best fyrir alla, spyr Jónas Garðarsson, að þeir fái kvótann sem eru tilbúnir að borga rétt verð? Höfundur er formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. LAUGARDAGINN 24. mars sl. birtist á þessum vettvangi grein þar sem Sigríður Jóhannsdóttir, þing- maður Samfylkingar- innar, vitnar í fremur „torskilda grein“ eftir undirritaðan þar sem hún segir að ég vilji bæði brjóta niður kjarasamning kennara og breyta grunnskól- anum í dagvist barna á sumrin. Fyrst háttvirt- ur þingmaður (félags- hyggjuflokks) og reyndar grunnskóla- kennari til margra ára skilur ekki hvað ég er að fara í grein minni tel ég nauðsynlegt að upplýsa þingmanninn um nokkur atriði. Ég hef engan áhuga á að skól- anum sé breytt í dagvist fremur en aðrir foreldrar sem ég þekki. Í fimmta þætti um 20. öldina sem sýndir voru á Stöð 2 í vetur sagði Jón Ársæll Þórðarson: „Skólar landsmanna eru miðaðir við að börn geti dvalist í sveit sumarlangt og séð er til að skólunum ljúki helst fyrir sauðburð og kennsla hefjist ekki fyrr en eftir réttir á haustin“ (birt með leyfi höf.). Það er óskiljanlegt að ennþá í dag skuli fólk loka aug- unum fyrir því að það er löngu tíma- bært að breyta uppbyggingu skóla- ársins, þar sem núverandi forsendur eru brostnar. Í dag kostar það tugi þúsunda að senda barn í sveit. Áhugalausir foreldrar? Skólamenn kvarta oft yfir áhuga- lausum foreldrum sem ómögulegt sé að fá til samstarfs við skólana. En hvað gerist þegar foreldrar fara að gera kröfur? Eitt af því einkenni- lega sem gerist þegar foreldrar vilja að börnin þeirra fái meiri kennslu en nú er í grunnskólum er að þeir fá stimpil sem letingjar sem nenni ekki að sinna börnunum sínum og líti á skólann sem geymslustað. Er það þá rangt af foreldrum að gera þá kröfu að börnin þeirra fái betri menntun en börnin í löndunum sem við erum að keppa við; að okkar börn standi sig betur en börn keppi- nautanna? Um leið og minnst er á lengingu skólaársins fara kennarar og samtök þeirra í vörn og slá um sig með löngu úr sér gengnum klisj- um. Það er staðreynd að við erum að dragast aftur úr. 170 kennsludagar og 180 skóladagar henta kennurum en engum öðrum og þarf ekki mjög vitiborinn mann til að skilja hvað ég er að fara. Það er því þingmaður Samfylk- ingarinnar, fyrrver- andi kennari og stjórn- armaður í Kennarasambandinu frá 1982-1991, sem er í hópi þeirra sem kyrja sönginn um að foreldr- ar nenni ekki að passa börnin sín og að skól- arnir séu geymslustað- ur fyrir lata foreldra þegar minnst er á lengra skólaár. Ef þessi ósk mín er, að mati Sigríðar, að brjóta niður kjarasamning kennara þá er samn- ingurinn orðinn að varnarmúr kenn- arastéttarinnar sem einangrar hana frá samfélaginu. Sigríður fer fögrum orðum um framsýni bæjarfyfirvalda í Hafnar- firði þegar þau studdu við bakið á Margréti Pálu Ólafsdóttur og veittu henni stuðning til að móta Hjalla- stefnuna. Mér finnst því við hæfi að nota þetta tækifæri og upplýsa þingmanninn um að leikskólastjór- inn á Garðavöllum (Hjalla í daglegu tali) er einn helsti stuðningsmaður einkaframkvæmdar í skólarekstri og hefur Margrét Pála nýlega gert þjónustusamning við Hafnarfjarð- arbæ um einkarekstur leikskólans Hjalla. Sonur minn var allan sinn leikskólaaldur á Hjalla og einhvern veginn minnist ég þess ekki að þar hafi nokkurn tímann vantað faglegt starfsfólk, hvað þá að þar hafi verið mikil umskipti á starfsfólki. Á Hjalla var og er mjög mikið gert, af mikilli fagmennsku, fyrir börn sem eiga í erfiðleikum. Áhyggjur þingmannsins og „skilningsríkir“ embættismenn Vangaveltur þingmannsins um ávinninginn af einkarekstri grunn- skóla upplýsa ótta hans við breyt- ingar. Hún hefur áhyggjur af minni stuðningskennslu og fjölgun í bekkj- ardeildum. Gott væri í því samhengi ef hún hefði áhyggjur af því hvað lít- ið var og er gert fyrir nemendur með góða námshæfileika, en þær áhyggjur hefur hún sennilega aldrei haft. Atli Harðarson, heimspekingur og kennari við Fjölbraut á Akranesi, veltir upp mörgum skemmtilegum flötum á skólamálaumræðunni í rabbi Lesbókar Morgunblaðsins 24. mars sl. Þar segir hann að skóla- menn á Íslandi, hvort sem þeir starfi innan skólanna eða gegni eft- irliti með starfa þeirra, hafi allir sama bakgrunn og því séu eftirlits- aðilarnir full skilningsríkir á hversu erfitt það sé að uppfylla lög og reglugerðir um rekstur skólanna. Við Hafnfirðingar höfum átt því „láni“ að fagna að hafa verið ríkir af skólamönnum inni í bæjarstjórn. Ætla mætti að þar af leiðandi væri bærinn í fremstu röð í skólamálum á landinu. Því miður er raunin önnur. Það er dapurt að verða vitni að því árið 2001 að málflutningur and- stæðinga einkareksturs við Áslands- skóla sé í formi ómálefnalegra upp- hrópana (einkavæðingarsýki, útboð á börnum, uppboð á börnum, til- raunir á börnum, börn á 99 kr/kg, sjúkdómur, klámhögg, pest og svo mætti lengi telja). Ályktanir eru sendar út og suður í fjölmiðla, sem einungis benda til þess að viðkom- andi aðilar vilji ríghalda í óbreytt skólakerfi. Það er fyrst og fremst verulegt áhyggjuefni fyrir börnin okkar að fulltrúar kennara, þ.e.a.s. Kennarasamband Íslands og Félag grunnskólakennara, skuli óttast þann „hrylling“ að nútímavæða grunnskólana því að þegar öllu er á botninn hvolft virðist umræðan snú- ast minna um gæði skólastarfs en meira um kaup og kjör. Þetta á að tilheyra fortíðinni. Hræðsla við framtíðina Þröstur Harðarson Menntun Það er óskiljanlegt, seg- ir Þröstur Harðarson, að fólk loki augunum fyrir því að það er löngu tímabært að breyta uppbyggingu skólaárs- ins, þar sem núverandi forsendur eru brostnar. Höfundur er foreldri í Víðistaða- skóla og situr fyrir hönd Foreldra- félags Víðistaðaskóla í foreldraráði Hafnarfjarðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.