Morgunblaðið - 06.04.2001, Síða 47

Morgunblaðið - 06.04.2001, Síða 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 47 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. fljótum og mætt til mjalta að morgni. Fyrstu minningar mínar af kynn- um við fjölskyldu þessara hjóna voru að Bakkakoti í Skorradal, næsta bæ við Vatnshorn, en þangað voru þau flutt árið 1937 með tvö elstu börn sín. Við vorum tvö systkin þá á ferð að sumri til með móður okkar á leið til heimsóknar að Bakkakoti. Faðir okkar ekki með í ferð, var á síldveið- um fyrir norðan land. Þetta var mik- ið ævintýri fyrir ung börn að hossast í rútubíl fyrir Hvalfjörð að Grund í Skorradal, síðan var róið árabát inn allt Skorradalsvatn, 17 km að innri enda vatnsins eða fram eftir eins og sagt er. Að Bakkakoti lærðu kaupstaða- börnin að þekkja „peningablóm“ og „flugublóm“ og kynntust börnunum Stínu og Gumma og sveitalífinu. Þessar sæluferðir í sveitina til hjónanna Heiðu og Eggerts voru síð- an endurteknar til heimilis þeirra að Bjargi við Borgarnes en þar hófu þau búskap 1938. Á næstu árum varð barnafjölgun í fjölskyldum þessara ungu vin- kvenna, Jóna, Guðrún (Dúfa) og Jón fæddust að Bjargi og tvær dætur bættust í fjölskyldu móður minnar svo oft heyrðist hljóð í horni þegar börnin komu saman til að ærslast. Þegar farið var að Bjargi var siglt með Laxfoss til Borgarness með við- komu á Akranesi, stundum tók Egg- ert á Bjargi við landfestum skipsins þegar komið var að bryggju í Borg- arnesi en hann vann mörg ár hjá út- gerð Laxfoss, Skallagrími H/F, ásamt bústörfum sínum. Á þessum árum áttu nokkrir Borgnesingar kýr og var þeim komið í sumarbeit að Bjargi og mjólkaðar í fjósi þar ásamt heimakúm. Þetta var mikil vinna að handmjólka kýrnar, húsmóðirin gekk í flest störf með bónda sínum eins og siður var á þess- um tímum. Börnin hjálpuðu til við ýmis störf; rekstur í haga fram og til baka, heyskap o.fl. Mörg börn vina og skylduliðs fengu að dvelja að Bjargi um lengri eða skemmri tíma því hjónin voru barngóð og ætíð gestkvæmt á heimili þeirra og gestum tekið frábærlega vel. Við hjónin eigum sameiginlegar minningar um dvöl okkar að Bjargi í sumarleyfum okkar þegar við vorum ung og nýtrúlofuð. Tjaldað var undir „brekkunni“, þar voru settir upp „hringarnir“, tekið til hendinni við heyskaparstörf. Margs er að minn- ast, oft glatt á Bjargi, lífgandi og smitandi hlátur húsmóðurinnar og þetta hlýja viðmót til gesta hafa af- komendur Bjargshjóna erft. Nú er kominn vísir að myndarlegri bænda- gistingu að Bjargi. Mikið hefur verið byggt á seinni árum í Bjargslandi og búskapur löngu lagður af. Heiða hafði mikið yndi af allri ræktun. Hún kom upp myndarlegum trjá- og blómagarði framan við bæ- inn og í klettóttu landi skammt vest- an við bæinn komu þau hjónin upp myndarlegri skógrækt. Oft fóru þau að loknum vinnudegi á fallegum sumarkvöldum út í skógræktargirð- ingu að hlúa að gróðri og gróður- setja. Þann 7. ágúst síðastliðinn heim- sóttum við hjónin ásamt mörgum gestum Aðalheiði og fjölskyldu hennar að Bjargi í tilefni af 90 ára af- mæli hennar en þann dag hefði Magnús bróðir Heiðu orðið 100 ára en hún var fædd þann 8. Hún hafði mikla ánægju af, fylgd- ist með öllu og ræddi við fólk af mikl- um áhuga, skýr og hress eins og hún hafði alltaf verið í viðmóti til vina sinna. Aðalheiður starfaði mikið með Kvenfélagi Borgarness og hún átti stóran þátt í því að byggt var dval- arheimili í Borgarnesi. Þegar árin færðust yfir vildi hún ekki heyra á það minnst að hún færi þar til dvalar, hún vildi dvelja sem lengst með sín- um að Bjargi, en nú í spítalavist sinni á Akranesi þar sem hún lá síðustu mánuðina lærleggsbrotin, hafði hún haft orð á því að nú væri best fyrir alla að hún færi til vistar á dvalar- heimilinu, ef hún fengi pláss, þegar hún kæmist af spítalanum en forlög- in gripu þá inn í líf þessarar góðu vinkonu okkar. Við vitum að för hennar úr þessari tilvist er upphaf af öðru tilverustigi. Þessu trúði Heiða sjálf og sagði eitt sinn við mig: „Hvers vegna er ég látin vera ein svo lengi hér en þau öll farin fyrir mörg- um árum?“ Við vitum að móttökur hafa orðið góðar og fagnaðarfundir. Bestu kveðjur og þakkir fyrir hönd fjölskyldna okkar systkina. Hafsteinn Erlendsson. man þann dag er ég frétti af þinni fyrstu blæðingu og tímann þar á eftir þegar þér tókst að ná þér að mestu leyti. Ég man þann tíma er kom þar á eftir, þegar næstu blæðingar létu á sér bera og hve viljasterkur, bjart- sýnn og jákvæður þú varst. Ég man þá daga er við gátum hlegið að öllu og öllum, rifjað upp gamla tíma, sagt sögur og fréttir af vinum okkar og notið þess að hafa hvorn annan. Á síðustu árum höfum við fjar- lægst hvorn annan, ég búandi er- lendis og þú í tengslum við þinn sjúk- dóm. Þú átt samt alltaf þitt pláss í mínu hjarta og í mínum huga. Pláss sem er hlaðið góðum minningum, gleði og ánægju. Er ég hugsa til minna bestu minninga frá unglings- árunum ert þú við hlið mér, sem félagi og vinur í raun. Kæru Gísli, Sigga og Danni. Ég vil að lokum senda ykkur samúðar- kveðjur frá mér og minni fjölskyldu. Þó að minn besti vinur sé horfinn á braut munum við í sameiningu minn- ast hans með gleði í hjarta. Viddi minn, þakka þér fyrir öll góðu árin. Þú lifir enn í minningunni og í huga mínum. Þinn Andri. Aukin tæknivæðing og þekking hefur á undanförnum árum rutt sér til rúms í heilbrigðiskerfinu eins og annars staðar í okkar samfélagi. Stöðugt fleiri lifa nú af slys og veik- indi og margir einstaklingar verða þannig skyndilega og fyrirvaralaust fangar í eigin líkama. Oft er um að ræða ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref til sjálfstæðrar tilveru og horfir fram á veginn fullt eftir- væntingar. Enginn velur sér það hlutskipti að búa við langvinna sjúk- dóma eða fötlun, en allir vita af þeirri staðreynd að ákveðin prósenta af þegnum samfélagsins eru í þessum hópi. Einn af þeim var ungur vinur okkar, Viðar Gíslason. Viðar bjó á sambýlinu Hlein við Reykjalund frá opnun þess 1993 til dauðadags. Viðar hafði sterkan per- sónuleika til að bera, hann hafði ákveðnar skoðanir á lífinu og tilver- unni og lét þær óhikað í ljós meðan heilsan leyfði. Við sem kynntumst honum eftir að hann fatlaðist kynnt- umst vel þessum sterka persónuleika sem einkenndi Viðar. Hann var alla tíð staðráðinn í að njóta þeirra lífs- gæða sem heilsan frekast leyfði og lét ekki hreyfihömlunina hindra framgang þeirra markmiða sem hann setti sér fyrr en í fulla hnefana. Hann sótti skóla meðan hægt var, fór í ferðalög bæði innanlands og utan, fylgdist vel með fréttum og því sem var að gerast í samfélaginu almennt. Íþróttir voru honum mjög hugleikn- ar enda hafði hann verið framúrskar- andi íþróttamaður áður en hann fatl- aðist, hann fylgdist vel með öllum íþróttum þó að badminton væri alltaf uppáhaldsgreinin. En allt hefur sinn tíma og tími Við- ars að yfirgefa okkur var kominn. Góður vinur er látinn, erfiðri baráttu við illvígan sjúkdóm er lokið. En við eigum minninguna um góðan dreng, hlýtt bros og glettni í augnaráði sem fylgdi léttum húmor Viðars og við kynntumst vel sem vorum í nánu sambandi við hann síðustu æviár hans. Við erum ríkari en áður að hafa kynnst Viðari Gíslasyni og getum yljað okkur við minningar um marg- ar góðar stundir sem við áttum með honum síðustu árin. Elsku Gísli og Sigga, við sendum ykkur og öðrum vandamönnum og vinum innilegustu samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur styrk og kraft til að takast á við sorgina. Starfsfólk Hleinar Reykjalundi. Það er skrýtið að upplifa það að eitthvað sem hefur verið sjálfsagður hluti af tilverunni er allt í einu ekki lengur til staðar. Kær frændi minn, Aðalsteinn Stefánsson, hefur kvatt þetta líf nýorðinn áttatíu og fjögurra ára. Alli frændi, eins og við kölluðum hann, fæddist á Hamri í Hamarsfirði hinn 19. mars 1917. Samfélagið á Hamri var sérstætt að því leyti að þar bjó stórfjölskyldan, vel á annan tug, í sátt og samlyndi og enn er náið samband á milli systkinabarnanna sem ólust upp sem einn hópur og áttu sín bernskuspor saman. Það hefur því oft verið líf og fjör í gamla bæn- um sem enn stendur. Á Hamri var auk þess mikill gestagangur enda bærinn í þjóðbraut og greiðasemi við aðra var einn þeirra þátta sem börn- in vöndust við og tóku með sér út í líf- ið. Alli ólst upp við almenn sveitastörf og í Hamarsdal átti hann ófá sporin við smalamennsku og þekkti þar nánast hverja þúfu. Skólagangan var ekki löng á mælikvarða nútímans, hefðbundin farskólakennsla nokkrar vikur í fáa vetur en mest lært af lífinu sjálfu. Það hefur verið sagt um þá sem eru upprunnir í Hamarsfirði að þeir flytji í rauninni aldrei þaðan burt. Í það minnsta lágu þar rætur Alla frænda og þangað leitaði hugurinn oft. Vorið 1935 fluttist Alli með for- eldrum sínum og systkinum að Fagradal í Breiðdal og þar átti hann heima til æviloka ef frá eru talin tvö síðustu æviárin sem hann dvaldi á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum þar sem hann lést að kvöldi 25. mars. Alli frændi var ekki víðförull mað- ur í eiginlegri merkingu þess orðs. Hann lærði ekki að aka bíl og fór ekki mikið af bæ en ferðaðist þeim mun meira í gegnum blöð og bækur og hin seinni ár með útvarpinu eftir að sjón- in gaf sig. Hann var athugull og fylgdist af áhuga með mönnum og málefnum til síðustu stundar. Alli hafði létta lund og var félags- lyndur að eðlisfari og rifjaði oft upp ferðir á samkomur og skemmtanir frá sínum yngri árum. Hann hafði gaman af tónlist, steig gjarnan takt- inn og blístraði með ef fjörugt dans- lag var í útvarpinu. Hann kunni líka þá list að spila á greiðu og munn- hörpu. AÐALSTEINN STEFÁNSSON ✝ Aðalsteinn Stef-ánsson fæddist á Hamri í Hamarsfirði 19. mars 1917. Hann andaðist á Sjúkra- húsinu á Egilsstöð- um 25. mars síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Jónína Sigurðardóttir, f. 16. febrúar 1891, d. 20. desember 1969, og Stefán Stefánsson, f. 2. janúar 1891, d. 10. maí 1975. Aðalsteinn var elstur fjögurra systkina. Hin eru: Ásgeir, f. 4. apríl 1919, Auður, f. 27. október 1925, og Stefán, f. 19. maí 1930. Aðalsteinn ólst upp á Hamri en fluttist með foreldrum sínum og systkinum í Fagradal í Breiðdal vorið 1935 og bjó þar til dauðadags. Hann var ókvæntur og barnlaus. Útför Aðalsteins fer fram frá Heydalakirkju í Breiðdal í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ævistarf frænda míns var við búskap. Hann var natinn við skepnur og þær hænd- ust að honum. Nokkur sporin áttum við saman á eftir kúnum og niður í fjárhús að fylgjast með sauðburði eða gefa á garðann. Á sumrin var hrífan á lofti því ekki mátti skilja eftir visk á túnunum. Herbergið hans Alla var heimur út af fyrir sig og leiðin lá gjarnan þangað til að fletta í gegnum Heima er best, láta „rúlla“ hita í kalda fingur, sitja og spjalla eða bara þegja saman. Þangað verður áfram gott að leita. Hann Alli frændi minn var falslaus og góð manneskja sem vildi öllum vel. Hann var af þeirri kynslóð sem gerði ekki kröfur sér til handa, hugs- aði fremur um aðra en sjálfa sig og bar hag frændfólksins fyrir brjósti. Að leiðarlokum vil ég þakka frænda mínum samfylgdina. Megi hann hvíla í friði. Anna Margrét Birgisdóttir. Í helgri bók segir: „Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.“ Aðalsteinn Stefánsson frá Fagra- dal í Breiðdal, sem í dag er borinn til hinstu hvílu, var hjartahreinn maður. Hann var glaðsinna en jafnframt lít- illátur og hógvær og lagði aldrei illt til nokkurs manns. Aðalsteinn fædd- ist á Hamri í Hamarsfirði, en flutti á unglingsárum að Fagradal í Breiðdal ásamt foreldrum sínum og systkin- um og átti þar heima alla tíð síðan. Fagridalur er ein besta jörð í Breið- dal, þar var stórt fjárbú og lengi vel nokkrar kýr, Aðalsteinn vann sitt ævistarf við búskapinn, upphaflega með foreldrum og systkinum, en síð- ar ásamt bræðrum sínum Ásgeiri og Stefáni. Til þess var tekið hversu féð í Fagradal var gæft, eflaust hefur sú alúð og natni sem þeir bræður sýndu fé sínu orðið til þess. Það var þeim mikið áfall þegar fella þurfti allan bú- stofninn seint á níunda áratugnum vegna riðuveiki, sem gert hafði vart við sig í Fagradal eins og á flestum öðrum bæjum í Breiðdal. Upp frá þessu lagðist fjárbúskapur af í Fagradal, því ekki var tekið aftur fé á bæinn. Aðalsteinn var ekki víðförull maður, raunar fór hann í fyrsta skipti á ævinni til Reykjavíkur þegar hann var kominn á áttræðisaldur og þurfti að leita sér lækninga vegna blindu á öðru auga. Það vakti athygli samferðamanna hans í þeirri ferð að hann þekkti staði og kennileiti á leið- inni ekki síður en þeir sem fara þessa leið oft á ári, þarna nýttist honum lestur bóka og gott minni. Því miður þvarr sjónin fljótlega á hinu auganu og síðustu árin var Aðalsteinn blind- ur. Það var þessum víðlesna og fróð- leiksfúsa manni mikil raun, en hann bætti sér það að nokkru upp með því að hlusta á útvarp, þannig gat hann fylgst með fréttum og jafnframt sval- að fróðleiksþörf sinni. Hann hélt fullri andlegri reisn til hinstu stund- ar og minnið var óbrigðult. Gestrisni heimilisfólksins í Fagradal var og er rómuð og víst er að það voru Aðal- steini sem og öðrum á heimilinu gleðistundir þegar tekið var á móti gestum, jafnt háum sem lágum. Að- alsteinn kvæntist ekki og eignaðist ekki börn en börn löðuðust alla tíð að honum enda var hann einstaklega barngóður, af því getur fjöldi barna sem dvöldu í Fagradal um lengri eða skemmri tíma sagt fagrar sögur. Fyrir rúmum tveimur árum tók heilsu Aðalsteins að hraka og upp frá því dvaldi hann á sjúkrahúsinu á Eg- ilsstöðum. Þar leið honum vel en hugurinn var jafnan heima í Fagra- dal og hjá Auði systur hans og fjöl- skyldu hennar. Aðalsteinn lést á Eg- ilsstöðum sunnudagskvöldið 25. mars, nýorðinn 84 ára. Ég kveð góðan vin með söknuði og bið honum blessunar um leið og ég þakka honum hlýhug og vinsemd sem hann sýndi mér alla tíð frá fyrstu kynnum okkar. Hákon Hansson. Nokkur orð við leiðarlok Alla vin- ar míns. Sumarið 1963 var mér, þá átta ára, komið í sveit í Fagradal í Breiðdal. Þar bjuggu sæmdarhjónin Stefán Stefánsson og Jónína Sigurð- ardóttir og synir þeirra þrír, Alli þeirra elstur. Ekki hefði verið hægt að gera betur við ungan dreng en þar var gert við mig, enda urðu sumrin átta sem ég dvaldi í Fagradal. Ekki síst var dýrmætt að fá að vera þátt- takandi í öllu því fjölmarga sem á þeirri tíð gerðist á sveitaheimili. Það og fleira var dekur í jákvæðri merk- ingu, því oft var áreiðanlega frekar töf af því en gagn að leyfa dreng- hnokka að ganga með í flest störf. Þar var Alli engin undantekning, glaðsinna, fjörugur og barngóður. Þessum eiginleikum hélt hann allt til æviloka. Í mörg ár var langt á milli samvista okkar Alla en alltaf tengsl um síma, jólakort o.fl. Hann var eins og bræður hans, alltaf á sínum stað, tiltækur þegar uppteknum ungum manni hentaði að hafa samband eða koma í heimsókn. Alltaf var til nægur tími, vinátta Alla þekkti ekki klukku eða tímaskort, hún einfaldlega var til staðar. Honum var í blóð borið það eðli að finnast sælla að gefa en þiggja og gerði afar litlar kröfur til verald- legra gæða í eigin þágu. Fjárglöggur var hann, natinn við umhirðu dýra og náttúru og vinnuþjarkur mikill við öll búskaparstörfin. Þegar ég sneri aft- ur heim til Austurlands fyrir hálfu þrettánda ári urðu fundirnir fleiri, en hefðu gjarnan mátt vera enn tíðari. Berjatínsla hefur síðan verið fastur punktur í tilveru fjölskyldu minnar ár hvert. Engin ber jafnast á við ber- in í Fagradal og helst ekki hægt að tína þau annars staðar. Þessum ferð- um sem öðrum þangað fylgja veislu- höld í mat og drykk, ekki síst með þarfir barnanna í huga. Síðastliðin tvö ár hefur Alli dvalið á sjúkrahús- inu á Egilsstöðum, vinnustað mínum, og við því oft hist. Ekki var hann kröfuharður við strákinn þar, en hins vegar afar þakklátur fyrir allt sem fyrir hann var gert. Iðulega sendi hann mig heim með nokkra mola til að færa börnunum. Oft talaði hann um gæsku þeirra sem önnuðust hann á sjúkrahúsinu og í þeirra hópi eign- aðist hann einlæga vini. Alli naut ekki skólagöngu að marki, fremur en margur á þeirri tíð, en las feiknin öll og var um margt fróður. Það var því jafnvel enn meiri missir en ella er sjónin gaf sig meir og meir en því tók hann af æðruleysi. Hin síðari árin gat hann ekkert lesið og hans mikla tryggð við útvarpið, „gömlu gufuna“ jókst enn. Áhugi hans á mönnum og málefnum hélst alveg fram á síðasta dag. Tryggur sínu lífsstarfi sem bóndi hlustaði hann á veðurskeytin að kvöldi síns hinsta dags. Ég er þess viss að þar er birtutíð sem Alli er nú, bið minningu hans blessunar og er í huga mér hjá bræðrum hans, systur og öðrum ættingjum og vinum. Pétur Heimisson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.