Morgunblaðið - 06.04.2001, Síða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 59
LÍFFRÆÐIFÉLAG Íslands stend-
ur fyrir ráðstefnu laugardaginn 7.
apríl um innfluttar tegundir og
stofna plantna og dýra. Fjallað
verður um efnið á breiðum grund-
velli af helstu sérfræðingum lands-
ins á þessu sviði. Lögð er áhersla á
að bæði fræðileg og hagnýt sjón-
armið tengd innflutningi tegunda
komi fram, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Meðal þess sem fjallað verður um
eru þarfir atvinnulífsins fyrir inn-
flutning tegunda, áhrif framandi
stofna og tegunda á villta stofna
dýra og plantna, sjúkdómshætta
tengd innflutningi, notkun inn-
fluttra tegunda til líffræðilegrar
stjórnunar í gróðurhúsum, og laga-
umhverfið hvað þetta varðar hér á
landi.
„Í ljósi umræðu undanfarinna
missera, t.d. um innflutning fóst-
urvísa og laxa, og breytts lagalegs
umhverfis hér á landi telur stjórn
Líffræðifélagsins að full þörf sé á
ráðstefnu sem þessari og er það von
stjórnarinnar að ráðstefnan stuðli
að málefnalegri umræðu um þetta
mikilvæga mál,“ segir ennfremur.
Nálgast má dagskrá ráðstefnunn-
ar á vefslóðinni: http://notendur.-
centrum.is/~biologia/.
Ráðstefnan verður haldin í Nor-
ræna húsinu nk. laugardag og hefst
stundvíslega kl. 9 og lýkur kl. 18.
Aðgöngugjald er 500 kr. og eru allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Ráðstefna
um innfluttar
tegundir
DR. GUNVOR Andersson pró-
fessor heldur opinberan fyrirlest-
ur laugardaginn 7. apríl kl. 14.15
í Lögbergi, stofu 101, í boði
félagsráðgjafar við Háskóla Ís-
lands og Endurmenntunarstofn-
unar HÍ. Fyrirlesturinn verður
fluttur á ensku og ber yfirskrift-
ina „Child welfare and foster
care seen from different per-
spectives“.
Gunvor Andersson er meðal
fremstu sérfræðinga á Norður-
löndum á sviði rannsókna á fóst-
urbörnum, segir í fréttatilkynn-
ingu. Hún er stödd hér á landi til
að halda fyrirlestra fyrir starfs-
fólk í félagsþjónustu sem stundar
þriggja anna nám í barnavernd-
arstarfi við Endurmenntunar-
stofnun HÍ.
Gunvor Andersson er prófess-
or í félagsráðgjöf við Háskólann í
Lundi. Hún er höfundur fjöl-
margra greina og bókakafla og
starfaði um árabil sem klínískur
sérfræðingur að málefnum barna
og fjölskyldna í félagsþjónustu.
Hún hefur m.a. stundað lang-
tímarannsóknir á fóstri barna ut-
an heimilis og athugað þau mál
frá sjónarhóli barnanna, fóstur-
foreldra, foreldra og starfs-
manna. Hún hefur fjallað mikið
um nauðsyn þess að skoða barna-
verndarmál frá sjónarhóli barn-
anna sjálfra og um þarfir og rétt-
indi ungra barna sem barna-
verndaryfirvöld hafa afskipti af. Í
fyrirlestrinum mun prófessor
Andersson ræða um fóstur barna
og hvernig það hefur birst í rann-
sóknum hennar frá ólíkum sjón-
arhólum. Hún leggur sérstaka
áherslu á rödd barnsins þar sem
m.a. er byggt á umfjöllun í nýrri
bók hennar um efnið.
Fyrirlesturinn er opinn öllum
sem áhuga hafa á málefninu en
hann á einkum erindi við fagfólk,
foreldra og aðra sem vilja fylgj-
ast með rannsóknum og nýjustu
sjónarmiðum í fósturmálum og
barnavernd.
Opinber fyrirlestur um
fósturmál og velferð barna
EFNT verður til páskaeggjaleitar við
grásleppuskúrana á Ægisíðu laugar-
daginn 7. apríl kl. 15. Þetta er annað
árið í röð, sem stjórn félags sjálfstæð-
ismanna í Nes- og Melahverfi efnir til
slíks fagnaðar fyrir börn. Félagar úr
Lúðrasveit Reykjavíkur leika nokkur
lög áður en leitin hefst.
Páskeggjaleitin fer þannig fram, að
börnin leita að eggjum, fagurlega
skreyttum límmiðum, og fá súkkul-
aðiegg í kaupbæti. Í fréttatilkynningu
segir að hverfafélagið þakki rausnar-
lega gjöf frá Nesbúinu ehf. á Vatns-
leysuströnd sem gefur 350 harðsoðin
hænuegg til leitarinnar. Þá eru þátt-
takendur minntir á að koma með
körfur, fötur eða önnur áhöld undir
eggin.
Páska-
eggjaleit
á Ægisíðu KVÖLDVAKA með blandaðri
dagskrá verður í Skriðuklaustri
í Fljótshlíð laugardagskvöldið
7. apríl.
Sigurður Blöndal, fyrrum
skógræktarstjóri, sýnir lit-
skyggnur frá L’Anse aux
Meadows á Nýfundnalandi og
segir frá heimsókn sinni þang-
að síðasta sumar.
Hrefna Róbertsdóttir sagn-
fræðingur segir frá austfirsk-
um vefurum og ullarvinnslu á
18. öld. Þá mun Muff Wurden
tónlistarkennari flytja tónlist
frá ýmsum löndum.
Skúli Björn Gunnarsson for-
stöðumaður les kvæði sem
fjalla um Fljótsdalinn eða
Fljótsdælinga.
Dagskráin hefst kl. 20.30 og
aðgangseyrir er 500 kr. Klaust-
urkaffi verður opið í tengslum
við kvöldvökuna.
Kvöldvaka
í Skriðu-
klaustri
ÞÝSKA menningarmiðstöðin Go-
ethe-Zentrum efnir til námskeiðs í
þýsku fyrir framhaldsskólanemend-
ur frá 12. apríl til 6. maí. Á námskeið-
inu verður lögð áhersla á þá grunn-
þætti þýskrar málfræði sem kenndir
eru í framhaldsskólunum og mikið
reynir á í prófum.
Alls verða kenndar 14 stundir.
Miðað er við að þátttakendur verði
ekki fleiri en 12. Þátttökugjald, kr.
12.000, greiðist fyrir eða í fyrsta
tíma. Kennari er Guðmundur V.
Karlsson.
Þátttakendur skrái sig í Goethe-
Zentrum milli kl. 15 og 18 til laug-
ardags 7. apríl eða með tölvupósti,
goethe@simnet.is.
Þýskunámskeið fyrir
framhaldsskólanemendur
LÝST er eftir vitnum að umferðar-
óhappi er varð á bifreiðaplani við hús
nr. 6 í Hraunbergi, þriðjudaginn 3.
apríl kl.15.08. Þarna mun blárri
fólksbifreið af gerðinni Subaru
station hafa verið ekið utan í tvær
bifreiðir, bláa fólksbifreið af gerðinni
Mazda 323 og gráa fólksbifreið af
gerðinni Mitsubishi Pajero. Tjón-
valdur ók síðan af vettvangi. Þeir
sem upplýsingar geta veitt um mál
þetta eru vinsamlega beðnir um að
hafa samband við lögregluna í
Reykjavík.
Ekið á Toyota-bifreið
í Bláfjöllum
Miðvikudaginn 4. apríl 2001 var
ekið á bifreiðina R-72077, sem er
Toyota Corolla, fólksbifreið, rauð að
lit. Atvikið átti sér stað í Bláfjöllum á
milli kl. 15 og 16. Vitni að atvikinu,
svo og tjónvaldur, eru beðin um að
hafa samband við lögregluna í
Reykjavík.
Lýst eftir
vitnum
NEMENDUR blómaskreytinga-
brautar Garðyrkjuskóla ríkisins,
Reykjum í Ölfusi, verða á ferðinni í
Kringlunni laugardaginn 7. apríl.
Þar ætla þeir að vera með sýni-
kennslu í blómaskreytingum frá kl.
11 til 17 fyrir framan ÁTVR á jarð-
hæð, og fræða gesti Kringlunnar um
námið á brautinni og kynna opið hús
í skólanum sem nemendur standa
fyrir á sumardaginn fyrsta, 19. apríl,
og laugardaginn 21. apríl. Þar verður
m.a. blómasýning á vegum blóma-
skreytingabrautar.
Blómaskreyt-
ingar í
Kringlunni
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð í Reykjavík boðar til rabb-
fundar um Félagsþjónustu Reykja-
víkur laugardaginn 7. apríl nk.
klukkan 11 í Hafnarstræti 20.
Framsögumaður verður Sigríður
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Þró-
unarsviðs Félagsþjónustunnar. Að
loknu erindi Sigríðar verða almenn-
ar umræður undir stjórn Sigríðar
Stefánsdóttur. Heitt verður á könn-
unni og allir eru velkomnir.
Rabbfundur
VG um félags-
þjónustuna
Innnes ekki eitt af eigendum
Í frétt sem birtist í viðskiptablaði
Morgunblaðsins í gær var rangt far-
ið með að Innnes væri eitt af eig-
endum Birtingarhússins. Hið rétta
er að til stóð að fyrirtækið tæki þátt í
stofnun þess en af því varð ekki.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
LEIÐRÉTT
FÉLAG lungnalækna gengst fyrir
sérstakri dagskrá fyrir heilbrigðis-
starfsfólk, um GOLD, alþjóðlegt
átak gegn langvinnum lungnateppu-
sjúkdómum og stöðu þeirra hér á Ís-
landi á lungnadeginum 6. apríl í
Listasafni Reykjavíkur kl. 17.30.
Í fréttatilkyningu segir: „Tíðni
langvinnra lungnateppusjúkdóma
(COPD) hefur vaxið ört á undan-
förnum árum. Þeir eru meðal þeirra
fáu sjúkdóma sem valda vaxandi
dánartíðni og ef fram heldur sem
horfir verða langvinnir lungnateppu-
sjúkdómar ein algengasta dánaror-
sökin á upphafsáratugum þessarar
aldar.
Talið er að 16.000 til 18.000 Ís-
lendingar þjáist af langvinnum
lungnateppusjúkdómum. Reykingar
eru ásamt vaxandi mengun algeng-
asta orsök þessara illvígu sjúkdóma,
en um 80-90% þeirra sem þjást af
þeirra völdum eru reykingamenn.
Aukna dánartíðni af völdum lang-
vinnra lungnateppusjúkdóma má að-
allega rekja til þess að aldurinn er að
færast yfir stóra árganga reykinga-
fólks, fætt á árunum 1950 til 1965.
Langvinnir lungnateppusjúkdóm-
ar stafa af takmörkun loftflæðis um
lungu, vegna lungaþembu eða lang-
varandi berkjubólgu eða beggja
sjúkdóma í senn. Þeir hafa stundum
verið nefndir „gleymdu sjúkdómarn-
ir“ sökum þeirrar hlutfallslega litlu
athygli sem þeir hafa almennt notið í
gegnum tíðina.“
Íslenski lungnadagurinn er í dag
Lungnasjúkdómar
færast í vöxt
Í NORRÆNA húsinu er síðasti dag-
ur kynningar á menningu frá Norð-
urbotni í Svíþjóð.
Föstudagur
Kl. 20 verður bókmenntadagskrá
með yfirskriftinni „Landamæralaus-
ar norðurslóðir“.
Einnig verður opnuð sýning á bók-
um frá Norðurbotni og kynning á rit-
höfundinum Eyvind Johnson.
Sýningin stendur til sunnudags.
Norður-
botnsdagar
JÓHANNA Gunnlaugsdóttir, Örk,
opnar sýningu á verkum sínum í dag,
föstudaginn 6. apríl, kl. 18 í Hár- og
sýningahúsinu Unique á Laugavegi
168, Brautarholtsmegin. Þema sýn-
ingarinnar er hugurinn. Sýningin
stendur 27. apríl.
Sýnir í Unique
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦