Morgunblaðið - 06.04.2001, Page 64
DAGBÓK
64 FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Atla
Mar og Ludvig And-
ersen koma í dag. Arn-
arfell Bakkafoss og
Mánafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Oz-
ernica og Vasily Zaytev
komu í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 14
páskabingó, rjómavöffl-
ur með kaffinu, söng-
stund með Magnúsi
Randruip við hljóðfærið.
Allir velkomnir.
Árskógar 4. Kl. 13 opin
smíðastofan, kl. 9 hár-
og fótsnyrtistofur opn-
ar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9 bókband, kl. 9–
16 handavinna og fóta-
aðgerð, kl. 13 vefnaður
og spilað í sal. Félags-
vist í dag kl. 13.30. Ferð
á Þingvöll þriðjudaginn
10. apríl, Komið við í
Eden, Hveragerði, á
heimleið. Lagt af stað
kl. 13. Tilkynnið þátt-
töku fyrir 9. apríl.
Skráning í síma 568-
5052.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Pútttímar í íþróttahús-
inu á Varmá kl. 10–11 á
laugard. Jóga kl. 13.30–
14.30 á föstud. í dval-
arheimilinu Hlaðhömr-
um. Uppl. hjá Svanhildi
í s. 586 8014 kl. 13–16.
Tímapöntun í fót-, hand-
og andlitssnyrtingu,
hárgreiðslu og fótanudd,
s. 566 8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu-
stofan og handa-
vinnustofan opin kl. 9.45
leikfimi kl. 13.30 göngu-
hópur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 13 „opið hús“, spilað
á spil.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Tréútskurður í Flens-
borg kl. 13, myndmennt
kl. 13, brids kl. 13:30
Sigurbjörn Kristinsson
verður með mál-
verkasýningu í Hrauns-
eli fram í maí.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Fótaað-
gerðir mánudaga og
fimmtudaga. Ath. nýtt
símanúmer, 565 6775.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Baldvin Tryggvason
verður til viðtals um
fjármál og leiðbeiningar
um þau mál á skrifstofu
FEB nk. miðvikudag 11.
apríl–11.30. Panta þarf
tíma. Dagana 27.–29.
apríl 3ja verður daga
ferð á Snæfellsnes.
Gististaður: Snjófell á
Arnarstapa. Áætlað að
fara á Snæfellsjökul.
Komið í Ólafsvík, á Hell-
issand og Djúpalóns-
sand. Einnig verður litið
á slóðir Guðríðar Þor-
bjarnardóttur. Brottför
frá Ásgarði, Glæsibæ,
27. apríl kl. 9. Skráning
hafin. Silfurlínan opin á
mánudögum og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Ath. Skrifstofa FEB er
opin kl. 10–16. Upplýs-
ingar í síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13 opin
vinnustofa, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband,
kl. 9.15 vefnaður.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta og út-
skurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi og spurt og spjallað.
Páskabingó kl. 14. Í
kaffitímanun kemur
karlakórinn Kátir karl-
ar, veisluhlaðborð.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi.
Norðurbrún 1. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9–12.30
útskurður, kl. 10 boccia,
kl. 13.30 stund við píanó-
ið.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15 handavinna, kl.
13 sungið við flygilinn,
kl. 14.30 dansað í að-
alsal. Sýning á vatns-
litamyndum (frum-
myndum) eftir Erlu
Sigurðardóttur úr bók-
inni „Um loftin blá“ eftir
Sigurð Thorlacius verð-
ur frá 30. mars til 4. maí
alla virka daga frá kl. 9–
16.30. Allir velkomnir.
Föstudaginn 6. apríl kl.
14 verður sýndur dömu-
fatnaður frá Sissu á
Hverfisgötu, kynnir
Arnþrúður Karlsdóttir.
Dansað undir stjórn
Sigvalda. Veislukaffi.
Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerð, kl. 13.30
bingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum í
Laugardalshöll kl. 10.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur
verður á morgun kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105. Nýir félagar vel-
komnir. Muni gönguna
mánudag og fimmtudag.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20.30 í félags-
heimilinu Leirvogs-
tungu. Kaffi og meðlæti.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (ca
16–25 ára) að mæta með
börnin sín á laug-
ardögum kl. 15–17 á
Geysir, Kakóbar, Að-
alstræti 2. (Gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Gigtarfélag Íslands:
Gönguferð um Laug-
ardalinn laugardaginn 7.
apríl kl. 11 frá húsa-
kynnum félagsins í Ár-
múla 5. Þægileg klukku-
tímaganga sem ætti að
henta flestum. Einn af
kennurum hópþjálfunar
gengur með og sér um
létta upphitun og teygj-
ur. Allir velkomnir.
Ekkert gjald. Nánari
upplýsingar í síma 530
3600.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi: Í
Vestmannaeyjum: hjá
Axel Ó. Láruss. skó-
verslun, Vest-
mannabraut 23, s. 481-
1826. Á Hellu: Mosfelli,
Þrúðvangi 6, s. 487-
5828. Á Flúðum: hjá Sól-
veigu Ólafsdóttur,
Versl. Grund, s. 486-
6633. Á Selfossi: í versl-
uninni Íris, Austurvegi
4, s. 482-1468 og á
sjúkrahúsi Suðurlands
og heilsugæslustöð, Ár-
vegi, s. 482-1300. Í Þor-
lákshöfn: hjá Huldu I.
Guðmundsdóttur, Odda-
braut 20, s. 483-3633.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Reykjanesi. Í
Grindavík: í Bókabúð
Grindavíkur, Vík-
urbraut 62, s. 426-8787.
Í Garði: Íslandspósti,
Garðabraut 69, s. 422-
7000. Í Keflavík: í Bóka-
búð Keflavíkur, Penn-
anum, Sólvallagötu 2, s.
421-1102 og hjá Íslands-
pósti, Hafnargötu 89, s.
421-5000. Í Vogum: hjá
Íslandspósti b/t Ásu
Árnadóttur, Tjarn-
argötu 26, s. 424-6500, í
Hafnarfirði: í Bókabúð
Böðvars, Reykjavík-
urvegi 64, s. 565-1630 og
hjá Pennanum-
Eymundssyni, Strand-
götu 31, s. 555-0045.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum í Reykjavík:
Skrifstofu LHS, Suð-
urgötu 10, s. 552-5744,
562-5744, fax 562-5744,
Laugavegs Apóteki,
Laugavegi 16, s. 552-
4045, hjá Hirti, Bón-
ushúsinu, Suðurströnd
2, Seltjarnarnesi, s. 561-
4256.
Í dag er föstudagur 6. apríl, 96.
dagur ársins 2001. Orð dagsins: Og
Móse skrifaði upp kvæði þetta þann
hinn sama dag og kenndi það
Ísraelsmönnum.
(5. Mós. 31, 22.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
SKÝRSLA samkeppnisráðs umgrænmetismarkaðinn er ótrúleg
og á köflum reyfarakennd lesning.
Eftir lestur hennar er Víkverja til
efs að jafnfrekleg atlaga hafi verið
gerð að hagsmunum íslenzkra neyt-
enda og þar er lýst. Fyrirtæki, sem
Víkverji hélt í einfeldni sinni að væru
málsvarar viðskiptafrelsis og sam-
keppnissjónarmiða, reynast hafa
ástundað verðsamráð, þegið
greiðslur fyrir að veita keppinautum
ekki samkeppni o.s.frv. Hvar sem
Víkverji kemur hittir hann öskureiða
neytendur, sem harma að hafa látið
grænmetiseinokunarhringinn níðast
á sér árum saman. Flestum kemur
þó saman um að það sé lán neytenda
í öllu óláninu að forsvarsmenn fyr-
irtækjanna hafi verið nógu einfaldir
til að skrá allt svindlið og svínaríið
samvizkusamlega í fundargerðir og
minnisblöð, sem nú tala sínu máli.
x x x
ÞAR sem Víkverji stóð við græn-metisborðið í Nýkaupi eftir að
hafa lesið skýrslu samkeppnisráðs
var honum skapi næst að kaupa ekki
svo mikið sem eina baun. Neytendur
vita nú, að það eru yfir 90% líkur á
því, ef þeir kaupa grænmeti eða
ávexti, að andvirðið renni til fyrir-
tækjanna sem hafa árum saman haft
af þeim fé með því að hindra sam-
keppni. Grænmetisbændurnir hafa
frekar hent tómötunum, gúrkunum
og kartöflunum en að láta neytendur
hafa þessar vörur á lágu verði. En
Víkverji veit líka að grænmeti er
hollt, þannig að hann keypti lauk,
sveppi og salat og las yfir hausamót-
unum á dóttur sinni við kvöldverð-
arborðið, að hún ætti að vera dugleg
að borða grænmetið. Sem betur fer
er stúlkan ekki komin á þann aldur
að geta gripið til þeirra röksemda að
hún vilji ekki styrkja einokunar-
starfsemi með því að borða afurðir
hennar. En þegar þar að kemur von-
ar Víkverji að ástandið á grænmet-
ismarkaðnum verði breytt.
x x x
VÍKVERJI er þeirrar skoðunarað ekki hafi einasta verið okrað
á neytendum, heldur hafi íslenzki
grænmetishringurinn staðið sig afar
illa í því að tryggja neytendum jafnt
framboð á ýmsum vörum. Þetta á
ekki sízt við um innflutta vöru, en
þrátt fyrir ofurtollana eru nú engin
opinber innflutningsbönn lengur á
grænmeti. Víkverji hefur stundum
hringt eða farið í nánast allar mat-
vörukeðjurnar á höfuðborgarsvæð-
inu, auk sælkera- og blómabúða, til
að leita að sjálfsögðum hráefnum á
borð við ferskt spínat eða nýtt rósm-
arín. Oft hefur niðurstaðan orðið sú,
að varan væri ekki til á landinu og þá
hefur stundum þurft að breyta
áformunum um kvöldmatinn. En
einokunarhringir hafa auðvitað ekki
frekar hvata til að tryggja gott úrval
en hagstætt verð.
x x x
MARGIR neytendur spyrjaþeirrar spurningar, hvort í
öðrum geirum framleiðslu og dreif-
ingar neytendavara viðgangist sömu
viðskiptahættirnir og nú hefur verið
flett ofan af á grænmetismarkaðn-
um. Auðvitað er ástandið á græn-
metismarkaðnum að mörgu leyti ein-
stakt, þar sem innlend framleiðsla er
vernduð með ofurtollum, sem hafa
svo aftur orðið til þess að fyrirtæki
innlendra framleiðenda hafa náð
tökum á nánast öllum innflutningn-
um líka. En séu einhvers staðar
stjórnendur fyrirtækja, sem hugsa
eins og grænmetisfurstarnir, hefur
ákvörðun samkeppnisráðs vonandi
ýtt við þeim. Víkverji vonar að séu
þeir til taki þeir frekar upp nýja við-
skiptahætti en að þeir setji skjala-
safnið í pappírstætarann.
TIL þess að útrýma einelti
þarf að ráðast að rót vand-
ans, fólk sem er lagt í ein-
elti, með beinum eða óbein-
um hætti, leggur aðra í
einelti með beinum eða
óbeinum hætti. Láglauna-
fólk er lagt í einelti, ellilíf-
eyrisþegar og öryrkjar eru
lagðir í einelti. Þau eru öll
fangar sinna launakjara,
sem eru herfilega léleg.
Það þarf að fjórfalda laun
verkafólks hér á landi,
fimmfalda ellilífeyri og sex-
falda örorkulífeyri, ef þetta
einelti sem er rót margra
vandamála á að verða út-
rýmt úr okkar tekjuháa
landi. Danir hafa sömu
þjóðartekjur og við, en
verkafólk þar er töluvert
hærra í launum en verka-
fólk hér, þá ekki síður elli-
lífeyrisþegar og öryrkjar.
Ríkisstjórn okkar þarf að
leiðrétta þetta strax og þá
er einelti útrýmt úr okkar
þjóðfélagi.
Virðingarfyllst,
Verkamaður í Eflingu.
Fjölmiðlamenn (karl-
ar og konur auðvitað)
MÉR finnst þið spilla mál-
vitund fólks hvað varðar
notkun á orðinu stúlka,
þegar barn á hlut í fréttum,
og aðrir apa það svo eftir,
því þið náið til flestra. Það
er alveg sérstaklega
óhugnanlegt að í fréttum af
kynferðislegri misbeitingu
á barni er sífellt talað um að
stúlku, ef barnið sem fyrir
henni verður er kvenkyns.
Eruð þið vísvitandi að eyða
orðinu telpa úr íslensku
máli? Hér áður fyrr eign-
uðust foreldrar drengi og
eða telpur og voru þau
skráð sem slík í fæðingar-
bækur, það ég best veit. Nú
tilkynna a.m.k. bæjarblöðin
sem ég les fæðingar
drengja og stúlkna. Í bóka-
búð sá ég skírnarkort sem
voru merkt stórum stöfum
eftir kyni, drengur/stúlka.
Er íslenskt mál ekki nógu
skýrt? Athugum þessi orð í
íslensku orðabókinni,
drengur er karlkynsbarn,
telpa er kvenkynsbarn,
stúlkubarn. Piltur er ungur
karlmaður, stúlka er ungur
kvenmaður. Íslenskufræð-
ingar, á að láta það af-
skiptalaust að eitt orð,
stúlka, sé notað yfir kven-
kynið frá fæðingu og til
þess tíma er orðið kona
hæfir?
Virðingarfyllst,
Guðlaug S.
Karvelsdóttir.
Fyrirspurn til RÚV
KONA vill gera fyrirspurn
til RÚV í sambandi við dag-
skrána, hvort hægt væri að
sýna yfir páskana hina
stórbrotnu og undurfallegu
kvikmynd um Jesú frá
Nasaret eftir frásögn Willi-
ams Barclay, sem Franco
Zeffirelli stjórnaði og Vinc-
enzo Labella framleiddi.
Ég mæli örugglega fyrir
munn margra sem þrá að
sjá þessa mynd og er þá
nokkur tími betri en á
páskunum, upprisuhátíð
frelsarans?
Ég skora á sjónvarpið að
verða við þessari ósk og
sýna þessa ógleymanlegu
mynd – það verður enginn
svikinn af henni.
Stöndum saman
ÉG veiktist og var um tíma
frá vinnu. Þá fékk ég frá
Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur sjúkra-
greiðslur. Núna er ég að
borga skatta af þeim.
Finnst mér þetta óréttlátt,
því ég var búinn að borga
iðgjald í þetta félag. Ég
vinn fyrir lágum launum og
búið er að taka af alla auka-
vinnu. Þetta kemur sér því
afar illa fyrir mig núna.
Störf verkamanna eru lítils
metin nú til dags og margir
sem eru á þessum lágu
launum eiga erfitt með að
láta enda ná saman.
Formaður Samtaka gegn
fátækt hefur bent réttilega
á hversu kröpp kjör stór
hópur fólks býr við. Stönd-
um með þeirri góðu konu,
sem er talsmaður þeirra
sem minna mega sín og
missa af góðærinu hinu
mikla.
Sævar.
Tapað/fundið
Stór koparnæla
tapaðist
STÓR koparnæla tapaðist
á leiðinni frá Gerðubergi að
Nóatúni í Hólagarði fyrir
stuttu. Skilvís finandi er
vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 557-2137.
Dýrahald
Tómas er týndur
TÓMAS er bröndóttur
inniköttur með bláa hálsól
með nafni og símanúmeri.
Tómas hvarf frá Rima-
hverfi í Grafarvogi þriðju-
daginn 26. mars sl. Ef ein-
hver veit um ferðir
Tómasar, vinsamlegast lát-
ið Rikka vita í síma 863-
0180 eða 557-2549. Fundar-
laun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Útrýmum einelti
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 skipa fyrir, 4 álkan, 7
læsir, 8 fugl, 9 umfram,
11 horað, 13 grenja, 14
trylltur, 15 sleipur, 17
grannur, 20 lemja, 22
hljóðfærið, 23 op, 24 geta
neytt, 25 róta.
LÓÐRÉTT:
1 trjástofn, 2 árnar, 3
siga, 4 vonda byssu, 5
náðhús, 6 híma, 10
mergð, 12 verkfæri, 13
snák, 15 helmingur, 16
sér, 18 mannsnafn, 19
illa, 20 venda, 21 tunnur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 marbakkar, 8 endur, 9 læður, 10 gil, 11 gyðja,
13 armur, 15 kæsir, 18 urgur, 21 ónn, 22 skömm, 23
nesti, 24 rummungur.
Lóðrétt: 2 andúð, 3 borga, 4 kalla, 5 auðum, 6 berg, 7
hrár, 12 Jói, 14 rór, 15 kost, 16 skötu, 17 rómum, 18 unn-
in, 19 gistu, 20 reif.