Morgunblaðið - 06.04.2001, Side 65

Morgunblaðið - 06.04.2001, Side 65
DAGBÓK ÞAÐ er heiður að vera til- nefndur til Óskarsverð- launa, en hitt þykir ekki jafn eftirsóknarvert að fá tilnefn- ingu fyrir mesta heppnisspil Íslandsmótsins. Ónefndur spilari Íslandsmótsins um síðustu helgi fékk slíka til- nefningu fyrir tígulslemmu sína í eftirfarandi spili úr fimmtu umferð. Austur gefur; NS á hættu. Áttum snúið. Norður ♠ G983 ♥ 5 ♦ 108 ♣ KG9754 Vestur Austur ♠ 10654 ♠ D7 ♥ 9763 ♥ KDG102 ♦ 642 ♦ 975 ♣ D10 ♣ Á86 Suður ♠ ÁK4 ♥ Á84 ♦ ÁKDG3 ♣ 32 Vestur Norður Austur Suður – – 1 hjarta Dobl 3 hjörtu Dobl Pass 6 tíglar Pass Pass Pass Í anda Bergens hindrar vestur með stökki í þrjú hjörtu og norður stenst ekki mátið að svardobla út á skiptinguna, þrátt fyrir nokkurn punktaskort. Suð- ur sá fyrir sér einspil í hjarta hjá makker og stuðn- ing við hina litina og stökk í sex tígla. „Jæja, makker minn,“ sagði norður þunglyndislega þegar hann lagði upp blind- an, því þetta var ekki sú þró- un sagna sem hann var að vonast eftir. Vestur kom út með hjarta og slemman spil- ar sig sjálf, enda vinnst hún því aðeins að austur sé með Dx í spaða. Tvö hjörtu eru stungin í borði og síðan er spaðadrottningin felld, svínað fyrir spaðatíu og laufi hent – 1370. Norður var lengi að átta sig á því að spilið stæði og AV hristu höfuðið yfir þessu dæmafáa óréttlæti. Hið merkilega er að slemman er óhnekkjandi með hvaða út- komu sem er – jafnvel trompi. Sagnhafi verður að drepa heima og spila laufi á gosann. Ef austur tekur með ás og trompar aftur út verður hægt að fría laufið með trompun og komast síð- an inn á spaðagosa síðar. Og ekki má austur heldur gefa laufgosann, því þá er nóg að stinga eitt hjarta. Fróðir menn telja að þetta spil sé mjög líklegur kandídat fyrir „Grísinn“. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 50 ÁRA afmæli. Nk.sunnudag 8. apríl verður fimmtugur Geir H. Haarde, fjármálaráðherra og varaformaður Sjálfstæð- isflokksins. Af því tilefni taka hann og kona hans, Inga Jóna Þórðardóttir, borgarfulltrúi, á móti gest- um á Grand Hótel Reykja- vík á morgun, laugardag, kl. 17–19. 60 ÁRA afmæli. Sl. mið-vikudag, 4. apríl, varð sextugur Jóhannes Karlsson, Digranesvegi 20, Kópavogi. Hann og eigin- kona hans, Sigrún Jónsdótt- ir, taka á móti ættingjum og vinum í félagsheimili Hesta- mannafélagsins Gusts við Álaland í Kópavogi í kvöld, föstudaginn 6. apríl, kl. 20–1. LJÓÐABROT KOSSAVÍSUR Ljúfi! gef mér lítinn koss, lítinn koss af munni þínum! Vel ég mér hið vænsta hnoss – vinur, gef mér lítinn koss! Ber ég handa báðum oss blíða gjöf á vörum mínum. Ljúfi! gef mér lítinn koss, lítinn koss af munni þínum! Kossi föstum kveð ég þig, kyssi heitt mitt eftirlæti, fæ mér nesti fram á stig – fyrst ég verð að kveðja þig. Vertu sæll! og mundu mig, minn í allri hryggð og kæti! Kossi föstum kveð ég þig, kyssi heitt mitt eftirlæti. Jónas Hallgrímsson STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake HRÚTUR Afmælisbarn dagsins: Þú ert mikil tilfinningavera en um leið framtakssamur og skap- andi og dregur fólk að þér en þarft stundum að hafa hemil á skapi þínu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Nú er það þolinmæðin sem gildir því það myndi aðeins flækja hlutina að fara að vera með einhvern bægslagang. Nú er rétt að staldra við og bíða færis. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú átt auðvelt með að lesa í tilfinningar annarra en þarft að gæta þess að blanda þér ekki um of í þeirra mál. Það getur gert illt verra. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú átt í mesta basli með að koma réttum skilaboðum á framfæri við samstarfsmenn þína. Taktu þér hlé og skipu- leggðu málin upp á nýtt frá a til ö. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Hratt flýgur stund þegar gaman er en það er alltaf hyggilegt að hægja á og gera sér glögga grein fyrir ástand- inu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það getur reynst erfitt að losa sig við gamla siði jafnvel þótt þeir reynist manni dýr- keyptir. Brjóttu upp á ein- hverju nýju á heimavígstöðv- unum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ert á góðu skriði þessa stundina og það eina sem þú þarft að hafa auga á er að ganga ekki yfir samstarfs- menn þína sem fara hægar yfir en eru samt á sömu leið og þú. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú þarft að venja þig af þess- um stöðugu áhyggjum sem þú hefur af öllum sköpuðum hlutum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þótt þér leiðist misvitrir sam- ferðamenn skaltu sýna þeim umburðarlyndi því þeir eiga líka sinn stað í tilverunni. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast þótt eitt- hvað taki í um stund. Öll él birtir upp um síðir og það á við um þig eins og aðra. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Vandi fylgir vegsemd hverri og um leið og þú ert stoltur yfir því að vera valinn til for- ystu þarftu að gæta þess að aðrir njóti sín líka. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Stundum er það svo að aðrir reyna að skipuleggja lífið fyr- ir mann og þá út frá sínum sjónarhól. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þótt allt virðist vera í góðum gír er alltaf hollt að skyggna hlutina vandlega og ganga úr skugga um að þeir séu í raun það sem þeir sýnast vera. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. STAÐAN kom upp á Amber- mótinu sem lauk fyrir skömmu í Mónakó. Margir af fremstu skákmönnum heims tóku þátt í mótinu. Þótt Ljub- omir Ljubojevic (2566) teljist ekki lengur á meðal þeirra teflir hann á hverju ári í þessu ofurmóti. Það er fengur að þátttöku hans þar sem fyrir ut- an þetta mót teflir hann sáralítið. Í stöð- unni hafði hann svart gegn Boris Gelfand (2712) og tókst þeim síðarnefnda að klekkja á júgóslav- neska refnum. 19. Rxe6! fxe6 20. Dg4 e5 21. De6+ Kh8 22. Dg6! Kg8 23. Bxe5! og svartur gafst upp. Eins og flestir skák- áhugamenn vita eru í Amber-mótinu tefldar bæði atskákir og blindskákir. Samanlögð lokastaða móts- ins varð þessi: 1.–2. Vladimir Kramnik og Veselin Topalov 15 vinninga af 22 mögulegum 3. Viswanathan Anand 13½ v. 4. Alexei Shirov 11½ v. 5.–6. Peter Leko og Boris Gelfand 11 v. 7. Jeroen Piket 10½ v. 8.–9. Zoltan Almasi og Ljubomir Ljubojevic 9½ v. 10.–11. Vassilí Ivansjúk og Anatoly Karpov 9 v. 12. Loek Van Wely 7½ v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Með morgunkaffinu Ég tek ÞENNAN. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Aldrei meira úrval af nýjum brúðarkjólum Allir fylgihlutir, undirföt o.fl. Ítölsk föt fyrir herra FATALEIGA GARÐABÆJAR sími 565 6680 Opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14. Neðst á Skólavörðustíg Glæsileg hönnun frá Fallegar kápur stuttar og síðar þykkar og þunnar Úrval af yfirhöfnum á góðu tilboðsverði Opið laugardaga frá kl. 10—16 Mörkinni 6, sími 588 5518 Gjafavara – matar- og kaffistell . All ir verðflokkar. - Gæðavara Heimsfrægir hönnuðir m.a. Gianni Versace. VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 65

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.