Morgunblaðið - 06.04.2001, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 2001 71
Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Vit nr.207.
Sýnd kl. 10.15. B. i. 16.
Vinsælasta Stúlkan
Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit nr.213.
Sýnd kl. 8.
ÓSKARSVERÐLAUN4
4
Tvíhöfði
Sími 461 4666 samfilm.is
FYRIR 990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Vit nr.207.
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit nr.207. Sýnd kl. 6. Ísl tal. Vit nr.213.
Vinsælasta Stúlkan
Frumsýning
betra en nýtt
Sýnd kl. 10.25. B. i. 16.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Íslandsforsýning kl. 8.
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 6. B. i. 16.
Ómissandi rómantísk dramamynd
sem fer óhefbundnar leiðir
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
Kvikmyndir.is
H.K. DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
Hvað myndir
þú gera fyrir
15 mínútna frægð?
Frábær
spennumynd
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B. i. 16.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Frábær grínmynd um bankarán, svalar píur
og aðra skemmtilega hluti
Nú halda allir með vondu píunum
MAGNAÐ
BÍÓ
Frá handritshöfundi og leikstjóra
Jerry Maguire
UPPLIFÐU ÞAÐ. NJÓTTU ÞESS. EN EKKI FALLA FYRIR ÞVÍ
1/2
Hausverk.is
Golden Globe verðlaun: Besta myndin í gam-
amyndaflokki og Kate Hudson fyrir besta
aukahlutverk kvenna.
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
Ó.T.H. Rás2. Hugleikur.
ÓJ Bylgjan
‘Oskarsverðlaun fyrir
besta frumsamda
handrit.
Sjáið allt um stórmyndirnar á www.skífan.is
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
Forrester fundinn
Allir hafa hæfileika, þú verður
bara að uppgötva þá.
Einstök og einvalaleikur hjá Sean Connery en hann hefur aldrei
verið betri.
ATH! Myndin er klippt af Valdísi Óskarsdóttur.
Kvikmyndir.com
HK. DV
Frá leikstjóra Good Will Hunting.
Í GÆR og í dag er hlaupið friðarhlaup í grunn-
skólum Reykjavíkur. Af því tilefni eru staddir
á landinu 11 hlauparar frá 12 Evrópulöndum
sem hlaupa með friðarkyndilinn ásamt 3.000
krökkum á aldrinum 10–12 ára úr 26 grunn-
skólum.
Friðarhlaupið er alþjóðlegt kyndilboðhlaup
sem leggur áherslu á þátt einstaklingsins í bár-
áttunni fyrir heimsfriði. Það var friðartrúboðið
Sri Chinmoy sem hleypti friðarhlaupinu af
stokkunum árið 1987 og hefur alla tíð síðan
stuðlað að vexti þess og útbreiðslu. Hefur því
og vaxið mjög fiskur um hrygg, verið hlaupið í
öllum heimsálfum, yfir 126 þjóðlöndum.
Markmiðið með hlaupinu er að hvetja fólk til
umhugsunar um frið í víðasta samhengi, auk
þess að efla samkennd og einingu milli manna
og þjóða.
Hér á landi hafa yfir 20 þúsund manns tekið
þátt í hlaupinu frá upphafi. Síðan 1996 hefur
hlaupið verið háð í grunnskólum Reykjavíkur
en auk þess hafa nemendur unnið verkefni um
frið í tengslum við hlaupið.
Koma erlendu hlauparanna nú tengist Evr-
ópufriðarhlaupinu sem hófst 1. mars síðastlið-
inn í Lissabon í Portúgal og stefnt er á að verði
hlaupið í öllum Evrópulöndum.
Þegar hlaupinu lýkur í dag verður haldin
lokaathöfn á hádegi í Laugardalnum og eru
friðarsinnar að sjálfsögðu hvattir til að taka
þátt í athöfninni.
Friðarhlaup í slyddunni
Morgunblaðið/Ásdís
Krakkarnir í Rimaskóla hlupu rösklega
með kyndilinn í gær.
ROKKHLJÓMSVEITIN Noise er ein þeirra
sveita sem komust alla leið í úrslitakeppni
Músíktilrauna þetta árið. Rokktríóið spilar
einfalt og hreint gítarrokk en starfsaldur
sveitarinnar rétt rúmir þrír mánuðir.
„Músiktilraunir voru eiginlega í fyrsta
skiptið sem við spiluðum á tónleikum,“ út-
skýrir Hálfdán Helgi Harðarson trommuleik-
ari. „Við vorum bara búnir að æfa í nokkra
mánuði og það var því góður sigur fyrir okk-
ur að komast í úrslit.“
„Við vorum allir saman í annarri hljóm-
sveit,“ segir Einar Vilberg Einarsson, söngv-
ari og gítarleikari, og bendir í átt til Hálfdáns
og bróður síns Stefáns sem leikur á bassa.
„Þá söng Hálfdán og þá var annar trommari,
auka söngvari og annar gítarleikari.“
„Þetta gekk ekkert. Ég nennti ekki að
syngja lengur því ég var miklu betri en hinn
trommarinn,“ segir Hálfdán.
„Það þorði fyrst enginn af okkur þremur
að syngja, svo prófaði Einar það og er orð-
inn alveg ágætur í því,“ segir Stefán. „Þetta
kemur líka best út svona, bara við þrír.“
Þeir piltar segjast vera búnir að fullklára
um 10 lög og nóg sé af ókláruðum hug-
myndum. Hvað fá svo gestir Kakóbarsins
Geysis að heyra í kvöld?
„Öll okkar lög og svo vorum við að velta
því fyrir okkur út af miklum Nirvana-
samlíkingum að taka lög eftir þá líka,“ segir
Stefán.
„Það fer bara eftir því hvort einhver verði
með eitthvað „bögg“, ef svo verður tökum
við Nirvana-lög, bara til þess að fara í taug-
arnar á þeim sem eru með leiðindi,“ segir
Hálfán að lokum.
Ásamt Noise leikur hljómsveitin First
Things First. Eins og á alla Föstudagsbræð-
inga Hins hússins er 16 ára aldurstakmark
og aðgangur ókeypis. Húsið verður opnað
kl. 20:30.
Þrír í hóp
Morgunblaðið/Ásdís
Noise (f.v.): Einar, Stefán og Hálfdán.
Noise leikur á Föstudagsbræðingi Hins hússins