Morgunblaðið - 23.05.2001, Page 14
FRÉTTIR
14 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMVINNUFERÐIR-Landsýn
hafa rift leiguflugsamningi við
flugfélagið Atlanta og náð nýjum
samningum fyrir sumarið við Flug-
leiðir. Vél Flugleiða tekur um 200
farþega í sæti en áður hafði staðið
til að flytja farþega í breiðþotu
Atlanta sem getur flutt ríflega 270
manns í sæti. Með þessum breyt-
ingum minnkar sætaframboðið um
3000 sæti en Samvinnuferðir halda
öllum áfangastöðum og fljúga jafn-
oft og gert hafði verið ráð fyrir.
Guðjón Auðunsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnuferða-
Landsýnar, segir ástæðuna vera að
færri hafi pantað ferð með fyr-
irtækinu í sumar en ráð hafði verið
gert fyrir. „Þegar við endurmátum
stöðuna hjá fyrirtækinu eftir páska
sáum við að ekki væri þörf á svo
mikilli flutningsgetu og var því
gengið að samningaborðinu við
Flugleiðir og Atlanta.“ Breiðþota
Atlanta mun í stað þess að fljúga
með sólþyrsta Íslendinga suður á
bóginn sinna verkefnum í Bret-
landi í sumar, og fljúga fyrir Sam-
vinnuferðir-Landsýn gerist þess
þörf. Þá mun ferðaskrifstofan nota
breiðþotu Atlanta í haustferðum
félagsins, m.a. til Dublin og Kúbu.
Ástæðan fyrir því að samningar
náðust við Flugleiðir var að vélin
var verkefnalaus þar sem ferða-
skrifstofan Úrval-Útsýn felldi nið-
ur fyrirhugaðar ferðir til Marm-
aris í Tyrklandi fyrir nokkru. Páll
Þór Ármann, sölu- og markaðs-
stjóri Úrvals-Útsýnar, segir að þar
með hafi sætaframboð ferðaskrif-
stofunnar minnkað um 1.500–1.800
sæti. Guðjón segir að offramboð
hafi verið á sætum á íslenskum
ferðamarkaði í sumar. „Það er ekki
hægt að stækka kökuna, hér búa
ekki nema um 270 þúsund manns.
Samvinnuferðir drógu verulega úr
sætaframboði frá síðasta ári, aðrar
ferðaskrifstofur gerðu það ekki og
að auki kom ný ferðaskrifstofa, Sól
hf., á markaðinn.“ Guðjón bætir
við að ytri aðstæður bæti ekki
ástandið. Hann segir að gengissig
krónunnar og nýafstaðið sex vikna
sjómannaverkfall hafi reynst
ferðaþjónustunni þungbær. „Svo
tel ég að aðgangur Íslendinga að
eyðslufé sé takmarkaðri í dag en
almennt hefur verið undanfarin
eitt til tvö ár.“ Hann segir að
vissulega komi það sér illa fyrir
reksturinn að þurfa að draga úr
sætaframboði. „Ég tel okkur þó
fyrst og fremst lánsama að geta
endurskoðað flutningsgetuna í
upphafi tímabilsins í stað þess að
þurfa að fækka sætum um mitt
sumarið,“ sagði hann.
Ómar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Sólar hf., segir að
sumaráætlun fyrirtækisins sé enn
óbreytt og að þar á bæ hafi engin
ákvörðun verið tekin um að fækka
sætum. „Við erum vakandi yfir
stöðunni, fylgjumst með þróuninni
dag frá degi og höfum ekki talið
tilefni til að fækka ferðum, enda er
bókunarstaða fyrirtækisins yfir-
leitt mjög góð.“ Hann tekur undir
að of mikið framboð hafi verið á
sólarlandaferðum. „Þótt við séum
ný ferðaskrifstofa og finnum
örugglega minnst fyrir því virðist
það vera samdóma álit allra að
mikill samdráttur sé á markaðin-
um og að Íslendingar muni ferðast
minna í sumar en undanfarin ár.“
Hann segir að milli sex og átta
þúsund farþegar fari til útlanda á
vegum fyrirtækisins í sumar og að
það sé í samræmi við þær áætlanir
sem lagt hafi verið af stað með við
stofnun fyrirtækisins.
Spurn eftir sólarlandaferðum hefur reynst minni en áætlað var
Sætum hefur ver-
ið fækkað um
á fimmta þúsund
RÉTT tæp 58% eða 59,35 kr. af verði
hvers bensínlítra eru gjöld og skatt-
ar til ríkisins og það sem upp á vant-
ar er innkaupsverð og flutningsjöfn-
unargjald, flutningskostnaður, dreif-
ingarkostnaður og álagning olíufé-
laganna.
Eftir hækkun bensínverðsins um
síðustu mánaðamót kostaði bensín-
lítrinn almennt 102,90 kr. miðað við
fulla þjónustu og er við það verð mið-
að hér. Miðað er við meðalverð á
bensíni á Rotterdam-markaði í apr-
ílmánuði og gengi Bandaríkjadals í
lok apríl í þessum upplýsingum sem
fengnar eru hjá Félagi íslenkra bif-
reiðaeigenda. Þá er innkaupsverðið
23,70 kr., hluti olíufélaganna vegna
flutnings og dreifingar 19,20 kr.,
flutningsjöfnunargjald er 0,65 kr.,
bensíngjald 28,60 kr., vörugjald
10,50 kr. og virðisaukaskattur 20,25
kr. eða samanlagt 102,90. kr.
60 kr. af
hverjum
lítra til hins
opinbera
1
+
2/""
+3+/
+
4
+/3+
( )*+
,
#%-.&
0$-#&
#&-#'
/ # -"&
0&-'&
1
21
*+
,
3
)4
*
5,/-6
*/
/7
8 9 &-.'
:
* +2*+/
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt karlmann á sjötugs-
aldri í sextíu daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir að hafa í vörslu á
heimili sínu fjögur tímarit, 72
myndbandsspólur og 111 ljós-
myndir á tölvutæku formi sem
sýna börn á kynferðislegan og
klámfenginn hátt, m.a. í kynferð-
isathöfnum við önnur börn og full-
orðið fólk. Maðurinn játaði brot
sitt fyrir dómi. Klámefnið og tölva
mannsins voru gerð upptæk.
Í dómi héraðsdóms er vitnað í
vottorð læknis sem segir að mað-
urinn hafi margar æðastíflur í
heila sem valdi andlegri og lík-
amlegri fötlun. Hann sé því öryrki
og með öllu óvinnufær og því væri
heppilegt að hann byggi í vernd-
uðu umhverfi og nyti eftirlits og
aðgæslu. Frá 1957 til 1988 hefur
maðurinn tólf sinnum gengist und-
ir sátt með því að greiða sektir. Þá
hefur maðurinn hlotið sjö dóma.
Síðast hlaut ákærði dóm fyrir
þjófnað árið 1997, en var þá ekki
gerð sérstök refsing.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Í fang-
elsi fyrir
barna-
klám
ÁGÆTISVEIÐI hefur verið í
Elliðavatni lengst af í vor og ýmsir
verið að fá góð skot. Mest er það
urriði sem hefur gefið sig, en
bleikjan hefur verið að sækja í sig
veðrið. Er það eins og vant er far-
ið í upphafi vertíðar.
Nýlega fréttist af manni sem
veiddi 14 stykki á stuttum tíma,
mest urriða, á bilinu 1-2 pund.
Nokkrir voru þó frá rúmum 2
pundum og upp í tæp 4 pund sem
telst fínn fiskur í Elliðavatni. Urr-
iðann eru menn enn helst að fá á
litlar straumflugur, nefndar hafa
verið Black Ghost, Micky Finn og
fleiri, en menn sem hafa veitt
djúpt með kúluhausum hafa verið
að slíta upp bleikju í bland við urr-
iða. Bleikjan er mest í kring um
pundið og vel haldin að vanda.
Laxamál
Fyrirtækið Atlant.is hefur hafið
framleiðslu á vasamálböndum
sem eru sérstaklega ætluð stang-
veiðimönnum sem sleppa löxum
sínum. Málböndin kallast laxamál
og eru með sentimetrakvarða sem
einnig gefur upp áætlaða þyngd á
laxi í kílóum í samræmi við lengd.
„Þannig er hægt að sjá hvað lax-
inn er þungur án þess að lyfta
honum upp úr vatninu,“ segir í
fréttatilkynningu frá Atlant.is.
Framleiðendur málbandsins eru
stuðningsmenn veiða-sleppa fyr-
irkomulagsins og telja að bandið
muni hvetja menn til að sleppa
veiddum laxi og stuðli jafnframt
að skilmerkari skráningu á afla.
Bestu silungsárnar
Í samantekt, sem Veiðimála-
stofnun sendi nýverið frá sér í
tengslum við ársfund sinn, kemur
fram hvaða ár gáfu flesta silunga
sumarið 2000. Í pistli um málið
segir Guðni Guðbergsson: Í
stangaveiði voru skráðir alls
74.655 silungar, 39.822 urriðar og
34.833 bleikjur, en samanlagður
silungsafli var um 70 tonn. Flestir
urriðar veiddust í Veiðivötnum
12.205, í Laxá í Þingeyjarsýslu of-
an Brúa, 6.522, og í Fremri Laxá á
Ásum 2.980. Af bleikju veiddust
flestar í Víðidalsá og Fitjá 3.138,
2.900 veiddust í Hlíðarvatni og
2.712 veiddust í Vatnsdalsá.
Morgunblaðið/Einar Falur
Bjarni Brynjólfsson blaðamaður með sinn fyrsta á vertíðinni, lag-
legasta urriða úr Helluvatni.
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
Vænir urriðar
í Elliðavatni
EIRÍKUR Jónsson, formaður
Kennarasambands Íslands, hefur
ritað Íslensku menntasamtökunum
bréf þar sem Kennarasambandið
óskar formlega eftir að taka upp við-
ræður við samtökin um gerð kjara-
samnings fyrir kennara og skóla-
stjóra Áslandsskóla í ljósi þess að
Íslensku menntasamtökin og Hafn-
arfjarðarbær hafa nú undirritað
samning um rekstur skólans.
Í bréfinu er vakin athygli á því að
Kennarasamband Íslands er stéttar-
félag kennara og skólastjórnenda á
Íslandi sem starfa við grunn-, fram-
halds- og tónlistarskóla og fer með
samningsumboð við sveitarfélögin í
landinu vegna kennara og skóla-
stjóra í grunnskólum.
KÍ vill
semja um
Áslands-
skóla
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt Heilbrigðisstofnunina á
Selfossi og ríkissjóð til að greiða
manni 1,6 milljónir króna vegna
læknamistaka.
Maðurinn skar sig á litla fingri
hægri handar árið 1991 og leitaði
þegar í stað aðstoðar á Heilbrigðis-
stofnuninni á Selfossi. Í niðurstöðu
dómsins segir að langlíklegast sé að
við slysið hafi beygjusin litlafingurs
skorist í sundur. Svo virðist hins
vegar sem læknirinn sem gerði að
sárinu hafi ekki kannað áverkann
fyllilega. Maðurinn hlaut því ekki þá
meðferð sem nauðsynleg var til að
hann næði bata. Varanleg örorka
vegna þessa slyss hefur verið metin
5%. Maðurinn tók sjálfur saumana
úr sárinu en leitaði sér aðstoðar á
Borgarspítala um þremur mánuðum
síðar vegna óþæginda í fingrinum.
Hann hefur síðan gengist undir tvær
aðgerðir á fingrinum vegna slyssins
og verið í sjúkraþjálfun af og til.
Héraðsdómur dæmdi Heilbrigðis-
stofnunina og ríkissjóð til að greiða
manninum 2,4 milljónir í skaðabæt-
ur en honum var gert að bera 1/3
hluta tjónsins sjálfur. Sú ákvörðun
er rökstudd með því að maðurinn
tók saumana úr sjálfur í stað þess að
leita til læknis, eins og gera megi ráð
fyrir að menn geri þegar þeim er
umhugað um að áverkar þeirra séu
meðhöndlaðir á fullnægjandi hátt.
Þá var þá álit dómsins að reglulegt
eftirlit og meðferð hjá sjúkraþjálf-
ara hefði verið líklegt til að draga úr
afleiðingum slyssins. Í læknisvott-
orði sem lagt var fyrir dóminn segir
að árangur skurðaðgerða á fingri
mannsins hefði orðið mun meiri
hefði hann stundað sjúkraþjálfun
betur og reglulegar eftir aðgerðirn-
ar.
Á skaðabæturnar leggjast drátt-
arvextir frá því í mars í fyrra. Auk
þess var Heilbrigðisstofnuninni og
ríkissjóði gert að greiða manninum
450.000 krónur í málskostnað.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari
kvað upp dóminn en meðdómendur
hans voru þeir Bjarni Hannesson
heila- og taugaskurðlæknir og Jó-
hann Róbertsson handaskurðlæknir.
Fékk 1,6 millj-
ónir í bætur
vegna lækna-
mistaka
♦ ♦ ♦