Morgunblaðið - 23.05.2001, Síða 24

Morgunblaðið - 23.05.2001, Síða 24
ERLENT 24 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FORSETI Túrkmenistans, Saparmurad Niyazov, kvaðst í gær vera orðinn leiður á því að njóta svo mikillar tilbeiðslu sem raun er á. Loftsteinn, borg, olíuhreins- unarstöð, ýmis fyrirtæki og skólar hafa verið nefnd eftir for- setanum og ásjóna hans prýðir gjaldmiðil Túrkmenistans. Einn af æðstu embættismönn- um landsins sagði ennfremur á mánudag að stjórnvöld íhuguðu að taka hann formlega í tölu „spámanna“. Niyazov baðst undan spá- mannstitlinum á ráðstefnu mannúðarsamtaka í höfuðborg- inni Ashgabat í gær. Fundar- gestir höfðu þó orð forsetans að engu, kusu hann ævilangan for- seta samtakanna og sæmdu hann nafnbótinni „mikli leið- togi“. Nýr forsætis- ráðherra í Úkraínu LEONÍD Kútsjma, forseti Úkraínu, tilkynnti í gær að hann hygðist útnefna kunnan þingmann, Anatoly Kinahk, í embætti forsætisráðherra landsins. Búist er við átökum um málið á úkraínska þinginu, þar sem kommúnistar eru í meirihluta, en það þarf að samþykkja út- nefninguna. Þingið vék í síðasta mánuði fyrrverandi forsætis- ráðherra, Viktor Júshtsjenkó, úr embætti og kommúnistar hafa lýst því yfir að þeir muni aðeins styðja útnefningu félaga úr kommúnistaflokknum. Kinahk, sem gegnir forystu í samtökum iðnrekenda og kaup- sýslumanna, er hins vegar miðjumaður og er talinn líkleg- ur til að halda áfram umbótatil- raununum, sem urðu forvera hans að falli. Hundruð samvisku- fanga í Tíbet KÍNVERSKA fréttastofan Xinhua skýrði frá því í gær að 115 af 2.300 föngum í Tíbet hefðu verið dæmdir til fangels- isvistar fyrir að ógna þjóðarör- yggi, eða með öðrum orðum að mótmæla stjórn Kínverja í landinu. Samkvæmt mati stofnunar- innar Tibet Information Net- work í London eru hins vegar um 300 samviskufangar í Tíbet. Jane Caple, sérfræðingur við stofnunina, segir að samvisku- föngum hafi þó fækkað mikið á síðustu fimm árum, eða úr rúm- lega 1.000. Það skýrist að nokkru leyti af því að margir hafi lokið afplánun refsingar á þessum tíma, en einnig af því að Kínverjar beiti nú meiri hörku og mótmælendur hafi minni tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri. Eftirlit hefur verið aukið með andófsmönnum og yfirmenn á vinnustöðum hafa verið gerðir ábyrgir fyrir stjórnmálaskoðunum undir- manna sinna. Kínverjar fullyrða að Tíbet hafi í margar aldir tilheyrt Kína og hernámu landið árið 1950. Andlegur leiðtogi landsmanna, Dalai Lama, flúði land níu árum síðar, eftir að uppreisn gegn stjórn Kínverja var kveðin nið- ur. STUTT Leiðist til- beiðslan VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss- lands, segir það „ögrun“ af hálfu þýskra blaða að birta frásagnir af fundi Gerhards Schröders Þýska- landskanslara og George W. Bush Bandaríkjaforseta fyrir skömmu þar sem þeir ræða opinskátt um fjármálaspillingu í Rússlandi. Blöð- in komust yfir skeyti með lýsingu á fundinum frá þýska sendiherranum í Washington til utanríkisráðuneyt- isins í Berlín. Málið þykir mjög vandræðalegt fyrir þýsku stjórnina sem hefur skipað sérstakan átaks- hóp vegna lekans. Einnig er fullyrt að Joschka Fischer utanríkisráð- herra sé mjög óánægður og saki embættismenn Schröders um að seilast inn á svið utanríkisráðu- neytisins. Pútín sagði hins vegar að ekki væri um staðfestar upplýsingar frá opinberum aðilum að ræða og því teldi hann ekki ástæðu til að taka frásagnirnar trúanlegar. „Frásagn- ir blaðanna eru ögrun sem ætlað er að gera út af við jákvæða þróun í samskiptum Rússlands og Evrópu- sambandsins og milli Rússlands og vissra aðildarríkja ESB,“ sagði Pútín. Vikublaðið Focus segir að í skeytinu sé m.a. sagt að Michael Steiner, helsti ráðgjafi Schröders í alþjóðamálum, hafi tjáð Bush að Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu, hafi viðurkennt í samtali við sig að Líbýumenn hefðu staðið á bak við mannskætt tilræði á diskóteki í Berlín árið 1986. Einnig er vitnað í Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er segir um Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna: „Þessi náungi er úti að aka.“ Fram kemur í frásögnum þýsku blaðanna að Schröder og Bush hafi rætt um skuldastöðu Rússa. „Kanslarinn var sammála Bush um að ekki kæmi til greina að auka fjárhagslega aðstoð þar sem enn væri miklu af fénu laumað aftur úr landi,“ sagði í skeytinu að sögn vikublaðsins Bunte. Haft var eftir Bush að nauðsynlegt væri að vita meira um stefnu og markmið Pútíns forseta áður en hægt væri að veita meiri fjárhagsaðstoð. Vestrænar þjóðir hafa veitt Rússum milljarða dollara í efna- hagsaðstoð eftir hrun kommúnismans en gagnið af þeirri aðstoð er afar um- deilt. Vitað er að mikið af fénu hef- ur verið sent aftur frá Rússlandi til útlanda eftir ýmsum krókaleiðum á leynireikninga í öðrum löndum en Rússlandi og fullyrt hefur verið að mjög stór hluti af fénu hafi hafnað í vasa spilltra embættismanna og áhrifaríkra kaup- sýslumanna. Stjórn Pútíns hefur ekki enn farið fram á fjárhags- aðstoð enda hefur efnahagur ríkisins batnað mjög síðustu árin vegna hækkandi verðs á olíu og gasi sem eru meðal helstu útflutningsafurða Rússa. Hins vegar er ljóst að Pútín verður á næstunni að fara fram á frest á afborgunum af vest- rænum lánum Rússa en í svo- nefndu Parísarsamkomulagi var á sínum tíma samið um viðráðanlegri kjör. Frásögn af leiðtogafundi George W. Bush og Gerhards Schröders Gagnrýndu fjármála- spillingu í Rússlandi Berlín, Moskvu. Reuters, AFP. Vladimír Pútín VONIR eru teknar að dofna um að japanski ævintýramaðurinn Hyoichi Kohno finnist á lífi en hann hefur verið týndur á norðurheimskauts- svæðinu síðan á fimmtudag. Kan- adíski flugherinn hætti í gær leit að Kohno. Hann kveikti síðast á GPS-stað- setningartæki sínu á fimmtudaginn. Ennfremur heyrðist ekkert í honum á laugardaginn, þegar áætlað var að hann hefði talstöðvarsamband. Kohno lagði upp frá norðurpóln- um 27. mars sl. og hugðist fara til Japans róandi á kajak, á sleða, skíð- um og gangandi. Átti leið hans að liggja um Kanada, Alaska og Sakh- alin-eyju í Rússlandi. Fyrir fjórum árum varð hann fyrstur Japana til að komast gangandi einsamall á norðurpólinn. Samstarfsfólk Kohnos í Resolute í Norður-Kanada mun halda áfram leit að honum úr lofti. Bæði hóp- urinn og kanadískir leitarmenn hafa fundið skíði, staf og sleða skammt frá þeim stað úti fyrir Ward Hunt- eyju þar sem Kohno var staddur þegar síðast náðist samband við hann. Týndur pólfari Tókýó. AP. BRIDGESTONE/Firestone-hjól- barðaframleiðandinn tilkynnti í gær að hætt yrði sölu á hjólbörðum til bíla- framleiðandans Ford. Búist hafði verið við að Ford myndi skipta út allt að þrettán milljón Fire- stone-hjólbörðum á Ford Explorer- jeppum. Firestone sakaði Ford um að draga í efa öryggi hjólbarðanna til þess að beina athygli frá vandkvæðum með Explorer-jeppann, en yfir hundrað manns hafa látist í slysum sem jepp- arnir hafa lent í. Í langflestum tilvik- um var um að ræða veltu. Með tilkynningu Firestone lýkur fyrirtækjasamstarfi sem staðið hefur í næstum heila öld. Ennfremur end- urvekur tilkynningin deilur um ör- yggi hjólbarða og bifreiða, en þær hófust í ágúst sl., þegar Firestone, að kröfu Ford, innkallaði 6,5 milljónir hjólbarða sem seldir höfðu verið sem staðalbúnaður á Explorer. Í tilkynningu frá Bridgestone/Fire- stone í gær segir að þótt hætt verði að selja dekk til Ford muni það hafa lítil áhrif á heildarsölu hjá Firestone, að því er fréttastofan AFP greindi frá. Sagði forstjóri fyrirtækisins að áhrif- in á sölu yrðu „um tvö prósent“. En fjárfestar og fjármálaskýrendur virt- ust þó ekki sannfærðir og hlutabréf í fyrirtækinu lækkuðu í verði um 9,4% á verðbréfamarkaðnum í Tókýó í gær. Bílaframleiðandinn General Mot- ors hefur ekki orðið var við nein vandamál vegna Firestone-hjólbarða, að sögn talsmanns fyrirtækisins. Mun það halda áfram að kaupa dekk af Firestone. Sömu sögu er að segja af bílaverksmiðjunum Nissan Motor, sem einnig eru stór viðskiptavinur Firestone. Firestone hætt- ir sölu til Ford TVÆR ungar konur úr stjórn- málasamtökum þjóðernissinna í Úkraínu hlekkjuðu sig í gær við járnbrautarteina á aðalbraut- arstöðinni í höfuðborginni Kíev til að krefjast lausnar tólf flokks- félaga sinna úr fangelsi. Tanya Chornovil, talsmaður flokks þjóðernissinna, UNA- UNSO, hljóp út á brautarteinana á móti aðsteðjandi lest, sem náði að stöðvast aðeins tíu metrum frá henni. Chornovil hlekkjaði sig svo við teinana ásamt sextán ára gamalli flokkssystur sinni. UNA-UNSO eru öfgasamtök þjóðernissinna, sem hafa staðið fyrir háværum mótmælum gegn stjórn Leoníds Kútsjmas í Úkr- aínu. Tólf félagar í flokknum, þar á meðal formaðurinn Andriy Shkil, voru handteknir eftir að nokkrir lögreglumenn slösuðust í átökum við þjóðernissinna á mót- mælafundi í byrjun mars. Chornovil kvaðst í gær hafa grip- ið til þess ráðs að hlekkja sig við brautarteinana til að knýja fram lausn skoðanasystkina sinna úr fangelsi, þar sem ekkert annað hefði dugað. Áður höfðu félagar hennar reynt að fara í hungurverkfall í tjaldbúðum sem þeir slógu upp fyrir utan úkraínska þinghúsið í Kíev. Á myndinni sjást lögreglumenn og starfsmenn járnbrautanna losa Chornilov af teinunum í gær, en aðgerðir þjóðernissinanna töfðu för farþegalestar um nokkrar klukkustundir. Hlekkjuðu sig við brautarteina Reuters Kíev. Reuters.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.