Morgunblaðið - 23.05.2001, Síða 51

Morgunblaðið - 23.05.2001, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2001 51 DAGBÓK Hlutavelta LJÓÐABROT BOÐUN MARÍU Var leikið á sítar? Nei, vindurinn var það, sem rótt í viðinum söng og næturró minni sleit. Ég gat ekki sofið. Sál mín var dimm og heit. Sál mín var dimm og heit eins og austurlenzk nótt. Og ég reikaði þangað sem döggin úr dökkvanum hló og á drifhvítum runnum við gljúpa mánaskin las. Og ég lagðist nakin í garðsins svalandi gras. Sem gimsteina á festi nóttin stundirnar dró. Svo nálgaðist sítarsöngurinn handan að, og senn var hann biðjandi rödd, sem við eyru mér kvað. Var það svefninn, sem vafði mig draumi sínum? Og var það blærinn, sem brjóst mín og arma strauk, og blærinn, sem mig í titrandi faðmi sér lauk, með sæluna, er lokaði lémagna augum mínum? Tómas Guðmundsson. EFTIR að hafa hindrað á þremur laufum, kemur vest- ur út með hjartagosa gegn spaðaslemmu suðurs. Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ D10862 ♥ ÁD2 ♦ K73 ♣ 72 Suður ♠ ÁKG93 ♥ 10643 ♦ Á9 ♣ ÁD Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 spaði 3 lauf 4 spaðar Pass 4 grönd Pass 5 tíglar Pass 6 spaðar Pass Pass Pass Hjartagosinn er vafalítið einn á ferð, svo svíning kem- ur ekki til greina. Sagnhafi tekur því með ás og síðan tromp í þremur umferðum, en það kemur í ljós að vestur á öll trompin þrjú. En hvað svo? Laufsvíningin er ekki líkleg til að heppnast og betra að reyna annað ef hægt er. Hvernig myndi les- andinn vinna úr spilinu? Norður ♠ D10862 ♥ ÁD2 ♦ K73 ♣ 72 Vestur Austur ♠ 754 ♠ -- ♥ G ♥ K9875 ♦ G8 ♦ D106542 ♣ KG98543 ♣ 106 Suður ♠ ÁKG93 ♥ 10643 ♦ Á9 ♣ ÁD Til að byrja með er hjartatvisti spilað úr borði að tíunni heima. Austur get- ur ekki leyft sér að drepa á kónginn, því þá fríast auka- slagur á hjarta. Hann lætur því smátt hjarta og tían á slaginn. Næst er tígullinn hreinsaður með trompun og loks kemur laufás og drottn- ing. Vestur er inni og verður að spila laufi út í tvöfalda eyðu, en þá hverfur hjarta- drottningin úr borði. Tvær svíningar voru í boði, en báðum hafnað. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STAÐAN kom upp á minn- ingarmóti Capablanca sem lauk í Havanna á Kúbu fyrir skömmu. Ungstirnið spænska, Francsico Pons Vallejo (2.559) hafði hvítt gegn hinum þekkta heima- manni og stórmeistara, Jes- us Nogueiras (2.557). 32. Hxb6! Brýtur niður allar varnir svarts. Framhaldið varð: 32. ...Dxb6 32. ...Rxb6 væri vel svarað með 33. a5 og hvítur stæði með pálmann í höndunum. 33. De4! Ka7 34. Hxb6 Kxb6 35. a5+! og svartur gafst upp enda fátt til varnar eftir 35. ...Kxa5 36. Dc6. Lokast- aða mótsins varð þessi: 1. Franc- isco Vallejo Pons 8 ½ vinninga af 12 mögulegum. 2. Hannes Hlífar Stefánsson 7 v. 3.–5. Lenier Dominguez, Ulf Andersson og Thomas Luther 6½ v. 6.–8. Anthony J Miles, Lazaro Bruzon og Arnaud Hauchard 6 v. 9.– 10. Aryam Abreu og Walter Arencibia 5½ v. 11.–12. Igor-Alexandre Nataf og Jesus Nogueiras 5 v. 13. Neuris Delgado 4 v. Frammistaða Hannesar Hlífars Stefánssonar var með miklum ágætum enda mótið vel skipað. Sigurveg- ari mótsins er í mikilli fram- för og hefur að undanförnu staðið sig vel á ýmsum of- urmótum. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Þessi krakkar, sem búa á Reyðarfirði, héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðu 1.132 kr. Þau heita frá vinstri: Sigurjón Andrés Jónasson, Ásdís Harpa Björgvinsdóttir og Kristveig Lilja Dagbjartsdóttir.               MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbarn dagsins: Þú ert fljótur að aðlagast breyttum aðstæðum og kannt að notfæra þér breyt- ingarnar til framdráttar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það skiptir óhemjumiklu máli nú til dags að öll skilaboð séu stutt og skýr og svari þeim spurningum sem upp kunna að koma. Vendu þig á þetta samskiptaform. Naut (20. apríl - 20. maí)  Haltu þig við skammtímaáætl- anir og láttu hjá líða um sinn að skipuleggja til lengri tíma. Að því kemur síðar og þá þarft þú að vera reiðubúinn til þess. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Veröldin hendist áfram og alltaf eru að koma fram nýjar hugmyndir og nýjar aðferðir. Reyndu að fylgjast með því sem til þíns starfs heyrir. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þótt þú eigir í innri baráttu er ekki hemja að þú látir hana koma niður á þínum nánustu eða samstarfsmönnum þínum. Gerðu þín mál upp hið fyrsta. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þótt þú sért til í að ræða vonir þínar og langanir skaltu fyrst ganga úr skugga um að við- mælandi þinn sé traustsins verður. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þegar mál geta farið á hvorn veginn sem er verður maður bara að taka sína ákvörðun og láta slag standa. Að hika er sama og að tapa. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Mundu í samræðum við aðra að frelsi þitt nær ekki lengra en þangað sem frelsi hins tek- ur við. Farðu ekki yfir þau mörk nema með samþykki viðmælanda þíns. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Oft getur lítil þúfa velt þungu hlassi og því er nauðsynlegt að kynna sér öll mál út í æsar og sérstaklega að lesa smáa letr- ið á öllum pappírum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þótt nauðsynlegt sé að kafa djúpt í sum mál er ástæðu- laust að leita svo djúpt að mað- ur nái ekki að krafla sig upp aftur. Hóf er best á hverjum hlut. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Slúður er alltaf til vandræða og þú átt að láta það sem vind um eyru þjóta en einbeita þér þess í stað að umræðum um þau efni sem skipta máli. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Hugmyndirnar streyma að þér úr öllum áttum svo þú mátt hafa þig allan við að drukkna ekki í flóðinu. Finndu lag til þess að vinsa úr það sem einhver veigur er í. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það kann ekki góðri lukku að stýra að leggja upp án þess að vita hvert ferðinni er heitið. Ferð án fyrirheits getur reynst tvíbent þegar út í al- vöruna kemur. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Nei, maðurinn minn sagði mér ekki hvern- ig byssu ég ætti að kaupa. Hann veit ekki enn að það er hann sem á að skjóta. Þú hefur gleymt að slökkva á sjónvarpinu í gærkveldi, Magnús. Góð þátttaka í Sumarbrids Sumarbrids byrjaði fimmtudag- inn 17. maí. 26 pör spiluðu Monrad-barómeter með 7 umferð- um, fjórum spilum á milli para. Efstu pör voru: Jóhann Stefánss. – Birkir J. Jónss. +61 Rúnar Gunnarss. – Vilhjálmur Sigurðss. +61 Hrólfur Hjaltas. – Friðjón Þórhallss. +57 Björgvin Víglundss. – Helgi Samúelss.+55 Sigurður Steingrss. – Gísli Steingrss. +40 6.Alfreð Kristjánss. – Ólafur Oddss. +33 Efstu pörin drógu um hvort par- ið ynni og drógu Jóhann og Birkir gosa á meðan Rúnar og Vilhjálmur urðu að sætta sig við þrist … Jó- hann og Birkir unnu sér inn frítt næst þegar þeir mæta auk þess sem þeir fengu bridsbók í verð- laun. Föstudaginn 18. maí spiluðu 22 pör Mitchell-tvímenning. Spilaðar voru 9 umferðir með þrem spilum á milli para. Meðalskor var 168 og efstu pör í hvora átt voru: NS Daníel Már Sigurðss. – Pétur Péturss. 199 Harpa Ingólfsd. – Sigurður Björgvinss. 190 Ormarr Snæbjörnss. – Jóhann Stefánss. 186 Unnar Guðm. – Jóhannes Guðmannss. 182 AV Hjálmar S. Pálss. – Eyþór Haukss. 198 Andrés Þórarinss. – Halldór Þórólfss. 191 Guðlaugur Sveinss. – Björn Friðrikss. 179 Sigtryggur Jónss. – Guðm. Ágústss. 177 Efstu pörin í hvora átt unnu sér inn 2.500 króna úttekt hjá Íslensk- um getraunum auk þess að spila frítt næst þegar þau mæta. Fjórar sveitir tóku þátt í mið- næturútsláttarsveitakeppninni og til úrslita spiluðu sveitir Guðmund- ar Ágústssonar og Andrésar Þór- arinssonar. Sveit Guðmundur vann með 42 impum gegn 11. Með Guð- mundi spiluðu: Guðmundur Ágústsson, Sigtryggur Jónsson, Eggert Bergsson, Þórður Sigfús- son, Guðlaugur Sveinsson og Björn Friðriksson. Með Andrési spiluðu: Andrés Þórarinsson, Halldór Þór- ólfsson, Ólafur Oddsson og Eyþór Hauksson. Sumarbrids er spilað fjögur kvöld í viku, mánudagskvöld, þriðjudagskvöld, fimmtudagskvöld og föstudagskvöld. Á þriðjudags- kvöldum geta spilarar lagt í verð- launapott sem rennur til efsta parsins sem lagði í hann, á fimmtudögum er spilaður Monrad- barómeter og á föstudögum er miðnætursveitakeppni. Umsjónarmaður Sumarbrids í umboði Bridssambands Íslands er Sveinn Rúnar Eiríksson. Hann og aðstoðarmenn hans taka vel á móti öllum spilurum og reyna eftir fremsta megni að hjálpa til við myndun para. Allir spilarar, vanir sem óvanir, eru velkomnir. Spilað er í húsnæði BSÍ í Þönglabakka 1, þriðju hæð, til og með föstudeg- inum 25. maí. 28. maí flytur Sum- arbrids í húsnæði Húnvetninga- félagsins í Skeifunni 11 (fyrir ofan þvottahúsið Fönn). BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Félag eldri borgara í Kópavogi Það mættu 25 pör í Mitchell-tví- menninginn þriðjudaginn 15. maí og þá urðu úrslit þessi í N/S: Einar Guðnason – Ragnar Björnsson388 Hannes Ingibergss. – Magnús Halldórss.369 Eysteinn Einarss. – Kristján Ólafss. 349 Hæsta skor í A/V: Jón Andrésson – Valdimar Þórðarson 380 Magnús Oddss. – Guðjón Kristjánss. 364 Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 348 Á föstudag mættu svo 22 pör og þá varð röð efstu para í N/S þessi: Hannes Ingibergss. – Magnús Halldórss.236 Bragi Björnss. – Auðunn Guðmundss. 233 Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófss. 232 Hæsta skor í A/V: Einar Einarsson – Hörður Davíðss. 261 Þórarinn Árnason – Ólafur Ingvarss. 256 Sigrún Pétursd. – Alfreð Kristjánss. 243 Meðalskor á þriðjudag var 312 en 216 á föstudag. Gullsmárabrids Eldri borgarar spiluðu tvímenn- ing í Gullsmára 13 mánudaginn 21. maí. Miðlungur 168. Beztum ár- angri náðu: NS Karl Gunnarsson – Ernst Backman 220 Kristdn Guðm – Guðmundur Pálss. 193 Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 170 AV Sigurður Björnss. – Auðunn Bergsv. 216 Halldór Jónsson – Stefán Jóhannsson 189 Unnur Jónsdóttir – Sigrún Sigurðard. 180 Tveir spiladagar eftir: Mánud. 28. maí og fimmtudagur 31. maí. Sumarkaffi síðari spiladaginn. Mæting 12.45.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.