Morgunblaðið - 29.05.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isFeðgarnir fóru vel af stað í fyrstu
rallkeppni sumarsins B/13
Ítarlegt viðtal við Ólaf Stefánsson
landsliðsmann í handknattleik/B8
16 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
ÞRÍR Litháar, sem ákærðir eru fyrir
stórfelldan þjófnað á símum, mynda-
vélum og áþekkum varningi fyrir á
áttundu milljón króna í verslunum í
Reykjavík í mars. sl., báru fyrir dómi í
gær, að einu afskipti þeirra af verð-
mætunum hafi verið þau, að þeir hafi
tekið að sér að senda þau úr landi fyr-
ir Pólverja sem þeir hittu fyrir tilvilj-
un í Reykjavík. Ákærðu eru sakaðir
um að hafa brotist inn í fyrirtækin
Hans Petersen og Bræðurna Orms-
son og stolið vörum í tveimur innbrot-
um 17. og 18. mars. Við aðalmeðferð
málsins, sem hófst í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, báru ákærðu að
fyrir greiðann við Pólverjana hafi þeir
átt að fá 100 dollara hver. Þeir neita
sjálfir sakargiftum um þjófnað og
sögðust hafa komið til landsins í at-
vinnuleit. Verðmætin eiga umræddir
Pólverjar að hafa keypt ódýrt og vilj-
að senda úr landi.
Framburður ákærðu stangast í
veigamiklu atriði á við framburð
leigubílstjóra, sem ók þeim með verð-
mætin í kössum út á pósthús á Grens-
ásvegi. Ákærðu tóku leigubílinn
skammt frá farfuglaheimilinu í Laug-
ardal með verðmætin, sem þeir pökk-
uðu niður fyrir Pólverjana.
Leigubílstjórinn, sem kallaður var
til vitnis, sagðist hafa skilið Litháana
svo að þeir vildu komast á næsta póst-
hús. Hafi hann því valið pósthúsið á
Grensásvegi og ekið þeim þangað.
Rannsóknarlögreglumenn voru þá
komnir á sporið og veittu Litháunum
eftirför og létu til skarar skríða þegar
þeir byrjuðu að bera kassana inn á
pósthúsið. Voru þeir handteknir með
þýfið og hafa setið í varðhaldi síðan.
Ákærðu gátu enga grein gert fyrir
umræddum Pólverjum, en einn
þeirra sagði þá hafa bent sér á póst-
húsið á Grensásvegi þegar þeir gengu
fram hjá því daginn eftir að ákærðu
komu til landsins. Pólverjana hafi þeir
átt að hitta á pósthúsinu og fá 100
dollarana greidda. Leigubílstjórinn
bar hins vegar að kort hefði ekki verið
notað, þótt það hafi verið til taks í
bílnum og hafi hann valið það pósthús
sem um ræddi, en ekki farþegar sínir.
Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð
málsins ljúki í dag.
Þrír Litháar fyrir dómi vegna innbrota í Hans Petersen og Bræðurna Ormsson
Segja verðmætin hafa komið
frá Pólverjum hérlendis ÖKUMAÐUR bifreiðar sem ekiðvar á ljósastaur við Kringlumýr-arbraut á sunnudagskvöld liggur á
gjörgæsludeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss í Fossvogi en er á
batavegi að sögn læknis á spít-
alanum.
Maðurinn ók bílnum suður
Kringlumýrarbraut en lenti upp á
umferðareyju og síðan á ljósastaur.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík kastaðist mað-
urinn út úr bifreiðinni við árekst-
urinn og lenti undir henni. Hann
var fluttur á slysadeild og var tal-
inn með alvarlega áverka. Kringlu-
mýrarbraut lokaðist um nokkra
stund vegna árekstrarins.
Ökumaður
kastaðist út
úr bílnum
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ENGINN árangur hefur orðið af
fundahöldum í kjaradeilu hjúkrun-
arfræðinga við ríkið og segist Her-
dís Sveinsdóttir, formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga, ekki
sjá mikla ástæðu til bjartsýni. Þó
búið sé að ganga frá flestum atrið-
um í samningunum greinir aðila
verulega á um launaliði samning-
anna.
Hjúkrunarfræðingar hafa boðað
tveggja daga verkfall 30. og 31. maí
en ríkið hefur kært verkfallið til
félagsdóms á þeim forsendum að at-
kvæðagreiðsla um verkfallsboðun
hafi ekki verið framkvæmd með lög-
mætum hætti. Að sögn Herdísar
var verkfallsboðun samþykkt með
85% atkvæða þeirra 1.800 hjúkrun-
arfræðinga sem greiddu atkvæði.
Þeirra á meðal tóku fimm hjúkr-
unarfræðingar hjá St. Fransiskus-
spítala í Stykkishólmi þátt í at-
kvæðagreiðslunni vegna misskiln-
ings, en ríkið er ekki með
samningsumboð fyrir spítalann.
„Líkt og framkvæmdastjóri þeirr-
ar stofnunar töldum við að hann
hefði framselt samningsumboð til
ríkisins. Hann hafði hins vegar veitt
þeim umboð til þess að undirrita
viðræðuáætlun,“ segir Herdís.
Hún segir tilganginn með verk-
fallinu ekki þann að lama spítala og
hjúkrunarstofnanir, heldur vekja at-
hygli á því hve viðræður gangi seint
og erfiðlega. Félagsdómur úrskurð-
ar í dag hvort verkfallsboðunin sé
lögmæt eða ekki, en Herdís segir að
boðað verði til nýs verkfalls komist
dómurinn að þeirri niðurstöðu að
verkfallið sé ólöglegt. Að sögn Her-
dísar vilja hjúkrunarfræðingar
halda því til streitu að fara í verkfall
og boða þá jafnvel fleiri en eitt
tveggja daga verkfall. „Það er ljóst
að haldið verður áfram með stutt
verkföll ef ekkert gengur.“
Tveggja daga
verkfall kært
til félagsdóms
Enginn árangur af viðræðum
hjúkrunarfræðinga við ríkið
AÐ SÖGN blaðamanns við brezka
blaðið Sunday Telegraph er fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
(ESB) nú byrjuð að hrinda því
meinta ætlunarverki sínu í fram-
kvæmd, að gera öll fiskimið í lögsögu
aðildarríkja sambandsins að sameig-
inlegri auðlind sem allur fiskiskipa-
floti sambandsins eigi jafnan aðgang
að. Þetta mun, að því er blaðamað-
urinn segir í dálki sínum, „Christ-
opher Booker’s Notebook“, ríða „því
sem eftir er af brezkum sjávarút-
vegi“ að fullu.
Booker túlkar orð sem Franz
Fischler, sem fer með sjávarútvegs-
mál í framkvæmdastjórn ESB, lét
falla fyrir skömmu, þannig, að við
endurskoðun sameiginlegrar sjávar-
útvegsstefnu ESB sem til stendur að
gangi í gildi árið 2003 verði núver-
andi úthlutunarkerfi heildarfisk-
veiðiheimilda breytt þannig, að ekki
verði lengur um það að ræða að
stjórnvöld hvers aðildarríkis fái út-
hlutað ákveðnum hluta heildarkvót-
ans og ráðstafi honum svo til útvegs-
manna í viðkomandi landi, heldur
verði veiðiheimildum framvegis deilt
út beint til veiðirétthafa og heimild-
irnar verði að fullu framseljanlegar
milli ESB-landa.
Þetta mun, ályktar Booker, leiða
til þess að „hinn risastóri, stórlega
ríkisstyrkti fiskveiðifloti Spánverja“
muni kaupa sér aðgang að Norður-
sjónum og öðrum norðlægum fiski-
miðum. Spænskir útgerðarmenn
verði í aðstöðu til að gera þetta þar
sem brezkir, danskir og þýzkir út-
vegsmenn þurfi að lifa án slíkra
styrkja eins og Booker segir
spænska keppinauta þeirra nærast
á.
Fullyrðir Booker að reglan um 12
mílna strandveiðilögsögu, sem út-
gerðir utan viðkomandi strandríkis
hafa ekki haft aðgang að í krafti regl-
unnar um sameiginlega auðlindanýt-
ingu, muni falla eftir 10 ár. Eftir það
muni aðeins spænsk, frönsk, belgísk
og hollenzk fiskiskip veiða í brezkri
lögsögu, þar sem útgerðir í þessum
löndum þiggi mestu styrkina.
Í ræðu sem Fischler hélt á ráð-
stefnu sjávarútvegsráðherra strand-
ríkja við N-Atlantshaf í gær, sagði
hann það vera stefnu framkvæmda-
stjórnarinnar að viðhalda grunnregl-
unni um svokallaðan hlutfallslegan
stöðugleika. Gildandi reglur um
strandveiðilögsögu beri einnig að
halda í. Þegar til langs tíma væri litið
væri þó rétt að íhuga hvort ekki væri
skynsamlegt að láta markaðsöflin
ráða meiru og reyna nýjar leiðir.
Allur skipafloti ESB
fái jafnan aðgang
LÓÐSINN í Vestmannaeyjum
fann stórt rekald austur af eyjun-
um á sunnudag. Rekaldið reyndist
vera annar hluti tvíbytnu Philips-
liðsins, en áhöfn tvíbytnunnar yf-
irgaf hana, eftir að hún varð fyrir
skemmdum í óveðri um 1300 kíló-
metrum vestur af Írlandi, þann 10.
desember í fyrra. Tvíbytnan var þá
í reynslusiglingu en ætlunin var að
hún tæki þátt í kappsiglingu í
kringum hnöttinn, sem hófst í
Barcelona á Spáni um síðustu ára-
mót.
Talsverð leit var gerð að tvíbytn-
unni, sem var metin á um 5,8 millj-
ónir Bandaríkjadala. Hönnun tví-
bytnunnar þótti byltingarkennd,
en hún var stærsta tvíbytna sem
smíðuð hafði verið til keppnissigl-
inga. Skipsskrokkarnir voru hvor
um sig tæplega 40 metrar á lengd.
Brak af tvíbytnu
finnst við Eyjar