Morgunblaðið - 29.05.2001, Síða 16
AKUREYRI
16 ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hafnarstræti 19
Til sölu eða leigu
Opið virka daga frá 9-12 og 13—17.
Strandgötu 29, 600 Akureyri,
símar 462 1744 og 462 1820.
459 fm þjónustuhúsnæði
á tveimur hæðum. Á jarð-
hæð er gott verslunar-
húsnæði og á efri hæð
er hentugt skrifstofuhús-
næði. Mögulegt væri að
breyta húsinu í íbúðir.
Ýmis skipti möguleg.
Hagstæð lán áhvílandi.
SÖLUDEILD
símar, 461 3014
og 848 2727
Ahorn Camp
Gott verð
LOKSINS NÝIR HÚSBÍLAR
EKKI tókst að manna allar lækna-
stöður á Heilsugæslustöðinni á Ak-
ureyri á síðasta ári eftir að tveir
heimilislæknar létu af störfum og
mun þetta vera í fyrsta skipti sem
slík staða kemur upp. Einn heim-
ilislæknir bættist í hópinn en ekki
bárust umsóknir um eina fasta
stöðu eða um stöðu afleysinga-
læknis.
Seinni hluta síðasta árs voru því
aðeins starfandi 10 heimilislæknar
á Heilusgæslustöðinni á Akureyri í
stað 11–12 áður. Þessi staða hefur
haft áhrif á starfsemina, einkum
með auknu álagi og minni þjónustu
en engu síður jókst heildarfjöldi
stofuviðtala um 13% á milli ára
sem bendir til þess að ásókn í
heimilislæknaþjónustu fari vax-
andi.
60 ungmenni komu
í unglingamóttökuna
Framtíðarhorfur varðandi fjölg-
un heimilislækna eru ekki ýkja
bjartar því fáir unglæknar fara í
heimilislæknanám og því er lítil
endurnýjun í stéttinni. Því eru lík-
ur á að Heilsugæslustöðin þurfi að
draga úr læknaþjónustu eða breyta
henni á komandi árum.
Í febrúar á síðasta var opnuð
unglingamóttaka á Heilsugæslu-
stöðinni sem starfaði allt árið að
sumarmánuðunum undanskildum.
Þar starfa læknir og hjúkrunar-
fræðingur og er móttakan opin
einn klukkutíma í senn, einn dag í
viku. Alls var opið í 33 skipti á síð-
asta ári og komu 60 ungmenni í
unglingamóttökuna með ýmis kon-
ar vandamál.
Þetta kemur fram í Ársskýrslu
Akureyrarbæjar fyrir árið 2000.
Fyrirsjáanlegur samdráttur hjá Heilsugæslustöðinni
Ekki tekist að manna
allar læknastöðurnar
SVEINBJÖRN Indriðason for-
stöðumaður áhættustýringardeildar
Flugleiða flytur fyrirlestur á hádeg-
isverðarfundi Rannsóknarstofnunar
Háskólans á Akureyri og Símennt-
unarmiðstöðvar Eyjafjarðar. Fund-
urinn verður á morgun, miðvikudag-
inn 30. maí, frá kl. 12 til 13 á
Fiðlaranum, 4. hæð. Yfirskrift fund-
arins er „Af hverju áhættustýring?“
Markmið fundarins er að kynna fyrir
stjórnendum fyrirtækja hagsmuni af
áhættustýringu.
Varpað verður fram hugmyndum
að uppbyggingu stefnu í áhættustýr-
ingu og hvað hafa beri í huga við
mörkun stefnu í þessum málaflokki.
Fundarmönnum mun einnig gefast
færi á því að ræða málin og varpa
fram spurningum.
Skráning á fundinn er hjá Símey
en þar fást einnig nánari upplýsing-
ar. Verð er 3.500 krónur með hádeg-
isverði.
Hádegis-
fundur um
áhættu-
stýringu
♦ ♦ ♦
SVEINN Arnar Sæmundsson
söngvari kemur fram á út-
skriftartónleikum í Lauga-
borg, Eyjafjarðarsveit, í kvöld,
þriðjudagskvöldið 29. maí.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30
og leikur Daníel Þorsteinsson á
píanó. Sveinn Arnar er að ljúka
8. stigi í söng frá Tónlistarskól-
anum á Akureyri og eru tón-
leikarnir liður í lokaprófi hans.
Tónleikar
í Lauga-
borg
VEGNA fréttar um ferð mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur til
Portúgal, vilja konur í mæðrastyrks-
nefnd Akureyrar taka fram að aldrei
hefur verið farið í ferðalög á kostnað
nefndarinnar.
Allt það fé sem gefið er til mæðra-
styrksnefndarinnar er notað til að
styrkja þá sem þess þurfa. Þær kon-
ur sem starfa í mæðrastyrksnefnd
Akureyrar gera það af góðum hug og
þeirra bestu laun eru að geta glatt og
aðstoðað þá sem minna mega sín.
Yfirlýsing frá mæðra-
styrksnefnd Akureyrar
Allt fé notað
til að styrkja
þurfandi
VEIÐIFÉLAG Eyjafjarðarár og
Veiðilindin stóðu fyrir veiðikeppni
sunnan Leiruvegar fyrir 16 ára og
yngri á Veiðidegi fjölskyldunnar sl.
sunnudag. Um 60 ungmenni tóku
þátt í keppninni, auk þess sem fjöl-
margir fullorðnir bleyttu í veið-
arfærum sínum. Alla jafna er þó
veiði bönnuð sunnan Leiruvegar.
Ágætis veiði var þennan dag en
alls var tilkynnt um veiði á 40 bleikj-
um og var sú stærsta tæp 2,5 pund.
Morgunblaðið/Kristján
Ungir og upprennandi veiðimenn tóku þátt í keppninni á Leiruvegi á Veiðidegi fjölskyldunnar og Kristján var ánægður með sínar þrjár bleikjur.
Einn dró átta
bleikjur á land
ÖKUMAÐUR ók bíl sínum út af
Drottningarbraut aðfaranótt mánu-
dags. Tilkynnt var um óhappið til
lögreglu kl. 15 mínútur í 3, en það
varð á móts við bæinn Litla-Garð.
Maðurinn var á leið suður Drottn-
ingarbraut og lenti bíll hans út af
veginum hægra megin, að sögn
varðstjóra lögreglunnar. Hann náði
að rétta bílinn af en ekki vildi betur
til en svo að bifreiðin lenti út af
veginum hægra megin. Þar lenti
hann á ljósastaur og hentist niður í
fjöru þar sem fyrir varð stór steinn
sem bíllinn valt á. Lenti hann á
toppnum ofan í sjó. Hékk ökumað-
ur á hvolfi í bílbeltinu þegar að var
komið og flæddi sjór um bílinn.
Ökumaðurinn er grunaður um
ölvun við aksturinn. Hann reyndist
að sögn lögreglu ekki teljandi slas-
aður.
Hékk í bílbeltinu
marandi í hálfu kafi
KARLMAÐUR um fimmtugt hefur
verið dæmdur í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra til að greiða 150 þús-
und krónur í sekt til ríkissjóðs vegna
ölvunaraksturs. Þá var hann sviptur
ökurétti í þrjú ár og gert að greiða
allan sakarkostnað.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa ekið undir áhrifum áfengis og
sviptur ökurétti frá bæ einum í Eyja-
fjarðarsveit áleiðis til Akureyrar en
lögregla stöðvaði aksturinn við
Hrafnagil.
Maðurinn hefur ítrekað gerst sek-
ur um ölvunarakstur og var hann í
október á síðasta ári sviptur ökurétti
í eitt ár. Atburður sá er nú er dæmt
fyrir átti sér stað í febrúar síðast-
liðnum þannig að maðurinn ók þá
bæði ölvaður og próflaus.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
Ók ölvaður og próflaus