Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.05.2001, Blaðsíða 30
ERLENT 30 ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ LIONEL Jospin, forsætisráðherra Frakklands, hafnaði í gær hugmynd- um sem þýzkir ráðamenn hafa viðrað um að Evrópusambandið (ESB) þró- ist í áttina að eins konar sambands- ríki og hvatti þess í stað til þess að þjóðríkin yrðu áfram hornsteinn Evrópusamstarfsins. Jospin lýsti þessum sjónarmiðum sínum í ræðu sem lengi hafði verið beðið eftir, þar sem hann lýsti sinni sýn á framtíðarþróun Evrópusam- runans, nú þegar fyrir liggur að að- ildarríkjum ESB mun á næstu árum fjölga upp í allt að 27. Þau eru nú 15. „Ég skil Frakkland ekki frá Evr- ópu,“ sagði hann. „Eins og svo marg- ir aðrir sannfærðir Evrópumenn vil ég að Evrópa vaxi saman, en hollusta mín tilheyrir minni þjóð.“ Sagðist hann vilja „Evrópusamruna án þess að leysa upp Frakkland“. Fram til þessa hefur Jospin ekki haft mörg orð opinberlega um stefnu sína í Evrópumálum, en þrýstings var farið að gæta um að hann segði hug sinn í þessum málum, nú þegar innan við ár er unz forsetakosningar fara fram í Frakklandi, en fastlega er búizt við að Jospin muni etja kappi um embættið við gaullistann Jacques Chirac, sitjandi forseta. Fyrsta Evrópustefnuræðan frá því Jospin tók við embætti Leiðtogar Þýzkalands og Bret- lands hafa á síðustu mánuðum lýst framtíðarsýn sinni á þróun Evrópu- samrunans, sem og Chirac Frakk- landsforseti og fleiri franskir ráða- menn. Allir hafa þeir verið að reyna að skilgreina hvernig haga beri skipt- ingu valdsins í stækkuðu Evrópu- sambandi. Rödd Jospins þótti vanta í þessa umræðu og ræðan sem hann flutti í gær er fyrsta veigamikla framlag hans til hennar frá því hann tók við embætti árið 1997. Franski forsætisráðherrann sagði í ræðu sinni, sem hann flutti fyrir út- völdum hóp blaðamanna og náms- manna, þær hugmyndir sem Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands, og fleiri þýzkir ráðamenn hefðu lýst, endurspegluðu hið pólitíska skipulag þýzka sambandslýðveldisins. „Í augum sumra þýðir sam- bandsríki [e.: federation] að evrópskt framkvæmdavald sé ábyrgt gagnvart Evrópuþinginu einu (...) Í slíku skipu- lagi myndu þjóðríkin sjálf hafa hlið- stæða stöðu og þýzku sambandslönd- in eða bandarísku sambandsríkin. Frakkland gæti ekki, frekar en nokk- urt annað evrópskt land, sætt sig við slíka stöðu eða slíkt fyrirkomulag á Evrópusamstarfinu,“ sagði Jospin. Jospin sagði sína sýn vera „sam- bandsríki þjóðríkja“, sem fæli í sér að vald væri fært með skipulögðum og yfirveguðum hætti frá ríkisstjórnum aðildarríkjanna til hinna yfirþjóðlegu stofnana, án þess þó að breyta því að þjóðríkin séu hornsteinar Evrópu- samstarfsins. Jákvæð viðbrögð í Berlín Joschka Fischer, utanríkisráð- herra Þýzkalands – sem má segja að hafi hleypt af stað þessari nýjustu umræðu evr- ópskra leiðtoga um framtíð Evr- ópusamrunans með ræðu sem hann hélt í Berlín í maí í fyrra – fagnaði í gær ræðu Jospins. Sagði Fischer samhljóm í mörgu því sem Jospin hefði sagt og þeim hugmyndum sem hann sjálfur og aðrir talsmenn núver- andi valdhafa í Berlín hefðu lýst. Sagði Fischer hugmyndir Jospins falla saman við hinar þýzku meðal annars hvað varðar markmiðin um að styrkja ESB, draga úr hinum svo- kallaða lýðræðishalla sem margir hafa sagt fylgja gildandi skipulagi sambandsins, og að lokamarkmið Evrópusamrunans sé að ESB verði sambandsríki þjóðríkja. Forsætisráðherra Frakklands flytur stefnuræðu um Evrópumál Hafnar þýzkum sam- bandsríkishugmyndum París. Reuters, AFP. AP Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands, lýsir sýn sinni á framtíðarþróun Evrópu- sambandsins. Svíþjóð Aukinn stuðningur við ESB Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. STUÐNINGUR við aðild Svíþjóðar að Evrópusambandinu hefur aukist umtalsvert frá því að landið tók við forsæti í ESB um áramót. Hefur stuðningurinn aukist um 6% á hálfu ári samkvæmt skoðanakönnun sem Dagens Nyheter lét gera. Nú er yfir helmingur Svía fylgj- andi aðild landsins að ESB, 53%, en voru 47% í desember. Stuðningurinn hefur aukist mest hjá kjósendum stjórnarflokksins, jafnaðarmanna. Er hann nú 58% en var 39%. Þá telja 55% að ESB-aðild sé Sví- þjóð til góðs. Andstæðinga ESB aðildar er einkum að finna á landsbyggðinni, á meðal láglauna- fólks og þeirra sem eldri eru. Samkvæmt könnuninni er mikill meirihluti, 79%, fylgjandi aðild Sví- þjóðar að hernaðarsamstarfi ESB. Réttur helmingur kjósenda Vinstri- flokksins, sem barist hefur gegn að- ild að samstarfinu, er engu að síður fylgjandi því. Hins vegar hefur stuðningur við aðild að myntsamstarfi ESB, EMU, ekki vaxið. 48% segjast myndu greiða atkvæði gegn henni en aðeins 36% með. GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti mun á næstu dögum undirrita umdeild lög um skattalækkanir, sem Bandaríkjaþing afgreiddi á laugar- dag. Leiðtogar demókrata á þingi vara við því að fjárlögin séu sprungin vegna skattalækkananna og útgjalda. Eitt helsta stefnumál Bush í kosn- ingabaráttunni á síðasta ári var að lækka skatta og upphaflegt frumvarp Bush-stjórnarinnar gerði ráð fyrir að álögur yrðu lækkaðar um 1.600 millj- arða dollara á næstu tíu árum. Demó- kratar og hófsamari repúblikanar beittu sér hins vegar fyrir því að lækkanirnar yrðu minni og niðurstað- an varð sú að skattar yrðu lækkaðir um 1.350 milljarða dollara (137.000 milljarða króna) á næstu ellefu árum. Engu að síður eru þetta mestu skattalækkanir í Bandaríkjunum síð- an Ronald Reagan tók við forseta- embætti árið 1981. Þingmenn demókrata fullyrða að vegna þessara miklu skattalækkana og fyrirsjánlegrar útgjaldaaukningar til ýmissa málaflokka sé ljóst að fjár- lögin fyrir næsta fjárhagsár, sem hefst 1. október, séu sprungin. Benda þeir einkum á að ekki hafi verið gert ráð fyrir þeirri miklu útgjaldaaukn- ingu til varnarmála, sem ný stefna Bush-stjórnarinnar krefjist, en nefna einnig að stefna Bush í menntamál- um, landbúnaðarmálum og orkumál- um kalli á auknar fjárveitingar. Daschle segir demókrata munu stöðva eldflaugavarnaáform Tom Daschle, sem varð meirihluta- leiðtogi demókrata í öldungadeildinni eftir að James Jeffords sagði skilið við þingflokk repúblikana í síðustu viku, varaði við því í viðtali í þætt- inum „Meet the Press“ á NBC-sjón- varpsstöðinni á sunnudag að demó- kratar í deildinni myndu stöðva ýmis væntanleg frumvörp Bush-stjórnar- innar. Daschle sagði til að mynda óvíst að frekari skattalækkanir yrðu sam- þykktar ef demókratar héldu hinum nauma meirihluta í öldungadeildinni. Hann lýsti því einnig yfir að flokkur sinn myndi ekki styðja áform Bush um að koma upp eldflaugavarnakerfi. Kvaðst Daschle hafa áhyggjur af því að slíkt kerfi bryti í bága við Gagneld- flaugasáttmálann frá 1972, auk þess sem kostnaðurinn við það yrði gríð- arlegur. Bandaríkjaforseti undirritar senn ný lög um skattalækkanir Demókratar segja fjárlögin sprungin Reuters George W. Bush Bandaríkjaforseti við athöfn í kirkjugarði í Arlington í Virginíu í gær til minningar um þá sem hafa fallið í herþjónustu. Washington. The Daily Telegraph, Washington Post. MIÐJU- og vinstriflokkarnir, sem mynda Ólífubandalagið svonefnda og biðu ósigur í þingkosningunum á Ítalíu fyrir tveimur vikum, fögnuðu sigri í borgarstjórakosningum í höf- uðborginni Róm og stórborgunum Napólí og Tórínó á sunnudag. „Við sýndum að miðju- og vinstri- flokkarnir eru enn í fullu fjöri,“ sagði Francesco Rutelli, leiðtogi Ólífu- bandalagsins og fyrrverandi borgar- stjóri Rómar, í gær. Fyrri umferð borgarstjórakosn- inganna fór fram 13. maí, á sama tíma og þingkosningarnar þar sem miðju- og hægribandalag auðkýf- ingsins Silvios Berlusconis náði meirihluta. Í seinni umferðinni á sunnudag vann frambjóðandi Ólífu- bandalagsins í Róm, Walter Veltr- oni, sigur á frambjóðanda bandalags Berlusconis, Antonio Tajani, með 52,2% atkvæða gegn 47,8%. Tajani er fyrrverandi talsmaður Berluscon- is. Hlutföllin voru svipuð í Tórínó og Napólí. Í síðarnefndu borginni tekur kona nú í fyrsta sinn við embætti borgarstjóra en Rosa Russo Jervol- ino vann sigur á Antonio Martus- ciello, sem starfaði áður fyrir fyrir- tækjasamsteypu Berlusconis. Miðju- og vinstriflokkarnir hafa haldið völdum í borgunum þremur síðan 1993, þegar bein kosning borg- arstjóra var tekin upp. Mílanó eina stórborgin á valdi bandalags Berlusconis Bandalag Berlusconis fer aðeins með völdin í einni af stórborgum Ítalíu, Mílanó, en þar náði Gabriele Albertini endurkjöri í fyrri umferð kosninganna. Í seinni umferðinni, sem var hald- in í 77 kjördæmum, náðu báðar fylk- ingarnar einnig meirihluta í nokkr- um minni borgum, bæjum og héruðum. Kjörsókn var um 70%, en var um 80% í fyrri umferðinni. Borgarstjórakosningar á Ítalíu Róm. AFP, AP. Ólífubandalag- ið hafði betur AP Nýkjörinn borgarstjóri Rómar, Walter Veltroni, kastar blómvendi til stuðningsmanna sinna á útifundi í Róm í gær með Francesco Rutelli, leiðtoga Ólífubandalagsins, eftir sigurinn í borgarstjórakosningunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.