Morgunblaðið - 29.05.2001, Síða 59

Morgunblaðið - 29.05.2001, Síða 59
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 59 við Nýbýlaveg, Kópavogi Legsteinar Vönduð íslensk framleiðsla Fáið sendan myndalista Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 MOSAIK ✝ Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít hitt og hafði lítt hugann við akst- urinn svo nærri lá við slysum. Festa og jafnvægi komst á líf Ingi- mars á nýjan leik er hann kynntist Gerði Kolbeinsdóttur. Í hjónabandi þeirra ríkti ást og virðing. Hún var sá vinur og félagi sem hann þarfn- aðist svo innilega. Þau settust að í Hveragerði og bjuggu þar saman í 15 ár eða allt til þess að heilsa Ingimars brast alveg fyrir nokkr- um mánuðum. Fyrri hluti þess tíma var þeim jafn yndislegur og seinni hlutinn var erfiður. Kæra Gerður, hugur okkar er hjá þér. Orð mega sín svo lítils á þessari stundu. Við vitum hvað þú hélst lengi í vonina og hvað veikindi Ingimars hafa reynt mikið á þig. Umhyggja þín og styrkur er óvið- jafnanlegt. Líf ykkar Ingimars kenndi okkur margt sem lifir með okkur og við kennum börnunum okkar. Að leiðarlokum kveikjum við á kertum góðra minninga. Þökk fyrir samfylgdina, kæri tengdapabbi, far þú í friði og Guð veri með þér. Gísli Árni Eggertsson. Ég vil minnast Ingimars afa í nokkrum orðum. Mér er það svo minnisstætt þegar ég fékk bréfin frá afa árið sem ég var skiptinemi í Austurríki. Ég lýsti fyrir honum og Gerði því sem ég sá og lærði í nýju landi. Bréfin sem ég fékk tilbaka innihéldu fréttir frá Íslandi og hvatningarorð um að nýta tæki- færið sem ég hafði til hins ýtrasta. Þegar afi var veikur sá Gerður um að bréfunum mínum væri svarað. Jólabréfið og gjöfin hughreystu mig þegar ég fékk heimþrá á að- fangadag. Bréfin eru vel geymd enda þykir mér undurvænt um þau. Afi sagði mér eitt sinn að ef maður fengi tækifæri til að mennta sig væri maður heppinn, og að tungumál opnuðu fólki nýjan heim. Ásgerður Inga. Okkur langar til að minnast afa okkar í nokkrum orðum. Það fyrsta sem kemur upp í hugann var hve fróður hann var og vel máli farinn. Íslendingasögur, ættfræði, stað- hættir; hann var óþrjótandi visku- brunnur á öllum sviðum. Hann hafði mikinn metnað og gengu öll hans börn menntaveginn. Alltaf þegar við hittum hann spurði hann okkur út í námið og hafði áhuga á því sem við höfðum fyrir stafni. Sjálfur mundi hann allar einkunnir frá sinni skólagöngu. Afi var mjög skemmtilegur persónuleiki og kunni að koma fyrir sig orði. Hann lá aldrei á skoðunum sínum. Hann hafði sérstaklega góða kímnigáfu og rammíslenskan húmor sem gat verið kaldhæðinn á köflum. Við getum hlegið endalaust að sögun- um sem hann sagði okkur og marg- ar góðar minningar rifjast upp á þessari stundu. Okkur þótti afi mjög fallegur maður og þrátt fyrir veikindi síðustu árin var hann alltaf jafn unglegur og myndarlegur. Við minnumst hans í teinóttum jakka- fötum, ilmandi af rakspíra með hárið greitt aftur og barta. Síðustu fimmtán árin hefur Gerður verið ljósið í lífi afa og var yndislegt að sjá hve þau unnu hvort öðru og voru miklir félagar. Hún stóð sem klettur við bakið á honum og reyndist honum ómet- anleg í veikindum hans. Minningin um afa mun lifa í hjarta okkar. Kristín María Stefánsdóttir, Þórunn Inga Gísladóttir, Þórunn Erla Stefánsdóttir. Föstudaginn 25. maí var Ingimar Einarsson lögfræðingur jarðsettur frá Fossvogskirkju. Hann lést á Langlegudeild Ljósheimum á Sel- fossi 18. maí sl. Ingimar fæddist og ólst upp í Keflavík þar sem faðir hans stundaði útgerð. Haustið 1939 lá leið hans norður í land til náms í Menntaskólanum á Akureyri. Fyrsta vetur sinn á Akureyri bjó hann hjá séra Friðriki Rafnar. Þar kynntist hann glæsilegri stúlku, Þórunni Rafnar, sem varð bekkj- arsystir hans í sex ár og seinna eiginkona. Árið eftir flutti hann inn á heimili foreldra minna og við urð- um sambýlingar fram til stúdents- prófs 1945. Tvo fyrstu veturna lás- um við saman í til gagnfræðaprófs. Eru frá þeim árum margar góðar minningar og með okkur tókust vináttubönd sem enst hafa síðan. Foreldrum mínum var hlýtt til Ingimars og hann sýndi þeim alla tíð ræktarsemi meðan þau lifðu. Ingimar var góður námsmaður og var árangur hans í námi eftir því. Hann var skapstór og hafði þegar á þessum árum ákveðnar skoðanir í landsmálum og var mikill kapp- ræðumaður sem stóð fast á mein- ingu sinni. Þetta voru tímar mikilla umbrota í heiminum, einangrun Ís- lands rofin og heimsstyrjöldin við bæjardyrnar. Mikið var rætt um stjórnmál og þjóðfélagsmál og þær miklu breytingar sem gengu yfir landið, og höfðu þessir tímar mikil og mótandi áhrif á okkur öll. Eftir stúdentspróf skildu leiðir, Ingimar hóf nám í lögfræði við Há- skóla Íslands. Prófi í lögfræði lauk hann 1951. Að námi loknu starfaði hann lengst af hjá fyrirtækjum og stofnunum tengdum sjávarútvegi, enda mun hugur hans hafa mótast af sjósókn og útgerð á uppvaxt- arárum hans í Keflavík. Hann starfaði hjá Landssambandi ísl. út- vegsmanna ’51-’53 og ’57-’59. Hann var framkvæmdastjóri Garðs hf í Sandgerði ’53-’57 og starfsmaður og síðar framkvæmdastjóri Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda ’77-’88. Hann var deildarstjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu ’77-’88. Eftir það var hann um tíma umsjónarmaður og kirkjuhaldari Langholtskirkju og safnaðarheimilis hennar. Ingimar fékk snemma áhuga á félagsmálum og lét jafnan til sín taka á þeim vettvangi. Á náms- árum sínum við Háskólann var hann formaður Vöku félags lýðræð- issinnaðra stúdenta ’49-’50, og ’52- ’53 var hann formaður Stúdenta- félags Reykjavíkur. Hann gegndi formennsku í ýmsum félögum og samtökum á vegum Sjálfstæðis- flokksins. Þá sat hann í verðlags- ráði sjávarútvegsins ’60-’77 og í stjórn Aflatryggingasjóðs sjávarút- vegsins ’70-’78. Ingimar sinnti ýms- um trúnaðarstörfum fyrir Lang- holtskirkju, var í stjórn Bræðrafélags Langholtssóknar, og í sóknarnefnd Langholtssóknar um árabil. Þá sat hann í stjórn og full- trúaráði Hjálparstofnunar kirkjun- ar um árabil. Ingimar kvæntist skólasystur sinni Þórunni Rafnar 19. júlí 1947. Þau eignuðust fjögur mannvænleg börn sem öll lifa og eiga sínar fjöl- skyldur. Þórunn andaðist mjög sviplega 2. feb. 1974. Að henni var mikill sjónarsviptir og hefur það verið Ingimari og fjölskyldunni mikið áfall. Önnur kona Ingimars var Oddný Ingimarsdóttir kaup- kona í Reykjavík, hin mætasta kona. Þau skildu. Þriðja kona Ingi- mars er Gerður Kolbeinsdóttur kennari í Hveragerði. Hún lifir mann sinn. Fyrir fimm árum varð Ingimar fyrir örkumlum í læknisaðgerð á spítala. Var hann eftir það bundinn við hjólastól og þjáðist oft mikið, og síðasta árið var hann rúmfastur. Naut hann þá umhyggju og þol- gæðis sinnar ágætu konu. Kona mín og við skólasystkini Ingimars þökkum samfylgdina og sendum eiginkonu hans, börnum hans og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur. Jóhann Indriðason. ✝ Dóra Gróa Jóns-dóttir fæddist 24. júní 1935 á Ak- ureyri. Hún lést 15. maí síðastliðinn á Landspítalanum við Hringbraut. Móðir hennar var Katrín Þórðardóttir sauma- kona í Reykjavík, f. 26. september 1905, d. 8. október 1991, dóttir Þórðar Helgasonar bónda á Hallanda og Bolla- stöðum í Flóa í Ár- nessýslu og Gróu Erlendsdóttur. Faðir hennar var Jón Hjaltalín útgerðarmaður, Siglufirði, f. 23. desember 1903, d. 7. janúar 1965, sonur Bjarna Eftirlifandi eiginmaður Dóru Gróu er Guðjón Ásmundur Páls- son, fyrrverandi skipstjóri á dráttarbátum við Reykjavíkur- höfn, f. 16. febrúar 1932. Foreldr- ar hans voru Páll Ásmundsson, járnsmiður og eimreiðarstjóri, og Maren Jónsdóttir. Þegar leiðir Dóru Gróu og Guðjóns lágu sam- an fyrir rúmum 16 árum var Guð- jón ekkjumaður og átti fjóra syni. Dóra Gróa lauk þjálfun sem snyrtidama í Remedíu og starfaði þar um tíma. Hún lauk námi frá Hjúkrunarkvennaskóla Íslands árið 1961. Starfaði síðan sem hjúkrunarkona á Akureyri og í Danmörku en frá árinu 1965 starfaði hún á Landspítalanum við Hringbraut. Frá 1967 til 1985 sem deildarstjóri á uppvöknun og frá árinu 1985 sem deildarstjóri á dauðhreinsunardeild, þar til hún hætti störfum vegna heilsubrests fyrir u.þ.b. tveimur árum. Útför Dóru Gróu fór fram í kyrrþey föstudaginn 25. maí. Hjaltalín fiskimats- manns, Akureyri og Þóru Þórarinsdóttur. Einkabarn Dóru Gróu er Katrín Ein- arsdóttir, f. 28. maí 1966. Faðir hennar er Einar Sigurðsson, f. 1. maí 1936. Sam- býlismaður Katrínar er Jónas Kristjáns- son, skipstjóri, f. 15. desember 1959. Áður átti Katrín Dóru Gróu Þórðar Katrín- ardóttur, f. 27. júní 1986, en börn Katrín- ar og Jónasar eru Berglind Hrund, f. 24. febrúar 1996, Auður María, f. 31. desember 1996 og Kristján, f. 31. desember 1996. Það var haustið 1958 að hópur ungra stúlkna hittist í fyrsta sinn í Hjúkrunarkvennaskóla Íslands, sem svo hét þá. Við komum sitt úr hverri áttinni eins og gengur og ólíkar eftir því. En eitt áttum við sameiginlegt fyrir utan eftirvæntinguna, að verða hjúkrunarkonur. Dóra Gróa var ein í þessum hópi. Hún var nokkrum ár- um eldri en flestar hinar og hafði þá þegar lokið þjálfun í Remedíu sem snyrtidama og unnið um tíma á sjúkrahúsi í Danmörku sem var fremur óvenjulegt af ungri stúlku á þeim árum. Tengsl þessa hóps urðu fljótlega mjög náin bæði í leik og starfi. Öllum hjúkrunarnemum á þeim tímum var skylt að vera í heimavist í hjúkrun- arskólanum og hlýða ákveðnum reglum sem okkur þótti stundum heldur strangar, eins og það að verða að vera komnar heim fyrir miðnætti öll kvöld nema með sér- stöku leyfi, sem ekki voru mörg í mánuði og vei þeim sem kom að lok- uðum dyrum! Námið var bæði bók- legt og verklegt og skólinn heilsárs- skóli. Unnið var á vöktum allan sólarhringinn, en hjúkrunarnemar unnu á þessum árum öll venjuleg störf á sjúkradeildum. Enda þótt ábyrgð þeirra væri ekki mikil fyrst í stað þá smájókst hún eftir því sem á námið leið. Þá var einnig skylda að dvelja um tíma á sjúkrahúsi á landsbyggðinni og var þá ábyrgð þeirra oft mikil. Þrátt fyrir mikla og oft erfiða vinnu eru þessi ár ógleymanleg í minningunni. Kannski ekki síst vegna þess aðhalds og aga sem skól- inn veitti okkur. Þótt aginn væri strangur var andrúmslofið mótað af virðingu fyrir hjúkrunarstarfinu með heill sjúklinganna í fyrirrúmi og mótaði okkur fyrir lífstíð. Að loknu námi tvístraðist hópurinn. Dóra fór að vinna á Akureyri og Landspítala og einnig vann hún í Danmörku í eitt ár. Þegar heim kom fór hún að vinna á Landspítalanum sem varð hennar vinnustaður alla hennar starfsævi, lengst af sem deildarstjóri. Dóra Gróa ólst upp með einstæðri móður sinni Katrínu. Á þeim árum var ekki eins algengt og nú er að vera einstæð móðir og hefur það vafalítið sett mark sitt á Dóru. Móð- ir hennar var mikil myndar- og ágætiskona. Hún vann við herrafatasaum á saumastofu Gefjunar, og hefur vafa- laust þurft að leggja hart að sér til að sjá heimili sínu farboða. Síðar þegar Dóra var farin að vinna við hjúkrun keyptu þær mæðgur saman íbúð í Stigahlíð. Heimili þeirra ein- kenndist af látleysi, en smekkvísi og jafnframt mikilli reglusemi. Sam- band þeirra mæðgna var alla tíð mjög sterkt og einkenndist af ein- lægni og ástúð. Dóra var alin upp í virðingu fyrir hinum gömlu gildum, heiðarleik, trúmennsku og virðingu fyrir verðmætum. Þessir eiginleikar komu mjög sterkt fram þegar hún sem hjúkrunarkona bar ábyrgð á rekstri deilda á Landspítalanum. Hún þoldi það ekki að farið væri illa með verðmæti og hún gætti eigna vinnuveitanda síns sem væru þær hennar eigin. Hún hafði sterka nær- veru og var réttsýn en seintekin og ekki allra. Hún var hins vegar mikill vinur þeirra sem hún gerði að vinum sínum. Eftir að við lukum námi höfum við hist reglulega í svokölluðum „saumaklúbbi“. Dóra var sú sem hélt lengst í heiðri upphaflegum til- gangi og var síprjónandi og ósjaldan kom hún með peysu sem hún hafði prjónað á börn okkar skólasystr- anna úr dúnmjúku kisugarni og þeg- ar við giftumst og byrjuðum búskap kom hún með viskustykki sem hún hafði bróderað stafina okkar í. Þeg- ar eitthvað stóð til í fjölskyldum okk- ar var ekki ósjaldan leitað til Dóru sem var einstaklega verklagin og dugleg að hverju sem hún gekk. Það var mikil gæfa í lífi Dóru og móður hennar þegar hún eignaðist Katrínu yngri. Hún var mikill gleði- gjafi í lífi Dóru og eftirlæti ömmu sinnar. Þær bjuggu lengi þrjár sam- an í Stigahlíðinni og þangað var ein- staklega notalegt að koma. Katrín yngri, sem er mikil dugnaðar- og myndarkona eins og hún á kyn til, á nú fjögur börn sem Dóra sá ekki sól- ina fyrir. Hún fylgdist af lífi og sál fram á síðustu stundu með nöfnu sinni og var mjög stolt þegar hún náði góðum árangri í skautaíþrótt- inni sem hún stundar. Þegar Dóra Gróa hafði ekki fest ráð sitt á þeim tíma sem við skóla- systur hennar vildum, vorum við að gantast með það að við þyrftum að finna mann fyrir hana. „Hún Dóra Gróa er svo margra manna maki að hún þarf engan mann,“ sagði þá Svend, eiginmaður einnar í sauma- klúbbnum. Ekki þurftum við þó að hafa miklar áhyggjur af þessu. Dóra fann sjálf sinn mann. Hún kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum Guð- jóni Pálssyni fyrir tæpum sautján árum, en hann var þá ekkjumaður. Guðjón og Dóra voru mjög samrýnd og áttu góðar stundir saman, og leit hann á barnabörn hennar sem sín eigin. Hann reyndist Dóru einstakur í veikindum hennar og bar hana á höndum sér og hjúkraði henni heima þar til fáum dögum fyrir andlát hennar. Það er sorglegt til þess að vita að hún skyldi ekki fá að njóta lengur samvista við hann og afkom- endur sína. Dóra Gróa var alla tíð stórbrotinn persónuleiki en stærst var hún þó í síðustu orrustunni, þegar hún af æðruleysi og ljúfmennsku barðist við krabbameinið sem að lokum hafði betur. Það er mikill sjónarsviptir að Dóru úr okkar litla hópi, en áður eru látnar Elísabet P. Malmberg og Þór- laug Brynjólfsdóttir. Innilegar samúðarkveðjur send- um við Guðjóni, Katrínu og fjöl- skyldum þeirra. Skólasystur úr Hjúkrunar- kvennaskóla Íslands. DÓRA GRÓA JÓNSDÓTTIR ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minning- argreina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.