Morgunblaðið - 29.05.2001, Síða 71

Morgunblaðið - 29.05.2001, Síða 71
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 71 VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4543-3700-0029-4648 4543-3700-0036-1934 4543-3700-0034-8865 4507-4100-0006-6325 4548-9000-0056-2480 4543-3700-0027-8278 4507-4500-0028-0625 4507-2800-0004-9377 4507-4500-0030-3021 4543-3700-0015-5815                                  !  "# "$% & '    ()( )$$$ Grecian 2000 hárfroða Er hárið að grána og þynnast? Þá er Grecian 2000 hárfroðan lausnin. Þú þværð hárið, þurrkar, berð froðuna í, greiðir og hárið nær sínum eðlilega lit á ný, þykknar og fær frískari blæ. Einfaldara getur það ekki verið. Haraldur Sigurðsson ehf., heildverslun Símar: 567 7030 og 894 0952 Fax: 567 9130 E-mail: landbrot@simnet.is Fæst í apótekum, hársnyrtistofum og „Þín verslun“ ÞRIÐJA breiðskífa Sepultura, Be- neath The Remains (1989), þykir vera með bestu þungarokksplötum allra tíma, enda sannkallað meist- araverk í alla staði. Platan varð til að vekja verulega athygli á sveitinni á Vesturlöndum sem brást hvorki sjálfri sér né áheyrendum í kjölfarið og óx jafnt og þétt, bæði að vinsæld- um og listrænni getu. Það ferli náði svo hápunkti með snilldarplötunni Roots (1996), plata sem sýndi gjörla hversu mikinn ægishjálm Sepultura bar yfir aðrar sveitir er hér var kom- ið sögu hvað framþróun og frumleika varðaði. Stuttu eftir þetta hætti höfuðpaur sveitarinnar, Max Cavalera, í illu og framtíð sveitarinnar var í uppnámi um hríð. Sveitin afréð þó að halda áfram og fengu til liðs við sig hinn stóra og stæðilega söngvara Derrick Green og gáfu út plötuna Against ár- ið 1998. Erfitt að leysa Max af hólmi Sem vonlegt er var nokkur uggur í fólki vegna plötunnar nýju. Næði sveitin að halda dampi eða ekki? Það gerði hún nú reyndar – svona rétt svo. Pressan hefur því verið talsverð vegna Nation, annarrar plötu hinnar nýju Sepultura. Derrick, söngvari, var staddur í Ástralíu er hann hringdi í blaða- mann. Hann var afslappaður og vinalegur, merkileg staðreynd í ljósi þess að sveitin var búin að standa í viðtalastappi í þrjár vikur og búin að gefa um 300 viðtöl! „Ég? Ó já...ó já! (hlátur),“ heyrist í Derrick er ég spyr hann hvort þetta sé búin að vera löng törn. „Í næstum því þrjár vikur núna!“ bætir hann við. Blaðamaður viðurkennir aðdáun sína á sveitinni fyrir Derrick, segist hafa komist „inn“ í hana er hann keypti Beneath The Remains. Der- rick segist einnig hafa verið aðdá- andi. „Fyrsta platan sem ég keypti með þeim var Arise (1991), svo keypti ég Chaos A.D. (1994) og Ro- ots er þær komu út. Svo þegar ég var kominn í sveitina var ég kynntur fyr- ir plötum eins og Beneath The Remains, Schizophrenia (1987), Bestial Devestation (1985) og Morb- id Visions (1986).“ Derrick segir það hafa verið dálít- ið erfitt að feta í fótspor Max Caval- era á sínum tíma. „Það sem var kannski erfiðast var að kynnast öll- um. Ég þekki Max t.d. ekki, ég hef aldrei hitt hann. Sem aðdáandi bar ég að sjálfsögðu mikla virðingu fyrir honum og því sem hann gerði með hljómsveitinni. Þannig að þetta var líka auðvelt að því leytinu til að ég átti ekki í miklum erfiðleikum með að samsama mig sveitinni sem slíkri þar sem ég trúi á þetta. En það sem var erfiðast var að byrja að spila saman og koma fram á tónleikum.“ Hann viðurkennir fúslega að hann hafi verið taugaóstyrkur í blábyrj- uninni. „Ég held líka að allir hafi ver- ið á taugum. Það vissi enginn við hverju mátti búast. Við vissum ekk- ert hvernig aðdáendurnir myndu taka þessu.“ Býr í Brasilíu Derrick segir að eftir því sem liðið hafi á hljómleikaferðalagið sem farið var í kjölfar Against hafi sjálfs- traustið aukist. „Og nú bý ég líka í Brasilíu, hef búið þar í um eitt og hálft ár. Það er frábært. Ég þurfti að læra portúgölsku! Ég held að við höfum orðið nánari vegna þessa. Vorum í æfingahúsnæði í eitt ár og hljóðrituðum í tvo mánuði – allt í Brasilíu.“ Ég spyr hann næst um vinnu hans með harðkjarnasveitinni Integrity sem hefur lengi verið með þekktari böndum í þeim geiranum og gefur út hjá Victory Records. Derrick söng einmitt bakraddir á plötu þeirra, Int- egrity 2000. „Uhumm!“ heyrist hinum megin og hann er greinilega hissa. „Ég er frá Cleveland og ég og Dwid söngv- ari erum miklir vinir. Við erum meira að segja með sama húðflúrið á fætinum (hlær). Ég ólst upp með honum og það vildi svo til að ég var í bænum er þeir voru að taka upp. Þannig að ég bara lét slag standa.“ Derrick hóf feril sinn í harð- kjarnasveitum og spilaði með sveit- um eins og Alpha Jerk, Outface og Overfiend. Hann tilkynnir stoltur að hljómsveitin Hatebreed, sem er á mála hjá Victory Records, muni spila með þeim á hluta tónleikaferðalags- ins sem farið verður í kjölfar Nation. „Þarna liggja ræturnar mínar,“ segir hann og það vottar fyrir stolti í röddinni. „Ég elska harðkjarnann!“ Jello Biafra Derrick segir að á plötunni nýju felist viss skilaboð. „Okkur finnst hugmyndin um Sepultura ekki snú- ast um eina hljómsveit og aðdáendur hennar. Þetta er ein þjóð með ákveðnar hugmyndir og ákveðnar skoðanir: Engin landamæri, engin stríð. Samfélagið Sepultura er opið og dreifist um allan heim. Þessi mikla samkennd heillaði okkur og okkur langaði til að beina sjónum að jákvæðum hlutum: engin landamæri, engar byssur, trúarlegt frelsi. Allir frjálsir til að gera það sem þá lang- ar.“ Sepultura-liðar hafa alltaf verið miklir frammámenn í listinni eins og fram kemur í upphafi greinar og ein- att vísað veginn hvað ferskt og nýj- ungagjarnt þungarokk varðar. „Okkur finnst mikilvægt að vera opnir og óhræddir við að gera til- raunir með tónlistina,“ segir Der- rick. „Ekki að vera hræddir og festa sig þá í einum stíl; veri það dauða- rokk eða harðkjarnarokk. Þetta er það sem við trúum á. Breytingar eru góðar og ég held að aðdáendur séu farnir að gera ráð fyrir því að hver plata sé ólík þeirri fyrri. Þetta er líka mikilvægt fyrir okkur; svo við höld- um áhuganum. Við viljum ekki hjakka í sama farinu endalaust.“ Jello Biafra, fyrrum leiðtogi pönk- sveitarinnar Dead Kennedys og virkur pólitískur aðgerðarsinni, syngur gestasöng á plötunni nýju, lag sem kallast „Politricks“, nafni við hæfi. Það er gaman að heyra að lok- um að Derrick hefur ekki gleymt aðdáandanum í sjálfum sér er þetta er borið undir hann. „Það var alveg frábært að vinna með honum! Við sendum honum lag- ið frá Brasilíu og ég hugsaði: „Váá, Jello Biafra er að fara að syngja lag sem ég átti þátt í að búa til!““ Afslappaður Derrick Green. Sepultura: Igor Cavalera, Andreas Kisser, Derrick Green, Paulo Jr. Samfélagið Sepultura Hin brasilíska Sepultura hefur lengi verið ein allra vinsælasta þungarokkssveit heims, en fyrir nokkru kom út áttunda skífan, Nation. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Derrick Green söngvara vegna þessa. arnart@mbl.is Samtal við Derrick Green, söngvara Sepultura

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.