Morgunblaðið - 29.05.2001, Síða 76
76 ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
FYRSTA STÓRMYND
SUMARSINS
ER KOMIN
Algjör megasmellur í Bandaríkjunum.
Búið ykkur undir tvöfaldan skammt af spennu, gríni
og hasar. Myndin er hlaðin frábærum og ótrúlegum
tæknibrellum. LEYFÐ ÖLLUM ALDURSHÓPUM.
strik.is
Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 234 Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10. Vit nr. 237
Jane vantaði herbergisfélaga en það
sem hún fékk var meiri maður en
hana hafði órað fyrir!
Frábær rómantísk
gamanmynd um hegðun
karlmanna
og það sem
kemur þeim
til.
Kl. 8 og10.10.
B. i. 16. Vit nr. 223
Sýnd kl. 10.05.
B.i.16. Vit nr. 201
Sýnd kl. 10.30.
B.i.16 ára. Vit nr. 228
Hausverk.is
Sýnd kl. 4 og 6.
Íslenskt tal. Vit nr 213.
Sýnd kl. 3.50,
5.55 og 8. Vit nr. 207
Sýnd kl. 3.40,
5.50, 8 og 10.20.
Vit nr. 233
Sýnd kl. 4. Ísl tal
Vit nr. 231
Sýnd kl. 8.
Vit nr. 224.
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
eftir Þorfinn Guðnason.
Lalli Johnslli
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Hausverk.is
Mbl
FYRSTA STÓRMYND
SUMARSINS
ER KOMIN
Algjör megasmellur í Bandaríkjunum.
Búið ykkur undir tvöfaldan skammt af spennu, gríni og hasar.
Myndin er hlaðin frábærum og ótrúlegum tæknibrellum.
LEYFÐ ÖLLUM ALDURSHÓPUM.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
strik.is
Yfir 7000 áhorfen
dur
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.45. Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
B. i. 14 ára
ÞAÐ eru tvær athyglisverðar harðkjarna-
sveitir sem stíga í vænginn hvor við aðra á
Stefnumóti Undirtóna í kvöld. Fyrsta ber að
nefna mulningssveitina ógurlegu Andlát,
sigurvegara Músíktilrauna 2001, en þeir
félagar ætla víst að skella sér í hljóðver síð-
ar á þessu ári.
Og svo er það endurkoma Klink, harð-
kjarnasveitar sem vakið hefur verðskuldaða
athygli fyrir sannkallaða tuddatónleika í
gegnum tíðina en tónlistin er afar spenn-
andi og framþróað harðkjarnarokk.
„Við vorum að koma saman aftur eftir
hlé. Við erum búnir að vera að æfa okkur
upp og semja ný lög,“ segir Þröstur gít-
arleikari en tveir af meðlimunum voru úti á sjó síðast-
liðinn vetur.
„Við erum að taka upp núna með honum Birgi Curv-
er...Bibba [sá er tók upp Jesus Christ Bobby með Mín-
us]. Svo ætlum við að leggja í mikið tónleikahald í sum-
ar. Það er kominn miklu meiri metnaður í þetta hjá
okkur og við erum svona að þróa okkar stíl.“
Útgáfumálin segir hann hins vegar óljósari. „Við vit-
um ekki alveg hvað við ætlum að gera við upptökurnar.
Það verður bara að koma í ljós.“ Húsið verður að vanda
opnað kl. 21 og er aðgangseyrir sem fyrr sléttar 500 kr.
Aldurstakmark miðast við 18 ár. Það er og gaman að
segja frá því að júnístefnumótin verða í glæsilegra lagi
en hinn 5. júní munu XXX Rottweiler hundar leika,
hinn 12. er það Maus, 19. er það Kanada og 26. mun
Ampop leika. Með þessum sveitum verða svo að sjálf-
sögðu fleiri stefnumótaaðilar en þá á enn eftir að stað-
festa.
Harðkjarna-
hátíð
Andlát á tónleikum.
Stefnumót á Gauknum
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
MIÐAR á fyrirhugaða tónleika þýsku rokksveitarinnar Rammstein
seldust upp á stuttum tíma, en miðasalan hófst í gærmorgun. Fjöldi
manns beið klukkutímum saman fyrir utan verslanir Skífunnar og
Músíkur og mynda til að tryggja sér tækifæri til að berja hljómsveit-
ina augum. Að sögn Kára Sturlusonar, skipuleggjanda tónleikanna,
voru 5.500 miðar í boði á tónleikana.
Hljómsveitin Rammstein heldur tónleika í Prag, höfuðborg Tékk-
lands, 12. júní, og kemur svo hingað og heldur tónleika hér föstudag-
inn 15. júní. Því næst er för sveitarinnar heitið til Bandaríkjanna.
Kári, sem einnig skipulagði tónleika kúbversku hljómsveitarinnar
Buena Vista Social Club, segir að ekki sé í bígerð að reyna að fá
Rammstein til að halda hér aukatónleika. Þegar kúbverska sveitin
hélt hér tónleika nýverið voru seldir 3.000 miðar í sæti og seldust
þeir upp á svipstundu. Þá voru haldnir aukatónleikar sem einnig
tóku 3.000 manns í sæti. Kári segir að það hafi aldrei gerst að hægt
væri að selja 11.000 miða á tónleika sömu hljómsveitarinnar.
Talið er að um 1.200 manns hafi beðið í röð til að fá miða.
Morgunblaðið/Siggi
Uppselt á tónleika
Rammstein
Rammstein spilar í Laugardalshöllinni
DILBERT mbl.is