Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur gagn- rýndu ársreikninga borgarinnar harkalega á blaðamannafundi í gær og segir Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti flokksins, að reikningarnir einkennist af gríðarlegri skuldasöfn- un á tímum góðæris og tapreksturs fyrirtækja í eigu borgarinnar, sem kjörnir fulltrúar eigi ekki undir nein- um kringumstæðum að sjá um rekst- ur á. Þá sagði Inga Jóna að í kynn- ingu borgarstjóra á ársreikningum væri ekki dregin upp rétt mynd af fjárhagsstöðu borgarinnar. „Það sem einkennir ársreikning- inn er mjög mikil hækkun skatt- tekna og um leið hækkun útgjalda. En það sem gerist í þessari upp- sveiflu er að hún er ekki nýtt, þessar auknu skatttekjur, til að greiða niður skuldir. Á fréttamannafundi borgar- stjóra var fjallað um að náðst hefði verulegur tekjuafgangur hjá borgar- sjóði. Þar nefndi borgarstjóri að tekjuafangurinn á árinu 2000 væri 1.919 milljónir króna. Sú tala er fengin af tveimur tölum, það er ann- ars vegar rekstrarafgangur sem eru 966 milljónir og framlög til lífeyris- skuldbindinga 952 milljónir. Ég hlýt að vekja athygli á því að innifalið í þessari tölu er sala og uppgjör vegna Sjúkrahúss Reykjavíkur upp á 1.626 milljónir króna. Þannig að þegar sú tala er tekin út er raunverulegur tekjuafgangur 293 milljónir króna og ef við skoðum hann óháð lífeyris- framlaginu, þá erum við með raun- verulegan rekstrarhalla.“ Að sögn Ingu Jónu leggja sjálf- stæðismenn megináherslu á að draga fram hve skuldir borgarinnar hafi aukist gríðarlega frá því að R- listinn tók við völdum árið 1994. Á þeim tíma hafi hreinar skuldir borg- arinnar aukist úr 3,7 milljörðum árið 1993 í tæpa 23 milljarða árið 2000 og samkvæmt áætlun verði hreinar skuldir borgarinnar orðnar tæpir 27 milljarðar á þessu ári. Þá sagði Inga Jóna að á árunum 1995 til 1997 hafi verið gengið á eignir borgarinnar og innstæður sjóða hjá einstökum stofnunum borgarinnar. Inga Jóna sagði skuldir borgarinn- ar hafa aukist um 8 milljónir á hverj- um degi á valdatíð R-listans og áhrif þeirrar skuldsetningar myndu fyrr en síðar lenda á borgarbúum. Þá væri þróunin sláandi í samanburði við önn- ur sveitarfélög og ríkið, þar sem hreinar skuldir Reykjavíkurborgar hafi sjöfaldast á átta árum á meðan ríkið hafi greitt niður og minnkað sín- ar skuldir og önnur sveitarfélög aukið skuldir sínar lítillega. Á fundinum kom fram að sjálf- stæðismenn hafi ítrekað varað við því að borgin taki á sig fjárhagslegar skuldbindingar með þátttöku í áhættusömum atvinnurekstri og reynslan af rekstri Línu.Nets sýni að þau varnaðarorð hafi síst verið of gætileg. Inga Jóna sagði reikninga fyrirtækisins vera nýtt innlegg í árs- reikninga Reykjavíkurborgar sem gerði að verkum að ársreikningurinn sýndi nú allt aðra mynd en áður hefði sést. „Það er að segja mynd af athafna- starfsemi kjörinna fulltrúa í verkefn- um og fyrirtækjarekstri sem að okk- ar áliti kjörnir fulltrúar eiga ekki að standa í undir nokkrum kringum- stæðum og ekki á að nota fjármuni almennings til.“ Að sögn Ingu Jónu er það ekki alls kostar rétt sem borgarstjóri hafi haldið fram, að í ársreikningum borgarinnar væri um óverulegt frá- vik að ræða frá áætlunum. Sem dæmi um veruleg frávik megi taka reikninga Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækisins Línu.Nets. Áætlaðar heildarskuldir Orkuveit- unnar hafi verið 11,7 milljarðar árið 2000 en samkvæmt ársreikningum nemi skuldirnar 14,9 milljörðum og hafi því aukist um tæp 27% frá áætl- un. Þá hafi nettóskuldir án lífeyris- skuldbindinga aukist um 34,5%. Hagnaður Orkuveitunnar hafi verið áætlaður 619 milljónir árið 2000 en hafi hins vegar aðeins numið 389 milljónum, sem er 37% minna en gert var ráð fyrir. „Meginskýringin á þessari breyt- ingu Orkuveitunnar er taprekstur á Línu.Neti hf. og þá erum við komin að því fyrirtæki sem sýnir veruleg frávik,“ sagði Inga Jóna. Áætlanir hafi gert ráð fyrir að heildarskuldir fyrirtækisins myndu nema 390 millj- ónum króna árið 2000 en samkvæmt ársreikningum nema þær 1,6 millj- örðum króna, sem er tæplega 324% aukning skulda. Þá nam tap fyrir- tækisins á síðasta ári 471 milljón króna en áætlanir gerðu ráð fyrir 149 milljóna króna tapi. Heildarskuldir jukust um 5,5 milljarða umfram áætlun Inga Jóna sagði Orkuveituna upp- haflega hafa sett 200 milljónir inn í fyrirtækið og þegar sverfa fór að á síðasta ári hafi verið ákveðið að auka hlutaféð og Orkuveitan hafi þá keypt hlutafé fyrir tæpar 100 milljónir króna. „Í þessari viku kom síðan í ljós að enn þarf að sækja peninga í sjóði Orkuveitunnar til að standa undir þessu fyrirtæki. Nú var verið að samþykkja viðbótarhlutafjár- aukningu í þetta fyrirtæki sem mun kosta Orkuveitu Reykjavíkur 220 milljónir.“ Að sögn Ingu Jónu er þessi ákvörðun tekin þrátt fyrir að Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórnar og varaformaður Línu.Nets, hafi í sam- tali við Viðskiptablaðið 2. maí sl. lýst því yfir að ekki stæði til að Reykja- víkurborg eða fyrirtæki á hennar vegum legðu aukið fjármagn í rekst- ur fyrirtækisins. Þá tók Inga Jóna fleiri dæmi um frávik frá áætlunum sem fram koma í ársreikningum borgarinnar. Þar kemur fram að heildarskuldir Reykjavíkurborgar án lífeyrisskuld- bindinga, þ.e. samstæðunnar allrar með borgarsjóði og fyrirtækjum í eigu borgarinnar, hafi aukist um 5,5 milljarða króna umfram áætlun, eða 18,3%, og nettóskuldir án lífeyris- skuldbindinga hafi aukist um 4,8 milljarða, eða 26,5%. Framlag til SVR hafi verið aukið um 20,1% frá áætlun og tap hafi orðið á rekstr- inum um 354 milljónir þó að gert hafi verið ráð fyrir að reksturinn yrði rekinn á sléttu. J0afnframt tók Inga Jóna sem dæmi að heildarskuldir Félagsbú- staða hf. hefðu aukist um 12,7% og nettóskuldir um 14,1%, eða um 607 milljónir. Þá sýni ársreikningar að Reykjavíkurhöfn sé í fyrsta skipti í sögunni rekin með tapi og heildar- skuldir hafi aukist um 34% og nettó- skuldir án lífeyrisskuldbindinga auk- ist úr 90 milljónum í 441 milljón króna, sem er 390% aukning. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks gagnrýna ársreikninga Reykjavíkurborgar Einkennast af gríðarlegri skuldasöfnun í góðæri Morgunblaðið/Jim Smart Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Inga Jóna Þórðardóttir og Júlíus Vífill Ingvarsson á fundi Sjálfstæðismanna um ársreikninga Reykjavíkurborgar. HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt mann til að greiða Frjálsa fjárfest- ingarbankanum 547 þúsund krónur ásamt dráttarvöxtum frá árinu 1996. Um var að ræða skuld sem myndaðist vegna taps mannsins á verðbréfaviðskiptum sem Fjárfest- ingarfélagið Skandia sá um fyrir hann á árunum 1993-1996. Viðskipt- in voru aðallega um afleiðusamn- inga, einkum valréttarsamninga. Á viðskiptunum tapaði maðurinn alls 1.999.620 krónum. Hann lagði í upphafi fram fé til viðskiptanna, en þegar á leið lagði Skandia út fyrir skuldbindingum hans og myndaðist við það skuld mannsins við félagið. Frjálsi fjárfestingarbankinn, sem tók yfir réttindi og skyldur Skandia, krafði manninn um skuld- ina. Maðurinn hafnaði greiðsluskyldu og bar því einkum við að til við- skiptanna hefði að nokkru verið stofnað án síns samþykkis, auk þess sem ráðgjöf Skandia hefði ver- ið ábótavant. Hæstiréttur taldi hins vegar að þótt maðurinn hefði ekki samþykkt öll viðskiptin hefði hann með athafnaleysi sínu orðið skuld- bundinn af þeim. Sýnt þótti að manninum hefði verið kynnt eðli viðskiptanna og sú áhætta sem þeim fylgdi. Var því ekki fallist á að ráðgjöfinni hefði verið svo ábótavant að skuldbind- ingar mannsins við Skandia væru niður fallnar eða að stofnast hefði til bótaréttar hans á hendur Skandia. Þótti það ekki hagga því að Skandia hafði vanrækt skyldu sína til að gera skriflegan samning við manninn. Greiði tap vegna verðbréfaviðskipta RÍKISÚTVARPIÐ hefur hafið inn- heimtu útvarpsgjalds af fyrirtækjum vegna útvarpstækja í fyrirtækjabíl- um. Um er að ræða nýja lagafram- kvæmd en Samtök atvinnulífsins segja að innheimtan byggist á reglu- gerðarákvæði sem ekki eigi sér ótví- ræða stoð í lögum. Fjallað er um málið í fréttabréfi samtakanna, sem kom út í gær, en þar segir m.a. að óviðunandi sé að fyrirtæki séu krafin um opinber gjöld án ótvíræðrar lagastoðar. Bent er á að í lögum um Ríkisút- varpið sé hvergi minnst á sérstaka gjaldtöku vegna útvarpa í bifreiðum, hvorki einkabifreiðum né atvinnubif- reiðum. Löggjafinn veiti hins vegar heimild til afslátta til fyrirtækja og stofnana vegna fjölda viðtækja á sama stað. Þetta megi skilja svo að ekki hafi verið höfð í huga gjald- heimta vegna tækja sem eru í bílum eða í fórum einstaklinga á ferð og flugi. „Einstök fyrirtæki munu hafa samið við RÚV um verulegan afslátt af umræddu gjaldi með tilliti til fjölda fyrirtækjabíla. Viðkomandi fyrirtæki eru seinþreytt til vand- ræða og hafa kosið að ganga til samninga við RÚV um upphæð gjaldsins. Engin ákvæði eru hins vegar um slíkan afslátt í gildandi reglugerð. Þar er hins vegar að finna ítarleg ákvæði um afslátt vegna fjölda sjónvarpa og útvarpa í sjúkra- húsum, gistihúsum, skipum og víð- ar,“ segir ennfremur í fréttabréfinu. SA átelja inn- heimtu Rík- isútvarpsins SÍÐARI umræða um ársreikninga fyrir árið 2000 hófst seint í gær- kvöldi á borgarstjórnarfundi í Ráð- húsi Reykjavíkur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri rangt sem Sjálfstæðisflokkur hefur haldið fram að auknar skatt- tekjur borgarinnar hafi ekki verið nýttar til að greiða niður skuldir. „Skuldir borgarsjóðs hafa verið að minnka og það eru þær sem eru greiddar með skattpeningum. Skattpeningar eru ekki notaðir til að greiða skuldir fyrirtækja í eigu borgarinnar,“ sagði Ingibjörg. Hún segir að Sjálfstæðismenn hafi inn- leitt nýtt hugtak sem ekki sé notað í reikningum sveitarfélaga en það sé hrein skuldastaða. „En gott og vel, nýtum þetta hugtak, hrein skuldastaða borgarsjóðs fór í 12 milljarða 1996 og 10 milljarða 1994 en er nú 5 milljarðar. Þetta er auð- vitað vegna þess að menn hafa greitt niður skuldir, m.a. með skattfé.“ Ingibjörg segir að á síðasta ári hafi 4 þúsund milljónir verið af- gangs þegar búið var að taka það sem þurfti í reksturinn. „Á sama tíma höfum við farið í endurbætur og viðbyggingar á öllum skólum borgarinnar nema þremur og byggt nýja skóla. Alls hefur verið fjárfest fyrir sjö milljarða í skól- um.“ Hvað varðar skuldsetningu fyr- irtækja borgarinnar segir Ingi- björg að miklar fjárfestingar hafi verið gerðar, t.d. Nesjavallavirkj- un, og sú fjárfesting hafi skilað 700 milljónum króna í tekjur á þessu ári og árstekjur af virkjuninni muni ná 1700 milljónum króna þeg- ar fram líða stundir. Skuldir borgar- innar hafa minnkað Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.