Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 55
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 55 FRESTUR til að skila athugasemdum til Skipulagsstofnunar við skýrslu um mat á um- hverfisáhrifum Kára- hnjúkavirkjunar renn- ur út 15. júní nk. Verður að hvetja sem flesta til að senda inn athugasemdir því málið varðar svo sannarlega framtíð lands og þjóð- ar. Feiknarleg óaft- urkræf áhrif Skýrslan og fylgi- gögn hennar leiða skýrt í ljós gríðarlegt umfang fyrirhugaðra framkvæmda og þau feiknarlegu, óafturkræfu áhrif sem þær hefðu á náttúru og umhverfi. Um yrði að ræða meiri umhverfis- spjöll, meiri vatnaflutninga, meira jarðrask og meiri breytingar á lands- lagi og náttúrufari en áður hefur ver- ið efnt til. Engu að síður kemst Landsvirkjun að þeirri niðurstöðu „...að umhverfisáhrif virkjunarinnar séu innan viðunandi marka í ljósi þess efnahagslega ávinnings sem væntanleg virkjun mun skila þjóðinni og þeirrar atvinnuþróunar sem sölu orkunnar fylgir.“ Engin haldbær rök eru færð fyrir þeirri niðurstöðu Landsvirkjunar, aðeins fullyrðingar. Í samantekt um áhrif virkjunar- innar eru taldir upp þeir fjölmörgu þættir í náttúrunni sem breytast mundu eða glatast með tilkomu hennar og er það hrollvekjandi lest- ur. Sem dæmi má nefna skerðingu ósnortinna víðerna, breytingar á landslagi vegna Hálslóns, sem mun kaffæra um 32 ferkílómetra af grónu landi, stórmerkar jarðfræðiminjar, verðmætar vistgerðir og búsvæði plantna og dýra, umtalsverðar breyt- ingar á rennsli Jökulsár í Dal og Jök- ulsár í Fljótsdal og á ásýnd Hafra- hvammagljúfra, röskun á beitar- og burðarsvæðum hreindýra, aukið sandfok inn á Vesturöræfi, fjórðungs skerðingu friðlandsins í Kringilsár- rana og breytingar á fjölda fossa sem sumir munu hverfa alveg. Skýrslan er einn samfelldur áfell- isdómur um þessi áform og undirrit- uð er gjörsamlega ósammála þeirri niðurstöðu Landsvirkjunar að þessi hrikalega eyðilegging og spjöll í nátt- úru landsins séu „innan viðunandi marka“. Mögnuðustu gljúfrum spillt Ætlun Landsvirkjunar er að byggja 190 metra háa stíflu við Fremri-Kárahnjúk, sem yrði ein stærsta stífla í Evrópu, og auk þess hliðarstíflur beggja vegna, þ.e Desj- arárstíflu, sem yrði um 60 metra há, og Sauðárdalsstíflu, sem yrði um 25 metra há. Þannig yrði til hið svo- nefnda Hálslón sem yrði allt að 57 ferkílómetrar að flatarmáli. Þessar framkvæmdir hefðu gríðarleg áhrif á náttúru og umhverfi. Þær mundu skerða ósnortin víðerni og rýra verndargildi þeirra og þær mundu spilla notagildi svæðisins með tilliti til gróðurfars og dýralífs. Undir vatn færi landsvæði sem hefur mikið vís- indalegt gildi og er gróðurfarslega og ekki síður jarðfræðilega mikilvægt. Þessar aðgerðir mundu tæma Hafrahvammagljúfrin að mestu af vatni neðan lónsins og spilla varan- lega mögnuðustu gljúfrum landsins. Þetta yrði algjörlega dæmalaus framkvæmd sem vafasamt er að yrði liðin nokkurs staðar meðal vest- rænna þjóða. Sérstaða Íslands á heimsvísu felst í náttúru landsins og ekki síst í ósnortnum víðernum þess, þeim stærstu í Vestur-Evrópu. Þar er fólg- inn sá fjársjóður sem varðveita ber og nýta til rannsókna og fræðslu, til ferðamennsku á forsendum sjálf- bærrar þróunar og sem mikilvægan þátt í ímynd lands og þjóðar. Höf- undar skýrslunnar telja að mann- virki Kárahnjúkavirkjunar mundu þrengja svo að ósnortn- um víðernum að þau skerðist um 925 ferkíló- metra. Sú staðreynd ein og sér er nægileg röksemd fyrir því að hafna þessum áform- um. 75 metra vatns- borðssveifla Vatnsborð lónsins kæmi til með að sveifl- ast meira en þekkist í öðrum miðlunarlónum hér á landi eða „...um allt að 75 metra miðað við ýtrustu miðlunar- þörf“. Af þessu leiðir að stór hluti af flatarmáli lónsins yrði á þurru fram eftir sumri. Þetta er skelfileg tilhugsun og gagnrýni vert hvernig reynt er að gera lítið úr áhrifum þessa, sem mundi rjúfa og skemma gróðurþekjuna umhverfis lónið og hafa víðtæk áhrif á allt um- hverfið. Þá er í skýrslunni farið lauslega yf- ir sambúð Hálslóns og Brúarjökuls, en af sérfræðiskýrslu um það efni er ljóst að stórfengleg jakahlaup gætu valdið miklum usla. Þar eru færðar líkur fyrir því að 10-20 metra breiðir ísjakar og allt að 1000 rúmmetrar að stærð muni brotna úr jöklinum og mynda flóðbylgjur þegar þeir hrynja í lónið. Slíkar hamfarir auka enn á eyðileggingu lands umhverfis lónið. Að öllu samanlögðu verður aug- ljóslega um gríðarlega landeyðingu að ræða sem býður heim hættu á stórauknu sand- og moldroki og sí- fellt meiri jarðvegseyðingu, eins og t.d. má lesa um í sérfræðiskýrslu RALA um jarðveg og jarðvegsrof. Boðaðar mótvægisaðgerðir minna helst á sóskinsburð Bakkabræðra. Þöggun fjölda fossa „Því er nú mjög á lofti haldið, og vissulega með veigamiklum rökum, að í fossum landsins búi nokkuð af framtíð okkar þjóðar, er byggist á þeim verðmætum, sem mæld eru í kílówattstundum. En þar við liggur einnig brot af framtíðarhamingju þjóðarinnar, að hún gleymi því ekki, að í fossum landsins búa einnig verð- mæti, sem ekki verða metin til fjár, en mælast í unaðsstundum.“ (Sigurð- ur Þórarinsson, Fossar á Íslandi, Fjölrit Náttúruverndarráðs, 1978.) Aðeins þaulkunnugir geta með vissu sagt fyrir um áhrif fyrirhugaðr- ar Kárahnjúkavirkjunar á fossa á áhrifasvæði hennar, en víst er að þeir skipta a.m.k. tugum. Nokkrir fossar mundu hverfa, þar á meðal háir og sérlega glæsilegir fossar eins og Kringilsárfoss, stundum nefndur Töfrafoss, sem hyrfi í Hálslón ef það yrði myndað. Sama er að segja um Eyjabakkafoss, sem hyrfi að mestu við myndun Ufsarlóns. Fjölmargir aðrir fossar yrðu vart svipur hjá sjón þegar verulega hefur verið dregið úr rennsli þeirra. Nokkrir þeirra eru nefndir í mats- skýrslunni og m.a. bent á „...að á um 20 km kafla frá Eyjabökkum niður að Kleif í Fljótsdal eru um 15 fossar allt að 30 metra háir og bera einungis fáir þessara fossa nafn.“ Sérstaklega er bent á að þessir fossar séu lítt þekkt- ir og læðist að manni sá grunur að skýrsluhöfundum þyki það til marks um lágt verndargildi, sem er auðvit- að algjörlega fráleitt. Aldrei fyrr hafa verið uppi önnur eins áform um eyðileggingu fossa á Íslandi og yrði það ekki til vegsauka íslenskri þjóð ef þau yrðu að veru- leika. Óafturkræf inngrip Áhrifasvæði virkjunarfram- kvæmdanna er geysilega víðfemt. Það nær frá Brúarjökli allt til sjávar við Héraðsflóa og tekur til a.m.k. 16 vatnsfalla auk minni árspræna og vatna. Aldrei fyrr hafa komist svo langt hugmyndir um svo umfangs- mikla vatnaflutninga né svo mikil heildarinngrip í þróun náttúrufars á svo stóru svæði. Margt fleira en hér hefur verið tí- undað verðskuldar sérstaka umfjöll- un. Má þar sérstaklega nefna áhrif á ferðaþjónustu og útivist, áhrif á jarðfræðiminjar, á búsvæði jurta og dýra og tengsl við alþjóðasamninga um náttúruvernd. Það er svo enn einn þáttur þessa máls að raforkan sem þessari risa- framkvæmd er ætlað að skila dygði ekki til að knýja fyrirhugað álver á Reyðarfirði með allt að 420 þús. tn. afkastagetu á ári. Þar yrðu að koma til fleiri virkjanir, og er horft til bæði Kröflu og Bjarnarflags í því skyni með tilheyrandi möstrum og línum og enn frekari umhverfisspjöllum. Allt er þetta af slíkri stærðargráðu að mörgum reynist erfitt að átta sig á umfanginu. Niðurstaðan hlýtur þó að vera sú að slík stórfelld óafturkræf inngrip í þróun náttúrufars sam- kvæmt eigin lögmálum eru óviðun- andi með öllu. Það yrði náttúru landsins til óbæt- anlegs skaða og þjóðinni til ævarandi vansæmdar ef af þeim yrði. Skýrslan er áfellisdómur Kristín Halldórsdóttir Kárahnjúkar Áhrifasvæði virkjunarframkvæmd- anna, segir Kristín Hall- dórsdóttir, er geysilega víðfeðmt. Höfundur er fv. alþingiskona. Þú kaupir MAM barnavörur og sendir strikamerki til Halldórs Jónssonar ehf. Skútuvogi 11, 104 Reykjavík merkt MAM sumarleikur Glæsilegur vinningur fyrir heppinn þátttakanda Colorado 8 manna fjölskyldutjald frá Seglagerðinni Ægi að verðmæti 60.000 kr. Dregið verður í leiknum föstudaginn 29. júní næstkomandi. SUMARLEIKURINN MAM vörurnar fást í: Lyfju, Lyf og heilsu, Hagkaup, Nýkaup, barnavöruverslunum og apótekum. - trygging fyrir l águ ver›i!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.