Morgunblaðið - 08.06.2001, Síða 55
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 55
FRESTUR til að
skila athugasemdum til
Skipulagsstofnunar við
skýrslu um mat á um-
hverfisáhrifum Kára-
hnjúkavirkjunar renn-
ur út 15. júní nk.
Verður að hvetja sem
flesta til að senda inn
athugasemdir því málið
varðar svo sannarlega
framtíð lands og þjóð-
ar.
Feiknarleg óaft-
urkræf áhrif
Skýrslan og fylgi-
gögn hennar leiða skýrt
í ljós gríðarlegt umfang
fyrirhugaðra framkvæmda og þau
feiknarlegu, óafturkræfu áhrif sem
þær hefðu á náttúru og umhverfi.
Um yrði að ræða meiri umhverfis-
spjöll, meiri vatnaflutninga, meira
jarðrask og meiri breytingar á lands-
lagi og náttúrufari en áður hefur ver-
ið efnt til. Engu að síður kemst
Landsvirkjun að þeirri niðurstöðu
„...að umhverfisáhrif virkjunarinnar
séu innan viðunandi marka í ljósi
þess efnahagslega ávinnings sem
væntanleg virkjun mun skila þjóðinni
og þeirrar atvinnuþróunar sem sölu
orkunnar fylgir.“ Engin haldbær rök
eru færð fyrir þeirri niðurstöðu
Landsvirkjunar, aðeins fullyrðingar.
Í samantekt um áhrif virkjunar-
innar eru taldir upp þeir fjölmörgu
þættir í náttúrunni sem breytast
mundu eða glatast með tilkomu
hennar og er það hrollvekjandi lest-
ur. Sem dæmi má nefna skerðingu
ósnortinna víðerna, breytingar á
landslagi vegna Hálslóns, sem mun
kaffæra um 32 ferkílómetra af grónu
landi, stórmerkar jarðfræðiminjar,
verðmætar vistgerðir og búsvæði
plantna og dýra, umtalsverðar breyt-
ingar á rennsli Jökulsár í Dal og Jök-
ulsár í Fljótsdal og á ásýnd Hafra-
hvammagljúfra, röskun á beitar- og
burðarsvæðum hreindýra, aukið
sandfok inn á Vesturöræfi, fjórðungs
skerðingu friðlandsins í Kringilsár-
rana og breytingar á fjölda fossa sem
sumir munu hverfa alveg.
Skýrslan er einn samfelldur áfell-
isdómur um þessi áform og undirrit-
uð er gjörsamlega ósammála þeirri
niðurstöðu Landsvirkjunar að þessi
hrikalega eyðilegging og spjöll í nátt-
úru landsins séu „innan viðunandi
marka“.
Mögnuðustu gljúfrum spillt
Ætlun Landsvirkjunar er að
byggja 190 metra háa stíflu við
Fremri-Kárahnjúk, sem yrði ein
stærsta stífla í Evrópu, og auk þess
hliðarstíflur beggja vegna, þ.e Desj-
arárstíflu, sem yrði um 60 metra há,
og Sauðárdalsstíflu, sem yrði um 25
metra há. Þannig yrði til hið svo-
nefnda Hálslón sem yrði allt að 57
ferkílómetrar að flatarmáli. Þessar
framkvæmdir hefðu gríðarleg áhrif á
náttúru og umhverfi. Þær mundu
skerða ósnortin víðerni og rýra
verndargildi þeirra og þær mundu
spilla notagildi svæðisins með tilliti
til gróðurfars og dýralífs. Undir vatn
færi landsvæði sem hefur mikið vís-
indalegt gildi og er gróðurfarslega og
ekki síður jarðfræðilega mikilvægt.
Þessar aðgerðir mundu tæma
Hafrahvammagljúfrin að mestu af
vatni neðan lónsins og spilla varan-
lega mögnuðustu gljúfrum landsins.
Þetta yrði algjörlega dæmalaus
framkvæmd sem vafasamt er að yrði
liðin nokkurs staðar meðal vest-
rænna þjóða.
Sérstaða Íslands á heimsvísu felst
í náttúru landsins og ekki síst í
ósnortnum víðernum þess, þeim
stærstu í Vestur-Evrópu. Þar er fólg-
inn sá fjársjóður sem varðveita ber
og nýta til rannsókna og fræðslu, til
ferðamennsku á forsendum sjálf-
bærrar þróunar og sem mikilvægan
þátt í ímynd lands og þjóðar. Höf-
undar skýrslunnar telja að mann-
virki Kárahnjúkavirkjunar mundu
þrengja svo að ósnortn-
um víðernum að þau
skerðist um 925 ferkíló-
metra. Sú staðreynd
ein og sér er nægileg
röksemd fyrir því að
hafna þessum áform-
um.
75 metra vatns-
borðssveifla
Vatnsborð lónsins
kæmi til með að sveifl-
ast meira en þekkist í
öðrum miðlunarlónum
hér á landi eða „...um
allt að 75 metra miðað
við ýtrustu miðlunar-
þörf“. Af þessu leiðir að
stór hluti af flatarmáli lónsins yrði á
þurru fram eftir sumri. Þetta er
skelfileg tilhugsun og gagnrýni vert
hvernig reynt er að gera lítið úr
áhrifum þessa, sem mundi rjúfa og
skemma gróðurþekjuna umhverfis
lónið og hafa víðtæk áhrif á allt um-
hverfið.
Þá er í skýrslunni farið lauslega yf-
ir sambúð Hálslóns og Brúarjökuls,
en af sérfræðiskýrslu um það efni er
ljóst að stórfengleg jakahlaup gætu
valdið miklum usla. Þar eru færðar
líkur fyrir því að 10-20 metra breiðir
ísjakar og allt að 1000 rúmmetrar að
stærð muni brotna úr jöklinum og
mynda flóðbylgjur þegar þeir hrynja
í lónið. Slíkar hamfarir auka enn á
eyðileggingu lands umhverfis lónið.
Að öllu samanlögðu verður aug-
ljóslega um gríðarlega landeyðingu
að ræða sem býður heim hættu á
stórauknu sand- og moldroki og sí-
fellt meiri jarðvegseyðingu, eins og
t.d. má lesa um í sérfræðiskýrslu
RALA um jarðveg og jarðvegsrof.
Boðaðar mótvægisaðgerðir minna
helst á sóskinsburð Bakkabræðra.
Þöggun fjölda fossa
„Því er nú mjög á lofti haldið, og
vissulega með veigamiklum rökum,
að í fossum landsins búi nokkuð af
framtíð okkar þjóðar, er byggist á
þeim verðmætum, sem mæld eru í
kílówattstundum. En þar við liggur
einnig brot af framtíðarhamingju
þjóðarinnar, að hún gleymi því ekki,
að í fossum landsins búa einnig verð-
mæti, sem ekki verða metin til fjár,
en mælast í unaðsstundum.“ (Sigurð-
ur Þórarinsson, Fossar á Íslandi,
Fjölrit Náttúruverndarráðs, 1978.)
Aðeins þaulkunnugir geta með
vissu sagt fyrir um áhrif fyrirhugaðr-
ar Kárahnjúkavirkjunar á fossa á
áhrifasvæði hennar, en víst er að þeir
skipta a.m.k. tugum. Nokkrir fossar
mundu hverfa, þar á meðal háir og
sérlega glæsilegir fossar eins og
Kringilsárfoss, stundum nefndur
Töfrafoss, sem hyrfi í Hálslón ef það
yrði myndað. Sama er að segja um
Eyjabakkafoss, sem hyrfi að mestu
við myndun Ufsarlóns.
Fjölmargir aðrir fossar yrðu vart
svipur hjá sjón þegar verulega hefur
verið dregið úr rennsli þeirra.
Nokkrir þeirra eru nefndir í mats-
skýrslunni og m.a. bent á „...að á um
20 km kafla frá Eyjabökkum niður að
Kleif í Fljótsdal eru um 15 fossar allt
að 30 metra háir og bera einungis fáir
þessara fossa nafn.“ Sérstaklega er
bent á að þessir fossar séu lítt þekkt-
ir og læðist að manni sá grunur að
skýrsluhöfundum þyki það til marks
um lágt verndargildi, sem er auðvit-
að algjörlega fráleitt.
Aldrei fyrr hafa verið uppi önnur
eins áform um eyðileggingu fossa á
Íslandi og yrði það ekki til vegsauka
íslenskri þjóð ef þau yrðu að veru-
leika.
Óafturkræf inngrip
Áhrifasvæði virkjunarfram-
kvæmdanna er geysilega víðfemt.
Það nær frá Brúarjökli allt til sjávar
við Héraðsflóa og tekur til a.m.k. 16
vatnsfalla auk minni árspræna og
vatna. Aldrei fyrr hafa komist svo
langt hugmyndir um svo umfangs-
mikla vatnaflutninga né svo mikil
heildarinngrip í þróun náttúrufars á
svo stóru svæði.
Margt fleira en hér hefur verið tí-
undað verðskuldar sérstaka umfjöll-
un. Má þar sérstaklega nefna áhrif á
ferðaþjónustu og útivist, áhrif á
jarðfræðiminjar, á búsvæði jurta og
dýra og tengsl við alþjóðasamninga
um náttúruvernd.
Það er svo enn einn þáttur þessa
máls að raforkan sem þessari risa-
framkvæmd er ætlað að skila dygði
ekki til að knýja fyrirhugað álver á
Reyðarfirði með allt að 420 þús. tn.
afkastagetu á ári. Þar yrðu að koma
til fleiri virkjanir, og er horft til bæði
Kröflu og Bjarnarflags í því skyni
með tilheyrandi möstrum og línum
og enn frekari umhverfisspjöllum.
Allt er þetta af slíkri stærðargráðu
að mörgum reynist erfitt að átta sig á
umfanginu. Niðurstaðan hlýtur þó að
vera sú að slík stórfelld óafturkræf
inngrip í þróun náttúrufars sam-
kvæmt eigin lögmálum eru óviðun-
andi með öllu.
Það yrði náttúru landsins til óbæt-
anlegs skaða og þjóðinni til ævarandi
vansæmdar ef af þeim yrði.
Skýrslan er
áfellisdómur
Kristín
Halldórsdóttir
Kárahnjúkar
Áhrifasvæði
virkjunarframkvæmd-
anna, segir Kristín Hall-
dórsdóttir, er geysilega
víðfeðmt.
Höfundur er fv. alþingiskona.
Þú kaupir MAM barnavörur og
sendir strikamerki til
Halldórs Jónssonar ehf.
Skútuvogi 11, 104 Reykjavík
merkt MAM sumarleikur
Glæsilegur vinningur fyrir heppinn þátttakanda
Colorado 8 manna fjölskyldutjald
frá Seglagerðinni Ægi
að verðmæti 60.000 kr.
Dregið verður í leiknum
föstudaginn 29. júní
næstkomandi.
SUMARLEIKURINN
MAM vörurnar fást í:
Lyfju, Lyf og heilsu, Hagkaup, Nýkaup,
barnavöruverslunum og apótekum.
- trygging fyrir l
águ ver›i!