Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 21
HRAÐFRYSTIHÚS Eskifjarðar hf.,
tók upp á því nýmæli að bjóða 1. og
2. bekk Grunnskóla Eskifjarðar í
heimsókn og skoðunarferð um fyr-
irtækið síðastliðinn þriðjudag.
Fylgdu starfsmenn börnunum í
gegnum mjöl- og lýsisvinnsluna,
rækjuverksmiðjuna, frystihúsið og
vélarrúmið í Jóni Kjartanssyni SU
111.
Endaði ferðin á skrifstofu fyr-
irtækisins þar sem börnin gæddu
sér á flatbökum og gosi. Leikarar
úr Skilaboðaskjóðunni brugðu á
leik og skemmtu starfsmenn og
gestir sér konunglega þennan
morgun, enda margt spennandi að
sjá og gera.
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
Krakkarnir úr 1. og 2. bekk Grunnskóla Eskifjarðar ásamt starfsfólki
Hraðfrystihúss Eskifjarðar.
Heimsóttu
hraðfrystihúsið
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
Krakkarnir í skoðunarferð um Hraðfrystihús Eskifjarðar.
Eskifjörður
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 21
LOKIÐ er byggingu laxastiga í
Straumfjarðará á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi. Straumfjarðará er ein af
náttúruperlunum þar sem veiðimenn
sækjast eftir óspilltri náttúru. Sömu
menn koma ár eftir ár og njóta nátt-
úrunnar auk þess að veiða í
skemmtilegri laxveiðiá. Umgengni
veiðimanna við ána ber þess merki
að þeir ætla sér að koma aftur. Veitt
hefur verið á þrjár stengur í einu og í
fimm ár hefur einungis verið veitt á
flugu.
Fiskurinn hefur átt í erfiðleikum
með að komast upp fyrir svokallaðan
Dalfoss í landi Dals. Sum árin hefur
ekkert gengið ofar og önnur dálítið,
hefur það alveg farið eftir vatns-
magni árinnar. Því var ákveðið að
byggja laxastiga til að opna efri hluta
árinnar fyrir fiski. Einnig kom þar til
að nýbyggður Vatnaheiðarvegur
auðveldar aðkomu að ánni fyrir ofan
Dalfoss. Hægt er því að bæta við
fjórðu stönginni auk þess sem mikið
ókannað útivistarsvæði opnast.
Helstu hrygningarsvæði árinnar
eru ofan við Dalfoss svo stiginn auð-
veldar laxinum að komast þangað
auk þess sem mjög góð búsetuskil-
yrði eru í efri hluta árinnar. Nýja
svæðið sem opnast bæði fyrir laxinn
og veiðimenn er á þriðja kílómetra.
Að sögn Ástþórs Jóhannssonar í
Dal var veiði í Straumfjarðará held-
ur með minna móti á síðastliðnu
sumri eins og annars staðar. Annars
hefur áin verið jöfn, veitt á þrjár
stengur og meðalveiði hefur verið
um 300 laxar. Ævinlega er bókað
langt fram í tímann. Við byggingu
laxastigans opnast möguleiki fyrir
einn veiðimann í viðbót auk fjölda
nýrra veiðistaða.
Laxastigi í
Straumfjarðará
Morgunblaðið/Daniel Hansen
Ástþór Jóhannsson við laxastigann í Straumfjarðará.
Snæfellsnes