Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 22
Gunnar Ásberg Helgason í Lambhaga og fjölskylda hans hélt glæsilega stúdentsveislu eftir útskriftina, en svo skemmtilega vildi til að Björgvin bróðir hans lauk námi úr grunndeild málmiðna sama dag. Móðir þeirra, Sjöfn Guðmundsdóttir, er stolt af sonum sínum. ÞAÐ var stór stund í lífi Gunnars Ásbergs Helgasonar sem búsettur er í Lambhaga á Rangárvöllum um sl. helgi er hann útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskóla Suður- lands á Selfossi. Eins og hjá sam- stúdentum hans var nú komið að því að uppskera laun áralangrar vinnu að settu marki. En leiðin var torsóttari en fyrir flesta hjá Ás- berg, eins og hann er gjarnan kall- aður, þar sem hann er blindur, hreyfihamlaður og með skerta heyrn. Veikindi Ásbergs hófust vet- urinn 1989–90, þegar hann var 14 ára gamall, en þau hófust þannig að hann fór að finna fyrir höf- uðverk, augntruflunum og jafn- vægisleysi. „Ég lenti í því að detta niður þar sem ég stóð eða ganga á hluti og ég stóð mig illa á skyndi- prófum í fögum sem ég hafði alltaf staðið mig vel í. Síðan veiktist ég mjög skyndilega 6. mars 1990 er ég missti sjónina á hægra auga og var sendur í rannsókn daginn eftir, en þá var ég farinn að missa sjónina á hinu auganu. Daginn eftir, 8. mars, var ég síð- an skorinn upp á höfði þar sem fannst mjög illkynjað stórt krabba- meinsæxli á heilastofninum við litla heila. Læknarnir náðu 99,9% af æxlinu, sem auk þess að vera hættulegt öndunarstöðvum heil- ans, þrýsti óþyrmilega á sjóntaug- arnar og þess vegna missti ég sjón- ina.“ Lamaður, blindur og mállaus eftir aðgerðina Næstu dagar og vikur reyndust Ásberg og fjölskyldu hans mjög erfiðir tímar, en tveimur dögum eftir aðgerðina missti hann allan mátt og talgetu auk þess sem hann hafði þegar misst sjónina. Ásberg lá á gjörgæslu í þrjár vikur og aðr- ar þrjár liðu áður en hann fór aftur að geta tjáð sig, en á þeim tíma var ekki vitað hvort hann myndi öðlast máttinn, málið eða sjónina aftur auk þess sem óttast var um andlega heilsu hans. Við tók lega á Landakoti fram á sumar en þá hafði hann aftur öðl- ast einhverja hreyfigetu, reyndar mjög skerta þar sem jafnvægisleysi einkennir allar hreyfingar, málið var bjagað en sjóninni varð ekki bjargað. Nú tók við tími geisla- meðferðar og lyfjagjafar en vegna hennar skertist heyrn Ásbergs að einhverju leyti. Allan næsta vetur var fjöl- skyldan í stöðugum ferðum með drenginn til Reykjavíkur þar sem skiptist á innlögn til að fá inn- rennslislyf, sprautumeðferð og töflugjöf. Auk þess var ekið með hann á Selfoss þrisvar í viku til sjúkraþjálfara, þannig að það urðu óteljandi ferðirnar milli Lamb- haga, Selfoss og Reykjavíkur þenn- an veturinn, en þess má geta að um 100 kílómetrar eru frá Lambhaga til höfuðborgarinnar. Uppbygging hefst Um vorið 1991 var eiginlegri krabbameinsmeðferð lokið og lík- amleg og andleg uppbygging næsta stórverkefni. Ásberg fermd- ist um haustið en hann missti af fermingunni sinni árið áður auk þess sem hann datt alveg út úr grunnskólanum sökum veikinda sinna, en hann hafði sótt skóla á Hellu. Þá tók við dvöl á Reykja- lundi og áframhaldandi sjúkra- þjálfun að því loknu hjá Gunnari Leifssyni sjúkraþjálfara á Selfossi, sem reyndar þjálfar hann enn í dag. Á næstu misserum vaknaði hjá Ásberg löngun til að ljúka grunn- skólanáminu auk þess sem hann hafði áhuga á frekara námi eins og jafnaldrar hans. Haustið 1993 sett- ist hann á skólabekk í Fjölbrauta- skóla Suðurlands á Selfossi, þar sem ráðstafanir höfðu verið gerðar af skólayfirvöldum og mennta- málaráðuneyti til þess að taka við honum, en ljóst var að hann þyrfti á sérstökum úrræðum að halda til að gera honum kleift að stunda námið. Í byrjun fékk hann sérkennslu til að ljúka sínum grunnskólagreinum auk þess sem hann samhliða því hóf fljótlega nám í greinum sinnar brautar, félagsfræði- og sál- fræðibraut. Á átta árum hefur hann þannig lokið við 2–3 ára grunnskólanám auk hinna hefð- bundnu fjögurra ára sem stúdents- prófið venjulega tekur, en það verður að teljast einstaklega vel að verki staðið í hans stöðu. Ásberg leynir ekki ánægju sinni með fjölbrautaskólann, en allir sem komið hafa að hans námi hafa reynst honum einstaklega vel og telur hann sig hafa verið sérlega heppinn með kennara. „Ég hafði frábæran umsjón- arkennara, Hörð Ásgeirsson, sem kenndi mér dönsku, stærðfræði og sérkennslu í í ýmsum greinum. Námið fór þannig fram að ég mætti í tíma, hlustaði og tók þátt í nám- inu eins og aðrir nemendur. Hörð- ur útbjó efni fyrir mig á snældum, sem ég hlustaði á heima og gerði verkefni uppúr með aðstoð Hafdís- ar systur minnar, en hún var mér ómetanleg stoð og stytta við heima- námið. Ég passaði vel uppá að læra alltaf heima og tók þetta eins og aðrir, bara skref fyrir skref.“ Aðspurður kveðst Ásberg ekki stefna á frekara nám í bráð, en „kannski kemur upp sú staða að ég get farið í háskóla en ég hef ekki gert upp við mig hvað myndi henta mér að læra, e.t.v. stjórnmálafræði eða mannfræði, það verður bara að koma í ljós hvar ég enda“. Íþróttir og pólitík Ásberg hefur brennandi áhuga á íþróttum og þá sérstaklega fót- bolta. Hann „horfir“ á alla leiki í sjónvarpinu, en hans lið eru Liv- erpool og ÍBV. „Ég er búinn að halda með þess- um liðum síðan ég var lítill strákur og geri enn. Svo finnst mér gaman að fylgjast með formúlunni en minn maður er Häkkinen. Ég nýt þess að ferðast og hef farið nokkr- um sinnum til útlanda með Blindra- félaginu og ætla einmitt með þeim til Finnlands í sumar. Svo fylgist ég með umræðum á Alþingi í sjón- varpinu, hlusta á hljóðbækur og rökræði við vini mína um pólitík. Í átta ár hefur Jón Thorarensen skólabílstjóri á Hellu ekið mér í skólann á Selfossi og við erum bún- ir að kryfja þetta allt til mergjar, við rífumst mikið því hann er arg- asta íhald en ég á samleið með Framsókn. Það geta ekki allir allt- af verið sammála, en ég er búinn að reyna mitt til að snúa honum.“ Ásberg hefur svo sannarlega komist yfir margar hindranir með jákvæðu hugarfari sínu, segist vera alveg laus við bölsýni og þunglyndi en finnst slæmt að geta ekki unnið vegna fötlunar sinnar. Það er ekki hægt annað en að vera hugfanginn þegar slík hetja verður á vegi manns og margir alheil- brigðir mættu taka hans jákvæðu lífssýn sér til fyrirmyndar. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Nýstúdentinn með þeim þrem sem hafa fylgt honum gegnum súrt og sætt í námi og þjálfun, f.v. Jón Thor- arensen skólabílstjóri, Gunnar Leifsson sjúkraþjálfari og Hörður Ásgeirsson, sérkennari á Selfossi. Fékk viðurkenn- ingu fyrir dugnað og þrautseigju Lauk stúdentsprófi mikið fatlaður Hella SLÁTTUR hófst á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum á miðvikudaginn, eins og fram kom í blaðinu í gær, og var það 10 dögum fyrr en í fyrra. Að sögn Ólafs Eggertssonar bónda hafa tún hans sjaldan eða aldrei verið jafngóð og nú í byrjun sumars. Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson Sláttur hafinn Holt LANDIÐ 22 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ SJÓMANNADAGSBLAÐ Snæ- fellsbæjar 2001 kemur út á sjó- mannadaginn 10. júní nk. Þetta blað er hið sjötta í röðinni sem sjó- mannadagsráðin í Ólafsvík og á Hellissandi gefa út. Blaðið byrjar á hugvekju eftir sr. Lilju Kristínu Þorsteinsdóttur á Hellissandi. Þá er viðtal við Steinunni Þorsteinsdóttur, ekkju Hauks heitins Sigtryggssonar út- gerðarmanns í Ólafsvík og Matth- ías Pétursson fv. kaupfélagstjóra á Hellissandi á árunum milli 1950 og 1960 skrifar grein í blaðið. Viðtöl, sem tekin eru af Óskari H. Ósk- arssyni, eru við Torfa Sigurðsson trillukarl í Ólafsvík og Sigurð V. Sigurðsson skipstjóra á Magnúsi SH frá Rifi. Þá segir Stefán J. Sig- urðsson frá byggingu ,,Mafíunn- ar“ í Ólafsvík. Grein er um þann merkisfisk lúðuna eftir Gest Hólm Kristins- son trillukarl í Stykkishólmi og margar myndir eru úr Hólminum. Þá eru myndir og greinar frá Grundarfirði, ma. frá Runólfi Guð- mundssyni skipstjóra. Þá eru fjöl- margar greinar um menn og mál- efni og ennfremur prýða blaðið gamlar myndir. Blaðið er 76 síður að stærð og prentað og unnið í Steinprent ehf í Ólafsvík. Blaðið verður til sölu á Grandakaffi í Reykjavík og einnig verður það borið í hús á Snæfells- nesi fyrir sjómannadaginn. Rit- stjóri Sjómannadagsblaðs Snæ- fellsbæjar er Pétur S. Jóhannsson. Sjómannadags- blað Snæfellsbæj- ar 2001 komið út Snæfellsbær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.