Morgunblaðið - 08.06.2001, Side 21

Morgunblaðið - 08.06.2001, Side 21
HRAÐFRYSTIHÚS Eskifjarðar hf., tók upp á því nýmæli að bjóða 1. og 2. bekk Grunnskóla Eskifjarðar í heimsókn og skoðunarferð um fyr- irtækið síðastliðinn þriðjudag. Fylgdu starfsmenn börnunum í gegnum mjöl- og lýsisvinnsluna, rækjuverksmiðjuna, frystihúsið og vélarrúmið í Jóni Kjartanssyni SU 111. Endaði ferðin á skrifstofu fyr- irtækisins þar sem börnin gæddu sér á flatbökum og gosi. Leikarar úr Skilaboðaskjóðunni brugðu á leik og skemmtu starfsmenn og gestir sér konunglega þennan morgun, enda margt spennandi að sjá og gera. Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson Krakkarnir úr 1. og 2. bekk Grunnskóla Eskifjarðar ásamt starfsfólki Hraðfrystihúss Eskifjarðar. Heimsóttu hraðfrystihúsið Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson Krakkarnir í skoðunarferð um Hraðfrystihús Eskifjarðar. Eskifjörður LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 21 LOKIÐ er byggingu laxastiga í Straumfjarðará á sunnanverðu Snæ- fellsnesi. Straumfjarðará er ein af náttúruperlunum þar sem veiðimenn sækjast eftir óspilltri náttúru. Sömu menn koma ár eftir ár og njóta nátt- úrunnar auk þess að veiða í skemmtilegri laxveiðiá. Umgengni veiðimanna við ána ber þess merki að þeir ætla sér að koma aftur. Veitt hefur verið á þrjár stengur í einu og í fimm ár hefur einungis verið veitt á flugu. Fiskurinn hefur átt í erfiðleikum með að komast upp fyrir svokallaðan Dalfoss í landi Dals. Sum árin hefur ekkert gengið ofar og önnur dálítið, hefur það alveg farið eftir vatns- magni árinnar. Því var ákveðið að byggja laxastiga til að opna efri hluta árinnar fyrir fiski. Einnig kom þar til að nýbyggður Vatnaheiðarvegur auðveldar aðkomu að ánni fyrir ofan Dalfoss. Hægt er því að bæta við fjórðu stönginni auk þess sem mikið ókannað útivistarsvæði opnast. Helstu hrygningarsvæði árinnar eru ofan við Dalfoss svo stiginn auð- veldar laxinum að komast þangað auk þess sem mjög góð búsetuskil- yrði eru í efri hluta árinnar. Nýja svæðið sem opnast bæði fyrir laxinn og veiðimenn er á þriðja kílómetra. Að sögn Ástþórs Jóhannssonar í Dal var veiði í Straumfjarðará held- ur með minna móti á síðastliðnu sumri eins og annars staðar. Annars hefur áin verið jöfn, veitt á þrjár stengur og meðalveiði hefur verið um 300 laxar. Ævinlega er bókað langt fram í tímann. Við byggingu laxastigans opnast möguleiki fyrir einn veiðimann í viðbót auk fjölda nýrra veiðistaða. Laxastigi í Straumfjarðará Morgunblaðið/Daniel Hansen Ástþór Jóhannsson við laxastigann í Straumfjarðará. Snæfellsnes

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.