Morgunblaðið - 08.06.2001, Síða 11
augl‡sing
3. tbl. 1. árg. 2001 Austurland á nýrri öld
www.athygli.is
Óperustúdíó Austurlands frumsýnir
sunnudaginn 10. júní, Brúðkaup
Fígarós og markar það upphaf
þriðja starfsárs stúdíósins sem hefur
aðsetur á Eiðum. Áður hafa óper-
urnar Töfraflautan og Rakarinn frá
Sevilla verið settar upp þar. Í aðal-
hlutverkum verða þau Diddú, Ólaf-
ur Kjartan Sigurðarson og japanska
söngkonan Xu Wen auk ungra og
upprennandi söngvara frá Austur-
landi og Reykjavík. „Þetta er góð
blanda af reyndum söngvurum og
óreyndum og ómetanlegt tækifæri
fyrir hina yngri að taka þátt upp-
setningu af þessu tagi,“ segir Keith
Reed en hann er bæði leik- og
hljómsveitarstjóri og hvatamaður
að stofnun Óperustúdíós Austur-
lands.
„Undirbúningnum má líkja við
meðgöngu. Við komum fyrst saman
í haust til æfinga en það er fyrst nú,
viku fyrir frumsýningu, sem öll
hljómsveitin æfir með okkur. Þetta
er stór hópur og fólk kemur víðs
vegar að af landinu,“ segir Keith.
Um 90 manns taka þátt í uppsetn-
ingunni en um 60 manns koma
fram í sýningunni sjálfri að hljóð-
færaleikurum meðtöldum. Keith
segir Óperustúdíóið hafa fengið
góðar viðtökur og segir engan vafa á
að óperuunnendur líti á starfsemina
á Austurlandi sem kærkomna viðbót
við íslenskt menningarlíf. Sýningar
verða sem fyrr segir að Eiðum. Alls
verða þær 6 talsins, þann 10., 11.,
12., 14., 15. og 16. júní. Þá ber þess
að geta að sérstakir tónleikar verða
haldnir í Eskifjarðarkirkju, 13. júní,
þar sem ýmsir hljóðfæraleikarar
munu leika einleik auk þess sem
Diddú mun syngja einsöng.
Brúðkaup Fígarós á Eiðum Full-
komnustu
samfélög
veraldar!
Gunnar Vignisson, verkefnastjóri
hjá Þróunarstofu Austurlands
fullyrðir að litlu samfélögin á
Austurlandi séu fullkomnustu
smásamfélög í veröldinni. Þetta
eru býsna stór orð í hugum
þeirra sem ekki búa þar, en
Gunnar er ekki í nokkrum vand-
ræðum með að rökstyðja mál
sitt.
Hann segist hafa verið þessar-
ar skoðunar lengi, „enda vita þeir
sem hafa heimsótt samfélög af
svipaðri stærð erlendis að þjón-
ustustigið þar er mun lægra en
hér fyrir austan. Samfélögin hér
voru einangruð þegar þau voru
að byggjast upp. Fyrir vikið
þurfti alla helstu þjónustu á
hverjum stað. Því er allt innan
seilingar; heilsugæslan, leikskól-
inn, skólinn og elliheimilið svo
fátt eitt sé nefnt. Þessi góða
þjónusta er áfram fyrir hendi á
hverjum stað, þótt samgöngur
hafi batnað og svæðið sé að
verða að einni heild.“
Gunnar segir að þessir kostir
smásamfélaganna á Austurlandi
verði enn sýnilegri og eftirsókn-
arverðari í framtíðinni. „Skilin
milli höfuðborgarsvæðisins og
landsbyggðarinnar eru að verða
skýrari. Reykjavík er að breytast
úr lítilli notanlegri borg í stór-
borg með þeim göllum sem því
fylgir. Andstæðan, kyrrlát nú-
tímaleg smásamfélög verða því
eftirsóknarverur kostur fyrir þá
sem ekki vilja borgarlífið.“
Diddú og Ólafur Kjartan Sigurðarson eru í aðalhlutverkum í sýningum Óperstúdíós Austurlands.
Skýrsla um mat á umhverfisáhrif-
um vegna fyrirhugaðs álvers við
Reyðarfjörð er komin út og er meg-
inniðurstaða hennar að umhverfisá-
hrif álversins verði ekki þess eðlis
að þau mæli gegn fyrirhugaðri
framkvæmd.
Austfirðingar geta kynnt sér efni
og innihald skýrslunnar í Opnu húsi
í Félagslundi á Reyðarfirði í næstu
viku, nánar tiltekið miðvikudaginn
13. júní. Húsið opnar strax kl. 16:00
og þá geta menn kynnt sér vegg-
spjöld þar sem helstu niðurstöður
skýrslunnar eru kynntar en fyrir-
lestrar um einstaka þætti matsvinn-
unnar hefjast svo kl 17:15 og standa
í um þrjá stundarfjórðunga. Eftir
það hafa fundargestir klukkustund
til að kynna sér frekar efni vegg-
spjaldanna og krefja sérfræðinga
skýringa áður en fyrirlestrar verða
endurteknir kl. 19:00 fyrir þá sem
ekki eiga heimangengt fyrr. Þeim
gefst einnig kostur á að kynna sér
efni veggspjaldanna því ráðgert er
að Opna húsið í Félagslundi standi
til kl. 20:30 og eitthvað lengur ef
þurfa þykir. Skýrsla hafnarsjóðs
Fjarðarbyggðar um mat á umhverf-
isáhrifum hafnar við álverið verður
einnig til kynningar í Opnu húsi í
Félagslundi á miðvikudaginn kemur.
Mat á umhverfisáhrifum álvers-
ins miðast við að það rísi í tveimur
áföngum með allt að 280 þúsund
tonna framleiðslugetu á ári í 1.
áfanga og aukningu í allt að 420
þúsund tonna framleiðslugetu á ári
í 2. áfanga. Starfsemin mun byggj-
ast á hámarkssjálfvirkni og full-
komnasta tæknibúnaði sem völ er
á. Skýrslan er aðgengileg almenn-
ingi á heimasíðu Reyðaráls hf.,
www.reydaral.is. Þar er einnig að
finna viðaukaskýrslur um einstaka
þætti matsvinnunnar. Skýrslu um
mat á umhverfisáhrifum hafnarinn-
ar er að finna á heimasíðu Hönnun-
ar hf., www.honnun.is. Báðar
skýrslurnar verða til almennrar
kynningar til 6. júlí nk. og búast má
við úrskurði Skipulagsstofnunar í
ágústbyrjun.
Fullkomnasta álver í heimi:
Kynning á umhverfisáhrifum
Björn Ármann Ólafsson, hjá Skinn-
ey-Þinganesi hf. á Reyðarfirði segist
ekki geta fullyrt að fiskurinn frá
honum sé á borinn á borð fyrir El-
ísabetu Englandsdrottningu, Karl
son hennar og aðra fjölskyldumeð-
limi, en segist ábyrgjast að margt
hefðarfólk í ríki hennar borði reglu-
lega bæði ýsu og þorsk frá Reyðar-
firði.
Þótt Skinney-Þinganes sé ungt
fyrirtæki undir þessu nafni ná ræt-
urnar nokkuð langt aftur og þá var
fiskvinnslan rekin undir nafni
Kaupfélags Héraðsbúa, fyrir sam-
einingu við Skinney á Höfn. „Hér
höfum við pakkað fiski í neytenda-
umbúðir fyrir enskar verslunarkeðj-
ur frá árinu 1988 og vorum eitt af
fyrstu íslensku fyrirtækjunum sem
gerðu það,“ segir Björn Ármann.
„Um er að ræða bæði ýsu og þorsk
sem við pökkum fyrir Marks &
Spencer og Tesco. Báðar þessar
verslunarkeðjur eru mjög virtar,
Tesco er ein af stærstu matvæla-
keðjum Breta og viðskipta-
mannahópurinn er úr efri millistétt
og yfirstétt. Marks & Spencer hafa
ávallt verið þekktir fyrir
gæði, enda ábyrgist
keðjan vöruna. Sé
eitthvað að henni fær
viðskiptavinurinn
undantekningarlaust
nýja vöru eða endur-
greiðslu. Fyrir vikið
gera þeir afar miklar kröf-
ur til birgja sinna og heimsækja
okkur til að mynda tvisvar sinnum
á ári, til að skoða húsnæði, hreinlæti
og að sjálfsögðu gæðin.“
Björn Ármann segir Tesco gera
sömu gæðakröfur og komi eitthvað
upp á, þurfa viðskiptavinir keðj-
anna að gefa skýrslu sem við fáum
síðan senda. En sem betur fer hef
ég lítið sem ekkert þurft að lesa
þessum skýrslum því þær sjást varla
á borðum okkar.“ Og þar er vænt-
anlega komin ástæðan
fyrir áralöngum við-
skiptum við Marks &
Spencer, því Björn Ár-
mann og félagar hafa
pakkað fiski í neyt-
endaumbúðir fyrir
keðjuna í 13 ár, „sem
þykir mjög langur tími í
þessu umhverfi. Enda leggjum við
okkur fram og bjóðum einungis úr-
vals hráefni, það besta sem fæst
hverju sinni.“
En fer öll þeirra framleiðsla á
diska sælkera ytra? „Nei,“ segir
Björn Ármann. „Við höfum aðeins
verið að selja ýsubita í Fjarðarkaup-
um í Hafnarfirði. En það voru
kannski mistök hjá okkur, því eftir-
spurnin hefur verið þvílík að við
náum vart að anna henni!“
Á döfinni...
8. - 10. júní – Sjómannadagur
Skemmtiatriði, dansleikir og
fjör um allt Austurland.
10. - 16. júní – Eiðar
Brúðkaup Fígarós.
13. júní – Eskifjörður
Mozartveisla kl. 20.00.
15. júní –14. ágúst
Skriðuklaustur
Austfirsku meistararnir. Frá
Listasfni Íslands koma verk
eftir Austfirðingana Kjarval,
Ríkharð og Finn Jónssyni,
Tryggva Ólafsson o.fl.
16. júní – Seyðisfjörður
Skaftfell, menningarmiðstöð.
Opnun listahátíðar og sýning
listamannanna Pamelu Brandt,
Philip von Knorring og Paul
Osipow frá Finnlandi.
18. júlí – Seyðisfjörður
Bláa kirkjan kl. 20.30. Niels
Henrik Jessen, orgelleikari frá
Danmörku.
19. júní – Hornafjörður
Jöklasýning, fyrirlestur Bryn-
dísar Brandsdóttur frá H.Í.
Nánari upplýsingar:
Markaðsráð Suðausturlands
sími 478 1500 og Markaðsstofa
Austurlands sími 471 2320,
www.east.is.
Hefðarfólk borðar ýsu að austan
Eskifjörður, fullkomið samfélag!