Morgunblaðið - 08.06.2001, Page 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HÁSKÓLI Íslands og samtök
fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á
landsbyggðinni staðfestu í gær með
sér samkomulag um fjarkennslu frá
H.Í til þrjátíu og eins staðar á lands-
byggðinni. Er bæði um grunnnám
og viðbótar- og starfsréttindanám
að ræða og er búist við að um 200
nemendur eigi eftir að nýta sér
þennan möguleika á komandi skóla-
ári.
Páll Skúlason rektor H.Í. lýsti yf-
ir ánægju með samkomulag þetta,
enda væri mikilvægt að gera það
eftirsóknarvert að stunda háskóla-
nám úti á landi. Sagði hann reynslu
af fjarkennslu innan Háskólans hafa
verið góða og að eflaust yrði æ al-
gengara að fólk stundaði fjarnám,
enda væru möguleikar á fyrirkomu-
lagi þess stöðugt að aukast.
Bæði boðið upp á grunnnám og
viðbótar- og starfsréttindanám
Boðið er upp á grunnnám í þrem-
ur námsgreinum, ferðamálafræði,
íslensku og nútímafræði, sem er
þverfaglegt nám á sviði hugvísinda
og kennt í samstarfi við Háskólann á
Akureyri. Einnig er í boði viðbótar-
og starfsréttindanám í hjúkrunar-
fræði, ljósmóðurfræði, kennslufræði
til kennsluréttinda og námsráðgjöf,
ásamt því sem Endurmenntunar-
stofnun býður upp á námskeið í
rekstri og stjórnun í heilbrigðisþjón-
ustu sem kennt er til Akureyrar.
Fjarnám við Háskóla Íslands er í
örri þróun og bætist sífellt við náms-
framboðið innan þess. Með sam-
komulagi þessu er gert ráð fyrir að
fjarnám muni festast í sessi sem
námsfyrirkomulag sem sé fyllilega
sambærilegt við það hefðbundna.
Kennslumiðstöð H.Í. hefur um-
sjón með náminu, sem er skipulagt
af einstökum deildum og unnið í
samvinnu við níu fræðslumiðstöðvar
um land allt. Kennsla fer fram með
fjarfundabúnaði og kennsluhugbún-
aðinum WebCT sem er lokað vef-
kerfi á Netinu þar sem hægt er að
hýsa námsefni og aðrar upplýsingar
frá kennara, en einnig er þar sér-
stakt póstkerfi fyrir nemendur, ráð-
stefnukerfi og spjallrásir.
Fyrirlestrar kennara eru sendir
út með áðurnefndum fjarfundabún-
aði sem er gagnvirkur sjónvarps-
búnaður. Þá koma nemendur saman
í kennslumiðstöðvum sem eru búnar
móttökutækjum, hlýða saman á fyr-
irlestra kennara og hafa tækifæri til
að spyrja spurninga og gera athuga-
semdir líkt og í hefðbundinni
kennslustund. Auk þess eru nem-
endur „tengdir“ nemendum annars
staðar á landinu, það er að segja
þeir heyra spurningar og athuga-
semdir þeirra sem hlýða á fyrirlest-
urinn á sama tíma.
Samtök fræðslu- og símenntunn-
armiðstöðva á landsbyggðinni voru
stofnuð fyrir um ári síðan, en mark-
mið þeirra er að efla endurmenntun,
símenntun og háskólanám á lands-
byggðinni. Við staðfestingu sam-
komulagsins í gær sagðist Skúli
Thoroddsen, formaður samtakanna,
fagna þessu samstarfi enda væri
mikilvægt að færa háskólanám nær
því fólki sem það vildi stunda en ætti
ekki heimangengt. Hann sagði
kennslumiðstöðva-fyrirkomulagið,
sem notað væri við fjarnámið, hafa
reynst mjög vel, enda væri afar mik-
ilvægt fyrir þá sem stunda nám að
vera í tengslum við aðra nemendur.
Með kennslumiðstöðvunum hefðu
nemendur félagslegan stuðning
hver af öðrum auk þess sem þeim
gæfist tækifæri til að ræða um nám-
ið og vinna saman verkefni.
Háskóli Íslands og samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva
á landsbyggðinni gera samkomulag um fjarkennslu
Kennt til 31 staðar
á landsbyggðinni
Morgunblaðið/Golli
Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, Skúli Thoroddsen, formaður Samtaka fræðslu- og símenntunar á lands-
byggðinni, og Sigurður Kristinsson, umsjónarmaður kennslu í nútímafræðum.
Á þessum stöðum eru kennslumiðstöðvar þar sem notaður er gagn-
virkur sjónvarpsbúnaður til kennslu.
!
"
# "
$
#""
%
&
#
"
' (()'
*"
"
#
!
)'
DAGANA 10.–13. júní nk. verður for-
seti Evrópuráðsþingsins, Russell-
Johnston lávarður, í opinberri heim-
sókn á Íslandi í boði Halldórs Blöndal
forseta Alþingis. Með forseta Evr-
ópuráðsþingsins í för verða aðstoðar-
skrifstofustjóri einkaskrifstofu hans.
Mánudaginn 11. júní mun Russell-
Johnston ræða við forseta Alþingis og
þingmenn sem sæti eiga í Íslands-
deild Evrópuráðsþingsins. Hann mun
jafnframt hitta að máli forseta Ís-
lands og utanríkisráðherra auk þess
sem hann heimsækir Listasafn Ís-
lands.
Um kvöldið situr forseti Evrópu-
ráðsþingsins kvöldverðarboð forseta
Alþingis. Þriðjudaginn 12. júní munu
gestirnir fara í skoðunarferð um Suð-
urland og halda af landi brott mið-
vikudaginn 13. júní.
Forseti Evr-
ópuráðsþings-
ins í heimsókn
LANDSMENN virðast almennt
þeirrar skoðunar að verkföll séu
nauðsynlegt tæki í kjarabaráttu en
skoðanir eru þó skiptar eftir því um
hvaða starfsstéttir er að ræða. Þetta
kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi
Gallup.
Tæplega 59% landsmanna telja
verkföll áhrifaríka leið í kjarabaráttu
og hafa yngri þátttakendur meiri trú
á þessu en þeir sem eldri eru. Þá
eykst tiltrú á verkföll með hærra
menntunarstigi. Kjósendur stjórnar-
andstöðuflokkanna hafa jafnframt
meiri trú á verkfallsaðgerðum en þeir
sem styðja ríkisstjórnarflokkana.
Skiptar skoðanir eru hins vegar um
hvaða stéttir eigi að hafa verkfalls-
rétt. Í könnun Gallup var spurt um af-
stöðu til verkfallsréttar nokkurra
stétta. Meirihluti landsmanna er
hlynntur rétti kennara og sjómanna
til að grípa til verkfallsaðgerða, 75%
þátttakenda eru hlynntir verkfalls-
rétti kennara og 86% eru fylgjandi
verkfallsrétti sjómanna. Tæplega
67% finnst að verkfallsréttur eigi að
vera hluti af réttindum hjúkrunar-
fræðinga og tæp 59% eru sammála
því að lögreglumenn eigi að hafa
verkfallsrétt.
Gallup mælir
afstöðu landsmanna
til verkfalla
Talin nauð-
synleg tæki í
kjarabaráttu
Á FUNDI samninganefnda Félags
tónlistarskólakennara og Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna, sem hald-
inn var þriðjudaginn 5. júní 2001, var
ákveðið að vísa kjaradeilu þeirra við
samninganefnd launanefndar sveit-
arfélaga formlega til ríkissáttasemj-
ara. Þessi ákvörðun var tilkynnt í
bréfi til Þóris Einarssonar ríkis-
sáttasemjara í gær.
Tónlistarskólakennarar gerðu í
janúar skammtímasamning við við-
semjendur sína. Því var þá lýst yfir
að stefnt væri að því að hefja samn-
ingaviðræður á ný 15. apríl og ljúka
endanlegri gerð nýs kjarasamnings
fyrir 31. maí 2001.
Viðræður fóru seint í gang í vor og
hafa þær einkennst af nær algeru
áhugaleysi af hálfu samninganefnd-
ar launanefndar sveitarfélaga á því
að ná samkomulagi um nýjan kjara-
samning, segir í frétt frá tónlistar-
skólakennurum. Þeir krefjast þess
að launakjör þeirra verði færð til
samræmis við kjör annarra kennara
í landinu.
Deilu tónlistar-
skólakennara
vísað til sátta-
semjara
VEIÐI hófst á Brennunni í Borg-
arfirði á miðvikudaginn og veidd-
ust þá strax þrír laxar, þar af einn
sem var 16,5 pund og þar með sá
stærsti sem frést hefur af það sem
af er vertíðinni. Hinir voru 11 og 7
punda. Dagur Garðarsson, einn
leigutaka svæðisins, sem eru ár-
mót Þverár og Hvítár, sagði þetta
afar góða byrjun og lofa góðu fyrir
framhaldið. Þá var Kjarrá opnuð í
gærmorgun og að sögn Jóns Ólafs-
sonar, eins leigutaka árinnar, urðu
menn eitthvað varir, en erfitt var
að ná símsambandi.
Vorlaxinn smár
Athygli hefur vakið að vorlaxar í
Norðurá og Þverá eru ekki á
bilinu 10 til 14 pund eins og oft var
áður, heldur mest 8–9 punda.
Þetta eru feitir og fallegir laxar en
smáir miðað við aldur. Í opnun í
Norðurá voru örfáir stærri en 10
pund og í Þverá voru tveir 11
punda stærstir.
Feðgarnir Gunnar Helgason og
Hallgrímur Gunnarsson, sem hafa
opnað Þverá ásamt öðrum í mörg
ár, sögðu að þetta hefði verið áber-
andi þróun síðustu ár. Af og til
væri meðalstærðin á vorlaxinum
12–13 pund en seinni árin væri 8–
10 punda meðaltal aðgengast.
Hefðbundnar
sterkastar
Vorlaxinn hefur verið að taka
þessar venjulegu flugur, mest
tommulangar túpur af gerðunum
Frances og Snælda. Frances-túp-
urnar hafa bæði verið rauðar og
svartar, eða öllu heldur dökkbrún-
ar.
Fleiri flugur sem hafa gefið í vor
eru t.d. Colly Dog og heimasoðin
fluga að nafni 2001 eftir Árna Eyj-
ólfsson, stjórnarmann SVFR.
202 hálfir dagar lausir
Veiði hefur minnkað mjög í Ell-
iðaánum síðustu árin eins og kunn-
ugt er og svo virðist sem sókn
veiðimanna í veiðileyfi hafi það
einnig. Þegar ný veiðileyfasala
SVFR á Netinu var skoðuð í gær-
dag voru t.d. 202 hálfir dagar í
ánni óseldir, 83 stangardagar fyrir
hádegi og 119 eftir hádegi. Þó hef-
ur veiðitíminn verið styttur um 10
daga.
Það er af sem áður var þegar
raða þurfti félögum í SVFR í for-
gangshópa eftir félagsnúmerum og
mun færri fengu veiðileyfi en
vildu. Sjálfsagt breytist þetta aftur
í fyrra horf ef tekst að lífga árnar
aftur við.
16,5 punda hæng-
ur úr Brennunni
Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson
Feðgarnir Gunnar Helgason t.v. og
Hallgrímur Gunnarsson með þrjá 8–9
punda laxa úr Þverá á mánudaginn.
Þórdís Klara Bridde með 10
punda hrygnu af Eyrinni í
Norðurá á opnunardaginn.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦