Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 13
Hátíðarkvöldverður
til heiðurs Hjalta Gestssyni
í tilefni af 85 ára afmæli hans
þann 10. júní n.k. að Hótel Selfossi
Vinir og velunnarar Hjalta Gestssonar fyrrum fram-
kvæmdastjóra og búfjárræktarráðunautar Búnaðar-
sambands Suðurlands hafa ákveðið að halda honum
hóf á 85 ára afmælisdegi hans þann 10. júní að Hótel
Selfossi.
Samkoman hefst kl. 19.30 með fordrykk. Páll Lýðs-
son flytur erindi sem hann nefnir „Hjalti Gestsson og
sunnlenskir bændur“. Verð fyrir þriggja rétta hátíðar-
kvöldverð er kr. 2500.
Öllum þeim sem vilja heiðra Hjalta Gestsson er boðið að taka þátt
í þessari samkomu og láta skrá sig á skrifstofu Búnaðarsambands
Suðurlands í síma 482 1611 í síðasta lagi 8. júní.
Búnaðarsamband Suðurlands
Austurvegi 1, 800 Selfoss, sími 482 1611
ÖLVUNARAKSTUR ungs fólks er
algengari á sumrin en á öðrum árs-
tíma og þá eiga einnig flestar
nauðganir sér stað. Þetta kom
fram á fundi sem ýmsir aðilar er
koma að vímuefnavörnum stóðu að
í Grasagarðinum í Laugardal í
gær. Þar voru kynntar tölur frá
Umferðarráði og Neyðarmóttök-
unni sem sýna hve margir áttu um
sárt að binda eftir síðasta sumar
vegna tilfella sem hægt er að rekja
til áfengisneyslu.
„Sumarið býður upp á ýmis æv-
intýri sem við viljum öll að endi vel
og þar tel ég að stuðningur heima
fyrir skipti mestu,“ sagði Sigurður
Guðmundsson landlæknir í ávarpi
sínu á fundinum. „Það er áhyggju-
efni hve áfengis- og vímuefna-
neysla fer almennt vaxandi hér á
landi, jafnvel hefur verið talað um
faraldur í þessum efnum. Hafa ber
í huga þau vandamál sem tengjast
áfengis- og vímuefnaneyslu eins og
kynlífsreynslu ýmiss konar, slags-
mál, slys, rán og sjálfsvíg.“
Þolendur nauðgana áfeng-
isdauðir í 30% tilvika
Flestar nauðganir eiga sér stað í
ágúst og næstflestar í júlí að sögn
Katrínar Pálsdóttur hjúkrunar-
fræðings en hún kynnti tölur frá
Neyðarmóttöku vegna nauðgunar-
mála. „Í yfir 30% nauðgana er þol-
andi í áfengisdauða og í langflest-
um tilfellum verða nauðganir
heima hjá geranda eða þolanda og
yfirleitt þekkjast þeir. Við höfum
miklar áhyggjur af þeirri þróun að
talið sé eðlilegt og ekkert tiltöku-
mál að drekka svo mikið að mann-
eskjan deyi áfengisdauða eða fari í
óminnisástand. Við viljum eindreg-
ið koma þeim skilaboðum á fram-
færi að fólk gæti þess að drekka
sig ekki ofurölvi.“
Hún segir mjög algengt að
nauðganir eigi sér stað í partíum í
heimahúsum en næstalgengasti
staðurinn sé á víðavangi, oft í húsa-
sundum á bakvið skemmtistaði og
á útihátíðum. Langstærsti hópur-
inn sem leitar til Neyðarmóttök-
unnar er á aldrinum 15–25 ára en
annars er aldursdreifingin allt frá
12–78 ára. Í 80% tilfella eru þol-
endur nauðgana konur.
Hópnauðganir færst
mjög í vöxt
Síðustu ár hafa um 100 mál að
meðaltali komið til Neyðarmóttök-
unnar en það sem af er þessu ári
eru málin orðin 30. Katrín segir
hópnauðganir hafa færst mjög í
vöxt á síðastliðnum árum. „Af 97
málum sem komu til okkar árið
2000 voru fleiri en einn gerandi í 10
málum. Af þeim 30 málum sem
komið hafa til okkar á þessu ári er
um hópnauðganir að ræða í 8 til-
fellum. Þetta er mjög ískyggileg
þróun sem við teljum að megi rekja
til klámvæðingarinnar í þjóðfélag-
inu, nektardansstaða og vændis
sem þeim fylgir. Skilaboðin eru að
það sé ekkert athugavert við að
skilja að sál og líkama í kynlífi. Sá
hugsunarháttur virðist ýta undir
þá hugmynd að í lagi sé að nota
fórnarlambið á þennan hátt.“
Tvö banaslys tengd
ölvun ungs fólks
Síðasta sumar létust fimm ung-
menni í tveimur umferðarslysum
þar sem ölvun kom við sögu, að
sögn Óla H. Þórðarsonar, fram-
kvæmdastjóra Umferðarráðs, sem
kynnti tölur um umferðarslys
tengd ölvun ungs fólks frá sumrinu
2000. Þá urðu þrjú önnur slys sem
tengdust ölvunarakstri og í þeim
slösuðust allir ökumennirnir, þar
af tveir alvarlega en einn minna.
Tveir farþegar slösuðust, annar
mikið en hinn minna.
„Öll þessi slys tengjast því meira
og minna að verið var að skemmta
sér og skemmtunin endaði með
þessum slysum. Það er gjörsam-
lega óviðunandi að svona lagað
gerist.“
Áfengis- og vímuefnaneysla
loðir við popparaímyndina
Sylvía Kristín Ólafsdóttir og
Heiðar Örn Stefánsson frá Jafn-
ingjafræðslunni kynntu starfsemi
hennar í sumar. „Verið er að þjálfa
15 manna hóp fólks sem mun fara í
vinnuskóla og ræða við unglinga í
9. og 10. bekk um vímuefni. Við töl-
um við unglingana í litlum hópum
og leitumst við að svara spurning-
um sem þau kunna að hafa.“ Þau
segja mikilvægt að gera ung-
lingana tilbúna til að standast hóp-
þrýsting.
„Flestir unglingar eiga einhvern
tímann eftir að vera í partíi þar
sem verið er að nota áfengi og eit-
urlyf og við viljum benda þeim á
hve mikilvægt er að vera búin að
ákveða hvað þau ætla að gera þeg-
ar þau verða í þeim sporum.“
Jafningjafræðslan starfrækir
ferðaskrifstofu sem ber nafnið
Flakkferðir en hún býður upp á
innan- og utanlandsferðir fyrir fólk
á aldrinum 16–25 ára í sumar.
„Innanlandsferðirnar verða á laug-
ardögum í allt sumar og þar verður
m.a. farið í fallhlífarstökk og ka-
jaksiglingar en í utanlandsferðun-
um verður m.a. farið á Interrail og
í sólarlandaferðir. Í þessum ferð-
um er skilyrði að engin vímuefni
séu notuð.“
Jón Jósep Snæbjörnsson, söngv-
ari hljómsveitarinnar Í svörtum
fötum, kynnti þá stefnu hljómsveit-
arinnar að vera góð fyrirmynd fyr-
ir unglinga t.d. með því að vera
vímulausir þegar þeir spila á böll-
um. „Áfengis- og vímuefnaneysla
hefur lengi loðað við popparaí-
myndina en við erum hins vegar
reynslulausir í þeim efnum og telj-
um það hið besta mál.“
Fleiri nauðganir og aukinn ölvunarakstur á sumrin
„Viljum að ævintýri
sumarsins endi vel“
Morgunblaðið/Arnaldur
Heiðar Örn Stefánsson og Sylvía Kristín Ólafsdóttir kynntu starfsemi
Jafningjafræðslunnar í sumar.
HUGMYNDIR um kynbundin ein-
kenni í tengslum við
foreldrahlutverkið, stjórnunar-
hæfileika, tilfinninganæmi og
áhuga á kynlífi eru enn ríkjandi
meðal landsmanna en þessir þættir
eru meðal þess sem mælt er í nýj-
um þjóðarpúlsi Gallup.
Markmiðið með könnuninni var
að skoða hvort jafnréttislög og ný-
leg lög um fæðingarorlof hafi haft
áhrif á hugmyndir landsmanna um
hlutverk og einkenni kynjanna.
Um 33% svarenda í könnuninni
telja konur hæfari foreldra en
karla og athygli vekur að karlar
virðast bera minna traust til sín
sem foreldra en konur, því um 40%
þeirra telja að konur séu hæfari
foreldrar en karlar.
Lítill munur reyndist á skoðun-
um fólks um hvort annað kynið sé
hæfara til að sinna stjórnunarstöð-
um. Um 15% þátttakenda telja
karla hæfari stjórnendur en konur
en tæp 26% aðspurðra töldu konur
hæfari en karla.
Landsmenn virðast telja að kon-
ur séu tilfinninganæmari en karlar
eða um 70% þeirra sem þátt tóku í
könnuninni. Karlar álíta að konur
séu tilfinninganæmari en þær gera
sjálfar og mikill meirihluti svar-
enda, eða 86%, telja að karlar beri
vandamál sín síður á torg en konur.
Um 40% þátttakenda telur karla
áhugasamari um kynlíf en konur,
en yngsti hópurinn er þessu síst
sammála. Þeirrar tilhneigingar
gætir reyndar hvað flesta þættina
varðar, svo virðist sem yngra fólk
aðhyllist síður hugmyndir um kyn-
bundin mun í þeim þáttum sem
könnunin tók til. Þetta gildir þó
ekki um afstöðu fólks til þess hvort
konur séu konum verstar en rúm
50% svarenda telur að svo sé. Í
þessum hópi er ungt fólk fjölmenn-
ara en þeir sem eldri eru og konur
virðast frekar á þessari skoðun en
karlar.
Þjóðarpúls Gallup
Hugmyndir um kynbund-
in einkenni enn við lýði
FORSVARSMENN Ríkisútvarps-
ins og Íslenskrar getspár und-
irrituðu 7. júní sl. samning um
sýningar á útdrætti Lottósins og
Víkingalottósins í Sjónvarpinu.
Útsendingarnar verða fram-
vegis á miðvikudögum kl. 18.54
og á laugardögum á sama tíma.
Eins og kunnugt er færði Ís-
lensk getspá þessar útsendingar
yfir á Stöð 2 og Sýn fyrir nokkru.
Bjarni Guðmundsson, frkvstj. Sjónvarpsins, Vífill Oddsson, stjórnarfor-
maður Íslenskrar getspár, Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri, Berg-
sveinn Sampsted, frkvstj. Íslenskrar getspár og Þorsteinn Þorsteinsson,
forstöðumaður markaðssviðs RÚV, undirrita samninginn.
Lottóið aftur til RÚV
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sat utanríkisráðherra-
fund Eystrasaltsráðsins í Ham-
borg í Þýskalandi fimmtudaginn 7.
júní sl., en Þjóðverjar gegna for-
mennsku í Eystrasaltsráðinu í ár.
Á fundinum var einkum rætt um
svæðasamstarf í Norður-Evrópu,
hina norðlægu vídd Evrópusam-
bandsins og samstarf milli land-
anna á svæðinu.
Við lok fundarins undirrituðu
ráðherrarnir samkomulag um
miðlun geislunarupplýsinga milli
landanna.
Í ræðu Halldórs Ásgrímssonar
kom fram mikilvægi svæðasam-
taka í Norður-Evrópu og hinnar
norðlægu víddar Evrópusam-
bandsins. Utanríkisráðherra lagði
áherslu á að samræma þyrfti verk-
efni og auka samvinnu svæðastofn-
ana um málefni norðlægu vídd-
arinnar, og sagði mikla möguleika
á beinu samstarfi fyrirtækja,
félagasamtaka, sveitarstjórna og
fleiri aðila á svæðinu. Í því sam-
hengi gat utanríkisráðherra þess
að Norðurlandasamstarfið hefði
rutt brautina fyrir aukið samstarf
ríkja við Eystrasalt, segir í frétta-
tilkynningu.
Utanríkisráðherrarnir áttu
óformlegan fund í hádeginu þar
sem aðallega var rætt um málefni
Mið-Austurlanda, en Joschka Fisc-
her, utanríkisráðherra Þýskalands,
er nýkominn frá Ísrael og Palest-
ínu þar sem hann leitaðist við að
koma á sáttum milli stríðandi fylk-
inga.
Yfirlýsingu fundarins er að finna
á heimasíðu Eystrasaltsráðsins á
slóðinni www.baltinfo.org
Undirrituðu samkomu-
lag um miðlun
geislunarupplýsinga
LANDSTJÓRI Kanada, frú Adr-
ienne Clarkson, er væntanleg í
einkaheimsókn til Íslands sem gest-
ur Ólafs Ragnars Grímssonar for-
seta Íslands.
Landstjórinn kemur til landsins
ásamt föruneyti laugardaginn 9. júní
og heldur af landi brott áleiðis til
Kanada sunnudaginn 10. júní. Með
landstjóranum í för verður eigin-
maður hennar, John Ralston Saul
rithöfundur.
Landstjóri
Kanada
á Íslandi
♦ ♦ ♦