Morgunblaðið - 08.06.2001, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HEIMILISSÝNING verður haldin í
Laugardalshöll í haust, nánar tiltek-
ið dagana 30. ágúst til 4. september.
Búist er við að yfir 100 fyrirtæki
muni kynna þjónustu sína á sýning-
unni og að 30–50 þúsund manns
muni leggja leið sína á hana. Mark-
mið sýningarinnar er að veita upp-
lýsingar um vörur, þjónustu og nýj-
ungar tengdar heimilishaldi. Þetta
verður fyrsta sýning þessarar teg-
undar frá því að heimilissýningar
voru haldnar hér með reglulegu
millibili á 8. og 9. áratugnum en sýn-
ingin nú verður með nýjum og
breyttum áherslum.
Aðstandendur sýningarinnar
benda á að samhliða breyttu þjóð-
félags- og efnahagsástandi hafi
heimilið og fjölskyldan einnig tekið
breytingum. Á hverju ári flytja um
og yfir 60.000 manns búferlum á Ís-
landi og talið er að 20.000 til viðbótar
kjósi að breyta og bæta heimili sín.
Samkvæmt neyslukönnun Gallup
búa nú tæp 70% þjóðarinnar í eigin
húsnæði og æ færri kjósa að búa í
leiguhúsnæði. Um 46% landsmanna
búa í einbýlishúsum en einnig hefur
færst í vöxt að fólk búi í stórum fjöl-
býlishúsum og búa 20% þjóðarinnar í
slíku húsnæði.
Unnur Steinsson, einn af forsvars-
mönnum sýningarinnar, bendir á að
nútímafjölskyldan kjósi að búa í
færri fermetrum en leggi meiri
áherslu á þægilegt og notalegt um-
hverfi. Þá hafi gott efnahagsástand
undanfarin ár haft sitt að segja.
„Vaxandi velmegun hefur skilað sér í
því að fólk leggur meiri áherslu á lífs-
gæði en nokkru sinni fyrr og sést það
meðal annars á kauphegðun í mat og
drykk, innréttingum, húsbúnaði og
ekki síst á íbúðarhúsnæði.“
Unnur segir ljóst að Íslendingar
geri miklar kröfur um þægindi og
tækni á heimilum, þetta megi til
dæmis ráða af þeim staðreyndum að
á 10% íslenskra heimila er að finna
rafknúna espresso-vél og 70% heim-
ila eru nettengd.
Heimilissýningin endurvakin
Laugardalur
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Unnur Steinsson, önnur frá hægri, kynnir fyrirhugaða heimilissýningu ásamt öðrum aðstandendum hennar.
DRÖG að nýju deiliskipulagi
fyrir skóla- og íþróttasvæði við
Varmá verða á næstunni kynnt
hagsmunaaðilum.
Að sögn Eyjólfs Árna
Rafnssonar, formanns skipu-
lags- og bygginganefndar,
verða ekki gerðar stórvægileg-
ar breytingar á íþrótta- og
skólamannvirkjum en svæðið
sem deiliskipulagið nær til er
mun stærra en núverandi
skipulag nær yfir. Helstu
breytingarnar eru að sögn
Eyjólfs þær að tjaldsvæði við
íþróttahús verður tekið undir
aðra notkun en þar er fyrir-
hugað að reisa leiktækja- og
útvistarsvæði fyrir börn og
fullorðna. Núverandi tjald-
svæði verður fært úr stað og
fundinn staður hinum megin
við Varmá. Þá verður reist
þjónustuhús fyrir nýja tjald-
svæðið og hugmyndir eru uppi
um að afmarka svæði fyrir
húsbíla sem tengt verður við
svæðið. Ráðgert er að reisa
smáhýsi á sömu slóðum sem
verða leigð út fyrir ferðamenn
og þá er meðal annars stefnt
að því að leggja nýjan grasvöll
undir íþróttaiðkun og gert ráð
fyrir mögulegri stækkun á
stúku.
Tjaldstæði of
áberandi frá götu
Í greinargerð sem fjallar um
skipulag svæðisins segir að
töluverðar breytingar hafi átt
sér stað á því svæði sem deili-
skipulagið nær yfir og sé það
einkum vegna framkvæmda
við skólann og íþróttamiðstöð-
ina. Mörg smáatriði séu hins
vegar ófrágengin innan skipu-
lagssvæðisins og vert sé að
ljúka þeim hið fyrsta. Lagt er
til að tjaldstæðið verði fært yf-
ir Varmá skammt frá Ullar-
nesbrekku. Þykir staðsetning
þess í dag vera of nálægt Vest-
urlandsvegi og umferðarhá-
vaði mikill. Þá þykir aðstaðan
vera of áberandi frá götunni en
með aukinni skógrækt muni
nýja svæðið verða betur varið
og ekki eins sýnilegt frá götu.
Gert er ráð fyrir ellefu smá-
hýsum fyrir ferðaþjónustu í
Ullarnesbrekku. Verða þau
staðsett þannig að hægt sé að
hafa umsjón með rekstri
þeirra samhliða rekstri tjald-
stæðisins. Þjónustuhús fyrir
snyrtingar- og þvottaaðstöðu
verður byggt norðan við
Varmá.
Lóð undir nýja sundlaug
Þá er lagt til að boltavöllur
rísi meðfram gamla íþrótta-
húsinu. Stefnt er að því að
byggt verði framhús við
íþróttamiðstöðina. Um er að
ræða allt að tveggja hæða
byggingu með anddyri á jarð-
hæð og félagsaðstöðu á efri
hæð. Þá hefur svæði undir
nýja sundlaug verið tekið frá
meðfram núverandi sundlaug.
Einnig er gert ráð fyrir tölu-
verðri aukningu á bílastæðum
og samnýtingu bílastæða,
meðal annars við íþróttahúsið,
barnaskólann og gagnfræða-
skólann.
Drög að nýju deiliskipulagi við Varmá
Reisa á smá-
hýsi fyrir
ferðamenn
! " #
$$ %& &
&
# '( % % $
#
%& &
# ) #
*+, $
&
$
%
# % $) !% -
./ ,
# *% -
&
'" -
!
"
#
"
$
0 $$
%
&
'
1 $)
$
)
Mosfellsbær
BÆJARSTJÓRN Mosfells-
bæjar hefur farið fram á
skýringar á því hvers vegna
heilbrigðisnefnd bæjarins
ákvað að fresta innheimtu
dagsekta hjá minkabúinu
Dalsbúi ehf. í Helgadal.
Kvartað hefur verið undan
frárennsli frá búinu, hreinsi-
búnaði og lélegri girðingu
kringum búið.
Í bókun bæjarstjórnar er
farið fram á að heilbrigð-
isfulltrúi skili inn greinar-
gerð af viðskiptum heil-
brigðiseftirlits við
minkabúið frá því í október
2000 þar sem þessum spurn-
ingum verði svarað. Að auki
fer bæjarstjórn fram á að
kannað verði hversu margir
minkar hafi sloppið úr hús-
um á sama tíma.
Minkur í eldhúsi
Herdís Gunnlaugsdóttir
og Hreinn Ólafsson bóndi
búa í Helgadal skammt frá
Dalsbúi. Þau hafa verið með
fjárbúskap og hesta en að
sögn Herdísar hefur mink-
urinn látið skepnur í friði.
Hins vegar sé nokkuð um að
minkurinn sleppi úr búrum
sínum og leiti þá inn í híbýli
í kring.
„Þeir koma ýmist heim til
okkar, stundum inn í eldhús
eða þá inn í fjárhús, hesthús
og bílskúr. Svo fara þeir
niður með læknum. Það er
lítið fiskeldi hér fyrir neðan
og þar fá þeir sér að borða,“
segir Herdís.
Hún segir heimilisfólk
vera ýmsu vant og meðal
annars hafi minkurinn borð-
að skópar sem hún átti en
þar fyrir utan hafi heimilis-
fólk ekki hlotið tjón af. Hún
segir miður hvernig gengið
sé frá málum við minkabúið
og að hún hafi margsinnis
komið að máli við eiganda
þess.
Að sögn Þorsteins Narfa-
sonar, framkvæmdastjóra
Heilbrigðiseftirlits Kjósar-
svæðis, er rekin fóður-
vinnsla samhliða mink-
arekstrinum en að hans
sögn annar rotþró sem þar
er ekki frárennsli og er yf-
irfull. Hugmyndin sé að
setja upp hreinsibúnað við
hana. Að auki segir Þor-
steinn að eiganda hafi verið
gert að ganga frá fráveitu-
málum við haughús sem þar
stendur og hýsir minkana.
Yfirfallið hafi á sínum tíma
lekið frá haughúsi og út í
nærliggjandi læk en eigandi
hafi að undanförnu brugðið
á það ráð að dæla frá yf-
irfalli og út á túnin í kring.
Það sé hins vegar ekki
framtíðarlausn.
„Heilbrigðiseftirlitið
ákvað í haust að taka upp
dagsektir gagnvart búinu ef
það skilaði ekki inn fram-
kvæmdaáætlun um hvernig
það hygðist ganga frá mál-
um þarna,“ segir Þorsteinn.
Hann segir ótímasetta
framkvæmdaáætlun hafa
skilað sér að lokum og því
hafi ekki komið til þess að
beita dagsektum í bili. Hins
vegar hafi fresturinn til að
skila inn framkvæmdaáætl-
un verið runninn út og því
hafi dagsektunum verið
komið á í stuttan tíma en
þeim síðan frestað.
Unnið að úrbótum
Fram kom af hálfu eig-
anda búsins að vegna mik-
illa anna í tengslum við pels-
unartímabil sem stendur út
fyrstu vikuna í desember
hafi verið erfitt um vik að
aðhafast nokkuð. Frá þeim
tíma hafi eigandinn verið að
skoða hvaða kostir séu í
stöðunni. Meðal annars hafi
forsvarsmaður búsins farið
til Finnlands og kynnt sér
búnað sem notaður er við
loðdýrarækt auk þess sem
búið hafi fengið til liðs við
sig verkfræðistofuna Línu-
hönnun varðandi úrbætur.
Þorsteinn segir að dag-
sektum hafi ekki verið beitt
hingað til og að bókun bæj-
arstjórnar komi að líkindum
í kjölfar bókunar heilbrigð-
isnefndar frá 21. maí sem
sett var fram í þeim tilgangi
að þrýsta á um hugsanlegar
úrbætur.
„Mér skilst á verkfræði-
stofunni að það verði unnið
mjög hratt í þessu máli
núna. Þannig að það er von-
andi að það þurfi ekki að
beita þessum dagsektum.
Það er aldrei takmarkið í
sjálfu sér heldur síðasti
kosturinn,“ segir hann.
Skýringa krafist á frestun á innheimtu dagsekta hjá Dalsbúi
Beðið eftir tímasettri
framkvæmdaáætlun
Minkur frá minkabúinu Dalsbúi ehf. hefur valdið nokkrum usla í nágrenninu undanfarin ár.
Helgadalur