Morgunblaðið - 08.06.2001, Qupperneq 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GATNAMÁLASTJÓRI og
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
hafa sent frá sér tillögur um
aðgerðir til að minnka neikvæð
áhrif svifryksmengunar í and-
rúmslofti. Tillögurnar hafa
verið kynntar bæði í sam-
göngunefnd og umhverfis- og
heilbrigðisnefnd. Meðal þess
sem lagt er til er að hugað
verði nánar að því hvort steypt
slitlög geti dregið úr svif-
ryksmengun auk þess sem
kannaðir verði möguleikar á að
selja sérstök kort er heimili
notkun nagladekkja en eftirlit
með notkuninni yrði þá meðal
annars í höndum borgarstarfs-
manna.
Einnig er lagt til að rann-
sóknir á svifryksmengun verði
efldar, meðal annars með
auknum loftmælingum. Með
tillögunum fylgir greinargerð
þar sem fjallað er um eðli svif-
ryks, hvernig það er mælt og
hversu mikill styrkur þess hafi
mælst á undanförnum árum.
Teknar verði upp mæl-
ingar á fínna svifryki
„Það sem við viljum fyrst og
fremst gera er að auka rann-
sóknir á svifryki,“ segir Sig-
urður Skarphéðinsson gatna-
málastjóri. Hann segir að í dag
fari eingöngu fram mælingar á
grófari tegundum svifryks en
lagt er til að einnig verði tekn-
ar upp mælingar á fínna svif-
ryki og niðurstöðurnar kynnt-
ar almenningi, meðal annars
með aðstoð Netsins. Hann sér
fyrir sér að jafnvel yrði hægt
að birta spár um svif-
ryksmengun.
Í greinargerðinni er svifryk
skilgreint og skipt í tvo flokka.
Fínt svifryk er 2,5 míkrómetr-
ar eða minna að stærð en gróft
svifryk 2,5 - 10 míkrómetrar.
Svifryk er af ýmsum toga og
myndast meðal annars af völd-
um yfirborðsslits gatna, frjó-
korna, ryks frá útblæstri far-
artækja og frá hemlakerfum
bifreiða. Svifryk getur borist
inn í öndunarveg fólks en heil-
brigt fólk getur losnað við ryk-
agnir sem eru stærri en 5
míkrómetrar og setjast í efri
loftveg með því að hnerra eða
hósta. Fínasta svifrykið getur
hins vegar borist niður í lungu
og valdið þar ertingu.
Dagskort fyrir
utanbæjarmenn
Það var umhverfis- og heil-
brigðisnefnd sem fól gatna-
málastjóra og Heilbrigðiseftir-
liti að vinna sameiginlega að
úttektinni. Farið var fram á að
sérstaklega yrði kannað
hvernig hægt væri að draga úr
loftmengun vegna umferðar
og notkunar nagladekkja.
Í tillögunum er lagt til að
tekið verði til ítarlegrar skoð-
unar að taka upp gjald fyrir
heimild til að aka á nagla-
dekkjum þann tíma sem notk-
un þeirra er leyfð. Bent er á að
ýmsir bæir og borgir í Noregi
hafi þegar tekið upp slíkt gjald
eða stefni að því og er hvatt til
samstarfs við þá aðila.
Til þess að unnt sé að hafa
eftirlit með leyfisveitingum er
bent á kannaðir verði mögu-
leikar á samstarfi við ná-
grannasveitarfélögin auk
möguleika á því að starfsmenn
sveitarfélaganna geti ásamt
lögreglu tekið að sér eftirlit
með framkvæmdinni.
„Við erum að leggja til að
menn velti fyrir sér hvaða
lagabreytingar þurfi að gera til
að taka gjald af þeim sem aka á
nöglum. Menn hafa náð góðum
árangri til að mynda í Ósló þar
sem notkun nagladekkja hefur
á nokkrum árum minnkað úr
50 til 60 prósentum í 20 pró-
sent,“ segir Sigurður.
Sigurður nefnir að í Noregi
séu sérstök árskort sem heim-
ili notkun nagladekkja seld á
bensínstöðvum. Verð á slíku
korti í Noregi sé tíu þúsund ís-
lenskar krónur. Utanbæjar-
menn sem skreppi í bæinn geti
hins vegar keypt skemmri kort
sem gilda allt frá nokkrum
mánuðum og niður í einn dag.
Kortinu er þá komið fyrir í
mælaborðinu þannig að það sé
sýnilegt í gegnum framrúðu og
sérstakir eftirlitsmenn athuga
kortin. Þetta sé ekki ósvipað
og eftirlit með stöðumæla-
gjöldum.
„Við erum að benda á þenn-
an möguleika sem að öllum lík-
indum myndi gagnast hérlend-
is,“ segir Sigurður.
Hann segir að ef þessi leið
yrði farin yrði vetrarþjónusta
stóraukin.
„Af þessu kæmu til að byrja
með tekjur sem yrðu að sjálf-
sögðu ekki tekjuaukning fyrir
borgina heldur myndu fara í að
auka hálkueyðingu og bæta
þjónustu.“
Sigurður bendir einnig á
fleiri tillögur til úrbóta gegn
svifryksmengun. Meðal ann-
ars sé hægt að leggja áherslu á
uppgræðslu örfoka lands,
herða kröfur um hreinsun
gatna og tryggja að jarðvegur
berist ekki út á þær vegna
framkvæmda á aðliggjandi
svæðum. Einnig verði að huga
að lausagangi bifreiða og
draga úr hraðakstri en kann-
anir í Noregi sýni að sé dregið
úr hraðakstri minnki svif-
ryksmengun þótt ekki hafi
verið færðar óyggjandi sönnur
á orsakasamband þar á milli.
Þá er bent á notkun stein-
steypu í stað malbiks við
gatnagerð.
Sigurður tekur fram í þessu
sambandi að litlar upplýsingar
liggi fyrir um svifryk frá stein-
steypu þótt vitað sé að hún
slitni síður en malbikið. Þetta
sé meðal þess sem kanna verði
nánar.
„Númer eitt í mínum huga
er að auka mælingar og um-
ræðu um svifryksmengun og
vekja athygli fólks á að þetta
sé til án þess að eitthvert fár
skapist í kringum það. Þetta er
hlutur sem menn telja að til
lengri tíma sé óæskilegur og
hafi slæm áhrif á heilsu manna
en þar erum við að tala um
mjög langan tíma,“ segir Sig-
urður.
Hluti mengunar frá sjáv-
arúða og salti á götum
Svifryksmælingar hafa ver-
ið framkvæmdar af Heilbrigð-
iseftirliti Reykjavíkur frá
árinu 1990 en mælingarnar
hafa meðal annars farið fram
við Grensásveg um 50 metrum
frá Miklubraut. Mælt er sam-
kvæmt svokölluðum sólar-
hringsgildum og ársgildum
þar sem viðmiðunartími fyrir
hverja mælingu er ýmist einn
sólarhringur eða eitt ár. Með-
altalsgildi er síðan reiknað út
frá þessum gildum.
Hollustuvernd hefur einnig
stundað mælingar á svifryki
við Miklatorg. Meðaltalsgildi á
svifryksmengun er hærra við
Grensásveg en við Miklatorg
en fram kemur að svif-
ryksmengun á báðum stöðum
samkvæmt ársgildum mældist
minni á síðastliðnu ári en árið
þar á undan. Þá er tekið fram í
greinargerðinni að samkvæmt
lauslegum athugunum Heil-
brigðiseftirlits séu 20 prósent
af mældu svifryki kristallað
salt sem berst sem sjávarúði
og frá saltbornum götum.
Enginn hægðarleikur
að fylgja tilskipunum
Að sögn Lúðvíks Gústafs-
sonar sviðstjóra umhverfis-
sviðs hjá Heilbrigðiseftirlitinu
má ársmeðaltalsgildi ekki fara
yfir 40 míkrógrömm á rúm-
metra. Ef tekið er saman með-
altal áranna 1994 – 2000 er árs-
meðaltalsgildi á svifryks-
mengun 34 grömm á
rúmmetra en stefnir í 38
grömm árið 2005 sé miðað við
þróun síðustu ára.
Samkvæmt tilskipun Evr-
ópusambandsins frá árinu
1999 eiga ársmörkin að vera
komin niður í 20 míkrógrömm
fyrir 1. janúar 2010. Hins veg-
ar er stuðst við svokölluð sólar-
hringsgildi sem sýna meðaltal
hvers sólarhrings fyrir sig.
Í dag er í gildi hér á landi
reglugerð um brennisteins-
díoxíð og svifryk í andrúms-
lofti en hámarksmengun má
samkvæmt henni ekki fara upp
fyrir 130 míkrógrömm á rúm-
metra í 98 prósentum tilvika. Í
sjö daga á ári má mengunin
fara upp fyrir þessi mörk.
Evrópusambandið hefur
gefið út tilskipun varðandi sól-
arhringsgildi á svifryksmeng-
un en samkvæmt henni verður
mengunin að vera komin niður
fyrir 50 míkrógrömm í 90 pró-
sentum tilvika árið 2005 og 98
prósentum tilvika árið 2010.
Segir í greinargerðinni að það
verði enginn hægðarleikur að
fara niður fyrir þessi mörk.
Gatnamálastjóri og Heilbrigðiseftirlit gera tillögur um aðgerðir gegn svifryksmengun
Steypt slitlög og árs-
kort fyrir nagladekk
Morgunblaðið/Golli
Umferðaraukning og notkun nagladekkja er talin eiga stóran þátt í svifryksmengun í and-
rúmslofti. Myndin sýnir mælistöð Hollustuverndar ríkisins við Miklubraut.
Reykjavík
LEIKSKÓLABÖRN í Hafn-
arfirði söfnuðust saman á
hátíð leikskólabarna á
Víðistaðatúni í gær. Fjórtán
leikskólar eru í Hafnarfirði
og má því ætla að hátt í eitt
þúsund börn hafi verið á
svæðinu.
Skrúðganga fór frá leik-
skólanum Víðivöllum undir
fánum leikskólanna og var
gengið fylktu liði að Víðista-
ðatúni. „Hátíðin tókst mjög
vel og við erum alsæl,“ seg-
ir Heiðrún Sverrisdóttir,
leikskólaráðgjafi hjá skóla-
skrifstofu Hafnarfjarðar.
Hún segir að hefð hafi
skapast fyrir leikskólahátíð-
inni annað hvert ár en að
rætt hafi verið um að gera
eitthvað annað hitt árið, t.d.
halda minni hátíðir, jafnvel
hverfisbundnar. Ekki hafi
verið tekið ákvörðun um
það ennþá.
„Við fengum mjög gott
veður og sólin skein af og
til,“ sagði Heiðrún. „Það var
sungið, leikið, grillað og all-
ir voru glaðir og kátir.“
Fjölmenni í skrúðgöngu leikskólabarna.
Leikið og sungið
á Víðistaðatúni
Hafnarfjörður
KRAMHÚSINU við Skóla-
vörðustíg hefur verið veitt
áminning af Heilbrigðiseftir-
liti Reykjavíkur vegna brota
gegn banni við trumbuslætti
sem sett var á fyrirtækið í
febrúar síðastliðnum. Heil-
brigðiseftirlitið krefst þess að
farið verði eftir banninu en að
öðrum kosti verði starfsemi
Kramhússins takmörkuð enn
frekar.
Forsaga málsins er sú að
hinn 6. febrúar sendi Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur
Kramhúsinu bréf þar sem
trommuleikur („afró“) og
hvers konar hávaði sem borist
gæti í nærliggjandi hús er
bannaður þar til fyrirtækið
hafi bætt hljóðeinangrun í
húsnæði sínu.
Í bréfi frá fyrirtækinu til
nágrannanna, dagsettu 26.
apríl, segir að endurbótum á
húsnæðinu sé lokið og Heil-
brigðiseftirlitið hafi heimilað
að afrókennsla hefjist á ný.
Í áminningarbréfi Heil-
brigðiseftirlitsins er þessu
vísað á bug og er bent á að í
bréfi til Kramhússins í byrjun
apríl hafi Heilbrigðiseftirlitið
einungis lýst því yfir að því
þyki áætlun fyrirtækisins um
endurbætur álitleg og það
fallist fyrir sitt leyti á þá
áfangaskiptingu sem tilgreind
er í bréfinu. Hins vegar sé
banni við trommuleik og há-
vaða ekki aflétt.
Hljóðmælingar í
nærliggjandi íbúð
Eftir að Heilbrigðiseftirlit-
inu bárust enn á ný kvartanir
um hávaða frá trumbuslætti
og tónlist í Kramhúsinu fór
stofnunin í eftirlitsferð í byrj-
un maí þar sem kvartanirnar
voru staðfestar. „Er starfs-
menn Heilbrigðiseftirlitsins
komu á staðinn barst hávær
trumbusláttur frá Kramhús-
inu. Ennfremur var talsvert
ónæði af fólki sem kom út í
garð er hlé var gert á tónlist-
inni. Þá jókst hávaði gífurlega
þegar dyr voru opnaðar með-
an á hljóðfæraleik stóð,“ segir
í bréfinu.
Kemur fram að í hljóðmæl-
ingum, sem fóru fram í svefn-
herbergi í nærliggjandi íbúð
þegar trumbusláttur barst frá
Kramhúsinu, hafi jafngildis-
hljóðstig mælst á bilinu 36–39
desibel og 41–44 desibel eftir
leiðréttingar vegna högg-
hljóða. Jafngildishljóðstigið
mældist hins vegar 25 desibel
á sama stað áður en hljóð-
færaleikurinn hófst.
Í niðurlagi áminningar-
bréfs síns krefst Heilbrigðis-
eftirlitið þess að tafarlaust
verið farið eftir banninu. Þá
segir: „Verði vart við
trommuleik eða annan hávaða
sem veldur ónæði hjá ná-
grönnum verður leitað lið-
sinnis lögreglu til að fram-
fylgja banninu. Verði
fyrirtækið ekki við kröfum
Heilbrigðiseftirlitsins mun
verða gripið til þess ráðs að
takmarka starfsemi Kram-
hússins enn frekar.“
Trumbusláttur
ónáðar nágranna
Miðborg
Kramhúsinu veitt áminning vegna
brota á banni við hávaða