Morgunblaðið - 08.06.2001, Síða 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Herrafataverslun
á Norðurlandi
Herrafataverslun
á Norðurlandi
Til sölu er herrafataverslun á Norðurlandi.
Verslunin er í leiguhúsnæði, langtímaleigusamn-
ingur. Lítill vörulager, góð viðskiptasambönd með
umboðum fyrir vönduð og þekkt vörumerki.
Nánari upplýsingar eru veittar
hjá Fasteignasölunni ehf.
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akur-
eyrar samþykkti á síðasta fundi sín-
um að óska eftir því við bæjarráð að
hafin verði bygging nýrrar stólalyftu
í Hlíðarfjalli á árinu í samráði við
Vetraríþróttamiðstöð Íslands. Ráðið
bendir á að núverandi stólalyfta sé
mjög slitin og því brýnt að hefja und-
irbúning og framkvæmdir strax svo
þjónustuhlutverk skíðasvæðisins í
Hlíðarfjalli verði ekki í hættu.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hefur verið ákveðið að
ráðast í umfangsmiklar endurbætur
á veginum upp í Hlíðarfjall, byggja
hann upp og leggja bundnu slitlagi á
næsta ári.
Fjögurra sæta lyfta
flytur um 1.800 manns
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður Skíðastaða í Hlíðarfjalli,
sagði að þetta væru vissulega
ánægjulegar fréttir enda væru veg-
urinn og stólalyftan á svipuðum
aldri, eða um 35 ára, og því kominn
tími á endurnýjun.
Guðmundur Karl sagði að með til-
komu nýrrar fjögurra sæta stóla-
lyftu myndi aðstaðan í fjallinu batna
til mikilla muna og biðraðir við lyftur
minnka mikið. Núverandi stólalyfta
er tveggja sæta og flytur um 450
manns á klukkustund en fjögurra
sæta lyfta flytur um 1.800 manns á
klukkustund. Talið er að heildar-
kostnaður við uppkomna lyftu sé um
150 milljónir króna.
Guðmundur Karl sagði jafnframt
að endurbygging vegarins upp í
Hlíðarfjall kæmi til með að breyta
allri aðstöðu þar og auka möguleika
svæðisins til muna. „Með tilkomu
bundins slitlags á veginn mun um-
ferð í fjallið aukast mikið og þetta
gefur okkur líka möguleika á að nýta
svæðið betur allt árið og vera þarna
jafnvel með einhverja starfsemi yfir
sumartímann,“ sagði Guðmundur
Karl.
Morgunblaðið/Kristján
Stólalyftan í Hlíðarfjalli er orðin 35 ára gömul en nú hillir undir að ný,
stærri og fullkomnari stólalyfta leysi hana af hólmi.
Breytir allri aðstöðu og eyk-
ur möguleika svæðisins
Hlíðarfjallsvegur endurbyggður og ÍTA vill nýja stólalyftu
ALEXANDER Kárason, Íslands-
meistari í snjókrossi 2001, hefur
varpað fram þeirri hugmynd að
setja upp leika í Hlíðarfjalli að
vetrarlagi í líkingu við svonefnda
X-Games sem haldnir eru árlega í
Vermont, skammt frá Boston. Á
þessum leikum er keppt í marg-
víslegum jaðaríþróttum og óhefð-
bundnum vetraríþróttum.
„Það hefur verið vel tekið í þess-
ar hugmyndir og ég vona að við
getum verið með svona leika í fjall-
inu næsta vetur. Þarna yrði um að
ræða nýbreytni í starfseminni sem
ekki kostar mikla peninga, en gæti
opnað mikla möguleika. Leikar af
þessu tagi draga yfirleitt að sér
fjölda áhorfenda,“ sagði Alexand-
er. Auk þess sem keppt yrði í snjó-
krossi á vélsleðum nefndi hann
einnig keppni á fjallahjólum,
skíðakross, þar sem fimm kepp-
endur leggja af stað samtímis og
renna sér eftir stuttum brautum
með stökkpöllum, brettaíþróttir
ýmiskonar, stökkkeppnir og eins
nefndi hann keppni á Stiga-
sleðum. „Það er nægt pláss í Hlíð-
arfjalli og að mínu mati væri hið
besta mál að hleypa að fleira fólki,
sem áhuga hefur fyrir öðrum vetr-
aríþróttum en skíðum,“ sagði Al-
exander.
Hann keppti á X-Games í Banda-
ríkjunum á síðasta ári og var hann
eini áhugamaðurinn sem þátt tók í
leikunum. Hann hefur með Ís-
landsmeistaratitlinum nú í vor
unnið sér rétt til að taka þátt í
næstu leikum sem verða í febrúar
á næsta ári.
Árangur Alexanders í vetur hef-
ur vakið athygli, ekki síst meðal
áhugamanna um þessa íþrótt í út-
löndum, en nú nýlega kom í ljós að
hann hefur keppt mjaðmagrind-
arbrotinn mestallt tímabilið. Hann
slasaðist á æfingu fyrir mót á Dal-
vík, en ekki kom í ljós hvers kyns
var fyrr en rétt fyrir síðasta mótið
sem haldið var í Ólafsfirði í lok
apríl. „Ég skildi ekkert í því hve
illa gekk að komast í samt lag, en
það var svo ekki fyrr en nýlega
sem kom í ljós að ég var brotinn,
það var þriggja sentímetra gliðnun
á beininu,“ sagði Alexander sem
nú hefur gengist undir aðgerð
vegna meiðslanna.
„Ég var oft sárþjáður, en beit á
jaxlinn, ég ætlaði mér að komast í
gegnum mótaröðina og það tókst.
Þetta er mikil átakaíþrótt og ekki
óalgengt að menn séu marðir og
hruflaðir, en það verður bara að
taka því, þetta fylgir,“ sagði Alex-
ander.
Hann kvaðst ætla að taka það ró-
lega til að byrja með eftir aðgerð-
ina, en hefja síðan æfingar af full-
um krafti fyrir næsta vetur, m.a.
vegna þátttöku sinnar í X-Games í
Bandaríkjunum.
„Þetta er einn stærsti viðburð-
urinn í vetrarsporti í heiminum og
útsendingar frá leikunum eru á
fjórum sjónvarpsstöðvum í Banda-
ríkjunum. Talið er að um 20 millj-
ónir áhorfenda í um 180 löndum
fylgist með þessum leikum.
Íslenski
snjómaðurinn
Töluvert hefur verið skrifað um
Alexander í blöð sem fjalla um
vélsleðaíþróttir og hefur hann m.a.
fengið viðurnefnið Íslenski snjó-
maðurinn. Þá hafa einnig verið
tekin við hann viðtöl í sjónvarps-
þáttum sem fjalla um þessa íþrótt.
Þátttaka hans á mótum erlendis
hefur komið honum í kynni við
fjölda fólks sem er viðloðandi
íþróttina og í vetur hafa komið
hópar norður til Akureyrar, m.a.
þáttagerðarfólk og framleiðendur
sjónvarpsþátta og myndbanda.
Nú nýlega voru á ferð framleið-
endur Sleednecks og unnu þeir
efni á myndband sem tilbúið verð-
ur í haust. Þeir lýstu að sögn Alex-
anders áhuga á að koma aftur og
vinna efni á fleiri myndbönd. Alls
tók hann á móti fjórum sjónvarps-
hópum í vetur, tveimur frá Banda-
ríkjunum og tveimur frá Bretlandi.
„Það felast í þessu gríðarlegir
möguleikar, en ég hef aðallega
verið einn að brasa í þessu, taka á
móti fólkinu og setja upp fyrir það
dagskrá í samráði við það. Áhug-
inn fyrir landinu og vetraríþrótt-
um af þessu tagi er mikill og ljóst
að margt fólk væri til í að koma og
fylgjast með því sem hér er að ger-
ast. Ég hef verið að reyna að afla
mér stuðnings til að fjölga ferðum
þessa fólks hingað að vetrarlagi,
en ekki orðið mikið ágengt enn.
Það er mikil framtíð í þessu og ég
vona að ég finni einhver fyrirtæki
sem eru tilbúin að styðja þetta
framtak,“ sagði Alexander.
Íslandsmeistarinn Alexander Kárason keppti mjaðmagrindarbrotinn í vetur
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Alexander við sleðann sem hann væntanlega flytur út til Bandaríkjanna
næsta vetur til að keppa þar á X-Games.
Þarf að virkja áhuga útlendinga
á íslenskum vetraríþróttum
HIÐ árlega Akureyrarmaraþon
verður haldið á morgun, laugardag-
inn 9. júní, sem er nokkru fyrr en
verið hefur. Hlaupið hefst og endar á
Akureyrarvelli og eru þrjár vega-
lengdir í boði, hálfmaraþon, eða 21
km, 10 km og 3 km skemmtiskokk.
Akureyrarmaraþon er jafnframt
Íslandsmeistaramót í hálfmaraþoni
og má því búast við að flestir af
sterkustu hlaupurum landsins verði
á meðal þátttakenda. Einnig hafa að-
standendur hlaupsins mikinn áhuga
á að ná til almennings og þá ekki síst
til unglinga.
Hlaupaleiðirnar eru að stærstum
hluta innan bæjarmarkanna og
þykja einhverjar þær skemmtileg-
ustu hérlendis. Nöfn þátttakenda
verða í sérstökum potti sem dregið
verður úr og á meðal vinninga eru
þrír farmiðar með Flugleiðum til
Evrópu.
Opið verður fyrir skráningu í Ak-
ureyrarmaraþon í Íþróttahöllinni á
Akureyri í dag frá kl. 14 og fram eftir
kvöldi og á Akureyrarvelli á morgun,
laugardag, frá kl. 9-11.
Maraþon
á morgun
Morgunblaðið/Kristján
Þorsteinn Pétursson lögreglu-
þjónn lét sig ekki muna um að
hlaupa 10 kílómetra í Akureyr-
armaraþoninu í fyrra, þótt kom-
inn sé vel á sextugsaldurinn.
Heimasíða
www.nett.is/eignakjor
HÚS TIL SÖLU
Til sölu þetta hús á mjög eftirsótt-
um stað við Holtagötu á Akureyri
(rétt við sundlaug Akureyrar). Húsið
er 92 fm að stærð, hæð 76,7 fm og
kjallari 15,3 fm og er til afhendingar
nú þegar. Ásett verð er 8,4 milljónir.
AÐALFUNDUR
NORÐURLANDSDEILDAR SÁÁ
verður haldinn fimmtudaginn 14. júní
klukkan 18.00 að Glerárgötu 20 e.h.
Félagar eru kvattir til að mæta
og ræða framtíð deildarinnar.
Stjórnin.