Morgunblaðið - 08.06.2001, Qupperneq 26
ERLENT
26 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DRÖG skýrslu nefndar sem rann-
saka átti framkvæmd kosninganna
til embættis forseta Bandaríkj-
anna í Flórída í nóvember síðast-
liðnum liggja nú fyrir. George W.
Bush vann nauman sigur á Al
Gore en skýrslan hefur vakið harð-
ar deilur milli repúblikana og
demókrata, að því er segir í The
New York Times.
Í skýrslunni segir að ekki hafi
fundist sannanir fyrir skipulögðu
samsæri en hins vegar hefði Jeb
Bush, ríkisstjóra Flórída og Kat-
herine Harris, innanríkisráðherra
sambandsríkisins, snemma verið
ljóst að miklir annmarkar væru á
framkvæmd kosninganna. Þau hafi
hins vegar ákveðið að hafast ekk-
ert að.
Meint kynþáttamismunun
Í skýrslunni segir að einstak-
lingar af öðrum kynþáttum en
þeim evrópska hefðu átt í tölu-
verðum erfiðleikum með að kjósa.
Hefði túlka vantað í kjördæmi þar
sem meirihluti kjósenda er
spænskumælandi og kjörseðlar
hefðu sums staðar ekki verið til á
spænsku. Þá hefðu kjörseðlar
svartra kjósenda verið tíu sinnum
líklegri til að verða ógiltir en ann-
arra kjósenda.
Talsmaður ríkisstjórans sagði
skýrsluna illa unna og hlutdræga.
Hefði formaður rannsóknarnefnd-
arinnar, demókratinn Frances
Berry, stutt Al Gore í kosning-
unum og bæri skýrslan þess aug-
ljós merki. Talsmaðurinn sagði
jafnframt að það væri rangt að
kjósendum hefði verið mismunað
eftir kynþætti. Það eina sem finna
mætti að framkvæmd kosninganna
væri að þátttaka svartra íbúa
Flórída hefði verið meiri en búist
var við og hefði það valdið töfum.
Forsetakosningarnar í Flórída
Deilt um skýrslu
rannsóknarnefndar
Reuters
Katherine Harris, innanríkisráðherra Flórída.
FÆREYINGAR munu nú í fjórða
sinn á þessu kjörtímabili fá nýjan
mennta- og menningarmálaráð-
herra.
Á fimmtudaginn kemur verður
hinn 56 ára gamli Óli Holm tilnefnd-
ur í ráðherraembætti og mun hann
leysa hinn umdeilda fyrrverandi
skipstjóra Tórbjørn Jacobsen af
hólmi. Tórbjørn Jacobsen hefur ver-
ið ötull baráttumaður sjálfsstjórnar
Færeyja en hann lætur af embætti
vegna ögrandi framkomu og kjarn-
yrts tungutaks sem hefur móðgað
ýmsa.
Óli Holm er, líkt og fyrirrennari
hans, félagi í Þjóðveldisflokknum.
Hann er menntaður kennari og hefur
um árabil verið aðstoðarskólastjóri í
sveitarfélaginu Vogi á Suðurey. Óli
Holm er formaður stjórnar Þjóðveld-
isflokksins og var nýlega einnig val-
inn varaformaður þegar skipulag
forystu flokksins var endurskipu-
lagt.
Ráðherrann nýi var valinn af
Íhaldsflokknum til að taka sæti Tór-
bjørns Jacobsens sem sagði sjálfvilj-
ugur af sér eftir að hafa fengið á sig
mikla gagnrýni. Hinn harðorði Tór-
bjørn Jacobsen, sem hefur uppnefnt
Anfinn Kallsberg „skósvein Dana“
og kallaði ríkisendurskoðanda Fær-
eyja nýlega „ómerkilegan bókara“,
komst aftur í sviðsljósið í síðustu
viku eftir fund með fulltrúum grunn-
skólans í sveitarfélaginu Vestmanna.
Fundur með grunnskóla-
fulltrúum gerði útslagið
Stjórn skólans og kennarar höfðu
opinberlega gert grein fyrir því að ef
skólinn fengi ekki meira fjármagn
fyrir næsta skólaár yrði dregið úr
kennslu þar á næsta ári. Vegna þess-
arar yfirlýsingar kallaði Tórbjørn
Jacobsen stjórn skólans á sinn fund í
menntamálaráðuneytinu í Þórshöfn.
Stjórn skólans og fulltrúar kennara
gengu hins vegar af fundi áður en yf-
ir lauk vegna hegðunar ráðherrans.
Í upphafi fundarins bað Tórbjørn
Jacobsen einn fulltrúa kennara að
ganga af fundi á þeirri forsendu að
hún væri gift þingmanni stjórnar-
andstöðunnar. Þá lýsti ráðherrann
því yfir síðar á fundinum að aðstoð-
arskólastjóri Vestmannaskóla,
dönsk kona sem um árabil hefur búið
í Færeyjum, yrði að yfirgefa fundinn
vegna þess að hún talaði ekki nægi-
lega góða færeysku. Í kjölfarið ákv-
áðu fulltrúar skólans ásamt skóla-
stjóranum að ganga af fundi.
Skólastjórinn lýsti því svo yfir að
fundi loknum að þrátt fyrir að hann
kysi Þjóðveldisflokkinn hefði fram-
koma Tórbjørns Jacobsen verið ól-
íðandi.
Ráðherrann, sem fékk um svipað
leyti á sig vantraustsyfirlýsingu
þingsins fyrir að uppnefna lögmann
Færeyja og aðra þingmenn, ákvað í
síðustu viku að láta af embætti. Tór-
bjørn Jacobsen upplýsti í tengslum
við afsögn sína að hann teldi að of
mikið væri litið til hans persónu en
minna til stefnu flokks hans og bar-
áttu hans fyrir fullveldi. Hann kvaðst
stefna á að fara aftur að vinna á sjó
auk þess sem hann ætlaði sér að
skrifa bók.
Høgni Hoydal, formaður Þjóðveld-
isflokksins og ráðherra sjálfstjórnar-
mála Færeyja, hefur lýst því yfir að
hann harmi afsögn Tórbjørns Jacob-
sen. Hann sagði Tórbjørn hafa verið
mjög ötulan ráðherra sem hefði tek-
ist að leysa mörg verkefni í mennta-
og menningarmálum í embætti.
Breytingar í landstjórn Færeyja
Umdeildur ráð-
herra segir af sér
Þórshöfn. Morgunblaðið.
VERIÐ
SKIPA- og kvótasölufyrirtæki og
einstaklingur voru dæmd í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær til að
borga útgerðarfyrirtæki 12 millj-
ónir ásamt vöxtum og dráttarvöxt-
um frá í fyrravor, auk 700.000
króna í málskostnað. Peningunum
tók skipasalan við er hún seldi bát
fyrir útgerðarfélagið og ráðstafaði
þeim í eigin þágu sem inngreiðslu á
samninga um tvo nýsmíðabáta sem
hún hafði í sölu en samningar um
kaup á þeim voru þó aldrei gerðir.
Fyrir milligöngu skipasölunnar
seldi útgerðarfyrirtækið aðilum á
Vestfjörðum 5,99 tonna dekkaðan
plastbát. Umsamið kaupverð báts-
ins var 14,5 milljónir sem greiðast
átti með peningum inn á banka-
reikning skipasölufyrirtækisins.
Átti útgerðarfyrirtækið að fá féð af-
hent þegar öll veðbönd og allar
veiðiheimildir bátsins hefðu verið
færð af bátnum. Þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir var sú greiðsla ekki
innt af hendi.
Vísað til munnlegra samninga
Skipasalan hélt því fram að tekist
hefðu munnlegir kaupsamningar
milli útgerðarfélagsins og sín um
tvo nýsmíðabáta sem skipasalan
hafði til sölu. Hafi hún haft til þess
heimild að ráðstafa 12 milljónum
króna af andvirði plastbátsins sem
fyrstu greiðslum samkvæmt þeim
kaupsamningum, 6 milljónum inn á
hvorn bát. Fyrirsvarsmaður útgerð-
arfélagsins undirritaði umsóknir
um veiðileyfi til Fiskistofu vegna
nýsmíðabátanna en segir að til-
gangurinn með umsóknunum hafi
einungis verið að kanna hvort veiði-
leyfi fengist á bátana. Hann hafi
ekki haft nein yfirráð yfir bátunum,
heldur sótt um þetta í samráði við
starfsmann skipasölunnar sem hafi
útbúið umræddar umsóknir. Hafi
það skipt verulegu máli varðandi
hugsanleg kaup á bátum þessum
hvort veiðileyfi fengjust á þá, auk
þess sem miklu máli hefði skipt
hvernig bátarnir reyndust á sjó en
aldrei reyndi á það. Hafi því aldrei
komið til að af þessum kaupum
yrði.
Í niðurstöðum Héraðsdóms
Reykjavíkur í gær sagði, að telja
verði afar ótrúverðugt og í hæsta
máta óeðlilegt, þegar um svo mikil
verðmæti sé að ræða sem um geti í
meintum kaupsamningum, að vanur
sölumaður á skipasölu láti viðgang-
ast að ganga ekki frá formlegum
kaupsamningum þar um. Gegn neit-
un útgerðarfélagsins hvíli sönnun-
arbyrði þess að bindandi kaup-
samningar hafi stofnast á
skipasöluna. Hún hafi engin hald-
bær gögn lagt fram í málinu sem
styðji fullyrðingar um munnlega
kaupsamninga og gegn eindregnum
andmælum útgerðarfyrirtækisins
þyki það allsendis ósannað að slíkir
samningar hafi komist á og enn síð-
ur að skipa- og kvótasölunni hafi
verið heimil sú ráðstöfun á sölu-
verði plastbátsins sem raun ber
vitni. Þá liggi fyrir að samkvæmt
þeim óundirrituðu kaupsamningum
sem skipasalan hafi lagt fram til
stuðnings kröfum sínum, hefðu um-
ræddar innborganir, 6 milljónir inn
á hvorn bát, átt að greiðast við und-
irritun samninganna, en fyrir lægi
að þeir voru aldrei undirritaðir.
Annar bátanna þegar
verið seldur öðrum
Þá lægi fyrir í málinu að annar
nýsmíðabátanna hefði þegar verið
seldur öðrum og hefði skipa- og
kvótasalan ekki séð neina ástæðu til
að endurgreiða útgerðarfélaginu
það fé sem ráðstafað hafði verið
sem greiðsla inn á þann bát. Þvert
á móti mætti skilja á sölumanni hjá
skipasölunni að félaginu hafi borið
að fjármagna rekstur skipasölunnar
varðaði hina tilteknu nýsmíðabáta.
Segir ennfremur í niðurstöðum
dómsins, að skipasalan hafi ekki
virt skyldu um góðar viðskiptavenj-
ur sem á henni hvíldi samkvæmt
lögum og væri ljóst að fyrirsvars-
menn hennar hefðu í algeru heim-
ildarleysi ráðstafað fjármunum í
eigin þágu sem tilheyrðu útgerð-
arfélaginu og með þeirri saknæmu
og ólögmætu háttsemi hefðu þeir
valdið útgerðinni tjóni.
Skipasala greiði
útgerðarfélagi bætur
ÁRNI M. Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra, segir að ekki komi á óvart
að ákvörðunin um að steinbítur verði
utan kvóta á næsta fiskveiðiári sé um-
deild, en reglur þurfi að vera um
steinbítsveiðar og reynt verði að verja
steinbítinn á hrygningartímanum.
Fram kom í samtali við Halldór
Árnason, trillukarl á Patreksfirði, í
blaðinu í gær að ekki væri um neina
nýliðun í steinbít að ræða vegna þess
að hugsanlega hefðu togarar hrært
svo í hrygningarstöðvunum undan-
farin tvö til þrjú ár að klakið hefði al-
veg misfarist. Því væri svakalegt að
vísa öllum flotanum í steinbítinn.
Sjávarútvegsráðherra segir að
þessi ummæli um nýliðunina séu í
andstöðu við skýrslu Hafrannsókna-
stofnunar í ár og í fyrra en sjálfsagt
og rétt sé að skoða hvort hægt sé að
verja steinbítinn á hrygningartíman-
um. Reynt sé að stýra veiðum á marg-
víslegan annan hátt en með kvótum
og vel geti verið að það eigi við um
steinbítinn.
Í viðtalinu við Halldór Árnason
kom jafnframt fram að það gengi ekki
að hafa frjálsan aðgang að einum
stofni en kvóta í öðrum og farið yrði í
mál við ráðherra vegna þessa. Árni
M. Mathiesen segir að Halldór geti
haft mikið til síns máls varðandi kvóta
og ekki kvóta en þetta hafi verið
þannig að allar tegundir hafi ekki ver-
ið í kvóta. Hins vegar væri alveg ljóst
að ekki gengi að stýra veiði í einni og
sömu tegundinni með tveimur kerf-
um, annars vegar sóknarkerfi eða
frjálsri sókn og hins vegar kvótakerfi.
„Ég held að við Halldór séum sam-
mála um það,“ segir hann.
Sjávarútvegsráðherra um frjálsar veiðar á steinbít
Verja þarf steinbítinn
á hrygningartímanum
OPIN Íslandsmót í handflökun
sem og í netaviðgerðum og vírasp-
læsingum eru á dagskrá Hátíðar
hafsins sem hefst í kvöld og lýkur
á sunnudag.
Opna Íslandsmótið í handflökun
fer fram í áttunda sinn en keppnin
verður í Hafgarði í Faxaskála og
hefst kl. 10.30 í fyrramálið. Starfs-
fræðslunefnd fiskvinnslunnar, sem
er rekin af sjávarútvegsráðuneyt-
inu og Samtökum fiskvinnslu-
stöðva, stendur að mótinu og segir
Sigurbjörn Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Hátíðar hafsins, að
það sé til að minna á mikilvægi
þessarar verkgreinar, en handflök-
un er mikilvægur þáttur í útflutn-
ingsverðmætum sjávarafurða og
góðir handflakarar eftirsóttir. 19
manns tóku þátt í keppninni í
fyrra og fékk Ámundi S. Tómasson
hjá Sætoppi í Reykjavík flest stig
fyrir hraða, nýtingu og gæði.
Klukkan 12.30 á morgun hefst
svo fyrsta Íslandsmótið í netavið-
gerðum og vírasplæsingum á sama
stað. Sigurbjörn segir að Hátíð
hafsins hafi ákveðið að fara af stað
með þessa keppni til að minna á
sjóvinnuna og verkþekkinguna en
Hampiðjan, Félag járniðnaðar-
manna og Ísfell hf. hafi gert það
kleift með styrkjum að keppnin
yrði að veruleika.
Sjómenn
heiðraðir
Að öðru leyti er dagskráin mjög
fjölbreytt. Þar má nefna kynningu
skóla á menntun og störfum í sjáv-
arútvegi í tjaldborg á Miðbakka kl.
13 á morgun og minningarsýn-
inguna „Við minnumst þeirra“,
sem hefst í Listasafni Reykjavík-
ur, Hafnarhúsinu, kl. 10 í fyrra-
málið. Hún er til minningar um
1.297 íslenska sjómenn sem skráð-
ir eru í minningarbók Sjómanna-
dagsins frá því að hann var fyrst
haldinn 1938 og til sama dags árið
2000. Sýningin er byggð upp af
veggspjöldum með áletruðum
nöfnum þessara manna í tímaröð.
Listamennirnir og feðgarnir Torfi
Jónsson og Jóhann Torfason hönn-
uðu sýninguna og sáu um uppsetn-
ingu. Sjómannasamtökin eiga sýn-
inguna.
Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður Sjómannadagsráðs, setur
hátíðina kl. 14 á sunnudag en síðan
flytja Fjóla Sigurðardóttir, sjó-
mannskona í Grindavík, Guðrún
Pétursdóttir, forstöðumaður Sjáv-
arútvegsstofnunar HÍ, og Jón
Gunnarsson, formaður Slysavarn-
arfélagsins Landsbjargar, ávörp.
Að þeim loknum verða fimm sjó-
menn heiðraðir en hátíðarhöldum
lýkur kl. 17 á Miðbakka.
Opin Íslandsmót á Hátíð hafsins í Reykjavík
Netaviðgerðir, víra-
splæsingar og flökun