Morgunblaðið - 08.06.2001, Síða 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 27
Ert þú búin að bóka
þinn
HYDRADERMIE
tíma?
Spennandi tilboð hjá
Guinot snyrtistofum.
Viktoria Antik Síðumúla 34 Sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18,
lau. frá kl. 11-16.
20% afsláttur
í nokkra daga
Rými til fyrir nýjum vörum
VÍSINDAMENN í Kalíforníu hafa
fundið stjörnu, umkringda stóru
smástirnabelti, sem þeir telja að
svipi mjög til sólkerfis okkar jarð-
arbúa þegar það var að myndast
fyrir milljörðum ára.
Stjarnan sem um ræðir, Zeta
Leporis, er í um 70 ljósára fjarlægð
frá jörðu og er um 100 milljón ára
gömul.
Þrátt fyrir að vísindamennirnir
hafi ekki séð smástirnin sjálf, gefur
stærð og efnismagn rykskýs í
kringum stjörnuna tilefni til að ætla
að innan þess séu stærri hlutir á sí-
felldri hreyfingu. Slík ský eru
óstöðug og falla hratt í átt að
stjörnunni ef ekki er til staðar ferli
sem endurnýjar það. Þyngdarafl
smástirna og pláneta og árekstrar
gætu haldið við slíku skýi og eru í
raun líklegasta skýringin fyrir til-
vist þess. Ungur aldur stjörnunnar
eykur einnig líkurnar á því að smá-
stirni eða plánetur megi finna innan
rykskýsins.
Nýtt sólkerfi
í fæðingu
Pasadena. AP.
FRANSKA stjórnin hefur vikið
hershöfðingjanum Paul Auss-
aresses úr varaliði franska hers-
ins fyrir að verja pyntingar og
aftökur á skæruliðum og
óbreyttum borgurum í stríðinu í
Alsír á árunum 1954-62. Stjórn-
in sagði að hershöfðinginn hefði
valdið hernum álitshnekki með
því að „verja óréttlætanlegt
framferði“ sveita hans í Alsír-
stríðinu. Aussaresses er 83 ára
og settist í helgan stein fyrir
mörgum árum en hefur verið í
varaliði hersins þar til nú.
Skjalamál
Kohls verði
rannsakað
ÞÝSKA stjórnin hefur hvatt
saksóknara til að endurskoða þá
ákvörðun að hætta rannsókn á
ásökunum um að tveir starfs-
menn kanslaraembættisins hafi
eytt skjölum með ólöglegum
hætti áður en Helmut Kohl lét
af embætti árið 1998. Saksókn-
ararnir ákváðu að hætta rann-
sókninni í apríl og sögðu að ekk-
ert hefði komið fram sem benti
til þess að mennirnir hefðu
gerst sekir um lögbrot. Tals-
maður þýsku stjórnarinnar,
Uwe-Karsten Heye, sagði í gær
að hún teldi ástæðu til að rann-
saka ásakanirnar frekar og
hefði sent saksóknurum yfirlýs-
ingu um málið í vikunni sem leið.
Hann vildi ekki veita frekari
upplýsingar um yfirlýsinguna.
20 ár frá
greiningu
alnæmis
SAMEINUÐU þjóðirnar
minntust þess í fyrradag að tutt-
ugu ár eru liðin síðan alnæmi
var fyrst skilgreint sem sjúk-
dómur og vöruðu við því að út-
breiðsla þess ætti eftir að
aukast til muna. „Það var ekki
hægt að gera sér í hugarlund að
útbreiðsla alnæmis yrði svo
hröð að innan tuttugu ára hefðu
58 milljónir manna fengið sjúk-
dóminn og þar af hefðu 22 millj-
ónir látist af hans völdum,“
sagði yfirmaður alnæmisverk-
efnis SÞ, Peter Piot, á ráðstefnu
í Höfðaborg í Suður-Afríku.
Hvergi eru fleiri smitaðir af
HIV-veirunni en þar: 4,7 millj-
ónir eða níundi hluti íbúa lands-
ins. Fyrst var fjallað um alnæmi
sem sérstakan sjúkdóm í
skýrslu bandaríska smitsjúk-
dómaeftirlitsins í júní 1981.
Fjórum árum síðar hafði al-
næmi greinst í öllum heimsálf-
um.
STUTT
Vikið úr
hernum