Morgunblaðið - 08.06.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.06.2001, Qupperneq 28
NUNNA í karmelítaklaustrinu í Delgany-sýslu á Írlandi greiðir at- kvæði í gær en þá fór fram í landinu almenn atkvæðagreiðsla um tillögur um aðild fyrrverandi komm- únistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu að Evrópusambandinu. Búist var við dræmri kjörsókn, eða innan við 50 prósent. Írland er eina Evrópusam- bandsríkið þar sem almenn at- kvæðagreiðsla fer fram um svo- nefndan Nice-sáttmála sem nefndur er í höfuðið á borginni Nice í Frakk- landi þar sem samið var í fyrra um framtíðarstækkun Evrópusam- bandsins. Bertie Ahern, forsætisráð- herra Írlands, hvatti kjósendur til þess í gær að samþykkja sáttmálann. Atkvæða- greiðsla á Írlandi AP Vilja ræða fjárframlög DANSKA stjórnin hefur boðið fær- eysku landstjórninni til viðræðna um fjárframlag Dana til Færeyinga næstkomandi þriðjudag. Telur An- finn Kallsberg, lögmaður Færeyja, boðið til marks um að Poul Nyrup Rasmussen hyggist ekki verða við óskum færeysku landstjórnarinnar um viðræður um yfirtöku Færeyinga á ráðuneytum og stofnunum. Ástæð- an er sú að það er fjármálaráðherr- ann Pia Gjellerup sem sendi boðið fyrir hönd dönsku stjórnarinnar. Sagði Kallsberg í samtali við Ritzau að svo virtist sem Nyrup Rasmussen vildi ekki svara Færeyingum á já- kvæðan hátt. Færeyingar sjálfir hafa lagt til að dregið verði úr fjárframlagi Dana auk þess sem þeir hafa óskað eftir því að yfirtaka ráðuneyti og stofn- anir. Lagði Kallsberg fram ósk um viðræður um yfirtöku málaflokk- anna við forsætisráðherra í apríl sl. Við sama tækifæri lagði hann til að gerður yrði nýr þriggja ára samn- ingur um fjárframlag. Nyrup Rasmussen svaraði seinni óskinni í bréfi í maí þar sem hann sagði dönsk stjórnvöld telja heppi- legast að semja aðeins um eitt ár í senn. Þá sagði forsætisráðherrann að þrátt fyrir að meirihluti færeyska þingsins hefði samþykkt að öll ráðu- neyti og stofnanir yrðu yfirtekin í til- tekinni tímaröð, væri ekki hægt að verða við öllum óskum Færeyinga þar sem þær brytu í nokkrum til- fellum í bága við heimastjórnarlögin og dönsku stjórnarskrána. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Danmörk – Færeyjar ERLENT 28 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ SAMSTJÓRN jafnaðarmanna og kristilegra demókrata í Berlín lauk í gær er þeir fyrrnefndu sögðu sig úr henni vegna fjármálakreppunn- ar í borginni. Búist er við að efnt verði til nýrra kosninga og þykir ekki loku fyrir það skotið að arftak- ar austurþýska kommúnistaflokks- ins muni að þeim loknum fá nokkur áhrif á stjórn borgarinnar. Peter Strieder, leiðtogi jafnaðar- manna í Berlín, sagði í gær að sam- stjórn stóru flokkanna hefði ekki verið orðin annað en nafnið tómt og einkennst af gagnkvæmri tor- tryggni. Sagði hann að jafnaðar- menn samþykktu ekki þær neyð- arráðstafanir í fjármálum borg- arinnar sem Eberhard Diepgen, borgarstjóri og leiðtogi kristilegra demókrata, hefði kynnt. Glannaleg útlán Fjármálakreppan í Berlín stafar af gífurlegu útlánatapi Bank- gesellschaft Berli, banka sem er að 57% í eigu borgarsjóðs. Jós hann út fé á báðar hendur í þenslunni, sem var á fasteignamarkaði í borginni eftir sameiningu þýsku ríkjanna, og þarf nú strax að fá um 182 millj- arða íslenskra króna og 273 millj- arða alls til að komast hjá gjald- þroti. Kenna jafnaðarmenn Diepgen borgarstjóra og kristileg- um demókrötum um það hvernig komið er. Diepgen segist ekki hræddur við kosningar og hann sakar jafnaðar- menn um að ætla sér að leiða PDS, flokk lýðræðislegra sósíalista, arf- taka kommúnista, til áhrifa í borg- inni. Fastir í gamla kerfinu Fréttaskýrendur segja að báðir stóru flokkarnir í borginni hafi dagað uppi í því gagnkvæma hags- munakerfi er var við lýði er borgin var eins konar útvörður vestræns lýðræðis á tímum kalda stríðsins og naut þá ómældra styrkja. Með sameiningunni hurfu þessir styrkir smám saman án þess þó að borg- arfeðurnir breyttu mikið hugsunar- hætti sínum og starfsaðferðum. Hans Eichel, fjármálaráðherra Þýskalands, neitar að koma borg- inni til hjálpar með alríkisfé og sumir taka svo djúpt í árinni að segja að hún sé í raun gjaldþrota. Kristilegir demókratar, CDU, fengu tæplega 41% atkvæða í Berl- ín 1999, jafnaðarmenn, SPD, 22,4% og PDS tæp 18%. Nýlegar skoð- anakannanir gefa CDU 31%, SPD 29% og PDS 14%. Borgarstjórn Berlínar fallin vegna fjármálakreppu Jafnaðarmenn vilja nýjar borgarstjórnarkosningar Berlín. AFP, Reuters. DONALD Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi varnarmálaráðherra NATO- ríkja í Brussel í gær að Bandaríkja- stjórn myndi halda til streitu áform- um sínum um að koma upp eld- flaugavarnakerfi og að það væri „einfaldlega óhjákvæmilegt“ að fara á svig við Gagneldflaugasáttmálann frá 1972. Rumsfeld sagði Bandaríkjunum og bandamönnum þeirra stafa stöð- ugt meiri ógn af „útlagaríkjum“ og hryðjuverkahópum og að nauðsyn- legt væri að koma upp eldflauga- varnakerfi til að forða því að unnt væri að „halda þjóðunum í gíslingu.“ Rumsfeld kvað eldflaugavarnakerfi vera í þágu allra aðildarríkja NATO og hvatti bandalagsríkin til að leggja blessun sína yfir áformin. Boðskapur Rumsfelds virtist ekki fá meiri hljómgrunn en erindi Colins Powells, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, á fundi utanríkisráðherra NATO-ríkjanna í Búdapest í síðustu viku. En varnarmálaráðherrann sagði að viðræðum yrði haldið áfram, bæði við bandalagsríkin og Kínverja og Rússa sem hafa mót- mælt áformunum hvað ákafast. Rumsfeld mun taka málið upp á fundi með Sergei Ívanov, varnar- málaráðherra Rússa, í dag. Þá er búist við að eldflaugavarnir komi til umræðu á fundi George W. Bush Bandaríkjaforseta og Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta í Slóveníu í næstu viku. George Robertson, framkvæmda- stjóri NATO, vísaði því á bug í opn- unarræðu fundarins í gær að klofn- ings væri farið að gæta innan bandalagsins vegna eldflaugavar- naáforma Bandaríkjamanna. Ofbeldisverk í Makedóníu fordæmd Meðal annarra umræðuefna á fundinum í gær voru ástandið í Makedóníu og áform Evrópusam- bandsins um að koma upp hrað- sveitum til að bregðast við neyðar- ástandi og halda uppi friðargæslu. Robertson fordæmdi í gær of- beldisverkin í Makedóníu undan- farna daga og embættismenn innan NATO vöruðu Makedóníustjórn við því að lýsa yfir stríðsástandi í land- inu. Fundur varnarmálaráðherra NATO-ríkja í Brussel Rumsfeld mælir fyrir eldflaugavarnakerfi Brussel. AFP, AP. STJÓRNVÖLD í Suður-Kóreu hafa fagnað þeirri ákvörðun Bandaríkja- manna að hefja á ný viðræður um ör- yggismál og frið milli Norður- og Suður-Kóreu við kommúnistastjórn- ina í norðurhlutanum. George Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið í skyn að hægt verði að slaka á viðskipta- hömlum gegn Norður-Kóreu ef ár- angur næst í viðræðum um eld- flaugasmíði N-Kóreu. Bandaríkjamenn eru með um 30.000 manna herlið í Suður-Kóreu en þeir vörðu landið þegar komm- únistar réðust suður yfir landamær- in árið 1950 og reyndu að sameina ríkin tvö með valdi. Kóreustríðinu lauk 1953 en ekki hafa enn verið gerðir friðarsamningar milli deilu- aðila. Skýrt var frá stefnubreytingu Bandaríkjastjórnar á miðvikudag. Ekki hafði heyrst neitt um viðbrögð Norður-Kóreumanna í gær en þeir hafa að jafnaði mikið herlið á landa- mærunum að Suður-Kóreu. Óttast hinir síðarnefndu að norðanmenn gætu skyndilega gert árás yfir landamærin en höfuðborg S-Kóreu, Seoul, er skammt sunnan landamær- anna. Óformlegur fulltrúi Norður- Kóreu í Japan, Kim Myong Chol, fagnaði þó stefnubreytingu Bush og sagði Norður-Kóreumenn reiðubúna að hefja viðræður. Kóreuskaginn Tilboði um viðræður fagnað Seoul. AP. FLUGSAMGÖNGUR í Evrópu hafa raskast nokkuð vegna verk- falla starfsmanna þýska flug- félagsins Lufthansa og SAS í Danmörku. Aflýsa þurfti ferðum SAS á um 80 styttri leiðum í dag og hafa tvö sólarhringslöng verkföll flug- manna Lufthansa í maí valdið miklum truflunum á starfsemi félagsins. Verkfallið hjá SAS tekur til um 250 flugfreyja og annarra starfs- manna. Það tekur ekki til starfs- manna SAS í Noregi eða Svíþjóð en Anni Pickel, formaður stéttar- félags flugliða sagði í Berlingske Tidende að stjórn félagsins væri að athuga hvort færa ætti starfs- menn SAS í þessum löndum inn í deiluna. Aðallega er deilt um launamál, en nýir skattar hafa komið illa við starfsmennina. Talsmaður SAS segir hins vegar ósanngjarnt að krefjast þess að þeir gjaldi fyrir aðgerðir stjórnvalda sem það hef- ur engin áhrif á. Róttækar kröfur Yfirmenn Lufthansa reyna nú að ná samkomulagi við flugmenn félagsins en þeir krefjast 24 pró- senta hækkunar til samræmis við laun flugmanna annarra félaga. Vinnudeilur hafa bitnað mjög á starfsemi Lufthansa og féll hagn- aður af rekstri félagsins fyrstu þrjá mánuði ársins um 94 prósent miðað við sama tíma árið áður. Flugmennirnir segjast taka baráttuaðferðir bandarískra starfsbræðra sinna sér til fyrir- myndar en þær eru mun róttæk- ari en gerist og gengur á þýskum vinnumarkaði. Verkföll raska flugsamgöngum Frankfurt, Kaupmannahöfn. AP. ♦ ♦ ♦BANDARÍKIN og Kína hafa nú komist að samkomulagi um það hvernig megi flytja banda- rísku njósnavélina, sem hefur verið haldið á kínversku eynni Hainan síðan 1. apríl, aftur heim til Bandaríkjanna. Tals- maður kínverska utanríkis- ráðuneytisins sagði að sam- komulag um flutninginn hefði náðst sl. miðvikudag á fundi með bandarískum tæknimönn- um. Flugvélin mun verða tekin í sundur fyrir flutninginn og flutt til Bandaríkjanna með risastórri Antonov-vöruflutn- ingavél. Njósnavél- in flutt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.