Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
ÁRNI M. Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra, segir að aflareglunefnd
hafi verið endurvakin til að meta
sérstaklega hvaða áhrif reglan
hefði haft og bera það saman við
hvaða áhrif nefndin hafði gert ráð
fyrir að reglan hefði.
Sjávarútvegsráðherra skipaði
nefndina fyrir nokkru er verkefni
hennar að endurskoða skýrslu
vinnuhóps Hafrannsóknastofn-
unarinnar og Þjóðhagsstofnunar,
sem skilaði af sér í maí 1994, varð-
andi nýtingu einstakra fiski-
stofna. Nefndinni er ætlað að
meta þann árangur sem náðst hef-
ur í nýtingu þorsks, ýsu og rækju
og líta í því sambandi m.a. til
reynslu annarra þjóða. Nefndinni
er einnig falið það hlutverk að
skoða hvort unnt sé að ákvarða
langtímanýtingu annarra nytja-
stofna hér við land.
Breyttar aðstæður
Árni M. Mathiesen segir að áður
en hann hafi fengið skýrslu frá
fyrri aflareglunefnd í fyrra hafi
hann hugleitt að endurvekja
nefndina til að fara yfir málin í
ljósi breyttra aðstæðna. Þá hafi
þessar breyttu aðstæður falist í
því að nýir stórir árgangar hafi
komið í veiðina og menn séð fyrir
sér að hægt væri að auka kvótann.
Rallið í fyrra og skýrsla Hafrann-
sóknastofnunar hefðu hins vegar
frestað ákvarðanatöku.
Nefndin er að mestu leyti skip-
uð sömu mönnum og voru í fyrri
nefnd eða störfuðu með henni.
Brynjólfur Bjarnason er formaður
nefndarinnar en í henni sitja einn-
ig Friðrik Már Baldursson, vara-
formaður, Jóhann Sigurjónsson,
Gunnar Stefánsson, Þórður Frið-
jónsson, Sævar Gunnarsson, Ás-
geir Daníelsson og Kristján Þór-
arinsson.
Árni M. Mathiesen segir að það
sé að vissu leyti galli að nefndin
eigi að endurskoða eigin verk en í
skýrslunni séu ýmsar væntingar
og því sé mjög nauðsynlegt að
sömu menn komi aftur að málinu.
Til viðbótar komi svo annar ut-
anaðkomandi aðili sem hafi ekki
komið að málinu. Hann segir það
hafa verið mikinn sigur þegar
aflareglan hefði verið tekin upp
og hann hefði ekki gefið þá hugs-
un upp á bátinn en hugmy
fræðin byggi á því að stof
armatið sé nákvæmara en
reynst vera undanfarin fjö
Upphafið 1992
Það var í júlí 1992 sem Þ
steinn Pálsson, þáverandi
arútvegsráðherra, fólHaf
sóknastofnun að gera tillö
ráðherra um hvernig nýti
stakra fiskistofna skyldi h
með það að markmiði að h
afrakstri Íslandsmiða yrð
lengri tíma. Í framhaldi af
aði stjórn Hafrannsóknast
eftir samstarfi við Þjóðha
stofnun um þetta verkefn
janúar árið eftir var mynd
sérstakur vinnuhópur eða
en þá þegar var fyrirsjáan
mati fiskifræðinga að dra
verulega úr fiskveiðum.
Fyrir það fiskveiðiár hö
fiskifræðingar lagt til að v
Áhrif aflare
verða m
Á
RNI M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra
segir að þegar rætt sé
um skýrslu Hafrann-
sóknastofnunar um
nytjastofna sjávar verði að hafa í
huga að stofnstærðarmatið sé horn-
steinn ríkjandi kerfis. Aflareglan
byggist á stofnstærðarmatinu þann-
ig að ef matið stenst ekki standist
reglan ekki heldur. Aflamarkskerfið
deili síðan út heildaraflamarkinu
sem fáist út úr aflareglunni og sama
skekkja komi upp í kvótanum og í
heildaraflanum. Aflamarkskerfið
leiði af sér landaðan afla sem aftur
ákvarði stofnstærðarmatið en þarna
komi ákveðnir óvissuþættir inn eins
og brottkast og ólöglega landaður
afli. Umræðan að undanförnu hafi
farið mikið út í umræðu um afla-
markskerfið eða fiskveiðistjórnunar-
kerfið, en það virki ekki betur en
stofnstærðarmatið gefi tilefni til. Því
haldi hann að það hafi verið rétt hjá
Einari Hjörleifssyni fiskifræðingi
þegar hann sagði í útvarpsviðtali að
um fiskifræðilegt vandamál væri að
ræða en ekki pólitískt vandamál.
Úttekt Hafrannsóknastofnunar
besta mögulega matið
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segir að þótt skýrsla Haf-
rannsóknastofnunar um nytjastofna
sjávar á líðandi fiskveiðiári og afla-
horfur fiskveiðiárið 2001/2002, sem
hefst 1. september nk., hafi komið á
óvart miðað við samsvarandi skýrslu
í fyrra, sé vísindaleg úttekt Hafrann-
sóknastofnunar á ástandi nytja-
stofna við landið besta mat sem Ís-
lendingar hafi til að byggja
fiskveiðistjórnunina á. Þrátt fyrir
mistök og meiri óvissu en áætlað hafi
verið reyni ágætt starfsfólk Haf-
rannsóknastofnunar að gera sitt
allra besta og fá sem bestar niður-
stöður. Því verði að leggja þessa að-
ferðafræði áfram til grundvallar en
hún sé ekki fullkomin og þegar stað-
ið sé frammi fyrir nýframlagðri nið-
urstöðu, þar sem komið hafi fram að
þorskstofninn hafi verið ofmetinn
undanfarin fjögur, verði að skoða
málið mjög vel. Því hafi hann ákveðið
að fram fari viðamikil úttekt sem á
að vera lokið í haust.
Óskar eftir skýringum
Hafrannsóknastofnunar
Í fyrsta lagi óskar sjávarútvegs-
ráðherra eftir formlegum skýring-
um Hafrannsóknastofnunar á ofmati
á stofnstærð þorsk undanfarin fjög-
ur ár og þar á að greina á milli þátta
sem valdið hafa skekkjum í útreikn-
ingunum og óvissu. Enn fremur eiga
viðbrögð Hafrannsóknastofnunar
við þessu að koma fram og hvaða
áhrif þau eiga að hafa á stofnstærð-
armat í framtíðinni. Sérstaklega vill
hann fá umsögn um áhrif brottkasts.
Í öðru lagi óskar ráðherra form-
lega eftir því við Fiskistofu að gerð
verði grein fyrir þeim þáttum sem
geta haft áhrif á nákvæmni upplýs-
inga um landaðan afla og mat á þeim
þáttum, ef tiltækt er. Í þessu sam-
bandi er sérstaklega verið að tala um
löndun fram hjá vigt, ísun eða hlut-
fall íss sem má draga frá og slæging-
arhlutfall.
Óháður utanaðkomandi aðili
meti forsendur og mat
Í þriðja lagi hefur Árni M. Mathie-
sen ákveðið að fá utanaðkomandi að-
ila til að meta forsendur og mat Haf-
rannsóknastofnunar. Í fyrra fór
fram svona mat þar sem Hafrann-
sóknastofnun kallaði til aðila til að
vinna með sér, aðila sem höfðu áður
unnið með stofnuninni og þekktu því
til hennar og starfseminnar. Hann
segir að það geti verið jákvætt að
vinna þannig undir sumum
stæðum en eins geti verið já
fá aðila sem hefði ekkert
þessum málum, þekkti ekki
og hefði engin tengsl við
sóknastofnun eða íslenska
stjórnun og það yrði gert.
Aðspurður segist ráðhe
ákveðna aðila erlendis í hu
sem hann hafi verið í sam
og þekki, en hann vilji ekk
um hverja sé að ræða fyrr
hafi náð í þá.
Í fjórða lagi leggur sjáv
ráðherra áherslu á að stör
reglunefndarinnar verði hr
Árni M. Mathiesen segi
liðins árs hafi hann óskað ef
stjórn Hafrannsóknastofnu
sér tillögur um breytingar
um um stofnunina. Hann
samhliða allri skoðun á u
máli sé rétt að fram fari en
un á lögum um Hafrannsó
un innan sjávarútvegsráðu
Fyrsta verkið verði að fá
stjórnarinnar en síðan kom
úrvinnslunni.
Athugun á gagnrýn
Hafrannsóknastofn
Í sjötta lagi ætlar ráðher
fara fram athugun á því h
indalegur eða faglegur gru
sé fyrir fram kominni ga
störf Hafrannsóknastofnun
Óskar eftir víðt
skýringum á m
Árni M. Mathiesen sjá
viðbrögðum sínum
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra
ætlar að óska eftir víðtækum skýringum á
úttekt Hafrannsóknastofnunar á ástandi
nytjastofna við landið en áréttar að ekki sé
um áfellisdóm yfir stofnuninni að ræða.
Viðbrögð Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðher
MIKILVÆGT STARF ÍÐORÐANEFNDA
SIGUR VERKA-
MANNAFLOKKSINS
Breski Verkamannaflokkurinnvann stórsigur í þingkosning-unum í gær, ef marka má út-
gönguspár breska útvarpsins, BBC.
Með Tony Blair í broddi fylkingar
hefur Verkamannaflokknum nú tek-
ist að halda meirihluta í tvennum
kosningum, en Íhaldsflokkurinn, sem
eitt sinn var sagt að enginn stæði á
sporði þegar smala þyrfti atkvæðum,
situr eftir með sárt ennið.
Verkamannaflokkurinn hefur að
mörgu leyti verið allt annað en sann-
færandi undanfarið. Stjórn Blairs var
gagnrýnd fyrir það hvernig tekið var
á málum þegar gin- og klaufaveiki
blossaði upp í breskum búpeningi. Þá
hefur einnig verið höfð uppi hörð
gagnrýni á stöðu heilbrigðismála,
slælegar almenningssamgöngur,
skólakerfi í kröggum og að fólk sé
ekki óhult á götum úti.
Það er hins vegar til marks um
vanda Íhaldsflokksins að honum
skyldi ekki takast að færa sér það í
nyt að um sveitir Bretlands voru
dýrahræ brennd í haugum og í kjöl-
farið blasti við hrun í ferðaþjónustu.
Þótt kjósendur væru óánægðir með
frammistöðu Verkamannaflokksins í
heilbrigðis-, skóla- og samgöngu-
málum voru þeir enn síður tilbúnir til
að treysta Íhaldsflokknum fyrir þeim
málaflokkum.
Verkamannaflokkurinn þótti ekki
reka góða kosningabaráttu og fjöl-
miðlar gagnrýndu Blair og félaga
hans harðlega hvað eftir annað fyrir
að setja kosningauppákomur á svið.
William Hague, leiðtogi íhalds-
manna, leiddi ótrauður flokk sinn og
lét ekki deigan síga þótt ljóst hafi
verið frá upphafi að hann ætti í vænd-
um slæma útreið. Hague er flug-
mælskur. Hann hefur hvað eftir ann-
að sýnt það í breska þinginu að hann
getur hæglega kveðið andstæðinga
sína í kútinn og er Blair þar ekki und-
anskilinn. Hann þykir hins vegar lit-
laus persónuleiki og rökfimin ein
dugði honum ekki til að afla sér hylli
kjósenda. Vangaveltur um framtíð
hans eru þegar hafnar.
Íhaldsflokkurinn hefur verið á villi-
götum um nokkurt skeið. Hann er
klofinn í Evrópumálum og kemst ekki
út úr þeim vanda. Afstaða hans í mál-
um innflytjenda hefur verið óljós en
flokksforustan hefur lítið gert til að
hreinsa af sér stimpil andstöðu við út-
lendinga og hefur síður en svo verið
fánaberi umburðarlyndis.
Þá hefur verið ljóst af kosninga-
fundum flokksins að stuðningur
þeirra kemur úr einsleitum hópi
hvítra og eldra fólks.
Verkamannaflokknum tókst á hinn
bóginn að halda miðju stjórnmálanna
sem hann sölsaði undir sig undir
merkjum hinnar svokölluðu þriðju
leiðar 1997. Þá tókst flokknum að
sannfæra kjósendur um að hann gæti
farið með efnahagsmál og þeirri
ímynd hefur hann haldið.
Blair hefur sett sér það markmið
að 21. öldin verði öld Verkamanna-
flokksins við völd líkt og Íhaldsflokk-
urinn hafði tögl og hagldir mestan
hluta 20. aldarinnar. Þegar Morgun-
blaðið fór í prentun benti allt til þess
að hlutföll flokkanna á þingi yrðu lítið
breytt. Verkamannaflokkurinn hefur
því tryggt stöðu sína en Íhaldsflokk-
urinn hefur á brattann að sækja.
Öflug nýyrðasmíði hefur verið einaf undirstöðum íslenskrar mál-
ræktar. Tökuorð úr erlendum málum
eru til dæmis talin hlutfallslega færri
í íslensku en í norrænu málunum í
Skandinavíu. Þetta starf hefur ekki
síst verið unnið í íðorðanefndum á
vegum fjölmargra fag- og fræði-
greina og þá oftast í sjálfboðavinnu. Í
því hefur hinn almenni áhugi lands-
manna á verndun og rækt tungunnar
endurspeglast skýrlega.
Elsta starfandi íðorðanefndin er
orðanefnd rafmangsverkfræðinga en
hún varð sextíu ára 16. maí síðastlið-
inn. Nefndin stendur raunar á enn
eldri grunni, eins og fram kom í við-
tali við Berg Jónsson formann henn-
ar, þar sem þeir sem stofnuðu hana
höfðu sumir hverjir starfað í orða-
nefnd Verkfræðingafélags Íslands
sem stofnuð var 1919. Nefndinni hef-
ur líka haldist vel á fólki en aðeins
þrír formenn hafa verið fyrir henni
frá stofnun og meðalstarfstími þeirra
níu manna sem í henni sitja nú er 23
ár. Í nefndinni hefur þannig safnast
mikil þekking og reynsla. Er það tví-
mælalaust dýrmætt fyrir starf henn-
ar sem hefur verið árangursríkt en á
annan tug orðasafna hafa komið út á
vegum hennar. Nýyrðin sem nefndin
hefur smíðað á sextíu ára starfsferli
lita líka daglegt mál flestra Íslend-
inga en þar má geta orða eins og
skjár, segulsvið, raflögn, spennistöð,
rofi og tengill, loftnet, myndband og
hljóðband.
Nýyrðasmíði miðar að því að Ís-
lendingar geti notað íslensku á sem
flestum sviðum. Ekki eru allir sam-
mála um að þetta sé endilega nauð-
synlegt og tala um að einfaldara væri
að taka erlend orð inn í málið, þannig
mætti þar að auki koma í veg fyrir að
upphafleg merking hins erlenda orðs
og hugsanlegar aukamerkingar glöt-
uðust.
Rökin með nýyrðasmíðinni vega þó
þyngra. Þar má nefna hagkvæmnis-
rök á borð við þau að sjaldnast eru
áhöld um rithátt og beygingu nýyrða
af íslenskum stofnum og einnig eru
þau oftast gagnsæ sem gerir almenn-
ingi en ekki aðeins sérfræðingum
auðvelt að skilja þau. Menningarleg
og þekkingarleg rök eru ekki síður
veigamikil. Með hinni sífelldu glímu
við tungumálið er því haldið lifandi og
í tengslum við nýja tíma. Af þessari
glímu spretta líka ný sjónarhorn á
hlutina. Með aðlögun tungumálsins
að nýrri þekkingu eru Íslendingar
einnig að skapa nýja þekkingu þar
sem sú hefð sem býr í tungu þeirra og
menningu er virkjuð.
Það starf sem íðorðanefndir hafa
unnið er sannarlega mikilvægt.
Ástæða er til þess að hvetja þá sem
það stunda til enn frekari dáða.