Morgunblaðið - 08.06.2001, Page 48
MINNINGAR
48 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Persónuleg þjónusta
Slóð á heimasíðu okkar er
utfarir.is
Símar 567 9110 & 893 8638
✝ Geir Stefánssonvar fæddur í
Vopnafirði 22. júní
1912. Hann lést eftir
stutta sjúkralegu á
Landspítalanum í
Fossvogi 25. maí síð-
astliðinn. Foreldrar
Geirs voru Stefán
sjómaður, f. 27. júlí
1893, fórst með Leifi
heppna 7.–8. febr-
úar 1925, Magnús-
sonar bónda lengst í
Böðvarsdal í Vopna-
firði Hannessonar
og kona hans Þór-
unn Sigríður f. 6. október 1884,
d. 17. ágúst 1960 Gísladóttir
bónda á Stefánsstöðum í Skrið-
dal Jónssonar. Geir átti fimm
systkini, þar af fjögur hálfsystk-
ini. Albróðir hans var Garðar
Hólm Stefánsson, f. 6. febrúar
1909, d. 16. febrúar 1961. Bróðir
hans sammæðra var Hjálmar
Steindórsson, f. 27. apríl 1928, d.
17. maí 1997. Faðir Hjálmars var
Steindór Jóhannesson, síðar
kaupmaður á Vopnafirði. Stefán
kvæntist Jónu Guðnadóttur frá
Borgarfirði eystra, dætur
þeirra, hálfsystur Geirs sam-
feðra, eru 1) María, f. 12. októ-
ber 1919, d. 10. febrúar 1973, 2)
Helga, f. 26. apríl 1921, d.2.
febrúar 1944, 3) Guðný f.
14.ágúst 1922.
Geir varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1935 og
cand. juris frá Háskóla Íslands
1940.
Geir kvæntist eftirlifandi konu
sinni, Birnu Hjaltested, 18. maí
1937. Birna er dóttir séra Bjarna
Hjaltested, prests og kennara í
Reykjavík, og konu hans Stef-
anie Önnu fædd Berntsen. Börn
þeirra eru: 1) Guðrún Sigríður
fædd 29. maí 1938 í Reykjavík,
gift Stefáni Bjarnasyni skipa-
tæknifræðingi, þau eru barnlaus;
2) Anna Þórunn fædd 3. sept-
ember 1942 í Reykjavík, maki
hennar Justiniano de Jesus, þau
skildu. Börn þeirra eru Sigríður
(Níní) Hjaltested
lögfræðingur og
Anna María. Sigríð-
ur er gift Halldóri
Halldórssyni við-
skiptafræðingi og
eiga þau tvö börn,
Helenu Birnu og
Bjarna Geir. Anna
María á einn dreng,
Filip Má, 3) Birna
Hjaltested fædd 11.
október 1944 í
Reykjavík gift
Garðari Halldórs-
syni arkitekt. Börn
þeirra eru Margrét
Birna og Helga María viðskipta-
fræðingur. Margrét Birna á son-
inn Garðar Árna. Helga María
er gift Ingvari Vilhjálmssyni við-
skiptafræðingi en þau eiga dótt-
urina Þóru Birnu.
Starfsvettvangur Geirs Stef-
ánssonar var að mestu við versl-
un og viðskipti. Á stríðsárunum
rak hann eigið fyrirtæki í
Reykjavík. Haustið 1945 fór
hann með fjölskyldu sinni til
Stokkhólms þar sem hann hugð-
ist fara til framhaldsnáms í al-
þjóðarétti með alþjóðaverslunar-
rétt sem aðalfag. Við það nám
var hann í tvö ár en í sum-
arleyfum árin 1946 og 1947
starfaði hann í sendiráðinu í
Stokkhólmi, fyrst sem aðstoðar-
maður Vilhjálms Finnsen og síð-
an Helga P. Briem sendiherra.
Árið 1948 hóf hann rekstur út-
og innflutningsverslunar einkum
með íslenskar afurðir svo sem
síld, þar til hann fluttist aftur til
Íslands með fjölskyldu sína árið
1954.
Frá árinu 1954 og þar til hann
dró sig í hlé frá erli viðskipta-
lífsins árið 1986 rak hann fyr-
irtækið Transit Trading Co. og
fékkst hin síðari ár við innflutn-
ing m.a. á vinnuvélum og bygg-
ingavörum einkum frá Banda-
ríkjunum.
Jarðaför Geirs fer fram frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Í uppvexti mínum á árunum
1920 til 1940 gat það verið undir
ýmsu komið hverjum nánustu ætt-
ingja menn kynntust. Mestu réð
hversu dreifðir þeir voru um land-
ið og hvernig samgöngum var
háttað við hina ýmsu landshluta.
Nú var það svo að föðurfólk mitt
bjó flest á Hólsfjöllum, aðeins einn
föðurbróðir bjó niðri í Axarfirði.
Móðurfólk mitt var flest úr Vopna-
firði og víðar af Austfjörðum.
Amma okkar Geirs var frá Klaks-
vík í Færeyjum, skörungur hinn
mesti. Henni kynntist ég ekkert en
ég sá hana einu sinni áttræða er
hún kom með áætlunarbíl á Gríms-
staði. Hún ætlaði að halda áfram
sama daginn út á Víðirhól um það
bil 12 km. leið. Svo illa stóð á að
hvorki var hestur né bíll til reiðu
til að skjóta gömlu konunni en
henni þótti hlægilegt ef menn
héldu að hún gæti ekki gengið
þennan spöl. Um kvöldið féll nú
samt til bílferð.
Meðal frænda minna sem ég
kynntist ekki fyrr en seint og um
síðir voru bræðurnir Garðar Hólm
og Geir Stefánssynir. Þeir bjuggu
á Vopnafirði hjá móður sinni en
faðir þeirra Stefán Magnússon,
móðurbróðir minn, fórst með
togaranum Leifi heppna á Hala-
miðum í miklu ofviðri árið 1925 að-
eins 32 ára. Guðfinna Þorsteins-
dóttir frá Teigi í Vopnafirði rekur
þá atburði í bók sinni Vogrek.
Þriðji sonur Þórunnar hét Hjálmar
Steindórsson.
Á þessum tíma þurfti bæði
hörku og seiglu til að komast í
menntaskóla og ljúka stúdents-
prófi. Það gerði þó dálítill hópur
ungra manna úr Vopnafirði, meðal
annarra þeir frændur Geir Stef-
ánsson og Jón Halldórsson, Þórir
Guðmundsson, Þorsteinn Valdi-
marsson og fleiri. Menntaskóla-
piltar að austan sóttu gjarnan
Menntaskólann á Akureyri en það
gat verið tafsamt að komast á milli
vor og haust. Það var stórhapp að
fá skipsferð til Akureyrar en oft-
ast þurfti að fara landleiðina og
ganga yfir fjöll og firnindi eða fá
lánaðan hest. Mér er minnistætt
að kynnast þessum ótrauðu göngu-
mönnum en stundum fékk ég að
fylgja þeim frá Grímsstöðum aust-
ur að Dimmafjallagarði til að
stytta gönguna svolítið. Þeir voru
léttir á fæti og vanir göngumenn.
Geir af smalamennsku í Möðrudal
þar sem hann var nokkur skipti
kaupamaður á sumrin.
Eftir stúdentspróf settist Geir í
Lagadeild í Háskóla Íslands og
lauk embættisprófi árið 1940.
Hann hafði í huga að fara í frekara
nám í alþjóðarétti og hugðist ráða
sig til starfa í utanríkisþjónustuna.
Úr því varð þó ekki heldur lagði
Geir fyrir sig kaupsýslu og fékkst
bæði við inn- og útflutning.
Ævikafli sem Geir hafði gaman
af að segja frá voru viðskiptaferðir
sem hann fór suður um Evrópu
fyrstu árin eftir stríðið meðan
hvergi varð komist nema með því
að beygja sig undir fáránlegustu
reglur og fyrirmæli. Oft voru
mútugreiðslur eini möguleikinn til
að komast áfram.
Geir var glaðlyndur maður og
hrókur alls fagnaðar í samkvæm-
um. Hann var líka vel máli farinn,
málamaður góður og hélt snjallar
tækifærisræður. Hann var smekk-
maður um klæðaburð og hefði
vafalaust sómst sér vel sem
fulltrúi landsins á erlendri grund.
Kona Geirs er Birna Hjaltested úr
Reykjavík, stórfróð kona um
marga hluti og kann vel að segja
frá, ekki síst ef farið er út í ætt-
fræði. Nú er Birna orðin hálftíræð
og furðu hress, aðeins heyrnin far-
in að bila. Þeim gömlu hjónunum
var og er ekki síst mikill styrkur
af dótturdóttur sinni sem ólst upp
hjá þeim og manni hennar.
Þegar rætt var við þau hjónin
um kynni af öðrum löndum kom
fljótt í ljós að þau hjónin höfðu
hlýrri hug til Svía en flestra ann-
arra enda voru kynni þeirra af Sví-
þjóð og Svíum lengri en af öðrum.
Það var alltaf gestkvæmt hjá Geir
og Birnu, bæði úti í Svíþjóð og hér
heima og öllum tekið af rausn og
vel veitt. Minnistæður atburður í
lífi Geirs og Birnu var krýning
tveggja dætra þeirra sem fegurð-
ardrottninga, Íslands og Reykja-
víkur. Því fylgdi mikið umstang en
líka viðurkenning og athygli um-
heimsins.
En nú er skarð fyrir skildi og
aldursforseti fjölskyldunnar er
horfinn á braut. Verður nú að bera
sig vel og vona að maður komi í
manns stað.
Baldur Ingólfsson.
Kvaddur er tengdafaðir minn
Geir Stefánsson, lögfræðingur og
stórkaupmaður.
Liðin eru nú full 30 ár síðan ég
kynntist Geir Stefánssyni frá
Vopnafirði, fjölhæfum og aðsóps-
miklum athafnamanni, svo og fjöl-
skyldu hans. Þau hjónin Geir og
Birna, eiginkona hans, áttu þá
þrjár glæsilegar og gjafvaxta dæt-
ur, þegar ég að sumarlagi árið
1970 kynntist yngstu dótturinni
Birnu og í framhaldi þar af fjöl-
skyldunni allri. Við Birna giftum
okkur ári síðar og hafa leiðir okk-
ar Geirs legið saman síðan. Nú
hafa leiðir skilið um sinn en eftir
sitja minningar frá mörgum góð-
um samverustundum. – Það er
sjónarsviptir að manni eins og
Geir.
Á þeim árum þegar ég fyrst
kynntist Geir rak hann heildversl-
unina Transit Trading Co með
dælur,vinnuvélar, heimilistæki og
ýmsar járnvörur fyrir innréttinga-
smíði frá Bandaríkjunum, svo sem
skápahöldur, skápabrautir, hurð-
arhúna og bílskúrshurðarjárn.
Jafnframt heildsölunni rak hann
einnig smásölu, að Suðurlands-
braut 6, með sömu vörur. Á þann
hátt þótti Geir hann ná beinum
tengslum við markaðinn og takast
best að markaðssetja sínar vörur.
Þessar vörur urðu á þessum árum
mjög eftirsóttar og lögðu margir
leið sína til Geirs, húsbyggjendur,
iðnaðarmenn og arkitektar. Var ég
einn þeirra sem hafði lagt leið
mína í verslunina til Geirs, nokkru
áður en við Birna kynntumst. Átti
ég oft við hann viðskipti enda Geir
afburða sölumaður og vörurnar
góðar sem hann seldi. Geir setti
sig vel inn í allt sem laut að þess-
um vörum. Hann var jafnvígur
hvort sem hann brá fyrir sig þekk-
ingu iðnaðarmannsins, vélvirkjans
eða eðlisfræðingsins allt eftir því
sem við átti þegar hann lýsti gæð-
um þeirrar vöru sem hann var að
selja. Þegar ég heyrði hann lýsa
því hvernig dælurnar hans unnu
þá hélt ég að hann væri verkfræði-
menntaður, en komst að því síðar
að hann var lögfræðingur. Slík var
fjölhæfni Geirs en því átti ég eftir
að kynnast betur síðar, þegar
hann fjallaði um óskyld svið eins
og meðferð sjávarafla, mannkyns-
sögu, ættfræði eða skógrækt.
Geir hóf sinn feril ungur á sjón-
um og vann fyrir sér með námi á
bátum frá Vopnafirði. Áður en
hann lauk stúdentsprófi var hann
orðinn formaður á bát. Það veg-
arnesti sem hann fékk í uppeldinu
á Vopnafirði við kröpp kjör og
mikla vinnu settu mark á hann
ungan. Hann var alinn upp af
tveimur konum, ömmu sinni Guð-
rúnu og móður sinni Þórunni. Þór-
unn sem var einstæð bjó með móð-
ur sinni sem var umsjónarkona í
barnaskólanum á Vopnafirði og ól
þar upp drengina sína þrjá. Þór-
unn flutti síðar til Reykjavíkur eft-
ir að synirnir höfðu komið sér þar
fyrir. Faðir Geirs sem var sjómað-
ur á Vopnafirði og síðar í Reykja-
vík var bóndasonur úr Böðvarsdal.
Hann átti þrjár dætur með síðari
konu sinni, en fórst ungur með
togara rúmlega þrítugur að aldri,
en Geir var þá 13 ára gamall.
Geir vildi brjótast áfram, hann
vildi menntast, hann vildi vera
sjálfstæður og öðrum óháður.
Hann varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 23ja ára
gamall og lauk lögfræðiprófi frá
Háskóla Íslands 5 árum síðar. Á
háskólaárunum vann hann jafn-
framt fyrir sér með námi og tók þá
sín fyrstu skref í viðskiptalífinu,
þegar hann starfaði hjá Eiríki
Halldórssyni kaupmanni á Siglu-
firði. Heildverslunina Geir Stef-
ánsson Co h.f. stofnaði hann 1939
og rak hana með aðsetur að Aust-
urstræti 1 út stríðsárin allt til árs-
ins 1945. Hann verslaði þá einkum
með vefnaðarvörur og fatnað.
Þessi verslun reyndist honum
ábatasöm, hann lagði fyrir fé, en
dreymdi stærri drauma.
Að stríðinu loknu ákvað Geir að
fara til framhaldsnáms í lögfræði,
nánar tiltekið í alþjóðarétti með
verslunarrétt sem aðalfag. Hann
sagði þá skilið við fyrirtæki sitt og
góð lífskjör í Reykjavík og tók sig
upp með eiginkonu og þrjár dætur
og flutti til Svíþjóðar. – Eiginkona
mín Birna var þá tæplega eins árs
gömul. – Hann hóf nám við háskól-
ann í Stokkhólmi og tók á leigu
glæsilegt hús á mjög fallegum stað
í skerjagarðs-bænum Djursholm,
útbæ Stokkhólms. Þar undi fjöl-
skyldan við frábærar aðstæður og
mjög gott viðurværi næstu níu ár-
in. Geir var við háskólann í tvo
vetur en vann jafnframt við sendi-
ráð Íslands í Stokkhólmi á sumrin.
Geir hafði ætlað sér að kosta sitt
nám og uppihald í Svíþjóð með því
fé sem hann hafði lagt til hliðar frá
verslunarrekstrinum heima. Það
tókst þó ekki eins og nánar verður
vikið að og áður en varði var hann
kominn út í viðskipti og námið
varð að bíða.
Þegar að því kom að flytja þá
peninga sem þurfti vegna náms og
uppihalds frá Íslandi til Svíþjóðar,
þá stóð allt fast vegna þeirra hafta
sem þá voru í gjaldeyrismálum
hérlendis. Hann tekur því það til
bragðs að kaupa íslenskar afurðir
og selja þær í Svíþjóð. Verður það
upphafið að viðamikilli útflutnings-
verslun hans með íslenskar land-
búnaðar- og sjávarafurðir til Sví-
þjóðar og Mið-Evrópu. Geir ruddi
þar braut á mjög framsækinn hátt.
Hann seldi m.a. íslenska ull til
Ungverjalands og flutti vín og aðr-
ar ungverskar vörur til Svíþjóðar.
Á endanum fór þó fyrir honum
eins og mörgum öðrum íslenskum
athafnamönnum að stór sending af
gallaðri síld frá Íslandi kom hon-
um á kné og batt enda á versl-
unarrekstur hans í Svíþjóð á þess-
um árum. Þessi erfiða staða varð
til þess að hann fluttist aftur til Ís-
lands ásamt fjölskyldu sinni, vorið
1954, án þess að ljúka sínu fram-
haldsnámi.
Á árunum í Svíþjóð ráku Geir og
Birna heimili sitt með mikilli reisn.
Þau voru bæði mjög greiðvikin og
gestrisin. Heimili þeirra stóð opið
fjölmörgum Íslendingum sem leið
áttu um Stokkhólm á þeim árum.
Það lenti á Geir að leysa vanda
margra enda var hann boðinn og
búinn til þess og öllum hnútum
kunnugur á þessum slóðum. Það
má fullyrða að bæði beint og
óbeint hafi Geir verið sendiherrum
Íslands í Stokkhólmi mikill stuðn-
ingur á þessum árum. Upp úr
þeim samskiptum spratt m.a.
traust og gagnkvæm vinátta við
Helga P. Briem sendiherra og fjöl-
skyldu hans. – Mér hefur fundist
af samtölum mínum bæði við
Birnu tengdamóður mína og Geir,
að árin í Svíþjóð hafi verið há-
punktur þeirra sameiginlega lífs-
ferils. Þau voru ungt fólk á upp-
leið, bjuggu við góð efni í tæpan
áratug í stórkostlegu umhverfi
með þrjár ungar og tápmiklar
dætur.
Það var mikið áfall fyrir þau öll
að flytja aftur til Íslands, aðlaga
sig að öðru umhverfi og gjörólík-
um lífsstíl og búa fyrstu árin eftir
að þau fluttu heim við breytt kjör.
Árið 1954 stofnaði Geir fyrirtæki
sitt Transit Trading Co sem hann
rak síðan í rúm 30 ár. Lengi var
hann með aðsetur að Hverfisgötu
106 A, stundaði í fyrstu innflutn-
ing, en stofnsetti síðan Saumastof-
una Sunnu og framleiddi barna- og
unglingafatnað. Sá rekstur gekk
þó ekki lengi. Á einni af ferðum
sínum til Svíþjóðar um það leyti
kynnti hann sér framleiðslu á
minka- og refafóðri. Hann keypti
sér búnað, leigði frystiaðstöðu og
hóf að láta mala og frysta fiski-
úrgang og selja sem minka- og
refafóður til Norðurlanda, einkum
til Svíþjóðar. Þegar þessi nýju við-
skipti með minkafóðrið, sem hann
átti frumkvæði að, voru farin að
reynast arðvænleg, varð hann fyr-
ir enn einu áfallinu á árunum fyrir
og um 1960, þegar Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna tók þessi við-
skipti yfir og kom í veg fyrir að
aðrir kæmust þar nærri. Við lá að
þetta áfall gerði hann gjaldþrota.
Með seiglu og harðfylgi tókst hon-
um að halda á sínum rétti og ljúka
sínum uppgjörsmálum. Hann var á
þessum tíma mikið fjarri fjölskyld-
unni, í ferðum milli Íslands og
Norðurlanda og dvaldi um skeið
einn í Svíþjóð.
Í framhaldi þar af verður hann
nú í fjórða sinn að byrja nánast frá
grunni á nýjum viðfangsefnum.
Fyrir milligöngu Sigríðar dóttur
sinnar, sem þá bjó í Bandaríkj-
unum, komst hann í samband við
bandaríska framleiðendur á vinnu-
vélum og fjölbreyttri járnvöru og
hóf að flytja framleiðslu þeirra til
Íslands. Um 1968 kom hann sér
fyrir að Suðurlandsbraut 6 og rak
þar fyrirtæki sitt næstu 18 árin. –
Það er við upphaf þess reksturs
sem ég kynnist honum fyrst, spor-
léttum, kvikum, áhugasömum og
kraftmiklum viðskiptamanni sem
ávallt hélt ótrauður áfram – fullur
af eldmóði og væntingum um betri
hag – þótt á móti blési. Fyrirtækið
Transit Trading Co rak hann til
ársins 1986 þegar hann dró sig út
úr daglegum viðskiptum enda þá
kominn á áttræðisaldur.
Geir hafði yndi af lestri góðra
bóka, hann var þyrstur í allan
fróðleik. Hann var gæddur fjöl-
hæfri greind og kom því víða við
þegar hann leitaði fanga. Hin síð-
ari árin varð ættfræði honum mjög
hugleikin en einnig fróðleikur um
jörðina, geiminn og umhverfismál.
Geir hafði gaman af að tala um sín
hugðarefni, hann var léttur í við-
móti, gleðimaður á mannamótum,
söngmaður góður og átti létt með
að flytja snjallar tækifærisræður
þegar slíkt átti við. Hann hafði
gaman af glettni og sprelli og að
gantast við sín eigin börn á ár-
unum í Svíþjóð og síðar barna-
börnin hér heima. Geir var mikið
fyrir útiveru þegar tóm gafst til og
stundaði skíðamennsku og skóg-
argöngur með börnunum í Svíþjóð.
Hér heima var hans unaðsreitur í
sumarhúsinu að Arnarbóli. Þar
undi hann best í fríum á sumrin í
tengslum við kyrrðina og jörðina
GEIR
STEFÁNSSON