Morgunblaðið - 08.06.2001, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 63
Fatnaður á
ótrúlegu verði!
ÚTSALA
Verslun Dalvegi 2 Kópavogi – Sími 564 2000
Bolir frá . . . . . 490
Peysur frá . . . . 995
Buxur frá . . . . 795
Dragtir frá . . . 4900
Blússur frá . . . 1295
Pils frá . . . . . . 795
Jakkar frá . . . 1995
sumar
Bolir Margar gerðir og litir
- Allar stærðir
útsala frá
kr. 490,-
útsala
kr. 2995,-
Blazer - jakkar
3 litir
Stærðir 38 - 50
Hlýrabolur og
jakkapeysa.
4 litir, stærðir 36 -50
Pils í stíl í
sömu litum
Dragtir
3 litir,
stærðir 38 - 50
útsala
kr. 5490,-
Pils útsala
kr. 1995,-
Bolur og peysa
kr. 1995,-
Stór og
lítil númer Þýsk gæðavara!
ÍSLENSKU skákmennirnir á
Evrópumótinu í skák hafa fæstir lent
í jafnerfiðu skákmóti áður. Í nær
hverri umferð er and-
stæðingurinn stór-
meistari, eða í ein-
staka tilvikum
alþjóðlegur meistari.
Hannes Hlífar Stef-
ánsson er reyndastur
og stigahæstur ís-
lensku keppendanna
og hefur fengið flesta
vinninga, eða 3½ eftir
6 umferðir. Markmið
Hannesar í þessu
móti eru tvö. Annars
vegar að ná einu af 46
efstu sætunum og
tryggja sér þannig
þátttöku í heims-
meistaramótinu og
hins vegar að hækka á stigum og
nálgast þannig enn frekar 2.600
stiga-múrinn. Enn sem komið er á
hann góða möguleika á að ná þessum
markmiðum, þrátt fyrir tap í sjöttu
umferð gegn þýska ofurstórmeistar-
anum Alexander Graf (2.649). Eftir
það tap er Hannes í 44.–85. sæti á
mótinu og frammistaðan er nokkurn
veginn í takt við skákstigin. Skák-
áhugamenn munu því fylgjast fullir
áhuga með framhaldinu hjá Hann-
esi.
Ungu skákmennirnir þrír, Stefán
Kristjánsson, Jón Viktor Gunnars-
son og Bragi Þorfinnsson, geta tæp-
lega gert sér vonir um að ná einu af
46 efstu sætunum á mótinu, enda eru
þeir í hópi mikils minnihluta þátttak-
enda sem eru með innan við 2.400
skákstig. Engu að síður er þetta
skákmót gríðarlega mikilvægt fyrir
þá. Í fyrsta lagi er mótið góð þjálfun,
en ungir íslenskir skákmenn hafa
ekki verið nógu duglegir á undan-
förnum árum að taka þátt í sterkum
alþjóðlegum skákmótum. Þátttaka í
þessu móti á því eftir að verða þeim
gott veganesti fyrir frekari framfar-
ir. Í öðru lagi geta allir þessir þrír
ungu skákmenn gert sér góðar vonir
um að ná titiláföngum á mótinu og
þar gera stigaháir andstæðingar
ekkert annað en að auka líkurnar.
Stefán Kristjánsson er stigahæstur
þeirra og er með 2.371 skákstig.
Hann er titillaus og stefnir því að
áfanga að alþjóðlegum meistaratitli,
sem reyndar yrði þá annar áfangi
hans. Eftir fyrstu sex umferðirnar
virðist Stefán vera á góðri leið með
að ná þessu markmiði. Í sjöttu um-
ferð gerði hann jafntefli við pólska
stórmeistarann Jacek Gdanski
(2.528), en eftir tap í fyrstu tveimur
skákunum hefur hann fengið þrjá
vinninga af fjórum gegn sterkum
andstæðingum. Meðalstig andstæð-
inga Stefáns eru 2.528, en Stefán
hefur sýnt það allt frá fyrstu skák-
mótunum sem hann tók þátt í, að
hann ber enga virðingu fyrir and-
stæðingunum óháð titlum þeirra og
skákstigum. Í fyrstu sex umferðun-
um er vinningafjöldi Stefáns 1,68
umfram það sem búast mátti við
samkvæmt skákstigum. Það verður
því mjög fróðlegt að fylgjast með
framvindu mála hjá Stefáni.
Jón Viktor Gunnarsson (2.366) er
alþjóðlegur skákmeistari og stefnir
því að sínum fyrsta stórmeistara-
áfanga. Hann tapaði fyrir spænska
stórmeistaranum Pablo San Seg-
undo (2.508) í sjöttu umferð og er nú
með 2 vinninga. Það verður því á
brattann að sækja fyrir hann í þeim
umferðum sem eftir eru ef hann ætl-
ar sér að ná stórmeistaraáfanga.
Engu að síður er styrkleiki andstæð-
inga hans slíkur, að frammistaða
hans er betri en stigin gefa til kynna.
Bragi Þorfinnsson (2.292) fór
beint á þetta skákmót að afloknum
vorprófum og hafði því engan tíma til
að undirbúa sig. Reyndar á það því
miður við um alla íslensku skák-
mennina, að þeim var ekki kunnugt
um þetta mót og mikilvægi þessi fyrr
en skömmu áður en það hófst. Bragi
er með 2 vinninga eins og Jón Viktor
eftir að hafa gert jafntefli við ítalska
stórmeistarann Alexander
Zlochevskij (2469) í sjöttu umferð.
Bragi hefur einungis tapað tveimur
skákum, þrátt fyrir að
vera einn stigalægsti
keppandinn á mótinu, en
hefur gert jafntefli í hin-
um fjórum. Líkt og hinir
tveir ungu skákmennirn-
ir er frammistaða hans
betri en ætla mætti sam-
kvæmt skákstigum. Þótt
Bragi sé fjær því að eiga
möguleika á áfanga að
alþjóðlegum meistara-
titli heldur en Stefán má
ekki gleyma því, að enn
eru sjö umferðir til loka
mótsins og margt óvænt
á eftir að gerast!
Staða Íslendinganna
að loknum sex umferð-
um er þessi:
44.–85. Hannes Hlífar 3½ v.
86.–135. Stefán Kristjánsson 3 v.
156.–186. Jón Viktor 2 v.
156.–186. Bragi Þorfinnsson 2 v.
Það er við hæfi að skoða hand-
bragðið hjá Stefáni Kristjánssyni á
þessum tímapunkti, en hann lagði al-
þjóðlega meistarann og Rússann
Smirnov að velli í fimmtu umferð.
Hvítt: Pavel Smirnov (2.511)
Svart: Stefán Kristjánsson
Frönsk vörn
1.e4 e6 2.d4 d5 3.Rc3 Bb4 4.e5
Re7 5.a3 Bxc3+ 6.bxc3 c5 7.Dg4
Kf8!?
Stefán gefur ekki peðið á g7 bar-
dagalaust eins og margir gera.
8.h4 --
Armenski stórmeistarinn, Minasj-
an, lék 8.Bd2 gegn Stefáni í fyrstu
umferð mótsins. Stefán lenti í þeirri
skák í þrengingum, sem hann fann
enga leið út úr: 8. -- Rbc6 9.Rf3 Da5
10.a4 Bd7 11.Be2 h6 12.0–0 Dc7
13.h4 Ra5 14.h5 Rc4 15.Bxc4 dxc4
16.dxc5 Dxc5 17.Bc1 He8 18.Ba3 Dc8
19.Rd2 Bc6 20.Rxc4 Dc7 21.Rd6
o.s.frv.
8...Da5
Til greina kemur 8...Dc7, t.d.
9.Dd1 Bd7 10.Bd2 Ba4 11.Bd3 Rbc6
12.Rf3 c4 13.Be2 Ke8 14.h5 h6
15.Rh4 Kd7 16.f4 Hag8 17.Bg4 g5!,
með nokkuð jöfnu tafli (Leko-Illesc-
as, Ubeda 1997).
9.Bd2 Da4 10.Hc1 Rbc6 11.h5 h6
12.Rf3 b6 13.Hh3 Ba6 14.Bxa6 Dxa6
15.Rh4 cxd4
Þetta mun vera nýr leikur í stöð-
unni. Í skákinni, Malinin-Legky,
París 2000, varð framhaldið 15...Dc4
16.Hg3 Hg8 17.Df4 Ke8 18.Hf3 Kd7
19.De3 cxd4 20.cxd4 Rxd4 21.Hxf7
Ke8 22.Hf4 Rxc2+ 23.Hxc2 Dxc2
24.Rg6 Rxg6 25.hxg6 Hc8 26.Dh3
Dxg6 27.Hf6 gxf6 28.Dxe6+ Kf8
29.Dxc8+ De8 30.Bxh6+ og svartur
vann í 44 leikjum.
16.cxd4 Dc4 17.Hg3 Hg8 18.c3
Hc8 19.f4 f5!? 20.exf6 ep? --
Sóknartilburðir hvíts hafa engan
árangur borið. Hann hefði átt að
hörfa með drottninguna til h3 (eða
jafnvel d1), þótt svartur standi betur
í því tilviki. Eftir leikinn í skákinni
lendir hvítur í miklum erfiðleikum.
20...gxf6 21.Rg6+ --
Eftir 21.Dh3 Kf7 22. Hxg8 Hxg8
23. f5 exf5 24. Bxh6 Hh8 25. Bf4
Hxh5 26. Dg3 Hh8 stendur svartur
einnig mun betur.
21...Kf7 22.Dh3 Rf5! 23.Hd3
Rce7!
Það eru tök svörtu riddaranna á
hvítu reitunum, f5 og e4, sem tryggja
svarti sigurinn í skákinni.
24.g4 Rd6 25.He3 Re4 26.f5? --
Nú hrynur hvíta staðan. Skárra er
að bíða átekta með 26.Rxe7 Kxe7
27.He2, t..d. 27. -- Hg7 28. Df3 Hcg8
29. Hg2 f5 30. g5 hxg5 31. fxg5
Rxg5+ 32. Bxg5 Hxg5 33. Hxg5
Hxg5 34. h6. Hg1+ 35. Kd2 Da2+
36. Hc2 Da1 37. De2 Hh1 og svartur
á vinningsstöðu.
26...exf5 27.gxf5 Hce8 28.Dg4? --
Ekki gengur 28.Rf4? Hg1+
29.Df1 Hxf1+ mát.
28...Dc8! 29.Hf3 --
Nú eru það hótanir um fráskák á
e-línunni, ásamt hótunum á g-lín-
unni, sem gera út um skákina, svarti
í vil.
29...Rg5! 30.Rxe7 --
Eða 30.Bxg5 Rxg6+ 31.Be3 Re5
og svartur vinnur
30...Hxe7+ 31.Kd1 --
Eða 31.He3 Re4 32.Df4 Hg1+ 33.
Ke2 Dc4+ 34. Hd3 Rxd2+ 35. Kxd2
Hg2+ og vinnur.
31...Rxf3 32.Dxf3 Dc4 33.Kc2 He2
34.Hd1 Hgg2 35.Df4 --
35...Hxd2+! 36.Hxd2 Da2+
37.Kd3 Db1+ 38.Ke3 De1+
og hvítur gafst upp, því að hann
verður mát eftir 39. Kd3 Hxd2+ 40.
Dxd2 De4+.
Meistaramót Skákskólans
hefst í kvöld
Meistaramót Skákskóla Íslands
hefst í kvöld, föstudaginn 8. júní,
klukkan 20.
Góð verðlaun eru í boði. Mótinu
lýkur sunnudaginn 10. júní. Tefldar
verða sjö umferðir á mótinu, fyrst
þrjár atskákir og síðan fjórar kapp-
skákir. Teflt verður í húsnæði Skák-
skóla Íslands í Faxafeni 12.
Úr mótaáætlun
Skáksambandsins
8.6. Meistaramót Skákskólans
10.6. Hellir. Bikarmót Striksins
13.6. TR. Boðsmótið
16.6. Hellir. Mjóddarmótið
22.6. TG. Íslandsm. 60 ára og e.
23.6. TR. Helgarskákmót
Baráttugleði á
erfiðu Evrópumóti
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
Stefán Kristjánsson
SKÁK
O h r i d , M a k e d ó n í a
EVRÓPUMÓTIÐ Í SKÁK
1.–15.6. 2001
FRÉTTIR
Betri fætur
betri líðan
á góðum skóm
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 14-18 og laugard. kl. 10-14.
Skóbúðin
KRISTBJÖRG Kristmundsdóttir
jogakennari og grasakona mun
leiðabeina um tínslu og gagnsemi ís-
lenskra heilsu- og lækningajurta-
jurta í Alviðru laugardaginn 9. júní
kl. 14–16.
Farið verður um land Alviðru við
Sog í Ölfusi og jurtir tíndar.
Hafi þátttakendur áhuga, er
Kristbjörg reiðubúin að halda stutt
námskeið í framhaldi af fyrirlestri
sínum þar sem farið yrði ýtarlegar í
efnið, segir í fréttatilkynningu.
Tímasetning námskeiðsins yrði í
samráði við þátttakendur.
Boðið verður uppá jurtate, kakó
og kleinur. Þátttökugjald á fyrirlest-
urinn 9. júni er 600 kr fyrir fullorðna,
400 fyrir 12–15 ára.
Sumardag-
skrá í
Alviðru við
Sog í Ölfusi
HALDIN verður alþjóðleg hunda-
sýning Íshunda í íþróttahúsinu í
Mosfellsbæ laugardaginn 9. júní nk.
og hefst sýningin kl. 9:00 og stendur
til kl. 19:00.
Íshundar voru stofnaðir 27. apríl
árið 2000 og er félagið aðili að alþjóð-
legum samtökum. Þetta verður
fyrsta sýning Íshunda, aðgangseyrir
er 500 kr. fyrir fullorðna en frítt fyrir
börn. Veitingar á staðnum.
Alþjóðleg
hundasýning
Íshunda
♦ ♦ ♦