Morgunblaðið - 08.06.2001, Side 64
DAGBÓK
64 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
SKÝRSLA nefndar um konur ogfjölmiðla, sem birt var fyrir
skömmu, hefur vonandi vakið fjöl-
miðlafólk til tímabærrar umhugsun-
ar.
Niðurstöðurnar hafa verið raktar í
Morgunblaðinu, en í stuttu máli
leiddi könnun nefndarinnar í ljós að
konur birtast aðeins í um 30% af út-
sendu sjónvarpsefni á kjörtíma. Tal-
að mál kvenna er einungis um 15% á
móti 85% talaðs máls karla. Af dag-
blöðum er sömu sögu að segja, mun
meira er fjallað um karla en konur.
Það er einkum í málaflokkum eins og
minningargreinum og slúðurfréttum
sem konur fá hlutfallslega mesta
umfjöllun.
x x x
VÍKVERJI, sem er bæði umhug-að um jafnréttismál og vandaða
fréttamennsku, er afar uggandi yfir
þessum niðurstöðum. Jafnvel þó enn
sé langt í land með að fullu jafnrétti
kynjanna sé náð er deginum ljósara
að ofangreindar tölur endurspegla
engan veginn íslenskan veruleika.
Kannski fyrir tuttugu árum, en ekki
í dag. Enginn getur sannfært Vík-
verja um að það sé ekki ástæða fyrir
fréttamenn til að ræða við konur
nema í 15% tilfella. Konur hafa hasl-
að sér völl á nær öllum sviðum, kom-
ist til hæstu metorða í atvinnulífi,
stjórnmálum, listum og akademí-
unni, og eru engu síður trúverðugir
fulltrúar sinna stétta en karlmenn.
x x x
EFTIR útkomu skýrslunnar hafafulltrúar ýmissa fjölmiðla borið
því við að konur séu tregari til við-
tala en karlar og það skýri þessi
ójöfnu hlutföll að nokkru leyti. Vík-
verji telur þó að Siv Friðleifsdóttir
hafi hitt naglann á höfuðið í sjón-
varpsþætti um konur og fjölmiðla,
með þeim ummælum að þetta væru
fyrst og fremst hentugar eftiráskýr-
ingar.
Víkverji hefur unnið við frétta-
mennsku bæði á dagblaði og í sjón-
varpi og man ekki eftir að kona hafi
nokkru sinni beðist undan því að
koma í viðtal. Aldrei. Í tilefni skýrsl-
unnar spurði Víkverji auk þess
nokkur starfssystkin sín um málið og
könnuðust þau heldur ekki við að það
væri í raun og veru nokkuð erfiðara
að fá konur til viðtals en karla.
Getur ekki verið að þetta sé ein af
þeim fjölmörgu klisjum um kynin og
meintan mun þeirra, sem hafa átt
hvað ríkastan þátt í því að tefja fram-
gang jafnréttisbaráttunnar? Ef sú
klisja er útbreidd að það sé erfiðara
að fá konur til að tjá sig eða koma
fram, getur ekki verið að blaða- og
fréttamenn leggi trúnað á það án
umhugsunar? Og að það hafi þær af-
leiðingar að fjölmiðlafólk hafi síður
samband við konur, þótt fyllsta
ástæða væri til? Víkverja grunar að
svo sé.
Sú spurning vaknar hvers vegna
nefndin um konur og fjölmiðla hafi í
skýrslu sinni endurómað þessa klisju
gagnrýnislaust og ekki gert neina
tilraun til að kanna hvort hún ætti
við rök að styðjast. Nú eða reynt að
kveða hana niður.
x x x
VÍKVERJI verður einnig að lýsavonbrigðum með ummæli
kunns spjallþáttastjórnanda í fyrr-
nefndum sjónvarpsþætti um konur
og fjölmiðla. Reyndi hann að verja
kvennafæð í þáttum sínum með því
að hann myndi aðeins eftir einni
konu í ungliðapólitíkinni og lét auk
þess að því liggja að konur hefðu al-
mennt lítinn áhuga á pólitísku arga-
þrasi. Slíkur málflutningur dæmir
sig sjálfur.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Kyndill, Árni Frið-
riksson, Snorri Sturlu-
son, Askur, Ásbjörn,
Freri, Þerney, Málmey,
Vigri og Örfirisey
koma í dag. Mánafoss
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Tjaldur kemur í dag.
Olrik, Ostrovets og
Olshana fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 14
bingó.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíðastofan,
kl. 13.30 bingó.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–16 almenn
handavinna og fótaað-
gerð, kl.9.30 kaffi/
dagblöð, kl. 11.15 mat-
ur, kl. 13 spilað í sal, kl.
15 kaffi.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl.10 verslunin opin,
kl.11.30 matur, kl. 13
„opið hús“, spilað á spil.
kl. 15 kaffi.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Í
dag er bridge kl. 13:30
og pútt á vellinum við
Hrafnistu kl. 14 til 16.
Á morgun laugardags-
gangan kl. 10 frá
Hraunseli. Þriggja daga
ferð til Hornafjarðar
hefur verið breitt, farið
verður þriðjudaginn 3
júlí til 5. júlí, farseðlar
seldir í dag og mánudag
og þriðjudag 11. og 12.
júní. Orlofið á Hótel
Reykholti í Borgarfirði
26.–31.ágúst nk. Skrán-
ing hafin, allar upplýs-
ingar í Hraunseli, sími
555-0142
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10 til 13. Matur í há-
deginu. Ath: Farin
verður dagsferð 10. júni
austur í Mýrdal, farið
verður m.a. niður að
Görðum í Reynishverfi,
upp í Heiðardal, að
Skógum og Vík. Leið-
sögn: Ólöf Þórarins-
dóttir. Vinsamlegast
skráið ykkur sem fyrst
og sækið farmiða.
Dagsferð 13. júní.
Nesjavellir-Grafningur-
Eyrarbakki. Húsið–
Sjóminjasafnið á Eyr-
arbakka skoðað. Leið-
sögn: Tómas Einarsson
og Pálína Jónsdóttir.
Eigum ennþá nokkur
sæti laus. 19.–22. júní.
Trékyllisvík 4 dagar
gist að Valgeirsstöðum í
Norðurfirði svefnpoka-
pláss. Ekið norður
Strandir. Farið í göngu-
ferðir og ekið um sveit-
ina. Ekið heimleiðis um
Tröllatunguheiði eða
Þorskafjarðarheiði. Síð-
ustu skráningardagar.
Eigum nokkur sæti
laus. Leiðsögn Tómas
Einarsson. Silfurlínan
er opin á mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 fh. í síma 588-2111.
Upplýsingar á skrif-
stofu FEB kl. 10 til 16 í
síma 588-2111.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13 opin
vinnustofa, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids.
Gerðuberg, félagsstarf,
kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar m.a. bútasaumur
og fjölbreytt föndur,
umsjón Jóna Guðjóns-
dóttir frá hádegi spila-
salur opinn. Á mánu-
dögum kl. 15.30 er dans
hjá Sigvalda, ekkert
skráningargjald, allir
velkomnir. Miðvikudag-
inn 21. júní Jóns-
messufagnaður í Skíða-
skálanum í
Hveradölum. Miðviku-
daginn 27. júní ferðalag
í Húnaþing vestra, nán-
ar kynnt. Sumardag-
skráin komin. Veitingar
í kaffihúsi Gerðubergs.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9.30–16.
Hraunbær 105. Kl. 9–
12 baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 10–12
pútt, kl. 11 leikfimi.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
baðþjónusta og hár-
greiðsla, kl. 9–12.30
bútasaumur, kl. 11 leik-
fimi.
Norðurbrún 1. Kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9–12.30
útskurður, kl. 10 ganga.
Vesturgata 7. Kl. 9
dagblöð, kaffi, fótaað-
gerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15 almenn handa-
vinna, kl. 10–11 kántrý,
kl. 11–12 stepp, kl.
11.45 matur, kl. 13.30
sungið, Katrín Jóns-
dóttir við flygilinn, kl.
14.30 dansað undir
stjórn Sigvalda, vöfflur
með rjóma í kaffitím-
anum. Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband, og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerð, kl. 11.45
matur, kl. 13.30 bingó,
kl. 14.30 kaffi.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Spilað kl. 13.15.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laug-
ardögum.
Kiwanisklúbburinn
Geysir í Mosfellsbæ
heldur spilavist í kvöld
kl. 20.30 í félags-
heimilinu Leirvogs-
tungu. Kaffi og með-
læti.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16–25 ára) að mæta
með börnin sín á laug-
ardögum kl.15–17 á
Geysir, Kakóbar, Að-
alstræti 2 (Gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Ellimálaráð Reykjavík-
urrprófastdæma, Breið-
holtskirkju við Þang-
bakka. Skálholtsskóli,
ellimálanefnd þjóðkirkj-
unnar og ellimálaráð
Reykjavíkurprófasts-
dæma efna til sum-
ardvalar fyrir eldri
borgara í Skálholti.
Boðið er til fimm daga
dvalar í senn og raðast
þeir þannig: 25 til 29.
júní, 2 til 6 júlí og 9 til
13. júlí. Allar nánari
ulýsingar eru veittar á
skrifstofu ellimálaráðs
Reykjavíkurprófasts-
dæma f.h. virka daga í
síma 557-1666.
Haukar, öldungaráð.
Sumarferðin er 13. júní.
Skráning í símum 555-
0176 eða 555-0852.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Brúðubíllinn
Brúðubílinn, verður í
dag kl. 10 við Hamravík
og á mánudaginn kl. 10
við Brekkuhús og kl. 14
við Arnarbakka.
Minningarkort
Minningarkort Sam-
taka sykursjúkra fást á
skrifstofu samtakanna
Tryggvagötu 26,
Reykjavík. Opið virka
daga frá kl. 9–13, s.
562-5605, bréfsími 562-
5715.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félagsins
eru afgreidd í síma 540
1990 og á skrifstofunni í
Skógarhlíð 8. Hægt er
að senda upplýsingar í
tölvupósti (minn-
ing@krabb.is).
Minningarkort Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu,
eru afgreidd í síma 551-
7868 á skrifstofutíma og
í öllum helstu apótek-
um. Gíró-og kred-
itkortagreiðslur.
Minningarkort For-
eldra- og vinafélags
Kópavogshælis
fást á skrifstofu end-
urhæfingadeildar Land-
spítalans Kópavogi
(fyrrverandi Kópavogs-
hæli), síma 560-2700 og
skrifstofu Styrkt-
arfélags vangefinna, s.
551-5941 gegn heims-
endingu gíróseðils.
Í dag er föstudagur 8. júní, 159.
dagur ársins 2001. Medardusdagur.
Orð dagsins: Virðið hann fyrir yður,
sem þolað hefur slíkan fjandskap
gegn sér af syndurum, til þess að
þér þreytist ekki og látið hugfallast.
(Hebr. 12, 3.)
SIGRÚN Ármanns Reyn-
isdóttir skrifar í Velvak-
anda þann 31. maí sl. grein
sem ber yfirskriftina
„Merkir tómur ísskápur
góðæri?“ Þetta er góð grein
sem ætti ef allt væri eðli-
legt að ýta við einhverjum.
Það eru örugglega ekki
tómir ísskápar hjá ráðherr-
um, alþingismönnum og
verðbréfabröskurum, eins
og hjá elli- og örorkulífeyr-
isþegum, eins og lýst er í
áðurnefndri grein. Þess
vegna ætti Tryggingastofn-
unin að greiða elli- og ör-
orkulífeyrisþegum þannig
lífeyri frá ríkinu að ísskáp-
ar þessa fólks séu ekki tóm-
ir. Það er skömm að því að
stjórnvöld búi þannig að
þegnum sínum í öllu því
góðæri sem verið er að
vitna svo oft í.
Burt með fátækt og
eymd úr þjóðfélaginu hjá
einni ríkustu þjóð í heimi.
G.G.B.
Fyrirmyndarferða-
máti SVR? Leið 25
UM síðustu helgi var SVR
að breyta tímaáætlun sinni
í þetta sinn aðeins fyrir
einn vagn – leið 25. Breyt-
ingin er á þá leið að eftir kl.
níu á morgnana fer hann á
klukkustundarfresti. Hvað
gengur þeim mönnum eig-
inlega til sem stjórna
þessu? Í Mosfellsbæ búa
um 6.000 þús. manns og
fjöldi manns þarf að nota
vagna daglega til að kom-
ast til vinnu sinnar o.s.frv.
Hver eru skilaboðin til
þeirra? Þeir sem þurfa að
nota vagnana og geta ekki
komið sér á stað á „óska-
tíma“ SVR geta bara beðið
í klukkutíma eftir næsta
vagni. Enginn annar bæj-
arhluti eða úthverfi sem
SVR þjónustar býr við
þennan „frábæra fyrir-
myndarferðamáta SVR“.
Þar eru vagnar á 20 mín-
útna fresti allan daginn.
Ætli bæjaryfirvöld í Mos-
fellsbæ hafi samþykkt og
borgað fyrir þessa breyt-
ingu fyrir íbúa sína? – Þökk
sé þeim og SVR!
SVR-farþegi.
Lín og léreft
OKKUR langar að vita
hvað varð af versluninni
Lín og léreft, sem var í
Bankastræti fyrir skömmu,
en hefur nú verið lokað. Við
eigum þar inni gjafakort og
leit að eiganda hefur ekki
borið árangur. Við skorum
á eiganda að láta vita hvar
gjafakortið fæst endur-
greitt.
Fólk í Austurbænum.
Áskorun
til RÚV
HEIDI hafði samband við
Velvakanda og vildi skora á
RÚV að sýna meira af efni
frá Skandinavíu. Það er
mikið til af frábærum þátt-
um. Þeir hjá RÚV ættu að
taka þetta til athugunar.
Seðilgjald
Orkuveitunnar
MÉR var að berast inn-
heimtuseðill frá Orkuveitu
Reykjavíkur. Landsbank-
inn innheimtir seðilgjald,
kr. 200, og virðisaukaskatt,
kr. 49, samtals gerir þetta
249 kr. Er ekki allur kostn-
aður inni í verðlagningu
Orkuveitunnar? Ég vil
gjarnan fá svör við því frá
þeim er málið varðar.
Einar Vilhjálmsson.
Tapað/fundið
Canon-myndavél
tapaðist
CANON Prima-myndavél
tapaðist 8. apríl sl. í ferm-
ingarveislu í Seltjarnarnes-
kirkju. Hún var í litlum
poka merktum apóteki.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 561-1523.
Dýrahald
Kettlinga vantar
heimili
ÞRJÁ tíu vikna fresskett-
linga vantar góð heimili.
Upplýsingar í síma 897-
4015.
Kisa er týnd
KISA, sem er svarthvítur
skógarköttur (eldri dama),
hvarf frá heimili sínu í
Vogahverfi þann 27. maí sl.
Hún er með hálsól og
merkt. Þeir, sem geta gefið
einhverjar upplýsingar um
ferðir hennar eftir 27. maí
sl., vinsamlegast hafið
samband í síma 553-6520.
Fundarlaun.
Selma er fundin
EIGANDA Selmu langar
að senda sínar bestu þakkir
til allra þeirra er hjálpuðu
til við að finna hana. Selma
var týnd í tvo mánuði, en er
nú komin heim, öllum til
mikillar ánægju.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fólkið á lágu
laununum
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 afdrep, 4 lætur af
hendi, 7 nabbinn, 8 krók,
9 afreksverk, 11 geta
gert, 13 ýlfra, 14 kven-
dýrið, 15 heitur, 17 á
húsi, 20 bókstafur, 22
metti, 23 formóðirin,
24 skrika til, 25 hími.
LÓÐRÉTT:
1 sóðaleg kona, 2 hátíðin,
3 uppspretta, 4 kát, 5 fal-
legur, 6 kind, 10 stefnan,
12 for, 13 ekki gömul, 15
buxur, 16 rotnunarlyktin,
18 handleggir, 19 sund-
fugl, 20 hlífa, 21 heiti.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 kvalafull, 8 dulur, 9 aldan, 10 ill, 11 lírur, 13
launa, 15 byggs, 18 fisks, 21 tía, 22 lustu, 23 leyna, 24
handlanga.
Lóðrétt: 2 velur, 3 lærir, 4 fjall, 5 lyddu, 6 ódæl, 7 unna,
12 ugg, 13 ali, 15 ball, 16 gista, 17 stund, 18 falla, 19
stygg, 20 skap.
K r o s s g á t a