Morgunblaðið - 08.06.2001, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 65
DAGBÓK
AMERÍSKIR LÚXUS NUDDPOTTAR
Glæsilegir nuddpottar í sedrus
viðargrind. Innifalið í verði:
Vatnsnudd og loftnudd.
Einangrunarlok, ozone
bakteríuvörn, höfuðpúðar, ljós,
vetraryfirbreiðsla, trappa o.fl.
Engar leiðslur, nema rafm. 16
amp. Verð frá aðeins kr. 490
þús. stgr.
Tilbúnir til afhendingar.
VESTAN ehf., Auðbrekku 23, Kópavogi.
Símar 554 6171 og 898 4154.
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi,
s. 554 4433.
Kvartbuxur
Vinsælu kvartbuxurnar með
uppábrotinu eru komnar.
Kr. 1.990.
Pantanir óskast sóttar
20% afsláttur
af peysum, skyrtum, blússum
og pilsum föstudag og
laugardag
Opið laugardag kl. 11—16
TILBOÐ
TILBOÐ
Hverfisgötu 78,
sími 552 8980
HINDRUNARSAGNIR
bera nafn með rentu – þær
taka rými af mótherjunum
og koma oft í veg fyrir að
þeir geti lýst spilum sínum
af nákvæmi. En stundum
heldur makker á öllum
spilunum og þá beinist
hindrunin óviljandi að hon-
um. Það gerðist í þessu
spili frá æfingu landsliðs-
ins um síðustu helgi:
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ Á107654
♥ --
♦ 642
♣ 10965
Vestur Austur
♠ 98 ♠ DG2
♥ 8765 ♥ G4
♦ 95 ♦ Á1083
♣ ÁG873 ♣ KD42
Suður
♠ K3
♥ ÁKD10932
♦ KDG7
♣ --
Matthías Þorvaldsson og
Þorlákur Jónsson voru í
NS gegn Sigurbirni Har-
aldssyni og Bjarna Einars-
syni:
Vestur Norður Austur Suður
Bjarni Matthías Sigurbjörn Þorlákur
-- 2 spaðar Pass 3 hjörtu
Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar
Pass 5 tíglar Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Opnun Matthíasar er
veik með sexlit í spaða.
Matthías er á hættu gegn
utan hættu og í því ljósi
keyrði Þorlákur í slemmu,
þótt hann hefði svo sem
enga fullvissu fyrir því að
makker ætti ás í spaða eða
tígli. Bjarni lagði niður
laufás og Þorláki var létt
þegar hann sá spaðaásinn
birtast í borði. Það þýddi
að spilið var ekki vonlaust,
en hins vegar þurfti legan
að vera hagstæð – hjarta-
gosinn varð að falla og tíg-
ullinn helst 3-3. Þó var sá
aukamöguleiki fyrir hendi
að sami mótherji héldi á
lengd í tígli og spaða. Og
sú var raunin hér.
Þorlákur trompaði lauf-
ásinn, tók fjórum sinnum
hjarta og spilaði tígulkóng.
Sigurbjörn drap strax með
ás og spilaði laufi. Þorlák-
ur stakk og tók síðasta
trompið. Það var of mikil
pressa fyrir austur, sem
gat ekki valdað bæði tígul
og spaða, svo slemman
vannst.
Eftir á að hyggja virðist
ekki fráleitt að nota „Vo-
idwood“ í þessari stöðu, en
það er ásaspurning á
fimmta þrepi, sem útilokar
einn lit – eyðulitinn. Það
mætti hugsa sér að stökk
beint í fimm lauf við tveim-
ur spöðum væri slík spurn-
ing (og þá með spaða sem
tromplit til að byrja með),
en Matthías og Þorlákur
höfðu ekki komið sér sam-
an um þessa aðferð og Þor-
lákur hafði ekki áhuga á að
spila fimm lauf á eyðuna.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
LJÓÐABROT
Á SPRENGISANDI
Ríðum, ríðum og rekum yfir sandinn,
rennur sól á bak við Arnarfell.
Hér á reiki er margur óhreinn andinn,
úr því fer að skyggja á jökulsvell.
Drottinn leiði drösulinn minn,
drjúgur verður síðasti áfanginn.
Þei, þei! þei, þei! þaut í holti tófa,
þurran vill hún blóði væta góm,
eða líka einhver var að hóa
undarlega digrum karlaróm.
Útilegumenn í Ódáðahraun
eru kannske að smala fé á laun.
Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn,
rökkrið er að síga á Herðubreið.
Álfadrottning er að beizla gandinn,
ekki er gott að verða á hennar leið.
Vænsta klárinn vildi ég gefa til
að vera kominn ofan í Kiðagil.
Grímur Thomsen
Árnað heilla
70ÁRA afmæli. Á morg-un laugardaginn 9.
júní verður sjötug Ragna
Kristín Árnadóttir frá
Hafnarhólmi í Stranda-
sýslu, Ystaseli 21, Reykja-
vík. Hún tekur á móti ætt-
ingjum og vinum í
Þjónustumiðstöðinni Skóg-
arbæ, Árskógum 4, milli kl.
17 og 20 á afmælisdaginn.
50 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 10. júní verð-
ur Guðni Ingólfsson, Eyjum
1, Kjós, fimmtugur. Í tilefni
dagsins tekur hann á móti
gestum laugardaginn 9. júní
í Félagsgarði í Kjós milli kl.
19 og 24. Rútuferðir verða
farnar frá Meðalfellsvatni.
Í ESSEN í Þýskalandi hef-
ur sl. tvö ár verið haldin
skákhátíð til minningar um
Julius Borowski. Sá ágæti
maður lagði án efa töluverð-
an skerf til skákmenningar
Þýskalands, en burtséð frá
því eru minningarmót hans
skemmtileg. Staðan kom
upp í efsta flokknum
á milli stórmeistar-
anna Christopher
Lutz (2.614) og Oleg
Romanishin (2.559),
svart. 37. ...Be3! 38.
Rf3 Biskupinn var
friðhelgur sökum 38.
fxe3 Hxf1+ og
svartur vinnur. 38.
...Hxf3! Hvítur á sér
ekki viðreisnar von
eftir þetta, til þess
er kóngstaða hans of
veik. Framhaldið
varð: 39. gxf3 Dg5+
40. Kh1Hxf3 41.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
fxe3 Hxh3+ 42. Dh2 Hxh2+
43. Kxh2 dxe3 og hvítur
gafst upp. Lokastaða móts-
ins varð þessi: 1. Rustam
Kasimdzhanov (2.693) 6½
vinning af 9 mögulegum.
2.-3. Christopher Lutz
(2.614) og Emil Sutovsky
(2.604) 6 v. 4.-5. Oleg Rom-
anishin (2.559) og Rustem
Dautov (2.631) 6. Artur
Jussupov (2.645) 4½ 7.
Mikhail Gurevich (2.688) 8.
Klaus Bischoff (2.533) 9.
Friso Nijboer (2.580) 3 v. 10.
Sergey Smagin (2.613) 1½ v.
COSPER
Mamma, pabbi er að troða á kúlunum okkar.
KIRKJUSTARF
Í KVÖLD kl. 20:00 verður dansað í
kringum jólatré í safnaðarheimili
Landakirkju. Þetta jólaball er mara-
þon Æskulýðsfélags Landakirkju og
eru unglingar nú að safna áheitum
fyrir ballinu, en það mun standa yfir
í 12 tíma. Jólasveinninn mun kíkja
við um nóttina og gefa nammi.
Ástæðan fyrir þessu uppátæki er
sú að síðar í þessum mánuði mun
þessi hópur unglinga fara til Noregs
og Danmerkur á norrænt mót
KFUM & K, ferðin er dýr og er
þetta hluti af söfnun. Að sjálfsögðu
eru allir velkomnir að dansa í kring-
um jólatréð, og auðvitað mætum við
öll í okkar fínasta pússi, rétt eins og
þegar við förum á jólaball að vetri.
Eins og áður segir eru unglingarnir
að safna áheitum, en viljir þú gefa
áheit ertu velkomin í safnaðarheim-
ilið í kvöld – eða nótt og gefa áheit,
og kannski syngja með okkur ,,göng-
um við í kring um Með kveðju og von
um góðan stuðning.
Ólafur Jóhann Borgþórsson,
Æskulýðsfulltrúi Landakirkju.
Safnaðarstarf
Laugarneskirkja. Mömmumorgna-
konur hittast kl. 10 í Grasagarðinum
í Laugardal.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11–
12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédik-
un og biblíufræðsla þar sem ákveðið
efni er tekið fyrir, spurt og svarað.
Barna- og unglingadeildir á laugar-
dögum. Létt hressing eftir samkom-
una. Allir velkomnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Föstu-
dagskvöld kl. 21. Styrkur unga fólks-
ins. Dans, drama, rapp, prédikun og
mikið fjör.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl-
íufræðsla kl 10:00 Guðsþjónusta kl
11:00 Ræðumaður: Harald Wollan.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl.
10, guðsþjónusta kl 11. Ræðumaður:
Gavin Anthony.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10, guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður:
Frá Maranatha.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl.
10,guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður:
Frá Maranatha. Maranatha er hóp-
ur fólks sem ferðast um heiminn og
vinnur endurgjaldslaust í þágu
þeirra safnaða sem þau heimsækja.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnar-
firði: Guðsþjónusta kl. 11, biblíu-
fræðsla kl. 12. Ræðumaður: Styrmir
Ólafsson.
Landakirkja, kl. 20–08 Maraþon-
dansleikur utanfara í æskulýðsstarfi
Landakirkju og KFUM&K. Ung-
lingarnir safna áheitum fyrir utan-
ferð. Landakirkja verður opin virka
daga í sumar á milli kl. 11 og 12.
KEFAS: Breyttur samkomutími,
samkoma kl 19.30 í kvöld. Ræðumað-
ur: Helga R. Ármannsdóttir. Mikill
söngur og Guðsblessun. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Jólaball á sumriSTJÖRNUSPÁef t i r Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert ljúfur og úrræðagóð-
ur og hefur næmt nef fyrir
því sem forvitnilegt er og
skemmtilegt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú mátt ekki verða svo upp-
tekinn af smáatriðunum að
þú sjáir ekki skóginn fyrir
trjám. Sinntu vinum þínum,
sem alltaf standa með þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu það ekki koma þér úr
jafnvægi þótt þér séu settir
úrslitakostir. Stattu á þínu og
þá sýnir sig að andstæðing-
urinn hefur engin tromp á
hendi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Mundu að þú hefur sjálfur
mikið um það að segja hvern-
ig mynd aðrir fá af þér.
Sýndu sjálfsöryggi og þá
munu aðrir sjá þig í jákvæðu
ljósi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það ríður á að þú lokir ekki
augunum fyrir sumum þeirra
möguleika sem fyrir hendi
eru. Láttu óskhyggjuna ekki
ráða því hvernig þú sérð hlut-
ina.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Réttlætið sigrar að lokum.
Þar kemur að á þig verður
hlustað og málstaður þinn
borinn fram til sigurs. Sýndu
þolimæði þar til þetta gerist.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að virkja ímyndunar-
aflið og sköpunargáfuna. Það
myndi bjarga deginum ef þér
tækist að skapa þér skemmti-
legt verkefni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú átt í vændum endurfund
með gömlum vini. Þá gefst
þér loks tækifæri til að spyrja
spurninganna sem hafa lengi
brunnið á þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú mátt ekki vera svo skelk-
aður að þú leyfir þér aldrei að
njóta neins. Losaðu um og þú
munt sjá, að lífið er þess virði
að taka einhverja áhættu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er spurning, hvort þú átt
að eyða tíma og fyrirhöfn í þá
sem aldrei sjá neitt jákvætt
við nokkurn hlut. Þeir brenna
bara upp þinni orku.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki er allt gull sem glóir.
Farðu þér hægt í fjármálum,
kannaðu alla möguleika vand-
lega og mundu umfram allt að
hafa öryggið í fyrirrúmi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Reyndu ekki að þröngva fram
málum sem þú hefur í raun
engin tök á að fylgja eftir.
Kannaðu fyrst hvaða mögu-
leikar felast í stöðunni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu nú til þín taka bæði
heima fyrir og á vinnustað.
Það bíða þín verkefni á báð-
um stöðum sem þú getur
hreint ekki skorast lengur
undan.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.