Morgunblaðið - 08.06.2001, Side 67
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 67
ALMENNUR
DANSLEIKUR
með Geirmundi Valtýssyni
í Ásgarði, Glæsibæ,
í kvöld föstudagskvöldið
8. júní
Húsið opnað kl. 22.00.
Allir velkomnir!
Laugavegi 68, sími 551 7015
Opið til kl. 17 laugardag
KS
S E L E C T I O N
BURBERRY
L O N D O N
S A N D R A P A B S T
Ný sending
Dragtir,
kjólar
o.fl.
þessu á, og þá með mjög ötulu
starfi. Þetta rennur saman við
menningu og þarfir þjóðfélagsins
– það er grundvöllurinn að svona
listaskólum. Þeir verða að vaxa
úr grasrótinni og koma af okkar
hvötum. Íslenskur listdans verður
ekki til fyrr en Íslendingar fara
að semja dansana – og kenna
þá!“
Að sögn Báru stendur svo ým-
islegt til á þessum tímamótum.
„Það á að reyna að útvíkka
þetta svolítið. Úthverfi Reykja-
víkur hafa stækkað og borgin er
orðin svo breytt. Næsta vetur á
að reyna að mæta þörfum krakka
í grunn- og framhaldsskólum og
fara út í hverfin. Láta unga fólk-
ið dansa.“
Hugsjónir
Bára segir hreyfinguna sem
fylgir dansinum vera unga fólk-
inu ómetanleg. Í leiðinni læri það
svo skemmtilega listgrein og fái
innsýn í sköpun. Enn sem fyrr er
kynskiptingin þó óhagstæð karl-
peningnum.
„Það á nú að reyna að stíga
skref til að breyta því,“ segir
Bára. „Og þetta mun breytast hér
eins og í löndunum í kringum
okkur. Við þurfum bara að nota
sóknarfærið þar sem unga fólkið
er mjög opið fyrir dansinum.
Nýta þennan meðbyr; t.d. eru
samkvæmisdansar komnir inn í
grunnskólakerfið. Það mun gera
mikið að börn kynnist dansi strax
og hann sé ekki bara fyrir stelp-
ur, þetta sé jafn eðlilegt fyrir
stráka.“
Og Bára er hugsjónamann-
eskja, á því er ekki vafi. Ánægð
með starfsemi skólans og sann-
færð um að tilvera hans hefur
leitt gott af sér fyrir samfélagið.
„Það eina sem fer í taugarnar
á mér er að fólk sé alltaf að telja
þessi ár. Ég er rétt að byrja og á
a.m.k. eftir önnur 35 ár miðað við
allt sem ég þarf að gera. Þessi 35
ár hafa verið mjög fljót að líða.“
SKÓLINN fagnaði 35 ára afmæli
sínu með veglegri sýningu í
Borgarleikhúsinu 1. maí síðastlið-
inn. Þetta var fjölmennasta nem-
endasýning skólans frá upphafi
en um 400 manns tóku þátt í
henni. Skólinn var stofnaður
formlega árið 1967 í Suðurveri
við Kringlumýrarbraut og hefur
vaxið að styrk og stærð allar göt-
ur síðan. Innan skólans var unnið
mikið brautryðjendastarf fyrir
djassballett hérlendis, en framan
af gekk trauðlega að fá þetta
form viðurkennt til jafns við þær
dansgreinar sem fyrir voru. Í dag
er skólinn aðili að Dansráði Ís-
lands og Félagi íslenskra list-
dansara og eru nemendur sem
kennarar útskrifaðir þaðan ár
hvert.
Frjálst form
„Þetta varð nú meira svona
þróun en að það hafi ætíð verið
bjargfastur ásetningur að stofna
skóla,“ segir Bára mér, þar sem
hún situr í rúmgóðri skrifstofu
sinni. Hún vindur sér því næst í
að útskýra um hvað skólinn
snýst, þ.e. sjálfan djassballettinn.
„Þetta er listdans með frjálsara
tjáningarformi en klassískur list-
dans sem er okkar elsta form og
þróaðasta. Þar er búið að ná
ákveðinni hæð sem verður ekki
toppuð – það form er eiginlega
komið út að enda og verður vart
betrumbætt úr þessu. Í frjálsa
listdansinum hefur þú meira
rými. Þú getur búið til spor og
hreyfingar sem hafa aldrei sést
áður. Það er nærri því óhugsandi
í klassískum ballett þar sem allt
byggist á hefðum.“
Bára segir skólann vera ungan
af listaskóla að vera. „Það tekur
ekki minna en mannsævi að koma
Lífsdans
Báru
JSB 35 ára
arnart@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Bára Magnúsdóttir hefur staðið við stjórnvölinn í JSB í 35 ár.
Morgunblaðið/Jón SvavarssonBára ásamt starfsmönnum.
Jassballettskóli Báru, eða JSB, átti 35 ára
afmæli á dögunum. Arnar Eggert
Thoroddsen spjallaði við Báru Magnús-
dóttur af því tilefni.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Frá Nemendasýningu JSB í Borgarleikhúsinu 1. maí 2001.
Upptekinn
(Held-up)
G a m a n m y n d
Leikstjóri: Steve Rash. Aðal-
hlutverk: Jamie Foxx, Nia Long.
Bandaríkin 1999. Skífan. Bönnuð
innan 12 ára.
UNGUR blökkumaður á uppleið
flækist inn í rán á bensínstöð
dýpst í Suðurríkjunum, sem vit-
anlega eru ekki kjörlendur blökku-
manna.
Myndin fellur
sem sagt í flokk
þeirra gaman-
mynda sem kenna
má við þorsk á
þurru landi. Sögu-
þráðurinn er í
hæsta máta
skrykkjóttur og
velflestur vand-
ræðahátturinn,
sem á að vekja hlátur, fellur kylli-
flatur og ekki nýtur myndin góðs
af leikaraliðinu, sem virðist mest-
allt hafa verið fengið á skransölu
einhvers staðar í útjaðri Holly-
wood.
Þessa ber að varast nema í
áberandi myndbandaþurrki.
MYNDBÖND
Á röngum stað
á röngum tíma
Heiða Jóhannsdótt ir
Hr. Slysagildra
(Mr. Accident)
S p e n n u m y n d
Leikstjóri: Yahoo Serious.
Aðalhlutverk Yahoo Serious, Helen
Dallimore. Ástralía/Bandaríkin,
2000. Góðar stundir. 90 mín.
Öllum leyfð.
MAÐUR hefur varla tölu yfir alla
þá ungu karlgamanleikara sem eru
að reyna að hasla sér völl með því
að skapa gamanpersónur sem eru
nokkurs konar erki-
aular. Ég hélt t.d.
við fyrstu sýn að
höfundur og leikari í
þessari fremur
slöppu áströlsku
gamanmynd væri sá
hinn sami og gengur
undir nafninu Gul-
rótarhaus og lék í
mjög leiðinlegri
gamanmynd á dögunum. Þegar
nánar er að gáð er hér um að ræða
einn vinsælasta gamanleikara Ástr-
ala og sló umrædd gamanmynd í
gegn þar í landi. Ég get engan veg-
inn séð hvað andfætlingar okkar
sáu við myndina sem byggist á
mjög dæmigerðu og ófrumlegu
spennuplotti, þar sem aðalsöguhetj-
an, sem er klaufi og auli hinn mesti,
vinnur ástir brjóstgóðrar ljósku í
lokin. Eitt og annað sýnir þó fram á
örlítinn metnað hjá Yahoo Serious.
Skarphéðinn Guðmundsson
Aulahúmor
í Ástralíu