Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 70
FÓLK Í FRÉTTUM
70 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HINNI margumtöluðu stórmynd
Disneys, Pearl Harbor, hefur verið
tekið opnum örmum eins og reynd-
ar var búist við. Með gríðarlega öfl-
ugu markaðsátaki tókst Disney í
raun hið ómögulega vestanhafs, að
gera frumsýningarhelgi þessarar
ríflega þriggja klukkustunda löngu
myndar að einni þeirri arðbærustu í
sögunni og er hún nú á góðri leið
með að verða sú aðsóknarmesta það
sem af er árs. Um síðustu helgi var
myndin svo frumsýnd í fyrstu átta
löndunum utan Bandaríkjanna;
Bretlandi, Ítalíu, Rússlandi, Suður-
Afríku, Brasilíu, Singapúr, Malasíu
og Írlandi og fór aðsóknin fram úr
björtustu vonum og gaf til kynna að
myndin myndi ekki síður ganga vel
utan Bandaríkjanna.
„Við frumsýndum myndina á lyk-
ilsvæðum og viðbrögðin voru alveg
ótrúleg,“ segir Mark Zoradi yfir-
maður alþjóðadreifingar hjá Buena
Vista International, undirfyrirtæki
Disney-risans. „Sannarlega já-
kvæðari en bjartsýnustu menn
höfðu gert sér vonir um en við
sjáum greinilega fram á best
heppnuðu frumsýningu á leikinni
mynd í sögu Disneys.“
Nú um helgina bætast við önnur
helstu markaðssvæði Hollywood-
myndanna þ.á m. Ísland.
Ástarsaga fremur
en stríðsmynd
Aðspurður um hvort hann hafi
haft áhyggjur af því að myndin
fengi dræmari móttökur utan
Bandaríkjanna í ljósi viðfangsefnis
hennar, áréttar Zoradi að hið um-
talaða sögusvið sé í raun ekki aðal-
atriði myndarinnar heldur sé það í
bakgrunni rómantískrar ástarsögu
sem ætti að höfða til allra, óháð því
hvaðan þeir séu. „Ég myndi því
miklu fremur flokka myndina sem
rómönsu heldur en stríðsmynd. Þú
sérð að í þriggja klukkutíma mynd
tekur sjálf árásin á Pearl Harbor og
önnur orrustuatriði ekki nema ríf-
lega 50 mínútur samanlagt.“
En eru markaðsmenn eins og
Zoradi ekki skelkaðir yfir því að
þurfa að glíma við þriggja tíma
mynd? „Eini höfuðverkurinn er, að
það er ekki hægt að sýna slíka
mynd eins oft og þar af leiðandi er
erfiðara að slá einhver frumsýning-
armet, eins og raunin varð.“
En stóru kvikmyndahúsin hafa
samt komið í veg fyrir að þetta
verði eitthvað stórvægilegt vanda-
mál. Síðan verðum við einfaldlega
að leggja áherslu á að myndin fái að
ganga í stóru sölunum lengur en
gengur og gerist.“
Öflugasta markaðsherferðin
Zoradi segir jafnframt að vegna
lengdarinnar hafi Disney lagt ríka
áherslu á það við dreifingaraðila
myndarinnar um heim allan, að þeir
frumsýndu Pearl Harbor í eins
mörgum sýningarsölum og þeir
mögulega gætu. Til marks um það
forsýndu Sambíóin, dreifingaraðil-
inn hér á Íslandi, myndina í fleiri
sýningarsölum og víðar um landið
en áður hefur tíðkast hérlendis.
Zoradi fullyrðir að Disney hafi
aldrei rekið eins öfluga og úthugs-
aða markaðsherferð og vegna Pearl
Harbor, „enda leyfi ég mér að segja
að þetta sé metnaðarfyllsta mynd
Disney.“
Engin örvænting
Hann vill þó ekki viðurkenna að
þessi öfluga markaðssetning stafi af
einhverri örvæntingu yfir kostnaði
myndarinnar, sem er sagður nema
140 milljónum dollara (14,7 millj-
örðum króna): „Þegar við fengum
loksins að sjá fyrstu útgáfu mynd-
arinnar, varð okkur ljóst, að hún
gæti fengið metaðsókn með réttri
markaðssetningu. Lengdin ýtti síð-
an enn frekar undir mikilvægi öfl-
ugrar markaðssetningar.“
Zoradi tekur hins vegar undir að
vegna kostnaðarins hafi krafan um
að myndin slægi í gegn orðið meiri,
en heldur fram að hún sé tilkomin
vegna fjölmiðla og keppinauta:
„Það er vissulega slæmt þegar
væntingar verða of miklar. En hvað
okkur varðar þá er markmiðið að
myndin fái mestu aðsókn af leikn-
um myndum í sögu Disneys og slái
þar með Armageddon og The Sixth
Sense út. Það hvarflar hinsvegar
ekki að okkur að bera myndina
saman við Titanic, sem er alveg ein-
stakt fyrirbrigði í kvikmyndasög-
unni.“
Minni þjóðernisrembingur
Aðspurður um hvort beitt sé öðr-
um herbrögðum í markaðssetningu
myndarinnar í Bandaríkjunum og
annars staðar í heiminum, segir
Zoradi að herbrögðin séu að mestu
leyti hin sömu. Þó sé, af skiljanleg-
um ástæðum, reynt að draga úr
áherslum á þjóðerniskenndina og
hetjulega framgöngu bandarískra
herliða í síðari heimstyrjöldinni, ut-
an Bandaríkjanna. Þessi í stað sé
kastljósinu beint að því hversu
miklum straumhvörfum árásin á
Pearl Harbor olli, hversu mikilvæg-
an þátt hún spilaði í framvindu
heimstyrjaldarinnar og þeim áhrif-
um sem hún hafði á venjulegt fólk.
Engir „Japanaskrattar“
Hvað varðar sögusagnir um að
sýnd verði klippt útgáfa í Japan þar
sem minni áhersla sé lögð á að Jap-
anir hafi verið „vondu“ mennirnir
segir Zoradi þær sannar, myndinni
verði breytt örlítið: „Dæmi um það
er, að við höfum látið ritskoða ávít-
ur sem bandarískur hermaður
sendir japönskum með orðunum
„Jap sucker (Japanaskratti) “ í
„Jap“. Þetta eru smávægilegar
breytingar.“
Hvað varðar gagnrýnina að geng-
ið hafi verið of langt í því að móðga
ekki Japani, að of fögur mynd sé
birt af þeim í myndinni segir Zor-
adi, að forðast hafi verið að draga
upp mynd af Japönum sem „stríðs-
óðum villimönnum“, eins og Holly-
wood hefði alltof oft gert. „Við mun-
um leggja sérstaka áherslu á það í
Japan að myndin sé fyrst og fremst
rómantísk ástarsaga.“
Það verður seint hægt að taka
undir að Pearl Harbor hafi hlotið
einróma lof gagnrýnenda, en þeir
virðast keppast um að finna henni
smellin fúkyrði. Zoradi viðurkennir
að slík viðbrögð séu náttúrlega
aldrei gott veganesti fyrir mynd, en
hann bendir á að viðbrögð hins al-
menna bíóunnanda hafi verið á allt
annan veg, sem sjáist best á góðri
aðsókn og jákvæðri útkomu skoð-
anakannanna sem gerðar hafa verið
meðal fyrstu bíógesta: „Ég minni á
að margir gagnrýnendur rifu Tit-
anic í sig.“
Pearl Harbor verður frumsýnd um allt land í dag
„Metnaðar-
fyllsta mynd
Disney“
Ein umtalaðasta mynd sumarsins, Pearl Harbor,
verður frumsýnd í dag hérlendis. Skarphéðinn
Guðmundsson ræddi af því tilefni við Mark Zoradi,
yfirmann Buena Vista International, alþjóðadeild-
ar Disney-kvikmyndaveldisins, um markaðssetn-
ingu og móttökur þessarar risamyndar.
Að sögn Zoradi er Pearl Harbor mun frekar ástarsaga en stríðsmynd.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Mark Zoradi hitti Sam-félagana Þorvald Árnason og Árna Samúelsson á kvikmyndahátíðinni í Cannes á dögunum.
skarphedinn@mbl.is