Morgunblaðið - 26.06.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.06.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ                  Til sölu VW Golf Comfort 1.6 bensín, fyrsti skrán.dag. 05.05.1998, ekinn 60 þ. km hvítur, beinskiptur, 3 dyra. Verð 1.080.000 kr. RÍKISSTJÓRN Íslands hefur samþykkt viljayf- irlýsingu um framlag Íslands í sérstakan alheims- sjóð (Global AIDS and Health Fund) sem nota á í baráttunni gegn alnæmi í heiminum. Í gær hófst í New York þriggja daga aukaallsherjarþing Sam- einuðu þjóðanna um alnæmisvandann. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Jón Kristjánsson, sem er meðal þeirra sem sitja þing- ið, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærdag að endanlegt framlag hefði ekki verið ákveðið en fjárhæðin myndi ráðast af framvindu þingsins sem og hvernig sjóðurinn yrði rekinn. Jón sagði að Norðmenn og Bandaríkjamenn hefðu tilkynnt fjárhæðir. Norðmenn ætla að hans sögn að gefa einn milljarð norskra króna á næstu fimm árum og Bandaríkjamenn 200 milljónir bandaríkjadoll- ara á þessu ári og 400 milljónir dollara á næsta ári. „Hér hafa talað ýmsir þjóðhöfðingjar frá Afr- íkuríkjum og allir talað um sameiginlega ábyrgð mannkynsins í að berjast gegn þessari plágu,“ segir Jón og bætir við að ráðherra þróunarmála í Noregi, Anne Sydnes, hafi sagt í ræðu sinni að það væri hluti af baráttunni við fátækt í heim- inum að berjast gegn alnæmi. Þá hefðu verið dregnar upp ýmsar myndir og í ræðu Colins Pow- ell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefði komið fram að tvö þúsund manns væru í ráðstefnusaln- um og það væru jafnmargir og myndu smitast af alnæmi á næstu þremur klukkutímum í veröld- inni. Þá hafi margir í ræðum sínum líkt barátt- unni við styrjöld. Stjórnvöld þurfa að hafa forgöngu um langtímaáætlanir Jón flutti ávarp í gær og lagði í ræðu sinni áherslu á að árangur hefði náðst í baráttu gegn alnæmi. Hann sagði það m.a. hafa gerst með því að bæta stöðu kvenna í heiminum, með almennri fræðslu, með því að tryggja þeim sem sýktir eru aðgang að lyfjum og síðast en ekki síst með virkri þátttöku þeirra í baráttunni gegn alnæmi sem smitaðir eru. Jón sagði að baráttan stæði um að halda faraldrinum í skefjum og draga úr honum eftir mætti en HIV-sýking væri viðvarandi sjúk- dómur sem krefðist ævilangrar meðferðar. Stjórnvöld allra ríkja þyrftu því að hafa forgöngu um langtímaáætlanir sem miða að því að draga úr félagslegum og fjárhagslegum áhrifum faraldursins. „Þau þurfa að sjá til þess að rétta hlut þeirra þjóðfélagshópa sem misrétti eru beitt- ir og eru því í aukinni áhættu fyrir smiti. Þau þurfa að stuðla að því að þeim markmiðum sem sett eru til að draga úr faraldrinum verði náð.“ Dreifing sjúkdómsins í heiminum er ekki jöfn og verst sett eru mörg af fátækari ríkjum heims. „Heilu kynslóðirnar af ungu fólki falla frá í ótíma- bærum dauðdaga. Stofnanir samfélaga riðlast. Fátækt eykst. Hagvexti og stöðugleika er stefnt í voða. Í sumum af fjölmennustu ríkjum heimsins er faraldurinn enn á byrjunarstigi. Nái farald- urinn að breiðast út þar mun hann valda meiri þjáningum en orð fá lýst.“ Jón sagði ennfremur að þótt lyf gegn HIV- sýkingum björguðu mannslífum og gætu dregið úr líkum á því að sýkt móðir smitaði barn sitt, gögnuðust lyfin ekki nema að þau kæmust til þeirra sem á þeim þyrftu að halda. Það yrði ein- ungis gert með því að heilbrigðisþjónustan í þjáð- um löndum væri starfshæf. „Heilbrigðisþjón- ustuna verður að efla. Öðruvísi komumst við ekki áleiðis.“ Um þrjú þúsund fulltrúar hvaðanæva úr heim- inum sitja ráðstefnuna. Komið hefur fram í erind- um að talið er að 22 milljónir manna hafa látist af völdum alnæmis. Þá eru 36 milljónir taldar sýktar og er ástandið sérstaklega alvarlegt í sunnan- verðri Afríku þar sem talið er að um 25 milljónir manna séu sýktar. Heilbrigðisráðherra á aukaallsherjarþingi SÞ um alnæmisvandann Fátækustu ríkin verst sett freistuðu gæfunnar í þeim rúmlega tuttugu vötnum sem boðið var upp á ókeypis veiði í. Almenn skoðun manna var sú að dagurinn hefði heppnast vel en það fylgdi ekki sögunni hvort stórfiskarnir hefðu látið á sér kræla. VEIÐIDAGUR fjölskyldunnar var haldinn á sunnudag. Landeigendur og stangveiðifélög buðu almenningi ókeypis veiði þann dag vítt og breitt um landið. Margir nýttu sér tækifærið og héldu með fjölskylduna út á land og Veiðidagur fjölskyldunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg VEL hefur veiðst af úthafskarfa á Reykjaneshryggnum síðustu daga. Skipin hafa verið að fá 40–60 tonn á sólarhring, eða eins og frystigeta þeirra leyfir. Að sögn Trausta Eg- ilssonar, skipstjóra á Örfirisey RE, hafa aflabrögð verið þokkaleg allt frá því á sjómannadag. „Það hefur verið ágætis nudd hjá skip- unum, aflinn venjulega um tvö tonn á togtímann. Það verður að teljast vel viðumamdi, enda stend- ur slíkur afli undir fullri vinnslu hjá flestum.“ Nú eru 25 íslenskir togarar að úthafskarfaveiðum á Reykjanes- hrygg, flest á litlu svæði um 150 sjómílur suðvestur af Reykjanesi. Trausti segir að stundum verði ansi þröngt um skipin en sam- vinnan á miðunum gangi vel og menn séu sáttir. Þá voru einnig nokkur íslensk skip nokkru sunnar undir Reykjaneshrygg í gær. Trausti sagði að nokkur erlend skip væru að veiðum í svokölluðum „Krika“ þar sem mætast landhelg- islínur Íslands og Grænlands. Helga María AK kom inn til heimahafnar á Akranesi í fyrrinótt með fullfermi, eða 280 tonn af af- urðum, eftir 11 daga veiðiferð á Reykjaneshrygg. Afli upp úr sjó er um 500 tonn og er verðmætið um 50 milljónir króna. Ágæt veiði í úthafinu SEÐLABANKI Íslands hefur samninga við erlendar lánastofnanir um lántökuheimildir sem bankinn getur notað til að grípa inn í á gjald- eyrismarkaði. Að sögn Birgis Ísleifs Gunnarssonar seðlabankastjóra nemur fjárhæð þessara samninga bankans samtals um 70 – 80 millj- örðum króna miðað við gengisþróun undanfarið. Birgir Ísleifur segir að skipta megi þessum lánsheimildum Seðla- bankans í tvenns konar lántöku- heimildir. Annars vegar eins og að ofan er lýst þar sem bankinn er með samninga upp að ákveðnu hámarki. Slíkir samningar eru við Chase Man- hattan-bankann upp á 200 milljónir bandaríkjadala, hjá Alþjóðagreiðslu- bankanum BIS í Basel upp á 75 milljónir dollara og hjá þýska DePfa- bankanum er í gildi samningur upp á 250 milljónir dollara. Sá samningur var undirritaður í byrjun febrúar. Þar að auki er samningur milli nor- rænu seðlabankanna um lán allt að 200 milljónir evra. Ef farið er fram á hærri fjárhæð en 200 milljónir evra skal það tekið fyrir með jákvæðum anda eins og stendur í texta samn- ingsins. Þessar línur eru notaðar til vara, segir Birgir Ísleifur. Við inngrip eins og í síðustu viku sé notast við fjölda minni samninga sem bankinn hafi gert við erlenda viðskiptabanka en þá er samið um það hverju sinni á hverjum tíma. Um verulegar fjár- hæðir er að ræða í sumum tilvikum. Gjaldeyrisforði bankans er að lág- marki 34 milljarðar króna í hinum ýmsu myntum og miðast við þriggja mánaða innflutning sem er algeng regla hjá seðlabönkum. Ef gjaldeyrisforðinn er yfir þeim mörkum getur hann verið notaður til að selja gjaldeyri og kaupa krónur. Ef hann er hins vegar í lágmarki verður bankinn að nýta sér lána- samninga við erlenda aðila. Breytingar á gjaldeyrismarkaði og erlend staða Seðlabankans efld Verulegar lántöku- heimildir Seðlabanka Þessi fjölskylda gerði sér glaðan dag við Þingvallavatn á veiðidegi fjölskyldunnar. ♦ ♦ ♦ VALGERÐUR Sverrisdóttur, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, vonast til að á ríkisstjórnarfundi í dag verði afgreiddar tillögur hennar um hvernig staðið verður að sölu Lands- banka Íslands hf. Valgerður sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fyrr í mán- uðinum hefði hún kynnt í ríkisstjórn tillögur um hvernig farið yrði í söl- una á Landsbankanum. Umræðum um málið hefði ekki lokið vegna þess að það hefði verið til áframhaldandi vinnslu, en nú væri komið að því að ljúka afgreiðslu þess að hennar mati. Valgerður sagði aðspurð að fyrir lægi að fyrst yrði farið í sölu á Landsbankanum en beðið með sölu á Búnaðarbankanum. Auk sölu á hlutafé til almennings og tilboðssölu yrði sérstaklega hugað að sölu til er- lends kjölfestufjárfestis. Valgerður bætti því við aðspurð að hún vonaðist til að hægt yrði að taka fyrstu skrefin varðandi sölu Lands- bankans síðar á þessu ári. Ríkisstjórnin ræðir Lands- bankasölu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.