Morgunblaðið - 26.06.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
hefur samþykkt nýtt deiliskipulag
fyrir miðbæjarsvæðið og hefur því
verið vísað til Skipulagsstofnunar til
staðfestingar. Frestur til að skila inn
athugasemdum rann út 11. júní síð-
astliðinn en alls bárust 11 athuga-
semdir frá íbúum og hagsmunaaðil-
um. Samkvæmt deiliskipulaginu er
ráðgert að rífa nokkur hús, meðal
annars við Austurgötu og Strand-
götu.
Í umsögn bæjarskipulags vegna
athugasemda sem bárust við auglýs-
ingu vegna tillögu að deiliskipulaginu
er megininntak athugasemdanna
kynnt og sett fram tillaga að svari.
Alls bárust fjórar athugasemdir
frá hagsmunaaðilum á svokölluðum
reiti 1 sem afmarkast af Strandgötu,
Reykjavíkurvegi, Austurgötu og
Linnetsstíg.
Hæstu bóta krafist
Í bréfi frá íbúum á Austurgötu 4a
er fyrirætlunum um að rífa húseign
þeirra mótmælt. Segir í bréfinu að
verði mótmæli þeirra ekki tekin til
geina sé krafist „hæstu mögulegra
bóta“.
Fram kemur í svari skipulags-
stjóra að ef stækka eigi bókasafn til
suðurs í framtíðinni eða ef hentugt og
samhangandi skrifstofuhúsnæði
verði í byggingum umhverfis torgið
sé nauðsynlegt að gera ráð fyrir að
húsið hverfi. Ennfremur segir að
húsið falli ekki undir þjóðminjalög og
hafi ekki listrænt gildi frá skipulags-
legum sjónarhóli. Lagt er til að eig-
endum verði gefinn kostur á bótum,
bærinn leysi til sín viðkomandi eignir
eða nýti sér forkaupsrétt þegar eign-
arhlutar í húsinu verða boðnir til
sölu.
Íbúi við Austurgötu 10 til 10b mót-
mælir því að húseign hans nr. 10
verði rifin en ella að honum verði
greiddar bætur fyrir rýrnun á verð-
mæti eignarinnar.
Í svari skipulagsstjóra er vakin at-
hygli á því að ekki sé um nýjar fyr-
irætlanir að ræða því samkvæmt
gildandi deiliskipulagi sé gert ráð
fyrir að Austurgata 10 til 10b víki.
Ekki er tekið undir sjónarmið um að
verið sé að rýra verðmæti fasteign-
arinnar eða að nýtingarmöguleikar
hennar skerðist.
Húsafriðunarnefnd styrkir
endurbætur á húsum
Þá er tillögu eiganda Súfistans um
að byggja 500m2 viðbótarbyggingu
við Strandgötu 9 hafnað.
Athugasemdir bárust einnig frá
hagsmunaaðilum á reit 5 sem af-
markast af Strandgötu, Mjósundi,
Austurgötu og Lækjargötu.
Íbúar á Strandgötu 19 mótmæla
fyrirætlunum um að bakhús hússins
nr. 19 verði rifið þar sem það sé óað-
skiljanlegur hluti af framhúsinu,
meðal annars vegna lagnakerfis.
Í svari bæjarskipulags er lagt til að
komið verði til móts við athugasemd-
ir vegna niðurrifs á þann hátt að hús-
inu verði breytt þannig að heimilt sé
að rífa viðbygginguna. Bent er á að
Húsafriðunarnefnd ríkisins styrki
endurbætur á húsum sem falla undir
þjóðminjalög eins og hús nr. 19 geri.
Bæjarstjórn samþykkir nýtt deiliskipulag fyrir miðbæinn
Stendur til að rífa
hús í Austurgötu
Hafnarfjörður
„EINN, tveir, þrír, fjórir, fimm,
Dimmalimm,“ glumdi við og fimm-
tán börn, ásamt nokkrum for-
eldrum, urðu að myndastyttum.
Hópurinn var saman komin í Mos-
fellsbæ, á lengsta kvöldi ársins og
rifjuðu foreldrarnir upp leikina í
gamla daga á meðan mörg börnin
voru að kynnast sumum leikjunum í
fyrsta sinn.
Tilefnið var Æskuleikir Mosfells-
bæjar, sem er verkefni þar sem
Íþrótta- og tómstundaskóli bæj-
arins stendur fyrir útileikjum á
sparkvöllum hverfanna.
„Hugmyndin er að kenna börn-
unum að nýta þessa velli miklu bet-
ur en þau gera. En krakkarnir
koma hingað núna og við sýnum
þeim hvað hægt er að gera á vell-
inum,“ sagði Hlynur Guðmundsson,
skólastjóri Íþrótta- og tómstunda-
skóla Mosfellsbæjar, og bætti því
við Æskuleikirnir væru einu sinni í
viku í einn mánuð yfir sumartím-
ann. Tilkynningum væri dreift í hús
og klukkutíma fyrr mæti leiðbein-
endurnir til að smala börnum sam-
an. „Börnin eru alltaf til í að fara út
í leiki, sérstaklega á þessum árs-
tíma,“ sagði hann og leit yfir hóp-
inn, sem var upptekinn í brennó, en
um sextíu útfærslur eru til af þeim
gamla leik.
Stjörnustríð en ekki brennó
Hlynur sagði að það þyrfti alltaf
að vera að rifja þessa leiki upp.
Einnig þyrfti oft að nútímavæða
leiki. Til dæmis leiki börnin sér í
„Stjörnustríði“ og skipti sér í lið
Loga geimgengils gegn liði Svart-
höfða en í rauninni væru þau í
„brennó“.
Að mati Hlyns eru sumir af þess-
um leikjum hreinlega að deyja út.
Hins vegar kæmi oft í ljós að leik-
irnir hefðu einungis skipt um nafn
og sem dæmi nefndi hann leikinn
„Fallin spýta“ sem allir kunnu í
gamla daga en börnin í dag færu
aftur á móti í „Eina krónu“.
Frænkurnar Lilja Birna Stef-
ánsdóttir, 13 ára, og Erna Rut Pét-
ursdóttir, 8 ára, voru þátttakendur
í leikjunum á Víðiteigsvelli. Erna
sagðist hafa tekið áður þátt í svona
leikjakvöldi í Mosfellsbæ og sér
þætti stundum skemmtilegt í leikj-
um en hún vildi reyndar ekki alltaf
vera með. Lilja er hins vegar frá
Akureyri og var stödd í heimsókn
hjá frændfólki. „Við vorum mjög
dugleg að fara í leiki en erum það
ekki eins núna. Ég átti einu sinni
heima í blokk og þá voru fleiri
krakkar í kring og meira um leiki.
En núna er ég flutt annað þar sem
er minna um þetta,“ sagði hún.
Þegar Erna var spurð hvaða úti-
leikir væru vinsælir taldi hún upp
„skotbolta“ og „þrí-snerta-hlut“.
„Ég fer ekki oft út í leiki eftir
kvöldmat á sumrin. Stundum verð
ég að vera heima og stundum leigj-
um við okkur vídeó. Ég horfi svolít-
ið mikið á vídeó, mér finnst það
gaman, en ekkert mikið skemmti-
legra en að vera úti í leikjum,“
sagði sú yngri.
„Vantar frumkvæði“
Bjarni Harðarson, faðir tveggja
drengja, fylgdi þeim yngri, 6 ára
patta, á Æskuleiki. Sá hafði komið
heim og viljað fara en fannst örugg-
ara að hafa pabba með. „Dreng-
irnir eru miklu frískari og
skemmtilegri þegar þeir koma
heim á kvöldin eftir útiveruna. Þeir
eru einfaldlega þreyttari en þeir
verða pirraðir og leiðinlegir af því
að hanga yfir tölvunum,“ sagði
Bjarni.
Erla Gísladóttir var einnig á
Víðiteigsvöllum þetta kvöld. „Við
erum með barnabarnið okkar
hérna, fimm ára dreng, sem býr í
Connecticut í Bandaríkjunum.
Hann kemur til Íslands einu sinni á
ári,“ sagði hún. „Þú sérð ekki barn
að leik úti í Bandaríkjunum eins og
þú gerir hérna heima. En reyndar
finnst mér það vera að hverfa hér á
landi,“ sagði Erla um leið og hún
horfði á ungu kynslóðina ákafa í
leikjunum sem hún sjálf skemmti
sér við sem barn.
Gömlu útileikirnir rifjaðir upp í hverri viku
„Eina krónu fyrir mér“
Mosfellsbær
Einbeitinguna skorti ekki.
Með bros á vör í útileikjum.
Morgunblaðið/Billi
Frænkurnar Lilja Birna og Erna Rut.